Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 51
I
4
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 51
BREF TIL BLAÐSINS
Verðlaunaleikir — án verðlauna
Frá Jóni Arnari Jónssyni:
FYRIR skömmu, eða réttara sagt
frekar löngu, varð mér litið inn á
„glæsilegan" vef Dagblaðsins-Vísi,
vísis-vefinn svokallaða. Þetta var
stuttu eftir að vefurinn hafði verið
opnaður, og það sem vakti helst at-
hygli mína var fjöldi leikja sem
boðið var uppá. Skyndilega fann ég
alia löngun mína til að fræðast um
málefni líðandi stundar og ástandið
í Albaníu hverfa, og geysilega
gróðafíkn grípa mig. Eg fann
hvernig ég fór allur að skjálfa af
æsingi og áður en ég vissi af hafði
ég tekið þátt í öllum getraunum, nú
skyldi ég vinna - og það stórt. Það
var því mikil gleði sem greip mig
Landið var
, fagurt og frítt
nokknim dögum síðar, er ég leit í
tölvupóstinn minn og sá að ég hafði
fengið tölvupóst frá Vísi. Hafði ég
unnið glæstan vinning? Já, ég hafði
unnið. Eg hafði unnið hvorki meira
né minna en hamborgara-veislu
fyrir fjóra frá McDonalds, vining-
urinn yrði sendur heim eftir
nokkra daga.
Kjöt í frauði
Nú er það ekki svo að ég sé sólg-
inn í kjöt í frauð-brauði, með
tómatsósu og laukbitum, en mér
finnst það bara hálf dapurt að hafa
ekki fengið vinninginn minn ennþá.
Nú eru liðið næstum heilt sumar,
heilt sumar þar sem ég hef beðið
eftir bréfberanum á hverjum degi,
en aldrei fengið bréfið sent frá
McDonalds. Ég veit ekki hvorum
er um að kenna, McDonalds eða
Vísi, en eitt er víst að ég kem ekki
til með að taka þátt í fleiri leikjum
hjá Vísi. íslendingar og íbúar Vest-
mannaeyja láta ekki bjóða sér
svona aumingjaskap. Förum frek-
ar á vef Morgunblaðsins! Þar eru
engin fölsk gylliboð sem draga frá
manni alla löngun í lestur frétta.
JÓN ARNAR JÓNSSON
Mávahrauni 4
220 Hafnarfirði.
BOMRG
Jarðvegsþjöppur og hopparar
^ Gæði á góðu verði!
' Skútuvogi 12A, s. 568 1044.
Frá Jóni Ózuri Snorrasyni:
FYRIR ekki svo löngu setti Guð-
mundur P. Ólafsson, náttúrufræð-
ingur og rithöfundur, niður þjóð-
fána íslendinga dreginn í hálfa
stöng á svæði því sem nú heyrir til
svokallaðri Hágöngumiðlun á máli
Landsvirkjunar. Það var hans síð-
asta tilraun til að mótmæla því _að
gríðarstóru landsvæði á hálendi Is-
lands yrði sökkt. Mér sýndist sem
á flaggstöngina væri skráð tilvitn-
un í Island Jónasar Hallgi'ímsson-
ar og var það vel til fundið hjá Guð-
mundi. Yfirmenn laga og reglna
þessa sama Islands kvöddu síðan
fulltrúa sinn á vettvang til að taka
niður þjóðfánann svo hann yrði
ekki fyrir þeirri smán að hverfa í
hið manngerða lón sem nota skyldi
til raforkuframleiðslu fyrir stóriðj-
ur erlendra auðhringa. I kjölfarið
gæti svo farið að Guðmundur yrði
lögsóttur fyrir verknað sinn því að
mati þeirra sem með lögin fara hef-
ur hann vanvirt íslenska þjóðfán-
ann.
Hér er um tvo verknaði að ræða.
Annars vegar að sökkva fána sem
er táknræn athöfn og hægt er að
styðja siðferðisrökum en hins veg-
ar að sökkva landi til að fóðra er-
lenda auðhringa á rafmagni og
stutt er með lögum og leyfum sem
enginn virðist geta hróflað við.
Spyrja má hvor þessara verknaða
er meiri glæpur?
I mínum huga er enginn vafi á
svari en líklega verður það svar
aldrei skilið af ráðamönnum sem
starfa í þágu tímabundinnar valda-
aðstöðu sinnar og virðast hafa það
eitt að leiðarljósi að náttúi-uperlum
Islands sé best borgið á botni
manngerðra miðlunarlóna.
Látum í okkur heyra!
JÓN ÖZUR SNORRASON,
Ártúni 3, 800 Selfoss.
ALDA, JON, GRACE,
VÖLUNDUR OG NÖKKVI,
Þóristúni 11, 800 Selfoss.
Gjafavörur,
silfurskartgripir,
kristalsglös
og fleira
Stórkostlegt úrval
Allt að 50% afslúttur stgr.
SILFURBUÐIN
Knnglunni 8 -12 - Sími 568-9066
*
*
4
-4
Hvílíkur pakki!
Daihatsu Terios 4x4
Fjölhæfni og svakaseigla
Terios sameinar kosti sem nýtast við fjölbreyttar
aðstæður. Bíllinn er sprækur og lipur í daglegum
borgarakstri. Næmt vökvastýri, lítill beygjuradíus
og gott útsýni gera þrengstu svæði aðgengileg.
Vondir vegir eru Terios heldur engin hindrun.
Sítengt aldrif, læsanlegur millikassi og tregðu-
læsing á afturöxli skila honum örugglega áfram
í þungri færð. Hæð undir lægsta punkt er 185 mm.
Sportpakki á engu verdi - bókstaflega
Terios er vel búinn og að auki býður Brimborg
takmarkaðan fjölda bíla með ókeypis sportpakka
að verðmæti um 120.000 kr. I pakkanum eru
toppgrind, dráttarkúla, vetrardekk, vindhlífar á
glugga, Ijósahlífar, mottur og hlífðarmotta í
farangursrými. Allir bílar frá Daihatsu eru með
þriggja ára ábyrgð og sex ára ryðvarnarábyrgð.
Beinskiptur frá kr. t.598.000.-
Sjálfskiptur frá kr. 1.678.000.-
BRIMBORG
Faxafeni 8 • Sími 515 7010
Brimborg-Þórshamar
Trvggvabraut 5 • Akureyri
Simi 462 2700
Bílasala Keflavlkur
Hafnargötu 90 • Reykjanesbæ I
Sími 421 ' 1
Blley
Búðareyri 33 • Reyðarfirði
Sími 474 1453
Betri bllasalan
Hrísmýri 2a • Selfossi
Sfmi 482 3100
Fjadurmýkt og hörkuöryggi
Fjöðrunarbúnaðurinn í Terios sameinar mýkt í
borgarakstri og frábæra aksturseiginleika á
slæmum vegum. Terios er fáanlegur með öflugri
fjögurra gíra sjálfskiptingu sem gerir aksturinn
enn þægilegri. Daihatsu hefur einnig lagt mikla
áherslu á að gera Terios öruggan. Farþegarýmið
er sérstaklega styrkt og grindin dreifir vel höggi
við árekstur. Tveir loftpúðareru staðalbúnaður.
3 ára ábyrgð
Tvisturinn
Faxastíg 36 • Vestmannaeyjum
Sími 481 3141
DAIHATSU
fínn í rekstri