Morgunblaðið - 13.08.1998, Page 55

Morgunblaðið - 13.08.1998, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 55 FOLK I FRETTUM MYNPBÖND_____________ Hættulegur höfundur Nálægt hættunni (Close to Danger)__________ Sannsöguleg spenna ★ Framleiðsla: Bruce Frankiin. Leik- stjórn: Neema Barnette. Handrit: Philip Rosenberg. Aðalhlutverk: Rob Estes og Lisa Rinna. 90 mín. Banda- rísk. Sam-myndbönd, ágúst 1998. Bönnuð börnum innan 16 ára. ÞAÐ segir í upphafi myndar að raunverulegir atburðir hafi blásið höfundi hennar anda í brjóst og séu til grundvallar sögunni. Það er erfitt að ímynda sér hvað átti sér stað í raun og veru, en kvikmyndin segir frá Jennifer Cole (Lisa Rinna) sem vinnur á ljósritunar- stofu til að fjái-magna nám sitt í sálfræði. Hún er fengin til að vél- rita handrit að skáldsögu og heill- ast af ofbeldisfullri frásögninni. Höfundurinn, Adam Harris (Rob Estes), heillar hana ekki síður og fyrr en varir er hún bú- in að grýta kærastanum út og farin að þeys- ast með Adam á kraftmiklum mótorfák. Fljót- lega kemur í ljós að Adam er snar- klikkaður og lætur sér ekki nægja að lýsa ofbeldi í texta, heldur virð- ist hann vilja draga Jennifer inn í heim raunverulegs ofbeldis og morða. Hér er á ferð algjörlega dæmi- gerð sjónvarpsmynd sem reynt er að gera áhugaverðari með því að tengja söguna raunveruleikanum. Formúlan er augljós og afar kunn- ugleg hverjum þeim sem séð hefur nokkrar bandarískar sjónvarps- myndir. Ung og saklaus stúdína lendir í hættulegum kynnum við heillandi en ofbeldishneigðan ung- an karimann sem dregur hana inn í sinn sjúka heim. Sagan hefur þó at- hyglisverða hlið. Jennifer kærir Adam til lögreglunnar, sem hvetur hana til að halda sambandinu áfram undir þeirra eftirliti svo hægt sé að koma höndum yfir óþokkann. Því er svo látið ósvarað hvort Jennifer, og þá um leið lög- reglan, eigi í rauninni sök á því sem svo gerist með því að hvetja Adam til ofbeldisverka frekar en að stöðva hann. Þessi flötur er þó aukaatriði sem nægir engan veginn til að draga myndina upp úr svaði bandarískrar sjónvarpsmeðal- mennsku þar sem hún situr föst. Guðmundur Ásgeirsson Slapp við fangelsisvist ►CHARLIE Sheen slapp fyrir horn þegar dómari í Kaliforníu hundsaði kröfu um að skilorðsbundnum dóm hans yrði breytt í óskilorðsbundinn dóm sem þýddi eitt ár á bak við lás og slá fyrir leikarann. Það var Gloria Állred, lögfræðingur fyrr- verandi kærustu Sheens, sem hafði lagt fram kröfuna en Sheen var fyrr á árinu dæmdur fyrir leggja á liana hendur. Sheen var lagður inn á sjúkra- hús í maí síðastiiðnum vegna of stórs eiturlyfjaskammts og f kjöl- farið skrifaði faðir hans, leikarinn Martin Sheen, undir handtöku- beiðni til að reyna að bjai'ga lífi sonarins. Krafa lögfræðingsins kom í kjölfarið því eiturlyfjaneysla telst brot á skilorði. Dómarinn sagðist hins vegar telja að Sheen væri best borgið í eiturlyijameð- ferðinni sem hann hefur verið í undanfarna mánuði og minnti á að leikarinn hefði að fyrra bragði veitt upplýsingar um eiturlyfja- notkun sfna og ekki hefði þurft að handtaka hann. frábæra stuð- hljómsveit ÁTTAVILLT skemmtir Reykjavik fimmtudags-. föstudags- og laugardags- cKKl af stuðdansleikjum ár«sins HEITASTI STAÐURINN í BÆNUM €■■ «■■■■«■• Bacharach í samstarf við Costello BURT Bacharach og Elvis Costello eru að vinna saman að breiðskífu sem kemur út 29. sept- ember og vonast foiTáðamenn Mercury Records að þeir nái til unga fólksins á sama hátt og Tony Bennett gerði á sínum tíma í gegn- um MTV-sjónvarpsstöðina. Costello og Bacharach hafa unn- ið saman að plötunni í rúmlega ár. Þar áður unnu þeir saman að lag- inu „God Give Me Strength" sem var spilað í myndinni „Grace Of My Heart“. Lagið verður á nýju plöt- unni sem hefur vinnuheitið Málað eftir minni eða „Painted from Memory". Bacharach mun leika á píanó og einnig stjórna 24 hljóðfæra hljóm- sveit í lögunum tólf. Hann samdi og útsetti lögin sjálfur. Bacharach hafði mikil áhrif á dægurtónlist sjöunda áratugarins og er einna best þekktur fyrir lög á borð við „Raindrops Keep Fallin’ on My Head“, Do You Know the Way to San Jose“ og „That’s What Fri- ends Are For“. Laugavegi 44, Kringlunni Opnum í dag eftir breytingar með frábærum haustvörum frá London, Amsterdam og París

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.