Morgunblaðið - 18.08.1998, Qupperneq 59
~60 ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HASKOLABIO
Hagatorgi, sími 552 2140
9^ovtL.4LU8i”
MYND EFTIR HU.MAR ODDSSON FRUMSÝND 28. ÁQÚST
a
A-MÉbln ■ja&iiiiilfa síílíluBj aMUiHi j&¥glijft)t,
www.samfilm.is
Ein með öllu
handa öllum
Éh
£25%
eilsuhúsið
Skólavöröustíg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu 6, Akureyri
Vinsælasti
skólabakpokinn á
Norðurlöndum
L E I G A N
UTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarmiðstöðina
Símiar 551 9800 og 551 3072
Woodstock ‘98
Hippar og
hipphopparar
á hátíðinni
SÓLIN skein á gesti Woodstock
hátíðarinnar á sunnudag en hátíðin
stóð yfir í þrjá daga í Bethel í New
York. Gömlu hippamir sem höfðu
fjölmennt fyrstu tvo dagana voru
leystir af af hipphoppurum með
buxumar hangandi á mjöðmunum
og nef-, augnbrúna- og naflahringi.
Lokadagurinn var því talsvert frá-
brugðinn hinum tveimur fyrri með
flytjendum á borð við Dishwalla,
Marcy Playground, Goo Goo Dolls
og Third Eye Blind ásamt söngkon-
unni Joan Osbome sem spiluðu fyr-
ir um 30 þúsund manna áhorfenda-
hóp.
Hávaðinn jókst með hækkandi
hitastigi og yngra fólkið fór í svo-
kallað „crowd-surfing“ sem felst í
því að kasta sér út í áhorfendaþvög-
una og treysta á að áhorfendur beri
mann á hendur sér. Skipuleggjend-
ur hátíðarinnar ákváðu að leyfa
ekki sölu bjórs á svæðinu og lagðist
það illa í marga. „Þetta eru mikil
vonbrigði. Ég held að bjórinn hjálpi
til við að skapa andrúmsloft hátíð-
arinnar. Við mættum fólki sem var
að yfirgefa svæðið út af þessu,“
sagði hinn þrítugi Don Murphy.
Söngkonan Joan Osbome fékk
heldur óblíðar móttökur þegar hún
kom fram á hátíðinni og byrjaði
hópur fólks að kyrja á meðan flutn-
ingi hennar stóð auk þess sem ein-
hverjir hentu vantsflöskum í átt að
henni. Þrátt fyrir að friður og ást
svifu ekki yfir vötnum Woodstock
‘98 var greinilegt að ný kynslóð
áhorfenda var mætt á svæðið.
„Þetta er greinilega ekki Wood-
stock,“ sagði hin 16 ára gamla
Alicia Nackley. „Það er einhver að
reyna að græða á þessu og hátíðin
er alltof skipulögð.“
Johnny Rzeeznik, söngvari
hljómsveitarinnar Goo Goo Dolls,
biðlaði til unga fólksins þegar hann
sagði: „Ég vona að eftir 30 ár eigið
þið ekki eftir að þjást af heimsku-
legri nostalgíu og koma aftur hing-
að í BMW-bílunum ykkar og reyna
STEPHEN Marley, sonur „reggae“-kóngsins Bobs Marley, kom fram
ásamt The Melody Makers.
að endurlifa
stemmninguna.“
Hin 52 ára Flor-
ence Fontana var
hins vegar ánægð
að kynslóðimar
gætu minnst
Woodstock and-
ans saman og að
unga fólkið fengi
nasaþef af því
sem foreldrarnir
hafa talað um síð-
ustu 29 árin.
ISHEBA Myton
var með dóttur
sína Leah á öxl-
unum og dönsuðu
þær mæðgur í
takt við tónlistina.
RICHIE Havens, þjóðlaga-
söngvari sem kom í fyrsta sinn
fram á Woodstock árið 1969,
skoðaði nafn sitt á minningar-
steini hátíðarinnar.
HEIMAMENN Bethel tóku
vel á móti hátíðargestum og
spiluðu á gítar til að ná upp
stemmningunni.