Morgunblaðið - 06.09.1998, Side 8

Morgunblaðið - 06.09.1998, Side 8
8 SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn Framkvæmdir við Borgartún ENN viðrar vel til framkvæmda og var þessi maður við Borgartúnið í liðinni viku. Gaf hann sér ekki niðursokkinn í starf sitt við logsuðu á hitaveituröri einu sinni tíma til að líta upp fyi ir ljósmyndara. Fiskiðjusamlag Húsavíkur gerir samninga um fískkaup Samið við Grundfirð- inga og trillukarla FISKIÐJUSAMLAG Húsavíkur hefur á síðustu dögum gert tvo rammasamnmga um kaup á fiski í beinum viðskiptum. Gerður var samningur til eins kvótaárs um kaup á físki af Guðmundi Runólfs- syni hf. á Grundarfirði en það fyr- irtæki gerir út togarann Hring SH. FH og G. Run hafa áður átt ánægjuleg viðskipti m.a. hefur G. Run framleitt gi’álúðu á Grundar- firði sem pakkað hefur verið á Húsavík fyrir smásölukeðjuna Covee í Belgíu. Einnig var gerður samningur til eins kvótaárs við Fé- lag bátaeigenda á Húsavík. Fisk- gengd á hefðbundnum miðum Húsavíkurbáta er að aukast og hef- ur fiskurinn jafnframt stækkað. Rammasanmingur dregur ekki úr fiskvinnslu Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun þessi samningur ekki hafa þau áhrif að minna af fiski komi til vinnslu hjá Guðmundi Runólfssyni á Grundarfirði. Stjórn- endur beggja fyrirtækjanna vilja hins vegar ekki tjá sig um innihald þessa rammasamnings, hvorki um magn né eðli samningsins. Betri rekstrar- grundvöllur Rekstrargrundvöllur hjá bolfisk- deild Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. hefur breyst til batnaðar á þessu ári að sögn Einars Svansson- ar, framkvæmdastjóra FH. Ný tækni var tekin í notkun í byrjun árs sem er flæðilína og skurðarvél frá Marel ásamt nýjum lausfrysti og flokkunarkerfi. Afköst hafa auk- ist mikið vegna þessa. Þessa dag- ana er í undirbúningi að taka upp nýtt bónuskerfi sem byggir á ein- staklingspremíu á flæðilínunni. Þetta er sambærilegt kerfi við það sem frystihúsin í Eyjafirði hafa tekið í notkun. Talið er að afköst geti enn aukist við þessa breytingu og laun starfsfólks hækkað jafn- framt. „Ytri skilyrði hafa batnað á síð- ustu mánuðum. Verðlag hvítfiskaf- urða hefur hækkað verulega á þessu ári sem kemur FH til góða. Fisktegundum í vinnslu hjá FH hefur fækkað með tilkomu nýrrar flæðilínu og stefnt er að því að framleiða eingöngu þorsk, ýsu og ufsa en á síðustu misserum hefur FH framleitt á milli 10 og 15 fisk- tegundir. Þessi einföldun og sér- hæfing eykur afköst og nýtingu starfsfólks," segir í frétt frá fyrir- tækinu. Nýr bæklingur um aukefni í matvælum Nú geta allir lesib á matvælaumbúbir! í þessum handhæga bæklingi er listi yfir E-númer og heiti aukefna ásamt gagnlegum fróðleik. Þeir sem framleiða eða dreifa matvælum verða að afla frekari upplýsinga í reglum um notkun aukefna og í aukefnalista. Matvælafyrirtæki og neytendur geta nálgast eintak hjá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga eða Hollustuvernd. Neytendur geta einnig nálgast ókeypis eintak í næsta apóteki eða heilsugæslustöð. Hollustuvernd ríkisins Ármúla la, 108 Rvík, sími 568 8848, heimasíða www.hollver.is Norrænu lögreglusamtökin Allir lögreglu- menn geta fengið áfall SÍÐUSTU tíu árin hefur geðheilsu þeirra sem vinna við störf í neyðarþjónustu verið sýnd æ meiri athygli og aukinn skilningur. Þeir sem vinna við lögreglu- störf, slökkvistörf, sjúkra- flutninga, heilsugæslu og fleira mega dag hvern bú- ast við því að horfa upp á aðstæður, sem venjulegu fólki þætti um megn. Þótt fólk í þessum starfsstétt- um sé sérþjálfað til að veita ósjálfbjarga fórnar- lömbum slysa hjálp eða vinna við mjög ógnvekj- andi aðstæður geta komið upp tilvik þar sem óvenju- hratt gengur á sálarþrek- ið. Roderick Jan Örner - Hvers konar atburðir geta gengið mjög nærrí lög- reglumönnum þannig að þörf er á sérst akrí áfallahjálp? „Það geta verið stórslys sem fela í sér mörg dauðsföll eða slys þar sem einkum börn eru fórnarlömb eða slys á þeim sem eru lögreglumönnum nákomnir. Einnig geta slys á starfsfélögum gengið mjög nærri lögreglu- mönnum. Flestir lögreglumenn mega búast við því að lenda í einhverju af þessu einhverntíma á ferli sínum. Það sem við vitum núna er að þegar slíkt gerist er þörf á sérstakri áfallahjálp um- fram venjulega áfallahjálp. Framlag mitt á ráðstefnunni nú felst í að greina frá því sem okk- ur hefur lærst í þeim efnum síð- asta áratuginn og hvað hefur reynst síður gagnlegt.“ Ömer varpar lofi á það starf sem unnið hefur verið hérlendis af fagmönnum og segir að unn- inn hafi verið bugur á almenn- um viðhorfum sem ríktu vegna meðferðar lögreglumanna sem fengið höfðu sálrænt áfall í starfi. „Áður var talið að það væri hægt að bjarga sálarheill lög- reglumanna með einföldum hætti, með nokkrum viðtölum við sérfræðing, en núna liggur það ljóst fyrir að meðferðin þarf að felast í mjög sveigjanlegum stuðningi og hjálp í alllangan tíma. Reyndar getur hitt gagn- ast sumum, en aðrir eru líklegir til að þurfa á meiri hjálp að halda. Það má fullyrða að ís- lenskir lögreglumenn og jafn- framt lögreglumenn á Norður- löndum séu mjög sjóaðir og þeir fara sínar eigin leiðir í því að taka á vandamálum tengdum geðheilsu sinni. Þeir fá góðan stuðning irá starfs- félögum sínum, en stundum er þörf á faglegri aðstoð. Eitt aðalverkefnið sem bíður okkar í fram- tíðinni er að finna út hverjir það eru sem þyrftu að fá faglega að- stoð og greina meinið áður en áhrifin fara að verða alvarleg." - Er ekki mikilvægt að lög- reglumenn tali um slæma reynslu sem þeir hafa lent í? „Það var talið mjög mikilvægt að tala um hlutina og það gildir vissulega enn í dag, en nú er sjónum einnig beint að því hvenær talað er um hlutina. Segjum að eitthvað skelfilegt ► Roderick Jan Örner sál- fræðingur var meðal fyrirles- ara á ráðstefnu Landssam- bands lögreglumanna sem lýk- ur í dag. Hann er fæddur í Noregi en er búsettur 1 Bret- landi þar sem hann veitir rannsóknum evrópsku samtak- anna i sálrænum áfölluni for- stöðu. Örner hefur einbeitt sér að rannsóknum á þeim sem verða fyrir áföllum í starfi og upplifa skelfilega atburði eins og slys og stríð. Hann hefur m.a gert rannsóknir á bresk- ^ um hermönnum sem börðust í Falklandseyjastríðinu og fann sameiginleg einkenni með þeim og bandarískum her- mönnum, sem börðust í Víetnam. Ekki lausn að tala endalaust við sérfræðinga hafi hent lögreglumann í starfi og næsta dag er strax tekið á málinu og honum gefið orðið frjálst með sérfræðingi. Það er hætt við að hann upplifi atburð- inn aftur og fái áfallaeinkenni á nýjan leik. Betra þykir að bíða með slíkar upprifjanir en þá er líka mjög mikilvægt að hann finni fyrir stuðningi fjölskylclu, vina og starfsfélaga á meðan. - Hvernig gæti hið opinbera tekið á þessu vandamáli? „Ég held að það sé óþarfi að hafa fjölda fólks á stöðugri vakt vegna þessa. Betra er að hafa miðstöðvar í hverju landi þar sem prestur, sálfræðingur, geð- hjúkrunarfæðingur, geðlæknir og reyndir lögreglumenn eða aðrir starfsmenn neyðarþjón- ustu geta svarað kalli um að- stoð. Ef um meiriháttar stór- slys er að ræða geta miðstöðv- arnar komið saman þar sem at- burðurinn á sér stað og unnið saman. Starfsmenn slíkra miðstöðva ættu líka að hafa það að markmiði að _________ viðhalda jafnvægi í samfélagi sem riðl- ast vegna t.d. náttúruhamfara, sem mest þær mega. Aialla- hjálpin nær því lengra en til björgunarmannanna emn Kostnaður við slíkar miðstöðvar þyrfti ekki að vera svo mikill þegar þess er gætt hversu mik- ill kostnaður hlýst af vinnutapi þeirra sem verða fyrir alvarleg- um áföllum. Það er því dýrara að horfa framhjá vandanum heldur en að takast almennilega á við hann.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.