Morgunblaðið - 06.09.1998, Page 10
10 SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
EIN fyrsta tillaga
Halldórs J. Krist-
jánssonar til banka-
ráðs Landsbanka
íslands hf., eftir að
hann gerðist aðal-
bankastjóri Landsbankans 14. apr-
íl sl, var að hafínn yrði vandaður
undirbúningur að hlutafjárátboði.
Málið var Halldóri ekki ókunnugt.
Aður en hann gerðist bankastjóri
var hann ráðuneytisstjóri við-
skiptai-áðuneytisins og jafnframt
formaður undirbúningsnefnda að
hlutafélagavæðingu Búnaðarbanka
og Landsbanka. Halldór segir að
tillögunni hafí verið vel tekið og
markvisst unnið að málinu í sumar,
útboðið var síðan kynnt sl. fímmtu-
dag.
„Það er einkar ánægjulegt að fá
að taka þessi mikilvægu skref hér í
Landsbankanum," sagði Halldór, í
samtali við Morgunblaðið fyrir
helgi. Hann sagði það hafa verið
gott að finna hve mikil samstaða
var um málið, jafnt á meðal starfs-
manna og í bankaráði Landsbank-
ans. Þá hafí verið haft náið samráð
við viðskiptaráðuneytið og við-
skiptaráðherra. Hann sagði einnig
að samstarfið við Verðbréfaþing
um skráningu hlutabréfa bankans
hafí gengið mjög vel.
Að verðleggja banka
Meðal þess sem gera þurfti var
að leggja mat á verðmæti bankans.
Sem kunnugt er var JP Morgan-
fyrirtækið fengið til að meta bank-
ann til fjár. Aðspurður sagðist
Halldór ekki geta tjáð sig um nið-
urstöðu JP Morgan eða um verð-
matið yfirleitt meðan á áskrift
hlutaíjár stendur. Reglur Verð-
bréfaþings bönnuðu það.
„í útboðslýsingu höfum við sett
fram allar þær upplýsingar sem
fjárfestar þurfa að hafa til að geta
gert upp hug sinn og myndað sér
skoðun á verðmati og hvort þeir
vilja nýta sér útboðið," sagði Hall-
dór. „Það er hins vegar ljóst að
ákvörðun um útboðsgengið er al-
farið á ábyrgð Landsbankans. Það
er tillaga sem aðalbankastjóri og
bankaráð gera til hluthafans og
viðskiptaráðherra, sem hluthafi,
hefur fallist á.“
ívilnandi kjör
til starfsmanna
Á hluthafafundi sl. fímmtudag
var samþykkt að auka hlutafé
Landsbankans um 15%, úr 5,5
milljörðum í 6,5, og að bjóða hluta-
fjáraukninguna til sölu. Útboðið
sem nú er að hefjast er þríþætt. St-
arfsmönnum bankans og lífeyris-
sjóði þeirra býðst að kaupa hlutafé
að nafnvirði 325 milljónir á íviln-
andi gengi 1,285. 625 milljónir
verða boðnar almenningi til kaups
á genginu 1,9 og 50 milljónir með
tilboðsfyrirkomulagi.
„Við teljum að þessi verðlagning
á félaginu sé skynsamleg," sagði
Halldór. „Við höfum að sjálfsögðu
stuðst þar bæði við óháð verðmat,
en einnig tekið mið af kennitölum
úr rekstri banka á Norðurlöndum
og í Norður-Evrópu samkvæmt
þeirri aðferðafræði sem viðgengst í
þeim efnum.“
Það hefur vakið sérstaka athygli
hve tilboðið til starfsmanna er hag-
stætt og þykir sumum það óeðli-
lega gott. Nýti starfsmaður rétt
sinn til að kaupa bréf að nafnvirði
250 þúsund greiðir hann um 150
þúsund krónum minna en ef sömu
bréf eru seld á almennu gengi.
Að sögn Halldórs er þetta sam-
kvæmt ákvörðun ríkisstjómarinn-'
ar og þáttur í heildarsamkomulagi
sem gert var við starfsfólkið vegna
formbreytingarinnar á bankanum í
hlutafélag. Gengið til starfsmanna
sé miðað við innra virði bankans
þegar samið var við starfsmenn á
gamlársdag 1997.
Halldór segist binda vonir við að
kaup starfsmanna á hlutabréfum í
bankanum treysti böndin á milli
þeirra og hlutafélagsins. Starfs-
menn verði betur meðvitaðir um
reksturinn og telur Halldór að það
stuðli að því að starfsmenn og
stjómendur muni enn frekar en
Halldór J. Kristjánsson, aðalbankastjóri,
hefur haft hönd í bagga með hlutafjárvæð-
inffli Landsbankans frá upphafi. Hann var
formaður undirbúningsnefndarinnar og
hefur stýrt atburðarásinni í bankanum frá
því hann tók við bankastjórn. Guðni Ein-
arsson ræddi við Halldór um hlutafjárút-
boðið, framtíðaráform og nýjungar í
rekstri Landsbankans.
ella snúa bökum saman og keppa
að því að ná þeim rekstrarmark-
miðum sem sett hafa verið. Hann
segist því vera þeirrar skoðunar að
almennir hluthafar, aðrir en
starfsmenn, sem nú kaupa 10% í
bankanum ættu því að styðja
þessa aðgerð varðandi starfsmenn-
ina.
Hlutafjárátboðið mun skila
bankanum um 1.700 milljónum
króna og styrkja eiginfjárstöðuna
sem því nemur. Halldór segir að
þannig náist markmið bankaráðs-
ins um að eigið fé verði um 10%,
sem er 2% umfram það lágmark
sem lög krefjast í bankastarfsemi.
Afkomuhorfur og eignir
Nafnvirði hlutafjár Landsbanka
íslands hf. verður 6,5 milljarðar
króna. Miðað við almenna gengið
verður verðmæti Landsbankans
því 12.350 milljónir eftir útboðið.
Halldór var að því spurður hvort
þetta væri ekki óeðlilega lítið, í
ljósi langi-ar sögu og mikilla um-
svifa Landsbankans í íslensku fjár-
málalífi?
„Afkoma bankans hefur farið
batnandi, en það vita allir að af-
koma Landsbankans var ekki
nægilega góð á liðnum árum,
sagði Halldór. Hann benti enn-