Morgunblaðið - 06.09.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998 25
Takmarkað bolmagn
til meistaranáms
-Við höfum þá sérstöðu að marg-
ir Islendingar stunda nám við er-
lenda háskóla, þetta er fátítt meðal
flestra grannþjóðanna. Par læra
menn í eigin landi. Væri rétt að
hætta að kenna hér dýra grein með
fáum stúdentum eins og tannlækn-
ingar og láta fólk einfaldlega fara út
til aðlæra hana?
„Tannlæknadeild gegnir ekki ein-
ungis því hlutverki að mennta kenn-
ara heldur á hún jafnframt að sjá til
þess að þekkingu á þessu sviði
læknisfræðinnar sé viðhaldið í land-
inu, hér séu stundaðar rannsóknir
og mikilsverð fyrirbyggjandi þjón-
usta. Við þurfum því að líta á málið í
þessu samhengi.
Það mætti hugsa sér að spara í
kennslunni en ég held að við ættum
ekki að fara inn á þá braut að af-
nema rannsóknir á þessu sviði. Síð-
an má ekki gleyma því að kennsla
er iðulega hvatning til rannsókna.
Ætli fræðimenn sér að vera lif-
andi í starfi þurfa þeir oft á hvatn-
ingu nemenda að halda. Rökin fyrir
því að styrkja hjá okkur framhalds-
námið og þá einkum nám til meist-
araprófs eru m. a. að í því felist svo
mikil hvatning fyrir kennarana. I
sjálfu sér væri hægt að ljúka meist-
araprófi í fleiri greinum en nú er
gert en skólinn hefur takmarkað
bolmagn til að kosta það, veita
nauðsynlega kennslu til þessa
náms.
Nú er á þriðja hundrað nemenda
í meistaranámi. Vonandi verður
hægt að efna bráðlega til meistara-
náms í umhverfisfræði, hana verð-
um við að geta kennt hér og miðað
við íslenskar aðstæður."
-Eru rannsóknastörf kennar-
anna stundum háð því hve mikla að-
stoð þeir geta fengið hjá nemendum
í m eis taraprófsnámi ?
„í sumum tilvikum, ekki síst í
náttúruvísindum, eru rannsóknirn-
ar beinlínis háðar því, það er alveg
rétt. Eiginlega er þetta þungamiðj-
an í háskólastarfi, samvinna kenn-
ara og nemenda í þekkingarleitinni.
Menn hafa þá stuðning hver af öðr-
um, leiðbeina og hvetja til dáða.“
-Ef við víkjum að stjómunar-
störfum þínum og nýjum háskóla-
lögum. Er fullmótuð stefna í starfs-
mannamálum í gildi hér í háskólan-
um?
„Ég skipaði starfshóp í fyrra til
þess að vinna að nútímalegri og
framsækinni stefnu í málefnum
starfsmanna Háskólans og búið er
að gera frumdrög. Næsta skrefið er
að virkja starfsmennina til að móta
sjálfir stefnuna með okkur í stjórn
skólans. Skipulögð verða viðtöl við
starfsmenn og óskað eftir athuga-
semdum og ábendingum, einnig
verður gerð áætlun um fræðslu og
þjálfun.
Sannleikurinn er sá að það hefur
skort nokkuð á að Háskólinn, sem
er stærsti vinnustaður landsins,
markaði sér með skipulögðum hætti
starfsmannastefnu sem miðaði að
því að skapa starfsfólki góða að-
stöðu.
Búið er að gera drög að nýjum
lögum um Háskólann og er þar gert
ráð fyrir verulegri breytingu á
æðstu stjórn, m.a. að fækkað verði í
háskólaráði og það fari með fram-
kvæmdavald en fjölmennur há-
skólafundur móti stefnuna. Mark-
miðið er að tryggja lýðræðislega
samstöðu um helstu mál en jafn-
framt að framkvæmdir verði skil-
virkari en verið hefur.“
Frumkvæði og skilvirkni
-Háskólinn er að mörgu leyti
óvenjulegur vinnustaður. Er mikið
um smákónga í deildunum og erfítt
að samræma vinnubrögðin? Vald-
dreifing er vinsæl en getur verið að
hér þurfí fremur miðstýringu og er
verið að stefna í þá átt með því að
fækka í háskólaráði og fela því
meira framkvæmdavald?
„Ég held að nauðsynlegt sé að
gera greinarmun á annars vegar
verkefnum sem tengjast skrifstofu-
haldi og almennri stjórnsýslu og
hins vegar málum sem lúta að rann-
sóknum og kennslu.
í háskóla á að ríkja rannsókna-
og kennslufrelsi. Kennararnir hafa
sjálfir frumkvæði, stýra sjálfir
rannsóknum sínum og kennslu og
eru í þeim skilningi kóngar í sínu
ríki en vinna í reynd náið saman.
Yfirleitt er um hópa að ræða og
stúdentar eru virkir í skipulagningu
kennslunnar, þeir starfa í náms-
nefndum og skorum.
Það getur því vel farið saman að
hafa styrka stjómsýslu og skrif-
stofuhald en jafnframt mikið frelsi í
skipulagningu hinnar raunverulegu,
innri starfsemi hverrar deildar. Há-
skólinn er í reynd með mjög mið-
stýrða stjómsýslu sem er af hinu
góða og heldur honum saman. Hér
er stjórnsýslunni skipt í svið, fjár-
mál, kennslu, rannsóknir og sam-
skipti, sem öll miða að því að veita
kennuram og nemendum og öðram
margvíslega, sameiginlega þjónustu.
Þannig er stjórnkeifið hér byggt
upp, annars vegar er frelsi, hins
vegar miðstýring. Breytingamar
sem verið er að stefna að í væntan-
legu framvarpi um ný háskólalög
miða að því að styrkja sjálfan
rammann um starfið og samhæfa
það. Markmiðið er að tryggja sem
best að menn hvetji hverjir aðra til
dáða, að frumkvæði, skilvirkni og
ábyrgð verði efld.
Stefna stjómvalda er sú að auka
sjálfstæði skólans verulega. Hann á
að fá miklu meira frumkvæði í eigin
málum en ekki þurfa að bera allar
breytingar á reglum undir ríkis-
valdið.
Þetta er að mínum dómi nauðsyn-
leg breyting, skólinn þarf að verða
eins sjálfstæður og unnt er, þá era
mestar líkur á að hann gegni hlut-
verki sínu vel. Háskóli Islands hefur
í reynd alltaf verið mjög sjálfstæð-
ur, við eram því vön og þetta er auk
þess arfur frá fyrstu háskólunum á
miðöldum.
í háskóla hvílir starfið á fram-
kvæði einstaklinga og hópa kennara
og nemenda sem skipuleggja starfið
að mestu leyti sjálfir. Hlutverk
rektors og yfirstjórnar skólans er
að sjá til þess að nemendur og
kennarar hafi skilyrði til þess að
vera virkilega lifandi og skapandi í
sínum fræðum."
Einkunnaskil og eftirlit
-Nú er stundum gagnrýnt að
sumir kennarar háskólans standi
ekki í stykMnu, séu hysknir. Ég tal-
aði nýlega við nemanda sem sagðist
ekki hafa fengið einkunn fyrir rit-
gerð sem skilað var í vor fyrr en í
byrjun ágúst og þá reyndar vitlausa
einkunn sem var að vísu leiðrétt. Er
mikið um svona vinnubrögð?
„Þetta á ekki að geta gerst og ég
fullyrði að það sé alger undantekn-
ing.; Stúdentar hafa mjög strangt
eftirlit með því að einkunnum sé
skilað ekki síðar en þrem vikum eft-
ir próf. Þeir kennarar sem ekki
standa sig lenda á svörtum lista hjá
stúdentum."
-í vetur leit út fyrir að kennsla í
tölvufræði yrði lítil hér vegna þess
að fastir kennarar voiv á förum,
þeim buðust betur borguð störf hjá
einkafyrirtækjum og við erlenda
háskóla. Verður að hlíta mark-
aðslögmálum, taka upp yfírborganir
í vissum greinum til að laða að hæfa
kennara og veldur það ekki öfund
hjá kennurum í öðrum deildum?
„Fólk starfar yfirleitt ekki í há-
skólum vegna launakjara. Menn
sækjast eftir háskólastörfum vegna
þess að þeir vilja vinna að rann-
sóknum og kennslu. Launin þurfa
að vera viðunandi en fólk sættir sig
við nokkra lægri laun en í einka-
geiranum vegna þess að það fær
meira frelsi hér, frelsi sem tilheyrir
háskólastai-fi. í vissum tilvikum get-
ur háskólinn þurft á að halda starfs-
manni á tilteknu sviði og þurft að
laða hann til sín með meiri pening-
um, ég útiloka ekki þann möguleika.
Ég óttast ekki að það veki öfund hjá
öðrum, ég held að menn skilji að-
stæðumar og það geti jafnvel verið
hvetjandi."
Tekjur af þjónustu-
verkefnum
-Getur háskólinn aukið tekjur
sínar með því að selja í auknum
mæli á markaði afraksturinn af því
sem gert er í rannsóknastofum og
undirstofnunum?
„Stofnanir eins og hagfræðistofn-
un og félagsvísindastofnun fá þær
tekjur sem þær vinna sér inn með
sjálfstæðum hætti til eigin reksturs,
þær fara ekki nema að litlu leyti til
sameiginlegra þarfa alls skólans.
Fast starfslið þeirra er mjög lítið,
þama era nemendur í framhalds-
námi að vinna að lokaverkefnum sem
stundum tengjast þjónustuverkefn-
unum er gefa af sér þessar tekjur.
Þetta er eðlileg tekjuöflun að
vissu marki en ég tel eðlilegra að
þessi starfsemi sé yfirleitt rekin af
einkaaðilum í þjóðfélaginu, fólki
sem hefur jafnvel menntast hér. Ef
um er að ræða þjónustuverkefni
sem tengjast náminu í háskólanum
er þetta gott en háskólinn má ekki
lifa á slíkum fjármunum.
Rekstur háskólans kostar um
þrjá milljarða á ári, ríkið borgar tvo
þriðju af því fé. Háskólinn rekur
happdrætti og ýmsa þjónustu og
„Þetta er ekki
svo stórt að
firringin verði
of mikil, hér
vita allir af öll-
um ef svo má
segja, fólk
þekkist þótt
það séu ekki
alltaf náin
kynni.“
„í vissum tilvik-
um getur há-
skólinn þurft á
að halda starfs-
manni á til-
teknu sviði og
þurft að laða
hann til sín
með meiri pen-
ingum, ég úti-
loka ekki þann
möguleika.“
aflar sér styrkja með ýmsum hætti.
Þannig fjármagnar iiann um þriðj-
unginn af útgjöldum sínum sjálfur.
Það er því ekkert nýtt að stofnunin
afli sér íjár. I Bandaríkjunum era
margir háskólar hins vegar bókstaf-
lega kostaðir af fyrirtækjum sem
leggja þeim til fé en ég veit ekki um
neinn háskóla sem stendur undir
sér sjálfur fjárhagslega með
rekstri.
Langflestir háskólar í heiminum
eru kostaðir af opinbera fé og fjöl-
margir einkaskólar era í reynd
kostaðir af ríkisfé þótt þeir séu
sjálfseignarstofnanir. Þannig er t.d.
háttað um bresku háskólana.
Sjálfstæði Háskóla íslands eykst
núna, stjóm hans mun framvegis
koma beint að launasamningum. Ég
held að menn muni ekki átta sig á
því hve afdrifarík breyting þetta er
íyrr en á reynir á næstu árum og
það verður mjög spennandi."
Þjóðarhagsmunir fræðilegt
viðfangsefni
-Víkjum að tengslum háskólans
við aðra hluta samfélagsins. Purfa
háskólakennarar að gæta sín á því
að verða ekki of miklir þátttakend-
ur í hvers kyns togstreitu í samfé-
laginu, geta fræðin liðið fýrir
þannig tómstundastörf?
„Fræðimaðurinn leitar alltaf að
hinu sanna og rétta og úti í þjóðfé-
laginu er alls konar sérhyggja og
hagsmuna- og valdabarátta í gangi.
Það segir sig sjálft að það fer ekki
saman að standa í alls konar hags-
munabaráttu og stunda fræðin. Það
má ekki ragla þessu tvennu saman
en allir einstaklingar í lýðræðis-
þjóðfélagi þurfa að geta rökrætt og
tekið afstöðu til stjómmála.
Hverjir eru hagsmunir þjóðarinn-
ar? Það er fræðilegt viðfangsefni að
skilgreina þá, við vitum það ekki
alltaf sem þjóð og þá getur verið
gagnlegt að fá fræðilegar rökræður
um það eftii. Fræðimenn eiga alltaf
að vera gagnrýnir á þann veruleika
sem við búum við í því skyni að stuðla
að því að við geram betur í lífinu.
Háskólinn þarf auk þess að vera
aðgengilegri fyrir fólk á lands-
byggðinni, ef vel ætti að vera þyrfti
hann að vera með útibú í hinum
fjórðungunum. Fjarkennslan, sem
nú er að hefjast, getur orðið mikil-
væg í þessum efnum.“
-Nýlega urðu miklar deilur vegna
veitingar í embætti prófessors í
læknisfræði, vinnubrögð dómnefhd-
ar voru átalin. Hverjir eiga að gagn-
rýna háskólann, vega hann og meta?
„Dæmið sem þú nefnir sýnir beit-
ingu á umdeilanlegri reglu sem er
við lýði hér og í mörgum öðram há-
skólum. Samkvæmt þessari reglu á
að dæma umsækjendur hæfa eða
óhæfa, síðari niðurstaðan getur
komið út eins og neikvæður stimpill.
Dómnefnd á að úrskurða um þetta
og þetta var hennar niðurstaða.
I þessu tilviki lenti umsækj-
andi í því að vera dæmdur óhæf-
ur. Forsendurnar fyrir því mati
kunna að hafa verið umdeilan-
legar en dómnefndin er hæsti-
réttur í þessu máli. Henni var
falið þetta verkefni og hún
komst að ákveðinni niðurstöðu.
Við í stjórn háskólans getum
verið sammála eða ósammála en
við getum ekki breytt dóminum,
hann er endanlegur.
Mér finnst að þessu ætti að breyta.
Nefndin ætti að láta nægja að úr-
skurða að einn umsækjandi sé hæf-
astur en láta annað liggja milli hluta.
Hver metur háskólann? Það gera
aðrir háskólar. Annars vegar eru
fræðimenn okkar sífellt metnir af
erlendum starfssystkinum, þaðan
kemur aðhaldið. Við beitum hér al-
þjóðlegum viðmiðunum og mæli-
kvörðum á gæði.
Hins vegar era það nemendur
okkar og frammistaða þeirra í er-
lendum háskólum. A hverju ári fara
héðan frá okkur margir nemendur í
framhaldsnám og við fylgjumst
vandlega með því hvernig þeim
vegnar. Við vitum að háskólinn
kemur í heildina mjög vel út í þess-
um samanburði.“
fþróttir, popptónlist
og vísindi
-Er til samantekt um frammi-
stöðu nemenda frá Háskólanum
undanfarin ár í erlendum háskól-
um?
„Þetta hefur verið tekið saman á
vissum sviðum en mér vitanlega
hefur ekki verið gerð heildarúttekt
á þessu. Ætli ég reyni ekki að sjá til
þess að svo verði. En ég veit að
kennarar í mörgum greinum hafa
fylgst skipulega með þessu og hald-
ið því saman hvemig fólk hefur
staðið sig.“
-Háskóli Islands nýtur meira
álits hjá aImenningi en aðrar stofn-
anir okkar ef marka má skoðana-
kannanir. Telurðu að hann sé góður
háskóli?
„Tvímælalaust. En góður háskóli
verður ekki góður áfram nema hann
reyni sífellt að gera betur, ef honum
fer ekki fram þá fer honum aftur.
Viðleitnin til að bæta sig er það sem
gerir skólann góðan, hann þarf á
gagnrýni annarra að halda en hann
þarf einnig sjálfsgagnrýni og hvatn-
ingu.
Háskólinn finnur hvatningu frá
þjóðfélaginu sem er mjög jákvætt
en hún mætti samt vera enn meiri.
Hér er verið að gera margt sem al-
menningur veit ekki af. Að sumu
leyti er þetta eðlilegt en rriér finnst
að fjölmiðlar ættu að leggja háskól-
anum meira lið með því að ræða við
kennara og kynna rannsóknimar
fyrir almenningi.
En visindastarfsemi er ekki
íþróttir eða popptónlist og það er
mikilvægt að allir viðurkenni að vís-
indi og fræði verði einnig að fá að
dafna á sínum eigin forsendum. Það
er oft talað um að háskólinn þurfi að
verða sýnilegri og ég er sammála
því. Ég sé fyrir mér að stofnunin
opni sig meira fyrir fólki sem hefur
áhuga á fræðastarfi og þá um leið
lífinu og tilveranni."
-Purfa þá háskólamenn ekki að
forðast að fjarlægjast almenning
með lítt skiljanlegu fagmáli?
„Það er rétt. Þeir verða að gæta
þess að dulúðin verði ekki of mikil
enda óþarft, lífið sjálft er nógu dul-
arfullt."
Broyhill
^OSSSOADS borðin frá •BroyhiH' eru
r gegnheilum við. Fallega hönnuð með
rennaum fótum og úlskornum hliðum.
Einstaklega falleg borð sem pass
margar gerðir húsgagna.
CE)
Raðgreiðslur
til allt að
36 mánaða.
HÚSGAGNAHÖLUN
Bíldshöfðl 20 -112 Rvfk - S:510 8000