Morgunblaðið - 06.09.1998, Qupperneq 30
30 SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Ég tók síðan að
mér að koma því í
sölu, en þau hjón
hafa sennilega
verið betri sölu-
menn en ég, því á
endanum vorum
það við Helga sem
keyptum hótelið
Morgunblaðið/Guðmundur Guðjónsson
KYRRSTAÐA
ER STÖÐNUN
VIÐSKIFri AIVINNULÍF
Á SUNIMUDEGI
►Hótel Bláfell hefur verið við lýði á Breiðdalsvík í 16 ár. I gegn-
um tíðina hafa verið einir eigendur, en fyrir einu ári urðu þó eig-
endaskipti. Nýju eigendunum, hjónunum Helgu E. Jónsdóttur og
Vilhjálmi Heiðdal Walterssyni, hefur fylgt mikil uppbygging og
stóraukning í hótelnýtingu og veltu. Aukin umsvif Bláfells hefur
og kallað fram átak í annarri ferðaþjónustu á Breiðdalsvík.
eftir Guðmund Guðjónsson
HELGA Elísabet er fædd
20. júlí 1964 og Vilhjálm-
ur 11. desember 1958.
Þau eru bæði Reykvík-
ingar og eftir hefðbundna skóla-
göngu gerðist Helga starfsmaður í
Samvinnubankanum, auk þess að
drýgja launin með barstöðu í
skemmtistaðnum Hollywood sáluga.
Vilhjálmur fór til búfræðináms eftir
hefðbundnu skólagönguna og er út-
skrifaður sem slíkur frá Bændaskól-
anum á Hvanneyri. Hugurinn
stefndi því út á landsbyggðina, bara
ekki á þann hátt sem síðar varð. Vil-
hjálmur hefur víða verið, m.a. sölu-
maður hjá 0. Johnson og Kaaber og
hjá Karnabæ vann hann í heilan ára-
tug. Vilhjálmur á dótturina Þórey
frá fyrra sambandi, hún er 18 ára.
Helga á Sigurð Örn Aðalgeirsson
frá fyn-a sambandi, hann er 14 ára,
og saman eiga þau Elísabetu 12 ára
og Viktor sem er fímm ára.
„Við Helga kynntumst í
Hollywood, hún var á bak við barinn
og ég fyrir framan. Þar stóð ég upp
úr og hún komst ekki hjá því að sjá
hvern mann ég hafði að geyma!“
segir Vilhjálmur. Hann heldur því
síðan fram, að þau Helga hafí verið
svo samrýnd að ekki hafí annað
komið til greina eftir að þau hófu
búskap en að stofna til sameiginlegs
reksturs, ásamt öðru pari.
„Við stofnuðum fatahreinsun,
„Allt á hreinu“. Þetta var árið 1988
og við rákum hana í eitt og hálft ár
áður en við ákváðum að selja hana
og breyta til. Fyrirtækið gekk vel og
starfar enn,“ segir Helga og Vil-
hjálmur tekur við og rifjar upp til-
urð þess að þau ílentust á Breiðdals-
vík.
„Ég fór reglulega í söluferðir um
Austurland og kynntist vel þeim
Skafta og Guðnýju, hjónunum sem
áttu hótelið. Þau voru hér lengi og
voru alltaf að. Þau áttu lítið frí og
voru orðin nokkuð lúin. Þau höfðu á
orði að breyta til og selja hótelið.
Ég tók síðan að mér að koma því í
sölu, en þau hjón hafa sennilega
verið betri sölumenn en ég, því á
endanum vorum það við Helga sem
keyptum hótelið. Ég man þegar
þetta kom til tals milli okkar fyrir
austan og Skafti og Guðný fóru að
eggja mig. Allt í einu fannst mér
þetta vel koma til greina. Þegar ég
fór í búfræðinámið stóð alltaf til að
kaupa jörð og hefja búskap, en af
því varð aldrei. Þá vorum við Helga
líka búin að ræða það um skeið að
það væri kominn tími til að breyta
rækilega til. Það kom mér því ekk-
ert sérlega á óvart er Helga svaraði
mér svo til strax með jái í símann
þegar ég hringdi og reifaði hug-
myndina. Þar með varð ekki aftur
snúið.
Komu græn en
eru að taka lit
Þið hafið þó varla gert ykkur
grein fyrir því hvað fólst í hótel-
rekstri?
Þau Helga og Vilhjálmur geta
ekki annað en glott út í bæði yfir
þessari spurningu og Vilhjálmur
segir að þau hafí verið græn þegar
þau birtust þarna 14. júní í fyrra.
„En við erum að taka lit,“ bætti
hann við.
Helga segir að margt hafí komið
þeim í opna skjöldu og spánskt fyrir
sjónir. „Við gerðum okkur til dæmis
ekki grein fyrir því að þetta er ekki
bara hótel þar sem rekast inn ferða-
langar. Þetta er líka þorpskráin,
staðurinn þar sem allt gerist. Hafí
maður haldið að að minnsta kosti
annað okkar gæti dregið sig í hlé er
líða tæki á fóstudags- eða laugar-
dagskvöldin þá reyndist það rangt.
Þá fyllist salurinn af heimamönnum.
Það á ekki síst við um veturna. Yfir
sumarmánuðina er síðan allt á
hvolfi. Svo dæmi sé tekið, þá eru
héma milli 70 og 300 manns í hádeg-
ismat á hverjum einasta degi. Þá
eru menn hér með stórafmæli, árs-
hátíðir, t.d. uppskeruhátíð sláturtíð-
arinnar svo eitthvað sé nefnt.“
Þetta er mikil umferð, hefur þetta
alltaf veríð svona, eða er Breiðdals-
vík að komast á kortið?
„Það er nú ekkert eitt svar við
þessu,“ segja þau bæði og Vilhjálm-
ur heldur áfram: „Hótel Bláfell hef-
ur verið við lýði í ein 16 ár og það
hefur verið byggt við það oftar en
einu sinni. Hingað hafa alltaf komið
margir ferðamenn, en hótelið oftar
en ekki liðið íýrir að vera með of fá
gistirými. Hróður hótelsins hefur
borist víða. Guðný, eiginkona
Skafta, var t.d. svo annálaður kokk-
ur, að til okkar hafa komið ferða-
menn frá Frakklandi sem hafa kom-
ið gagngert til að smakka mat Guð-
nýjar. Við höfum orðið að segja
þeim að Guðný sé á bak og burt og
hvort þeir vilji ekki prófa elda-
mennsku Helgu. Hún er nú svo
magnaður kokkur að ég hef ekkert
óttast samaburðinn og þessir Frans-
menn hafa látið slag standa, snætt
matinn og farið héðan hressir í
bragði."
Vilhjálmur tekur sér pásu og
horfir á frú sína, en hún sinnir ekki
hólinu og heldur áfram: „Fyrir tíu
árum var byggt við hótelið og bætt
við sal, eldhúsi og 7 herbergjum sem
tóku 14 manns. Við vorum ekki búin
að vera hér lengi þegar það varð
ljóst að við gátum ekki sinnt þeim
mikla fjölda sem hér kemur og
hófust þá vangaveltur um að stækka
aftur. Við réðumst því i byggingu á
nýju húsi, áföstu hótelinu. Það er
bjálkahús með tíu herbergjum og
sérstökum matsal. Hugmyndin er að
nýta það á tvennan hátt. I fyrsta lagi
sem aukagistirými í hótelinu og í
öðru lagi sem veiðihús. Við höfum
tekið við leigusamningi um Breið-
dalsá til næstu ára í samvinnu við
Þröst Elliðason. Hann hefur mikla
reynslu af því að glæða veiði í ám
með sleppingu gönguseiða og svo-
leiðis prógramm er komið í gang hér
við Breiðdalsá. Þröstur hefur mikil
sambönd, bæði við innlenda og er-
lenda veiðimenn og m.a. í krafti þess
samstarfs réðumst við í þessa fjár-
festingu. Núna eru í hótelinu 24 her-
bergi sem taka 48 manns. I nýja
húsinu verða auk herbergjanna og
matsalarins, gufubað, arinstofa og
fleira. Við náðum að taka nýja húsið
í gagnið í sumar, en höfum jafnt og
þétt verið að hnýta lausa enda við
fráganginn."
Þetta hefur veríð dýrt?
Vilhjálmur svarar: „Júj'ú, þetta
var dýrt og eins og fólk rekur sig
svo oft á, þá var þetta dýrara heldur
en reiknað hafði verið með og fór að-
eins fram úr kostnaðaráætlun. En
við fengum hagstæð nýbyggingalán
til tuttugu ára og þetta fyrirtæki er
með góða veltu þannig að með mik-
illi vinnu gengur þetta allt upp mið-
að við óbreytt ástand. Það er svona
tíu prósent aukning á milli ára hjá
okkur og við erum ánægð með það.
Mig langar líka til að bæta við orð
konu minnar um smíðina alla, að við
ásettum okkur að ljúka smíðinni fyi'-
ir 8.júlí í sumar, þ.e.a.s. að búa svo
um hnútana að við gætum opnað.
Þrátt fyrir ýmsi vandræði, m.a. að
hráefni tefðist í Danmörku vegna
verkfalla, þá tókst það. Verkið tókst
að klára á 6 vikum og það var unnið
myrkranna á milli. Mér fínnst það,
eftir á að hyggja ótrúlegt afrek, og
ég er mjög stoltur af því.“
Vantar bjartsýni...
Það kemur ft-am í máli hinna ungu
hjóna að þau hafi fest sig í sessi sem
hótelhaldarar og þau séu ekkert á
leiðinni að leggja upp laupana og
breyta aftur til. Vilhjálmur segist
trúa mjög á það orðatiltæki að
„kyrrstaða sé það sama og stöðnun"
og það hafi ráðið mjög lífsstíl þeirra
Helgu og barna þeirra. Þess vegna
m.a. hafi verið gott að koma á stað
eins og Breiðdalsvík.
„Ég vona að Breiðdælingar mis-
virði það ekki við mig þótt ég segi að
mér finnist þeir dálítið værukærir.
Mér finnst vanta meiri bjartsýni í
plássið. Það er eins og menn sitji
bara og bíði eftir því sem verða vill.
Þess vegna m.a. hefur stækkun hót-
elsins verið nokkur lyftistöng í
plássinu. Þetta er bara lítið þorp og
hér era reglulega 6 manns á launa-
skrá á sumrin auk þess sem við
Helga stöndum alltaf vaktina, ann-
aðhvort okkar eða bæði. Það má
bæta við, að við höfum verið einstak-
lega heppin með starfsfólk. Stækk-
un hótelsins hefur það einnig í för
með sér að nú á að gera átak í ferða-
þjónustu á Breiðdalsvík. Það á að
fara að merkja gönguleiðir um fjöll-
in, gera út bát til sjóstangaveiða auk
þess sem hingað eru farnir að koma
auðugir erlendir veiðimenn til lax-
veiða svo eitthvað sé nefnt. Það er
því engin kyrrstaða í kring um okk-
ur, þannig erum við og það er gam-
an að leggja eitthvað með sér á stað
sem Breiðdalsvík. Okkur Helgu
þykir orðið mjög vænt um staðinn,"
segir Vilhjálmur.
Hvernig lífsstíl sneruð þið baki
við?
„Það var mjög skemmtilegur lífs-
stíll. Við erum lífsglatt fólk og mikið
fyrir útiveru. Við komum okkur t.d.
upp sérbúnum ferða- og fjallabíl og
fórum á fjöll og veiddum silung, t.d.
í Friðmundarvötnum. Við erum mik-
ið fyrir útilegur og á haustin veidd-
um við gæsir dögum saman, seldum
aflann og skruppum til Dyflinar íyr-
ir ágóðann. Þetta segir kannski eitt-
hvað um lífsstílinn," svara þau hjón.
Þið hafið orðið að sleppa þessu al-
veg, var það ekki erfitt?
„Við þurfum að takast á við lífið
og það er ekki bara dans á rósum.
Við erum að byggja hér upp fyrir-
tæki sem á framtíð íyrir sér og er-
um alveg sátt við það,“ segir Helga
og Vilhjálmur bætir því við að hann
hafi látið það eftir sér að skreppa
tvisvar í Breiðdalsá til veiða í fyira
og hann ætli að reyna aftur í sumar.
„Ég fékk tvo laxa, þannig að ég er
ekki alveg búinn að snúa baki við
þessu. Aðalmálið er að við erum
ánægð.“