Morgunblaðið - 06.09.1998, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998 43
MINNINGAR
+ Fanney Guð-
mundsdóttir
fæddist á Suðureyri
við Súgandafjörð 30.
nóvember 1931. Hún
lést á heimili sínu 31.
ágúst síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Bústaða-
kirkju 4. september.
í dag kveðjum við
með söknuði góða vin-
konu okkar, Fanneyju
Guðmundsdóttur. Við
kynntumst Fanneyju
er við störfuðum með henni hjá
Skýrr hf. um nokkurra ára skeið.
Fanney var sérlega skemmtilegur
vinnufélagi með ríka kímnigáfu og
sá oft spaugilegu hliðarnar á hinu
daglega amstri. Samtarf okkar
þróaðist fljótlega út í góða og ein-
læga vináttu og eigum við margar
góðar minningar um hana. Sér-
staklega eru okkur minnisstæðar
þær stundir er við samstarfsstúlk-
ur í eldhúsi Skýrr hf. gerðum okk-
ur glaðan dag hver heima hjá
annarri, þá var oft mikið hlegið og
gert að gamni sínu. Skarð Fann-
eyjar í þessum litla hópi verður
ekki fyllt en hún mun
verða með okkur á
þessum fundum í
minningunni. Fanney
lét sér ekki nægja að
vera sérlega góð vin-
kona, hún lét sig
einnig miklu varða vel-
ferð fjölskyldna okkar.
Hún var einstaklega
gjafmild kona og ef
einhver í fjölskyldunni
stóð á tímamótum
fékk viðkomandi ávallt
sendingu frá Fanneyju
væri hún ekki sjálf
viðstödd. Kímnigáfa
hennar kom einnig fram í þessari
gjafmildi, jólagjafir frá Fanneyju
vöktu ávallt fögnuð en einnig líka
hlátur. Við viljum með þessum fáu
orðum þakka Fanneyju góða vin-
áttu og samstarf, við vitum að við
tölum fyrir hönd alh-a starfsmanna
Skýrr hf. þegar við segjum að
minningin um góða konu mun lifa í
hjarta okkar um alla framtíð.
Eg krýp við krossinn þinn
ó kom þú Jesú minn
og blessa mig í dag.
Mitt hjarta geri gott
oggæskuberivott
svo allt mér gangi í hag.
Með söknuði kveð ég þig, elsku
Fanney mín. Svo margs er að
minnast á þessari stundu. Ég varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að
kynnast þér og þínu góða hjarta
þegar mamma fór að vinna hjá
Skýrr hf. Þið mamma urðuð strax
góðar vinkonur. Þið höfðuð svo
gaman af því að fara í búðir og
skoða fallega hluti og þú, Fanney,
hafðir svo gaman af því að gefa
gjafír. Þegar ég var ófrísk af mínu
fyrsta barni fylgdist þú vel með mér
og barninu, mér fannst þú eiga svo
mikið í okkur. Þegar Jóhanna María
svo fæddist komst þú strax daginn
eftir upp á spítala ásamt mömmu
með fangið fullt af gjöfum bæði
handa mér og barninu. Eins gerðir
þú þegar ég eignaðist Vigdísi Fríðu
og síðar Sigfús Andra. Núna í byrj-
un sumars komst þú til mín í Mos-
fellsbæinn til að sjá húsið okkar.
Þá varstu orðin mjög veik og vissir
vel í hvað stefndi en þú vildir koma
í heimsókn áður. Þannig varst þú,
Fanney mín, og þrátt fyrir veikind-
in var alltaf stutt í hlátur og brosið
þitt blíða. Þegar ég sagði Jóhönnu
Maríu að þú værir farin til Guðs
sagði hún þessi orð: „Er Fanney þá
engill?“ og þegar ég svaraði játandi
hélt hún áfram: „Já, mamma, ég
veit að hún er fallegasti og besti
engillinn því hún var alltaf svo góð
við okkur og gaf okkur svo margt
fallegt." Já, svaraði ég með kökk í
hálsinum og hún sagði: „Mamma,
ekki vera leið.“
FANNEY
GUÐMUNDSDÓTTIR
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrh- tvíverknað. Þá
er enn fremur unnt að senda
greinamar í símbréfí (569 1115)
og í tölvupósti (minning@mbl.-
is) — vinsamlegast sendið grein-
ina inni í bréfinu, ekki sem við-
hengi.
Auðveldust er móttaka svokall-
aðra ASCII skráa sem í daglegu
tali eru nefndar DOS-texta-
skrár. Þá eru ritvinnslukerfin
Word og WordPerfect einnig
nokkuð auðveld úrvinnslu.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar grein-
ar um sama einstakling tak-
mai'kast við eina örk, A-4, miðað
við meðallínubil og hæfilega
línulengd, - eða 2.200 slög (um
25 dálksentimetra í blaðinu). Til-
vitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi.
Greinarhöfundar eru beðnir að
hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
V
V.
í :
” ' 5
. ■
i&T0
-<P -míl. . ;
Þegar andlát
ber að höndum
Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.
Sími 551 1266
Alian sólarhringinn
Ég vil að verkin mín
vitni um ást til þín
þú aldrei gleymist mér.
0 haltu hendi minni
hún aldrei sleppi þinni
og þjóni aðeins þér.
Ó láttu líf mitt allt
þér launa þúsundfalt
af allri gæsku þinni.
Og til þín taktu mig
til þess ég sjái þig
er lýkur gðngu minni.
(Steindór Ivarsson.)
Elsku Friðjón, við vottum þér og
fjölskyldu þinni samúð okkar af öllu
hjarta.
Hólmfríður,
Ester og Lára.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta. Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast, leiðir mig að vötnum þar sem ég má
næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir
mig um rétta vegu fyrir sakir nafn síns. Jafn-
vel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég
ekkert illt því þú ert hjá mér, sproti þinn og
stafur hugga míg. Þú býrð mér borð ffammi
fyrir fjendum minum, þú smyr höfuð mitt
með olíu, bikar minn er barmafullur. Já,
gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og
í húsi Drottins bý ég langa ævi.
(23. Daviðssálmur.)
Ég kveð þig, elsku Fanney mín,
með söknuð í huga. Elsku Friðjón,
ég sendi þér og fjölskyldu þinni
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún fvarsdóttir
og fjölskylda.
Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og systur,
HULDU SOFFÍU ARNBERGSDÓTTUR,
Grundarlandi 24,
Reykjavík.
Þorvaldur Þorvaldsson,
Þorvaldur Þorvaldsson, Ragnheiður Júlíusdóttir,
Þorgerður Þorvaldsdóttir, Jón Helgason,
Arnbergur Þorvaldsson, Hanna Margrét Geirsdóttir,
Gróa María Þorvaldsdóttir, Ingólfur Garðarsson,
barnabörn,
Elsa Fríða Arnbergsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ÁSGRÍMS P. LÚÐVÍKSSONAR
húsgagnabólstrara,
vistheimilinu Seljahlíð,
Reykjavík,
áður til heimilis í Úthlíð 10.
Þórunn Egilsdóttir,
Egill Ásgrímsson, Sigríður Lúthersdóttir,
Ragnheiður M. Ásgrímsdóttir, Guðbjartur K. Sigfússon,
Ásgrímur Þ. Ásgrímsson, Marta K. Sigmarsdóttir,
Jóhann G. Ásgrímsson, Herdís Alfreðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
INGIBJÖRG GUÐLAUG
ÞÓRÐARDÓTTIR
+ Ingibjörg Guðlaug Þórðar-
dóttir fæddist í Kolbeins-
staðahreppi 31. janúar 1920.
Hún lést hinn 28. ágúst síðast-
liðinn. Foreldrar hennar voru
Þórður Árnason, f. 28.9. 1884,
d. 27.3. 1961 og Sigurveig Da-
víðsdóttir, f. 4.12. 1886, d. 28.3.
1951, bændur á Hraunsmúla í
Kolbeinsstaðahreppi. Ingibjörg
hóf sambúð með Guðmanni Sig-
urðssyni 1950. Guðmann var
fæddur 2.9. 1914, d. 17.10. 1983.
Börn Ingibjargar 1) Kristín
Þóra Jóhannesdóttir verka-
kona, f. 28.6. 1944, d. 14.9. 1987.
2) Þórður Guðmannsson sjó-
maður, f. 1.2. 1951. 3) Kristján
Guðmannsson húsasmiður, f.
26.3. 1953.
títför Ingibjargar fór fram
frá títskálakirkju í Garði 5.
september.
Imba frænka mín var sjöunda í
röð tólf barna afa míns og ömmu.
Hún var alin upp vestur í
Hnappadalssýslu og hélt tryggð
við uppeldisstöðvarnar svo lengi
sem hugur hennar var heill.
Imba var alltaf í nálægð fjöl-
skyldu minnar, jafnvel eftir að
hún var flutt í annað hérað voru
tengslin mikil. Imba kom vestur á
vorin með litlu stelpuna sína, kom
svo aftur á haustin til að sækja
hana. Seinna eignaðist Imba
strákana sína tvo og okkur börn-
unum þótti þetta góðir tímar. En
æskan líður og börnin uxu upp.
En Imba kom eftir sem áður ár-
lega og dvaldi eina til tvær vikur,
alltaf söm við sig, trygg og um-
hyggjusöm frændfólki sínu. Þegar
heilsan bilaði fyrir nokkrum árum
tók fyrir ferðalög og heimsóknir
en lengi gat hún þó látið hugann
reika vestur þótt allt annað væri
gleymt.
Imba fór ung að vinna fyrir sér,
fyrst heima við en síðan hjá öðr-
um m.a. starfaði hún um tíma í
mötuneyti Háskólans. Eftir að
hún eignaðist telpuna sína var
hún víða í vistum, bæði hjá skyld-
um og vandalausum. Atvinnulífið
var fábreytt á yngri árum Imbu,
ekki síst fyrir konur. Um annað
var ekki að ræða en matseld, þrif
og þvotta fyrir aðra.
Imba stofnaði síðan heimili með
Guðmanni Sigurðssyni og sinnti
húsmóðurstörfum á eigin heimili
þar til heilsan brast. Síðustu ár
dvaldi hún á Garðvangi, dvalar-
heimili aldraðra í Garði. Imba
missti mann sinn 17.10. 1983 og
einkadóttur sína 1987. Dóttur sína
annaðist Imba í banalegu hennar
og sýndi þá mikið þrek. En þrátt
fyrir að hún bæri sorg sína vel þá
vissu allir að söknuður hennar var
mikill. Harm sinn bar hún í hljóði
en heilsu hennar hrakaði þó
smámsaman upp frá því.
Þegar maður er kominn á miðj-
an aldur reikar hugurinn æ oftar
til bernskuáranna og til þess fólks
sem hafði áhrif á umhverfi barns-
ins. Þetta fólk er nú óðum að
hverfa úr jarðnesku lífi en í minn-
ingunni er það hér enn, orð þess
og athafnir. Og þannig á það líka j*.
að vera. Imba og hennar kynslóð
hafði áhrif á lífsviðhorf okkar sem
nú erum á miðjum aldri og við
munum ósjálfrátt móta næstu
kynslóð með líkum viðhorfum.
Blessaðar séu minningarnar.
Sigurveig Sigurðardóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru \
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför
ÓLAFAR ÞÓRUNNAR SVEINSDÓTTUR,
Lágabergi 5,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sjúkrahúss Reykjavíkur fyrir góða umönnun.
Haraldur Lýðsson,
Haraldur D. Haraldsson, Hanne Fisker,
Friðgeir S. Haraldson, Ragna Rut Garðarsdóttir,
Inga Þóra Haraldsdóttir
og barnabörn.
*
+
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og tengdadóttir,
KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR,
Kveldúlfsgötu 9,
Borgarnesi,
andaðist á heimili sínu miðvikudaginn
2. seþtember.
Jarðarförin fer fram frá Borgarneskirkju
fimmtudaginn 10. september kl. 14.00.
Guðmundur Lind Egilsson,
Halldór Klemenzson,
Áslaug Lind Guðmundsdóttir, Arnar Kristinsson,
Halldór Lind Guðmundsson, Anna María Malmquist,
Jóhanna Lind Guðmundsdóttir,
Kristinn Lind Guðmundsson,
Stefán Orri, Kolbrún Lind, Snædís og Gunnar Logi,
Jóhanna Lind Pálsson.