Morgunblaðið - 30.09.1998, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Mikil uppskera á grænmeti
Hrunamannahreppi. Morgunblaðið.
NU STENDUR yfír aðalupp-
skerutími garðyrkjubænda hér í
uppsveitum Árnessýslu og er
spretta á grænmeti með allra
besta móti eftir hlýtt og sólríkt
sumar og er enn að spretta í þeirri
góðu tíð sem verið hefur að und-
anfornu. Mikil vinna er við að
skera kálið en ekki er hægt að
koma véltækni við, einungis við
niðursetningu á vorin. Flestir
bændurnir sem útirækt stunda eru
með grænmetisræktun í 3-5 hekt-
urum Iands.
Nokkrir garðyrkjubændur eru
með erlent vinnuafl sér til hjálpar,
einkum eru það stúlkur frá Norð-
urlöndunum, einnig eru Pólverjar
í vinnu hér á Flúðum við ýmis
störf. Að sögn tveggja garðyrkju-
bænda sem fréttaritari hafði sam-
band við, þeir Helgi Jóhannesson-
ar í Garði og Arnar Einarsson í
Silfturtúni, telja þeir þetta eitt
besta uppskeruár sem komið hef-
ur, ef ekki það besta. Vorið var
mjög gott en miklir þurrkar voru
framan af sumri sem drógu sum-
arstaðar úr sprettu en hægt var
þó að senda grænmeti á markað
með fyrsta móti.
Metuppskera á gulrótum
Gulrætur hafa t.d. sprottið eink-
ar vel og er metuppskera á þeim
víðast hvar, hægt er að taka þær
upp með vélum. Þeir Helgi og Örn
segja að uppskera í gróðurhúsum
hafi verið í góðu meðallagi.
Garðyrkjubændur segja neyslu á
grænmeti hafi aukist en ekki eins
mikið og vonast var eftir, hún
þurfí að aukast enn. Mest hafí
aukningin orðið f neyslu á
blaðlauk og spergilkáli. Verðið á
afurðunum sé viðunandi fyrir
garðyrkjumenn.
Þá er hér í sveit mjög mikil upp-
skera á kartöflum, víða um tutt-
ugu föld og eru dæmi um enn
rneiri uppskeru. Kornakrar hafa
gefíð meira af sér en endranær.
'gafhi®
r
lOG FYIGIHLUTIR
leikfangaversli
ból
ritfangaversk
stórmörkuði
matvörubúðu
DREJFJNGARAÐILI
I.GUÐMUNDSSON ehf.
Sími: 533-1999, Fax: 533-1995
Ráðstefna um starfslok
Hvatt hefur ver-
ið til sveigjan-
legra starfsloka
Pétur A. Maack
SAMEINUÐU þjóð-
imai* hafa ákveðið
að árið 1999 verði
alþjóðlegt ár aldraðra.
Þetta ár hefst formlega á
morgun, 1. október. ASÍ,
BSRB og Landssamband
eldri borgara standa á
morgun íyrir ráðstefnu af
þessu tilefni sem ber yfir-
skriftina Starfslok.
Pétur A. Maack er ráð-
stefnustjóri.
„Meginþema ráðstefn-
unnar er starfslokin í
víðri merkingu. Allir sem
verða með erindi á ráð-
stefnunni fjalla frá ýms-
um sjónarhomum um
starfslokin en markmiðið
með ráðstefnunni er að
hefja almenna umræðu
um málefni aldraðra á
jákvæðan hátt.“
Pétur segir að vekja eigi at-
hygli forystumanna verkalýðs-
hreyfingarinnar á því að málefni
aldraðra séu verðugt verkefni
fyrir hreyfinguna. „Við þurfum
að leita leiða til að koma í veg
fyrir rof tengsla milli vinnandi
manna og þeirra sem em hættir
á vinnumarkaði. I dag era
aðstæður og lífslíkur manna allt
aðrar en þær vora þegar
verkalýðishreyfingin var stofn-
uð fyrir hundrað áram. Til þessa
þarf að taka tillit þegar fjallað
er um starfslok innan hreyfing-
arinnar.“
- Er ekki mismunandi
hvenær fólk er tilbúið að hætta
störfum ?
„Vissulega og það er ómögu-
legt að skipta rosknu fólki í einn
hóp. Þeir geta verið heilsugóðir
eða fárveikir og fjárhagslega vel
stæðir eða illa staddir." Hann
bendir á að margir kvíði því að
hætta að vinna á meðan aðrir
hlakki til. Sumir hafi að mörgu
að hverfa á meðan einhverjir
era orðnir þreyttir og slitnir
þegar að starfslokum kemur.
„Það er því í mörg hom að líta.“
- Mun sveigjanleg starfslok
bera á góma á þessari ráð-
stefnu?
„Örugglega. I stefnumiðum
Sameinuðu þjóðanna um
málefni aldraðra er því beint til
aðildarríkja að stefnt skuli að
því að aldraðir fái sjálfir að
ákveða hversu hratt og hvenær
þeir hætti á vinnu-
markaðnum.
Óskastaðan er
auðvitað að fólk geti
valið hvenær það læt-
ur af störfum. Það
væri æskilegt að
þessu fólki væri sköpuð aðstaða
til að fara í léttari störf innan
fyrirtækjanna sem jafnframt
myndu þá nýta þekkingu og
reynslu þessa fólks áfram.“
Pétur segir að sum fyrirtæki
leyfi sem betur fer þeim sem
era vel hressir að vinna lengur
en til sjötugs og þá fær fólk
launagreiðslur auk eftirlauna.
- Hverjum er þessi ráðstefna
ætluð?
„Hún er fyrir alla sem starfa
að málefnum aldraðra og láta
sig þessi mál varða. Við höfum
fundið fyrir mjög miklum áhuga
á ráðstefnunni og um 200 þátt-
takendur hafa þegar látið skrá,
sig. Það þýðir með öðrum orðum
að hvert sæti verður setið og
kominn er biðlisti."
► Pétur A. Maack er fæddur í
Reykjavík árið 1949. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Réttar-
holtsskóla árið 1966. Pétur
starfaði hjá Flugfélagi fslands
og síðar Flugleiðum frá 1966-
1982.
Hann hefur verið í stjórn
Verslunarmannafélags Reykja-
víkur frá árinu 1974 og vara-
formaður þess frá árinu 1991.
Pétur hóf störf hjá Verslun-
armannafélagi Reykjavíkur
árið 1982 og sinnti fræðslu- og
útbreiðslustörfum uns hann
varð framkvæmdastjóri félags-
ins árið 1987.
Eiginkona hans er Kristjana
Kristjánsdóttir og eiga þau
íjögur börn.
Pétur segir að Kópavogsbær
sé gestgjafi ráðstefnunnar sem
stendur heilan dag. Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðis- og
tryggingaráðherra flytur í upp-
hafi ávarp og opnar formlega ár
aldraðra á Islandi. Þá munu
ýmsir flytja söng og tónlist og
meðal þeirra sem flytja erindi
eru Aðalsteinn Sigfússon
félagsmálastjóri Kópavogs og
Þórunn Sveinbjörnsdóttir for-
maður starfsmannafélagsins
Sóknar.
Öldrunarsálfræðingurinn
Berglind Magnúsdóttir mun
skýra frá félagslegum hliðum
starfsloka, María Ammendrap
hjá Félagsvísindastofnun fjallar
um vinnuviðhorf og
Benedikt Davíðsson
formaður Landssam-
bands eldri borgara
ræðir um viðhorf
aldraðra til starfs-
loka.“
Pétur bendir á að í lokin verði
penelumræður sem Lára
Björnsdóttir félagsmálastjóri
Reykjavíkur stjómi en þar
verða forystumenn í verkalýðs-
hreyfingunni ásamt fulltrúum
aldraðra í fyrirsvari. „Þar mun
m.a. verða rætt hvernig
verkalýðshreyfíngin og félög
eldri borgara geti komið að
bættum undirbúningi starfsloka
og fjallað um þau atriði fram-
kvæmdaáætlunar ASÍ og BSRB
sem snerta starfslok. Alþýðu-
samband Islands hefur tekið
þátt í og átt fulltrúa í starfi sem
snýr að málefnum aldraðra í
þjóðfélaginu og síðustu tvö árin
hefur verið reynt að koma
skipulegu starfi í gang og stefn-
umótun hefur farið fram.“
Aldraðir eru
afar marg-
breytilegur
hópur