Morgunblaðið - 30.09.1998, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Aukin umsvif í fískvinnslu Dagmanns Ingvasonar á Dalvík
Starfshópur um upp-
byggingu matvælagarðs
Starfsfólki
Qölgað
Morgunblaðið/Kristján
DAGMANN Ingvason, t.v., og Stefán Steinsson fóru fimlega með hníf-
ana en þeir voru að flaka blálöngu er ljósmyndari Morgunblaðsins var
á ferð á Dalvík í gær.
DAGMANN Ingvason, sem rekur
fiskvinnslu á Dalvík undir eigin
nafni, flytur starfsemi sína í nýtt
húsnæði eftir helgina og í kjölfarið
stefnir hann að því að bæta við 4-6
starfsmönnum. Dagmann sagði í
samtali við Morgunblaðið að at-
vinnuástand á Dalvík væri hins
vegar það gott og mikil gróska í at-
vinnulífínu að erfitt gæti orðið að
fá fólk til starfa.
Dagmann hefur tekið 500 fer-
metra húsnæði hjá Stefáni Rögn-
valdssyni hf. við Ránarbraut á
leigu og er verið að ljúka við lag-
færingar á því þessa dagana. Starf-
semin er nú í um 100 fermetra
plássi hjá fyrirtækinu Arnesi. „Eg
hóf þessa vinnslu fyrir tveimur ár-
um og þá með annarri vinnu. Eftir
rúmlega hálft ár sneri ég mér al-
farið að vinnslunni. Við höfum ver-
ið tveir starfsmennirnir en ég
reikna með að bæta við 4-6 starfs-
mönnum nú þegar vinnslan verður
komin í gang á nýjum stað.“
Starfsemin
gengið vel
Dagmann hefur sérhæft sig í
vinnslu á sjófrystum afurðum og er
uppistaðan sjófrystur karfi en
einnig er hann að vinna grálúðu,
steinbít, hlýra og blálöngu. „Þessi
starfsemi hefur gengið mjög vel en
fram að þessu hef ég verið nokkurs
konar undirverktaki hjá Snæfelli
og séð fyrirtækinu fyrir karfa og
gi-álúðu upp í sína sölusamninga.
Eg mun halda því áfram og til við-
bótar mun ég selja afurðir sjálfur
og þá í gegnum Islenskar sjávaraf-
urðir.“
Hráefnisöflun hefur gengið vel
og sagðist Dagmann hafa vilyi-ði
fyrir hráefni frá ÍS. • Hann hefur
rekið fyi’irtækið á sínu nafni og
kennitölu en gerir ráð fyrir að
breyta því í einkahlutfélag fyrir
áramót.
Grýtubakkahreppur
Leitað
að heitu
vatni
LEIT að heitu vatni í Grýtubakka-
hreppi er nýlega hafin, en verið er
að bora vítt um sveitina, alls níu
rannsóknarholur. Jarðboranir ann-
ast þetta verkefni.
Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri
Grýtubakkahrepps sagði að flest
hús í hreppnum væru kynt með
rafmagni og örfá með olíu. Undan-
tekning fi’á því er sundlaugin á
staðnum, en hún er kynt með um
20 gráða heitu vatni sem fannst
undir Höfðanum.
„Það er pottþétt að hér finnst
heitt vatn, við þurfum bara að
finna það,“ sagði Guðný. Gert er
ráð fyrir að boranir standi yfir í um
hálfan mánuð, en niðurstöður ættu
að sögn Guðnýjar að liggja fyrir
eftir um tvo mánuði. „Þegar niður-
stöður liggja fyrir munum við
skoða málið og hvaða kostir verða í
stöðunni," sagði hún.
Sjávarútvegsháskóli Sameinuðu þjóðanna
Morgunblaðið/Kristján
Eflir rann-
sóknarstarf
í matvæla-
iðnaði
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra hefur í samráði við Þor-
stein Gunnarsson, rektor Háskólans
á Akureyri, ákveðið að skipa starfs-
hóp til að gera tillögur um uppbygg-
ingu og rekstur matvælagarðs í
tengslum við háskólann.
Þorsteinn Gunnarsson rektor
sagði að hugmyndin á bak við mat-
vælagarðinn væri sú að háskólinn,
rannsóknarstofnanir atvinnuveg-
anna og fyrirtæki í matvælaiðnaði
myndu vinna saman að því að efla
rannsóknar- og þróunarstai'f í mat-
vælaiðnaði. Matvælagarðurinn
myndi tengjast starfsemi sjávarút-
vegsdeildar háskólans.
„Eg fagna mjög þessari ákvörðun
sjávarútvegsráðherra,“ sagði Þor-
steinn. „Slíkt matvælasetur mun efla
kennslu, rannsóknir og ráðgjöf á
þessu sviði og þar með ýta fleiri
stoðum undir atvinnulífið hér um
slóðh’. Það er einmitt sérstök ástæða
til að byggja upp slíkt setur á Akur-
eyi’i vegna þess hve matvælaiðnað-
urinn á sér sterkar rætur hér.
Fyi-irhugað er að matvælagarður-
inn verði til húsa í rannsóknarhúsi
Háskólans á Akureyri sem rísa mun
við háskólann og sagði Þorsteinn að
hann myndi eflaust draga að sér sér-
fræðinga og visindamenn á þessu
sviði.
----------------
Heilsugæsla og
sambýli aldraðra
IBÚAR í Grýtubakkahreppi munu
ásamt fjölda gesta taka í notkun nýtt
hús, þar sem er sambýli fyrir aldr-
aða og heilsugæslustöð undir einu og
sama þakinu næstkomandi laugar-
dag, 3. október. Húsið er rúmlega
500 fermetrar að stærð.
Ákvörðun um bygginguna var tek-
in í janúar í fyi’ra, en á síðari árum
hafa aldraðir íbúar hreppsins ekki
haft aðgang að dvalarheimilum og
fyrir kom að aldraðir þurftu að fara
á dvalarheimili allfjarri sinni heima-
byggð. Með sambýlinu sem nú verð-
ur tekið í notkun verður sá vandi
leystur. Alls er rými fyrir átta ein-
staklinga í sambýlinu.
Utboð á tryggingum
Akureyrarbœr óskar eftir
tilboðum í tryggingar
Um er að rœða m.a.
Tryggingar skilm. helstu stærðir
Húseigendatrygging
Lausafjártrygging
Bifreiða/vinnuvélatryggingar
Slysatrygging launþega
skv. kjarasamningum
Alm. slysa- og líftr.
Slysatrygging skólabarna
Frjáls ábyrgðartrygging
Brunatryggingar
alm. kr. 5,5 milljarðar
alm. kr. 1,2 milljarður
áb tr. fjöldi bifr.
/ lögb. og vinnuvéla um 100
alm. tr skyldar vinnuv. 61.500
alm. 67 manns
alm. fjöldi barna 3.400
ábtr. útboðsskilm.
lögb. kr. 7,6 milljarðar br bmat
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Akureyrarbæjar, Geislagötu
9, 2. hæð, gegn 5.000 kr. greiðslu, frá og með 5. október n k.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu bæjarlögmanns Geislagötu 9, 2.
hæð, Akureyri, fyrir kl. 14.00 föstudaginn 23. október 1998, þar
sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess
óska.
Akureyri 30. september 1998
Akureyrarbœr - bœiarlösmaður
Nemendur
heimsækja
Eyjafjörð
NEMENDUR í Sjávarútvegshá-
skóla Sameinuðu þjóðanna f
Reykjavík; sex að tölu, frá
Gambiu, Uganda og Mósambík
stunda nám sitt á Eyjafjarðar-
svæðinu þessa dagana. Með þeim
í för er Tumi Tómasson, skóla-
stjóri Sjávarútvegsskólans. Hóp-
urinn kom til Akureyrar sl.
fimmtudag og heldur suður yfir
heiðar nk. laugardag. Nemendur
stunda bóklegt nám í Háskólan-
um á Akureyri fyrir hádegi en
hafa verið að skoða sjávarút-
vegsfyrirtæki í Eyjafirði eftir
hádegið.
I gær var hópurinn að skoða
fyrirtæki á Árskógssandi og
Hauganesi og á myndinni eru
nemendurnir að skoða væna
þorska á bryggjunni á Hauga-
nesi. Með þeim á myndinni eru
Tumi Tómasson, Magnús Magn-
ússon hjá VSO Ráðgjöf Akureyri
og Elvar Reykjalín frá fískverk-
un Trausta hf. á Hauganesi.
Nemendurnir fengu að bragða
á skötu og snafsi hjá fiskverkun
Trausta og í kjölfarið fengu þeir
félagsskírteini í „Rotten skate
club“ en Elvar Reykjalín er titl-
aður forseti klúbbsins.
Morgunblaðið/Kristján
Minnt á bilabænina
JÓN Oddgeir Guðmundsson á
Akureyri hefur komið upp stóru
skilti við þjóðveg 1, í landi Mold-
haugna í Glæsibæjarhreppi
skammt norðan Akureyrar. Text-
inn á skiltinu er hnitmiðaður:
Munið bílabænina, en Jón Odd-
geir hefur gefið umrædda bíla-
bæn út undanfarin 26 ár.
Ótalmargir ökumenn hafa fest
bílabænina á mælaborð bifreiða
sinna og segir útgefandinn að
margir hafi sýnt þakklæti sitt
fyrir hana og þá áminningu sem
hún flytur.
Þakkir bílstjóra fyrir bflabæn-
ina sem minnir á ábyrgð þeirra í
umferðinni, urðu hvatinn að því
að Jón Oddgeir vildi vekja á
henni athygli, en hann er mikill
áhugamaður um betri umferðar-
menningu.