Morgunblaðið - 30.09.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998 21
Fylgi Kohls
dreifðist á
alla flokka
Bonn. Reuters.
KRISTILEGI demókrataflokk-
urinn (CDU), flokkur Helmuts
Kohls fráfarandi kanslara,
tapaði fylgi í allar áttir ef
marka má útreikninga stjórn-
málaskýrenda sem rýnt hafa í
niðurstöður þýsku sam-
bandsþingkosninganna síðast-
liðinn sunnudag. Jafnvel þeir
tveir hópar kjósenda sem Kohl
lagði sérstaka áherslu á að
höfða til síðustu daga kosn-
ingabaráttunnar, óákveðnir og
íbúar austurhluta Þýskalands,
virðast hafa yfirgefið kanslar-
ann þaulsetna á ögurstundu.
Segja fréttaskýrendur að
Gerhard Schröder og Jafnaðar-
mannaflokkur hans (SPD) hafí
í raun ekki unnið kosningarnar
heldur hafi Kohl og CDU tapað
þeim. Virðast atkvæði sem áð-
ur fóru til CDU nú hafa dreifst
á jafn ólíka flokka og SPD, arf-
takaflokk austur-þýska
kommúnistaflokksins (PDS) og
öfgahægri flokkinn DVU.
Er það skoðun dagblaðsins
Siiddeutsche Zeitung í
Miinchen að kosningaúrslitin
nú séu þau verstu sem CDU
hefur þurft að þola síðan í
ágúst 1949. Jafnvel breytingar
á kosningalögunum, sem í
þingkosningunum árið 1994
tryggðu Kohl enn öruggari
þingmeirihluta en ella, virðast
nú miklu fremur hafa komið
andstæðingum hans til góða.
Fékk SPD 13 svokölluð
aukaþingsæti en CDU ekkert.
Hafði CDU hins vegar fengið
12 slík árið 1994 og þannig
tryggt stöðu sína þá.
CDU tapaði
alls staðar fylgi
CDU tapaði fylgi í öllum
sextán sambandslöndum Þýska-
lands, frá 0,6% í Hesse í vestur-
hluta Þýskalands til svo mikils
sem 15,3% í Saxlandi í austur-
hlutanum. Er útkoma CDU í
austurhlutanum áfall fyrir
flokkinn enda vann Kohl,
„kanslari sameiningariimar",
þar yfirburðasigur í sam-
bandsþingkosningunum árið
1990 eftir að Þýskaland var
sameinað og hlaut einnig mjög
góða kosningu árið 1994. Þegar
á heildina er litið féll fylgi CDU
í austur-Þýskalandi um 11,2%.
„Árið 1990 sögðu menn að
austrið væri „rautt“ en CDU
vami þar,“ sagði Willy Koch,
stjórnmálaskýrandi frá Leipzig.
„Núna getum við séð að austrið
er sannarlega rautt og að niður-
stöðurnar 1990 og 1994 voru
fremur undantekning frá regl-
uimi heldur en hitt.“ Segir Koch
að í austurhluta Þýskalands sé
að finna mun fleira fólk sem
teljist til eðlilegs kjósendahóps
SPD, verkamenn og opinberir
starfsmenn, heldur en í vestur-
hlutanum þar sem CDU sæki
fylgi sitt til fólks úr atvinnulíf-
inu og landbúnaði.
Talið er að 1,1 milljón kjó-
senda, eða 1,9% þeirra 60,5
milljóna manna sem voru á
kjörskrá, hafi nú greitt SPD at-
kvæði sitt en ekki CDU eins og
árið 1994. En fylgi CDU
dreifðist víðar, um 103.000
manns munu nú hafa kosið
fyrrverandi kommúnista í PDS
og yfir 200.000 marnis, sem áð-
ur studdu CDU, munu liafa
kosið öfgaflokkinn DVU.
330.000 manns, eða 0,5% kjó-
senda, greiddu nú Frjálslynda
demókrataflokknum (FDP) at-
kvæði sitt. SDP tókst einnig
að virkja 1,3 milljónir kjós-
enda, eða um 2,2% atkvæða-
bærra manna, sem venjulega
mæta ekki á kjörstað á meðan
um 224.000 kjósenda CDU
ákváðu nú að neyta ekki at-
kvæðisréttar síns.
ERLENT
Fyrrverandi aðstoðarforsætisráðherra Malasfu birtar ákærur
Anwar segist saklaus
Kuala Lumpur. Reuters.
ANWAR Ibrahim, fyrrverandi aðstoðaiforsætis-
ráðherra Malasíu, var í gær leiddur fyi-ir rétt í
Kuala Lumpur þar sem honum var birt ákæra
fyrir fimm spillingarbrot og fjögur kynferðisbrot.
Anwar lýsti sig saklausan af öllum ákæruatrið-
um. Hann hefur fullyrt að ásakanirnar séu liður í
pólitískiú herferð gegn sér og til þess ætlaðar að
koma í veg fyrir að hann fletti ofan af spillingu í
stjórnkerfinu. Verði Anwar fundinn sekur gæti
hann átt yfir höfði sér allt að 14 ára fangelsisdóm
fyrir spillingu og 20 ára fangelsi og hýðingu fyrir
að hafa átt kynmök við karlmenn, en samkyn-
hneigð er ólögleg í Malasíu.
Ættleiddur bróðir Anwars og fyrrverandi
ræðuritari hans voru fyrr í mánuðinum dæmdir í
sex mánaða fangelsi fyrir að hafa átt kynmök við
Anwar. Þeir drógu játningar sínar til baka í gær
og áfrýjuðu dómnum til hæstaréttar. Að sögn
lögmanna voru þeir pyntaðir af lögreglu og
þvingaðir til játninga, í því skyni að klekkja á
Anwar.
Beittur ofbeldi af lögreglu
Anwar bar fyrir dómara í gær að kvöldið sem
hann var handtekinn hefði hann verið barinn þar
til hann missti meðvitund og að honum hefði ver-
ið neitað um læknisaðstoð í fimm daga. Frétta-
menn tóku eftir því að hann var með glóðarauga
er hann var leiddur fyrir réttinn í gær og virtist
af honum dregið. Eiginkona Anwars, sem er
augnlæknir að mennt, sagði að hann hefði skerta
sjón og að hann kvartaði yfir jafnvægistruflunum
eftir barsmíðar lögreglunnar.
Lim Kit Siang, leiðtogi stærsta stjórnarand-
stöðuflokks Malasíu, mótmælti meðferð lögregl-
unnar á Anwar á malasíska þinginu í gær. Hann
sagði í ræðu sinni að allir Malasíubúar spyrðu sig
nú þeirrar spurningar hvort þeir væru óhultir,
fýrst svona væri farið með fyrrverandi aðstoðar-
forsætisráðherra landsins.
Anwar var handtekinn 20. september síðast-
liðinn eftir að hann hafði leitt 30 þúsund manna
mótmælagöngu gegn stjórnvöldum um götur Ku-
ala Lumpur.
Mahathir Mohamad, forsætisráðherra Malasíu,
hefur sakað hann um að æsa til uppþota með það
fyrir augum að steypa stjórninni, líkt og átti sér
stað í Indónesíu síðastliðið vor. Anwar var tekinn
höndum á grundvelli öryggislaga sem gera
stjórnvöldum kleift að halda mönnum í fangelsi
án réttarhalda.
Reuters
ANWAR Ibrahim, til vinstri, kemur til dómhússins í Kuala Lumpur í gær. Hann er
með glóðarauga eftir barsmíðar lögreglu.
Fj ár lagafrumvarp
veldur deilum í Noregi
Ösló. Reuters.
SAMSTEYPUSTJÓRN miðflokk-
anna í Noregi var gagnrýnd harð-
lega í gær eftir að viðkvæmum upp-
lýsingum um innihald væntanlegi’a
fjárlaga hafði verið lekið í Dagblad-
et. Hugnast hvorki vinstri né hægri
flokkunum áætlanir ríkisstjórnar
Kjells Magne Bondeviks um skatta-
hækkanir og niðurskurð í ríkisfjár-
málum.
Sagði í frétt Dagbladet að ríkis-
stjórnin, sem er minnihlutastjórn
og nýtur einungis stuðnings fjörutíu
og tveggja af hundrað sextíu og
fimm fulltrúum á norska Stórþing-
inu, hygðist minnka ríkisútgjöld um
næstum eitt hundrað milljarða ísl.
króna í fjárlögum sem lögð verða
fyrir Stórþingið 5. október næst-
komandi.
Lýst hægri flokkunum lítið á þá
fyrirætlun stjórnvalda að hækka
skatta og tolla um 42 milljarða ísl.
króna til að vega upp á móti lækk-
andi olíuverðs á heimsmarkaði.
Vinstri flokkamir eru fyrir sitt leyti
fremur ósáttir við þá fyrirætlun
stjórnarinnar að greiða foreldrum
barna yngri en tveggja ára þrjátíu
þúsund ísl. krónur á mánuði fyrir að
annast börn sín sjálfir heima við.
Segist Verkamannaflokkurinn alls
ekki hafa hugsað sér að styðja fjár-
lög sem ganga í þessa átt.
Segja fréttaskýrendur að hætta
sé á margra mánaða karpi um fjár-
lögin, reynist upplýsingar um inni-
hald þeirra réttar, og jafnvel falli
ríkisstjórnar Kjells Magne
Bondeviks eftir fjórtán mánaða
valdatímabil. Stjórnvöld tilkynntu
hins vegar að þau hygðust biðja
norsku rannsóknarlögregluna að
kanna gaumgæfilega hvernig lekinn
um innihald fjárlaganna væri til
kominn.
Fyllingar í
tönnum ollu
æðiskasti
London. The Daily Telegraph.
BRESK kona sem réðst á móð-
ur sína og var í kjölfarið talin
geðveik af læknum fékk á dög-
unum uppreisn æru þegar kom
í ljós að hún hafði orðið fyrir
eitrun af völdum fyllinga í
tönnum.
Theresa Walker dró 59 ára
gamla móður sína út úr rúminu
í apríl síðastliðnum og elti út
um allt hús á meðan hún barði
hana í höfuð og handleggi með
bílstýrislás. Var Walker lokuð
inni á geðdeild eftir árásina en
þegar betur var að gáð reyndist
æðiskast hennar hafa komið til
af því að kvikasilfur hafði tekið
að leka úr fyllingum í tönnum
hennar. Reyndist hún hafa
tífalt það magn kvikasilfurs í
líkamanum sem talið er hollt.
Hafði ungfrú Walker, sem er
36 ára gömul, ekki gengið heil
til skógar um nokkurn tíma
vegna kvikasilfurseitrunar.
Andlitið hafði bólgnað en lækn-
ar talið að um vírus væri að
ræða og jafnvel að Walker væri
með rauðu hundana. Er leið
fram í apríl var hún orðin sann-
færð um að móðir hennar væri
að reyna að eitra fyrir henni.
Betur fór en á horfðist og
komst móðirin undan er Walk-
er gerði atlögu að henni.
Algengt mun hafa verið á
áttunda áratugnum að tann-
læknar notuðu kvikasilfur í
tannfyllingar.
Þú ferð
einfaldlega
fyrr í rúmio!
KINGSDOWN
Eðlileg hryggjarstaða
Minni byltur i svefni
Ofnæmisprófuð Flexatron® fóðring
i Frábær þyngdardreifing
S> Stuðlar að betri hvíld, auknum
þægindum og heilbrigðum nætursvefni
SOFÐUÁ
ÍGORHUR
fGORM
DÝNUM
Einstakar
amerískar
dýnur frá
Kingsdown