Morgunblaðið - 30.09.1998, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 30.09.1998, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 1998 49 Bertolt Brecht Bertolt Brecht í október SPENNULEIKRIT, djass, sígild tónlist, skemmtiþættir, snörp dæg- urmálaumræða, heimildaþættir og þemamánuðir verða á vetrardag- skrá Rásar 1 og Rásar 2 í vetur og verður reynt að miðla til lesenda fróðleik, spennu, afþreyingu og tón- list við allra hæfí. Þemamánuðir verða á Rás 2 í vet- ur og í október verður fjallað um þýska leikritasmiðinn Bertolt Brecht í tilefni af aldarafmæli hans. Ýmsar hliðar á skáldinu verða skoð- aðar, birtar verða nýjar þýðingar á smásögum, ljóðum og kenningum hans og heyra má fjölbreytta tónlist eftir tónskáldin Kurt Weil, Hans Eisler og Paul Dessau, sem áttu samstarf við Brecht. Túskild- ingsóperan eftir Brecht og Weil verður ílutt í lok mánaðarins. Brecht-mánuðurinn hefst sunnudag- inn 4. október með kennsluleikritinu Undantekningunni og reglunni. Utvarpsleikrit verða í fyrsta skipti send út á báðum stöðvum. Einnig verða vandaðir heimilda- þættir á laugardags- og sunnudags- morgnum, að sögn Margrétar Odds- dóttur deildarstjóra menningar- deildar Rásar 2. Má þar nefna þátta- röð um utanríkissögu Bandaríkj- anna. Fimmtudagsþátturinn Vinkill verður vettvangur nýsköpunar í út- varpsþáttagerð. Tilraunir verða gerðar með upptökur, tal og hljóð, óvenjulegar samsetningar og efnis- tök. Markmiðið er að koma áheyr- endum skemmtilega á óvart. Sinfónían á sunnudögum Fitjað verður upp á þeirri ný- breytni á Rás 1 að útvarpa tónleik- um Sinfóníuhljómsveitar íslands fyrsta sunnudag eftir hverja tón- leika, að sögn Oskars Ingólfssonar, deildarstjóra tónlistar. Á þriðju- dagskvöldum í vetur verður útvarp- að tónleikaröðum. Sú fyrsta er byggð á upptökum tónleika frá nýaf- staðinni djasshátíð í Reykjavík og er önnur röðin samvinnuverkefni evr- ópskra útarpsstöðva undir heitinu Goðsagnir í tónlist. Á Rás 2 kveður við annan tón. Þar eru flutt nýjustu lögin í Rokklandi Olafs Páls Gunnarssonar alla virka morgna og þekktar og óþekktar hljómsveitir koma í hljóðver og láta í sér heyra. Annars staðar í dag- skránni verður útvarpað frá tónleik- um hér heima og erlendis auk þess sem eldri tónlistarliðir halda áfram. Umslög gestaumsjónarmanna Til viðbótar verður framleitt fram- leitt fjölbreytt efni fyrir báðar rásir. I vetur verður hinn gamalkunni út- varpsmaður Leifur Hauksson aðal- umsjónarmaður Dægurmálaút- varpsins og af annarri nýbreytni nefnir hún að sérstök umslög verða opnuð síðasta hálftíma þáttarins þar sem gestaumsjónarmenn verða með stutt innlegg. Á mánudögum fá hlustendur að heyra inúítasögur sem Sigfús Bjart- marsson þýðir og les, Magga Stína. fyllir umslagið á miðvikudögum með samtalsbrotum og á fímmtudögum verður fjallað um kvikmyndir og dægurlög. FÓLK í FRÉTTUM Hugh Grant sammála Bill Clinton ► BRESKI leikarinn Hugh Grant og Bill Clinton Banda- ríkjaforseti eiga það sameigin- legt að hafa komist í sviðsljósið eftir að hafa verið staðnir að framhjáhaldi. Og báðir eru þeirrar skoðunar að framhjáhald eigi að vera þeirra einkamál. I samtali við tímaritið GQ gagnrýnir Grant umfjöllun fjöl- miðla um það þegar hann var staðinn að verki með vændis- konu og fangelsaður. „I einkalíf- inu voru skammir réttlætanleg- ar,“ segir hann um atvikið. „En opinberlega var það gjör- samlega óréttlætanlegt. Að mínu mati var það helber hræsni og ég hræki í andlitið á fjölmiðlum sem gerðu svona mikið úr þessu.“ ELIZABETH Hurley og Hugh Grant á frumsýningu „Permanent Midnight" í sept- ember. Hún fer með aðalhlut- verk í myndinni ásamt Ben Stiller og Mariu Bello. Ekki að sparka heldur veifa ► HASARHETJAN knáa Jackie Chan sést hér veifa til aðdáenda sinna sem þyrptust í bókabúðina Barnes and Noble í Seattle til að fá áritaða ævisögu kappans á dögunum, „I am Jackie Chan: My Life in Action". Nýjasta mynd Jackie Chan, „Rush Hour“ halaði inn 31 milljón dollara á frumsýn- ingarhelginni síðustu, en í mynd- inni leikur Chan Iöggu frá Hong Kong sem kemur til Bandaríkj- anna til að taka á glæpastarfsem- inni ásamt bandarískum kollega sem leikinn er af gamanleikaran- um Chris Tucker. Aðsókn að myndinni fyrstu sýningarhelgina slær met þar vestra fyrir myndir sem frum- sýndar eru á haustmánuðum. Að vonum er því Jackie Chan í vina- legri stellingum en menn eiga að venjast og veifar bara ljúflega og lætur spörkin eiga sig. Flug og hótel til London 12. og 19. október frá kr. 26.900 Við höfum nú tryggt okkur viðbótar- I Aðeins 10 I gistingu á Ambassador-hótelinu ,,í herbergi í boðí I Kensington a frabærum kjorum. Öll herbergi með baði, sjónvarpi og síma, herbergin eru lítil en hótelið snyrtilegt og vel staðsett. Bókaðu meðan enn er laust og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða á meðan á dvölinni stendur. Verð kr. 26.900 Flug og gisting í London, 12. og 19. okt. m. v. 2 í herbergi, Ambassa- dor-hótelið, 3 nætur. Austurstræti 17, 2. hæð ♦ síi Beint flug alla fimmtudaga og mánudaga í október og nóvember. ii 562 4600. www.heimsferdir.is TvöFaldur ímmmtakak í kvöld er dregið í Víkingalottóinu um tugi milljóna króna! Fáðu þér miða fyrir kl. 16 í dag. ( ATH! AðeinsESflkr. röðin) y í K 1 T N G til «i^|LS að V N N A

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.