Morgunblaðið - 02.10.1998, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Þögul mótmælastaða átakshóps öryrkja
fyrir framan Alþingishúsið
• •
„Ororka ávísun
á hreina fátækt“
ÁTAKSHÓPUR öryrkja stóð fyrir þögulli mótmælastöðu á
Austurvelli fyiir framan Aiþingishúsið við upphaf um-
ræðunnar um stefnuræðu forsætisráðherra í gærkveldi.
Garðar Sverrisson,
talsmaður hópsins og
varaformaður Öryrkja-
bandalags fslands, sagði
að með mótmælastöðunni
vildi hópurinn vekja at-
hygli á því að almanna-
tryggingar á íslandi risu
ekki lengur undir nafni og
stæðust ekki samanburð
við almannatryggingar í
þeim löndum sem væru
sambærilegust okkur í
þjóðartekjum.
Veikir og fatlaðir
helmingur
skjóistæðinga
„Við erum líka að vekja
athygli á þeirri bláköldu
staðreynd að hér í einu
ríkasta landi veraldar er
örorka ávísun á hreina
fátækt, enda er svo komið
að um helmingur skjól-
stæðinga Rauða kross
Islands og Hjálparstofn-
unar kirkjunnar er fólk
sem vegna alvarlegra
veikinda og fótlunar hef-
ur ekki til hnífs og skeið-
ar; fólk sem líður fyrir lé-
legar almannatrygging-
ar,“ sagði Garðar
Sverrisson.
Hann sagði að allir sem
hefðu eitthvað komið
N esj avallavirkjun
SrIb, al
raforku
hafín
SALA á raforku frá fyrri véla-
samstæðu Nesjavallavirkjunar
hófst í gær og verður seinni
vélin tekin í notkun eftir mán-
uð. Hvor vélasamstæða er 30
MW. Að sögn Jóhanns Krist-
jánssonar, veitustjóra á Nesja-
völlum, gekk tengingin vel og
var rafmagni hleypt á um
miðnætti aðfaranótt fímmtu-
dags.
Bygging orkuversins tók 20
mánuði. Samhliða byggingu
rafstöðvar hefur heitavatns-
framleiðslunni verið breytt
verulega og gufuveitan tvöfóld-
uð. Rafmagnsveita Reykjavík-
ur sá um byggingu há-
spennulínunnar frá virkjun-
inni.
Endurskoðuð kostnað-
aráætlun íyrir allar fram-
kvæmdimar er 4,2 milljarðar
króna eða um 800 milljónum
undir upprunalegri áætlun.
Verkinu hefur verið skipt niður
í fjölmarga misstóra áfanga.
Um 20 mismunandi verk hafa
verið í gangi samtímis. Stærsti
einstaki verkþátturinn hefur
verið vélbúnaður og uppsetn-
ing hans. Aðalverktaki er
Mitsubishi Heavy Industries í
Japan.
Raforkuverið verður vígt
sunnudaginn 8. nóvember.
Heilbrigðisráðherra
um hjúkrunarrými
Þörf
fullnægt
næstu
tvö
ár
INGIBJÖRG Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra sagði í ræðu á
ráðstefnu um málefni aldraðra
í gær að brýnni þörf aldraðra
fyrir hjúkrunarrúm verði
fullnægt á næstu tveimur ár-
um.
„í fyrsta lagi verður nýtt
hjúkrunarheimili með 60 rúm-
um boðið út í byrjun næsta
árs,“ sagði ráðherra. „I öðru
lagi verður gengið frá samn-
ingum við Garðbæinga um
rekstur hjúkrunarheimilis í
fyrrverandi klaustri í Garða-
bæ. í þriðja lagi verður nýtt
hjúkrunarheimili fyrir aldraða
og geðsjúka tekið í notkun í
Ási í Hveragerði 1. desember
næstkomandi. í fjórða lagi
verður ný hjúkrunardeild á
Víðinesi tekin í notkun fyrir
áramót. í fímmta lagi verður
dvalarrýmum breytt í hjúkrun-
arrými og fjölgað," sagði Ingi-
björg Pálmadóttir.
nálægt þessum málum
þekktu þetta ástand.
Endurspeglar
gamaldags viðhorf
„Vandinn er hins vegar
sá að fólk hefur fram til
þessa forðast um of að op-
inbera neyð sína og í því
skjólinu hafa stjórnmála-
menn skákað. Meirihluti
þingmanna hefur talið það
til vinsælda fallið að halda
tryggingabótum í algjöru
lágmarki. En nú kemur á
daginn, samkvæmt viða-
mestu könnun sem gerð
hefur verið á viðhorfúm
okkar til þessara mála, að
meginþorri þjóðarinnar
er búinn að fá nóg af því
hvemig farið er með ör-
yrkja og þó að forsætis-
ráðherrann tali um
ábyrgð þá endurspegla
þau kjör sem hann og
ríkisstjóm hans búa ör-
yrkjum hvorki ábyrgð né
mikla virðingu fyrir því
fólki sem fyrir þremur ár-
um var lofað hátíðlega að
það yrði haft í fyrirrúmi,"
sagði Garðar.
„Stefna þessara manna
endurspeglar fyrst og
fremst gamaldags viðhorf
sem búið er að uppræta
víðast hvar í nágranna-
löndum okkar, að minnsta
kosti meðal ráðamanna,"
sagði Garðar ennfremur.
Morgunblaðið/Kristínn
FÉLAGAR í átakshópi öryrkja söfnuðust saman með logandi kyndla
fyrir utan Alþingishúsið í gærkvöld þegar umræður fóru fram um
fjárlagafrumvarp ríkissijórnarinnar.
Atkvæðagreiðsla á fundi LÍ um gagnagrunnsfrumvarp
Gert að greina frá
tengslum við IE
Á FJÖLMENNUM fundi Lækna-
félags íslands um gagnagrunns-
frumvarpið í fyrrakvöld flutti Vil-
hjálmur Rafnsson yfirlæknir dag-
skrártillögu á þá leið að þeir lækn-
ar sem hefðu tengsl við Islenska
erfðagreiningu skyldu gera grein
fyrir því þegar þeir tækju til máls.
Tillagan var borin undir atkvæði
og var samþykkt með mjög naum-
um meirihluta. I kjölfar þessarar
samþykktar greindi svo nokkur
hópur þeirra lækna sem þátt tóku í
umræðunum frá tengslum sínum
við ÍE.
„Við læknar erum beðnir um að
greina frá slíkum tengslum þegar
við förum á vísindaþing í tengslum
við það efni sem við ætlum að ræða
um. Petta er viðtekin venja. Við
eigum að greina frá því hvaðan
rannsóknarstyrkir koma,“ segir
Vilhjálmur.
„Eg bar fram þessa tillögu til
þess að þeir sem hlusta á þá sem
til máls taka geti myndað sér eigin
skoðun, meðal annars út frá því
hvort menn eru tengdir því efni
sem verið er að ræða,“ sagðiVil-
hjálmur Rafnsson.
Sameining Reykjavíkur og Kjalarness
Fjárhagsáætlun borgarinnar
hækkar um rúmar 90 millj.
MEIRIHLUTI borgarráðs hefur
samþykkt tillögu Eggerts Jónsson-
ar borgarhagfræðings, um breyt-
ingu á fjárhagsáætlun borgarinnar
fyrir árið 1998 í kjölfar sameiningar
Reykjavíkur og Kjalarness. í tillög-
unni kemur fram að áætlaðar skatt-
tekjur muni hækka um 77,1 millj.,
áætluð rekstrargjöld hækka um
114,6 millj. og áætluð eignabreyt-
ingagjöld hækka um 53,3 millj. Ut-
gjaldaaukning borgarsjóðs er því
samtals 90,8 millj.
Að sögn borgarhagfræðings,
lagði Kjalarneshreppur fram eigin
fjárhagsáætlun fyrir árið 1998 en
vitað var að þegar sameining sveit-
arfélaganna tæki gildi þá þyrfti að
sameina bókhaldið og að sú sam-
eining kæmi til með að hafa breyt-
ingar í för með sér á fjárhagsáætl-
un borgarinnar fyrir árið 1998.
Sagði hann að 53,3 millj. eigna-
breytingagjöld og hluti rekstrar-
gjalda hefði ekki verið inní fjár-
hagsáætlun hreppsins, þar sem
þau byggðust á loforðum sem gef-
in voru í kynningarriti sem dreift
var til Reykvíkinga og ibúa Kjalar-
ness fyrir kosningu um samein-
ingu sveitarfélaganna. í ritinu er
yfirlit sem sýnir áætlanir borgar:
innar ef kæmi til sameiningar. I
yfirlitinu er gert ráð fyrir 37,1
millj. í nettó útgjöld á árinu 1997
og 24,1 millj. árið 1998.
„Borgin gerði því ráð íyrir að út-
gjaldaaukinn vegna sameiningar á
þessum tíma yrðu 60 millj.,“ sagði
hann. „í þessu er ekkert óvænt en
þar sem Kjalameshreppur var
mjög skuldsettur þá sáum við okk-
ur hag í að greiða upp óhagstæð lán
og þar af leiðandi hækkuðu útgjöld-
in miðað við fyrri áætlanir. Auk
þess hliðruðust framkvæmdir til og
þar sem hreppurinn hafði verið í
fjársvelti þá urðum við að gera ráð
fyrir að útgjöld okkar yrðu meiri en
ráð var fyrir gert í áætlun Kjalar-
neshrepps."
Island
tapaði
fyrir Eist-
landi
ÍSLENSKA skáksveitin tapaði illa,
1-3, fyrir eistnesku sveitinni í
þriðju umferð á ólympíuskákmót-
inu í Elista í Kalmykíu. Hannes
Hlífar Stefánsson tapaði fyrir
Ehlvest á fyrsta borði, Þröstur
Þórhallsson gerði jafntefli við öðm
borði við Rytsagov, Jón Viktor
Gunnarsson gerði jafntefli við
Veingold á því þriðja, en á fjórða
borði tapaði Björgvin Jónsson íýrir
Kulaots.
Hannes tefldi með hvítu gegn
Sikileyjarvöm andstæðingsins og
lenti í erfiðleikum og tapaði. Þröst-
ur tefldi Franska vöm og var skák-
in allan tímann í jafnvægi. Jón
Viktor og andstæðingur hans
þráléku í jafnri stöðu, eftir 25 leiki.
Björgvin beitti Pirc-vöm og stóð
höllum fæti framan af skákinni, en
lék illa af sér, þegar hann var á
góðri leið með að jafna taflið, rétt
fyrh- 40 leikja tímamörkin.
Segja má, að sagan hafí endur-
tekið sig í gær, því það var einmitt
eistneska sveitin, sem veitti Islend-
ingum fyrsta tapið á síðasta
ólympíuskákmóti, fyrir tveimur ár-
um, 11/2- 21/2. Ehlvest er okkar
mönnum jafnan erfíður, en á
síðasta móti réði sigur hans á Mar-
geiri Péturssyni á fyrsta borði úr-
slitum.
íslenska sveitin hefur 7 vinn-
inga, eftir þrjár umferðir, hefur
unnið Jersey 4-0 og gert jafntefli
við Bosníu Herzegovinu.