Morgunblaðið - 02.10.1998, Síða 19
GSP
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998 19
Velkomin um borö!
Heimboð íslenskra útvegsmanna
íslenskir útvegsmenn bjóða landsmenn velkomna um borð í skip sín.
Á undanfómum árum og áratugum hafa orðið gríðarlegar framfarir í
sjávarútvegi og endurbætur á fiskiskipaflota íslendinga. Skipin verða sífellt
öflugri og fullkomnari. Bættur skipafloti skilar aukinni hagkvæmni og
verðmætari afla. Stærri og betri skip auka einnig öryggi sjómanna.
Heimboð íslenskra útvegsmanna er liður í ffæðsluátaki útvegsmanna sem
miðar að því að kynna landsmönnum ijölþætta starfsemi íslenskrar útgerðar.
í októbermánuði munu útvegsmenn víðs vegar um land standa að heimboði
þar sem boðið verður upp á veitingar, skemmtiatriði og fræðslu um stolt
okkar íslendinga, fiskiskipin.
• Vestmannaeyjar, laugardaginn 03.10. kl. 15.00:
Landsmenn eru boðnir velkomnir um borð í Gígju VE,
Gandí VE, Gullborgu VE, Breka VE, Vestmannaey VE
og hafnsögubátinn Lóðsinn. Fiskimjölsverksmiðjan og
frystihús ísfélags Vestmannaeyja verða einnig með
kynningu á starfsemi sinni.
• Raufarhöfn, sunnudaginn 04.10. kl. 14.00:
Útgerðarfélagið Jökull býður fólki að skoða Rauðanúp,
Arnarnúp, Reistarnúp og Öxarnúp.
ÍSLENSKIR ÚTVEGSMENN
Fræðsluátak á ári hafsins