Morgunblaðið - 02.10.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998 25
ERLENT
Rússneska stjórnin ræðir drög að efnahagsáætlun
Afturhvarf
til sovéskrar
hagfræði?
Moskvu. Reuters.
STJORN Jevgenís Prímakovs, forsætisráðherra Rússlands, kom saman í
gær til að ræða tillögur um aðgerðir til að binda enda á efnahagskreppuna
í landinu. Júrí Masljúkov aðstoðarforsætisráðherra lagði fram drög að
efnahagsáætlun þar sem gert er ráð fyrir aðgerðum til að stemma stigu
við fjármagnsflótta úr landinu og hertum reglum um gjaldeyrisviðskipti.
Nokkrir fréttaskýrendur sögðu ýmsar tillögur Masljúkovs bera keim af
afturhvarfi til haftastefnu og sovéskrar hagfræði og sögðu að þær væru
langt frá því að vera líklegar til að leysa efnahagsvanda landsins.
Prímakov sagði að stjórnin hefði
greitt rúmlega 2,3 milljarða rúblna,
andvirði rúmra 10 milljarða króna,
vegna skulda við herinn, hergagna-
fyiirtæki, hermenn og námsmenn.
Forsætisráðherrann hefur sagt að
það sé forgangsverkefni stjómar-
innar að leysa skuldavanda ríkisins
og verkalýðsfélögin hafa skipulagt
mótmæli út um allt Rússland 7.
október til að krefjast þess að
launa- og lífeyrisskuldir ríkisins
verði greiddar upp að fullu. Náms-
menn hafa einnig efnt til mótmæla
vegna vangoldinna námsstyrkja.
„Auka skrifræðið, skattsvikin
og spillinguna“
Eftir fund stjómarinnar kom
framkvæmdanefnd hennar, skipuð
valdamestu ráðherrunum, saman
til að ræða efnahagstillögur Masl-
júkovs, sem er kommúnisti. Dag-
blaðið Kommersant birti tillögurn-
ar, sem fela í sér blöndu af auknum
ríkisafskiptum á ýmsum sviðum
efnahagslífsins, loforðum um að-
gerðir sem auka ííkisútgjöldin og
ráðstöfunum til að hindra fjár-
magnsflótta.
„Verði þessum drögum að efna-
hagsáætlun framfylgt mun það
hafa jákvæð áhrif á öll svið lífsins,“
skrifaði Masljúkov. Kommersant
varaði hins vegar við því að tillög-
urnar gætu leitt til vömskorts í
landinu og afturhvarfs til sovéttím-
ans. „Segja má að þessi drög minni
á reglur sem settar voru í Sovét-
ríkjunum," sagði blaðið.
Fjármálasérfræðingar tóku til-
lögum aðstoðarforsætisráðherrans
fálega og sögðu að því færi fjarri
að þær leystu helstu efnahags-
vandamál Rússlands, svo sem fjár-
lagahallann. „Þær eru aðeins til
þess fallnar að auka skrifræðið,
skattsvikin og spillinguna," sagði
Thierry Malleret, aðalhagfræðing-
ur fjármálafyinrtækisins Alfa
Capital. „Þessar tillögur ganga
einfaldlega ekki upp. Engar þeirra
eru í raun líklegar til að bera ár-
angur.“
I tillögunum er gert ráð fyrir að
seðlabankinn ákveði gengi i*úbl-
unnar með hliðsjón af gi-eiðslujöfn-
uði ríkisins, verðbólguspám, gull-
og gjaldeyrisforðanum og niður-
stöðum kauphaharviðskipta. Að-
eins seðlabankanum og bönkum
með sérstaka heimild verði leyft að
flytja inn gjaldeyri og útflutnings-
fyrirtækjum verði gert að selja
seðlabankanum 25% af erlendum
gjaldeyri sínum og öðrum bönkum,
sem hafi heimild til gjaldeyrisvið-
skipta, 50%.
Prímakov lagði þó áherslu á að
engin efnahagsáætlun hefði verið
samþykkt og sagði að stjórnin
myndi ekki takmarka rétt fólks og
fyrirtækja til að nota dollara í
Rússlandi.
Laun verði
vísitölubundin
I drögunum er ekki beinlínis lagt
til að bankar verði þjóðnýttir en
sagt er að stofnaður verði nýr
banki, Endurreisnar- og þróunar-
banki ríkisins, sem taki við „þjóð-
nýttum eignum viðskiptabanka".
Nýr seðlabankastjóri Rússlands,
Viktor Gerastsjenko, hefur lagst
gegn því að bankar verði þjóðnýtt-
ir. Fjármálaráðuneytið heftir hins
vegar lagt til að ríkið eignist
banka, sem ramba á barmi gjald-
þrots, með það að markmiði að
gera þá upp eða selja þá aftur.
I drögunum er ennfremur hvatt
til þess að launa- og lífeyrisskuldir
ríkisins verði greiddar á tveimur
mánuðum, laun verði vísitölubund-
in, lágmarkslaun hækkuð, skatt-
kerfið einfaldað og aðstoð við iðn-
fyrirtæki aukin.
Tyrkir vara
Sýrlend-
inga við
STJÓRNVÖLD í Tyrklandi
vöruðu Sýrlandsstjórn við í
gær og sögðu, að þau áskildu
sér rétt til að
ráðast gegn
henni, héldi
hún áfram,
að styðja
vopnaða bar-
áttu Kúrda
gegn tyrk-
neskum yfir-
völdum. Kom
þetta fram
hjá Suleyman Demirel, forseta
Tyrklands, við þingsetningu í
gær og Tyrkir hafa ekki verið
jafn harðorðir við Sýrlendinga
fyrr. Talsmaður tyrkneska
herráðsins vísaði í gær á bug
blaðafréttum um mikinn við-
búnað og herflutninga til
landamæranna við Sýrland.
Suleyman
Demirel
Reuters
RÚSSAR í biðröð við gjaldeyr-
isafgreiðslu í Moskvu. Júrí
Masljúkov, aðstoðarforsætis-
ráðherra Rússlands, lagði í
gær fram tillögur um hertar
reglur um gjaldeyrisviðskipti
til að stemma stigu við fjár-
magnsflótta.
Rússneska stjórnin þarf á er-
lendum lánum að halda til að leysa
efnahagsvandann og ólíklegt er al-
þjóðlegar lánastofnanir styðji til-
lögur aðstoðarforsætisráðherrans.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur
sagt að frekari lánveitingar séu
háðar því að komið verði á mark-
aðsumbótum í Rússlandi. Sjóður-
inn spáði því í fyrradag að þjóðar-
framleiðslan í Rússlandi myndi
minnka verulega í ár og á næsta
ári.
Völd héraðsstjóra
aukin
Borís Jeltsín forseti ræddi í gær
við Edúard Rossel, héraðsstjóra
Sverdlovsk, og var sagður hafa
samþykkt tillögu hans um að hér-
aðsstjórar Rússlands fái aukin völd
á kostnað héraðsstjórna en vald
forsetans yfir héraðsstjórunum
verði aukið. „Hlutverk héraðsstjór-
anna í stjórninni verður aukið stór-
lega,“ hafði fréttastofan Ítar-Tass
eftir Jeltsín. Hann skírskotaði þar
til tillögu um að átta manna nefnd
héraðsstjóra taki þátt í að móta
stefnu stjórnarinnar.
Jeltsín studdi hins vegar ekki til-
lögu Rossels um bann við notkun
dollara í Rússlandi, sem er mjög
viðkvæmt mál þar sem margir
Rússar hafa keypt dollara vegna
gengishruns rúblunnar að undan-
fórnu.
Pú þarft ekki alltaf
tilefni til þess að
gleðja einhvem.
Skautafélag Reykjavíkur
Stofnað 1893
Innritun í byrjenda- og framhaldsflokka stendur yfir.
Æfingastaður: Skautahöllin Laugardal.
Upplýsingar og innritun í símum:
Ishokkídeild: 898 4075
Listskautadeild: 898 4461
Opnum nýja BT verslun laugardaginn
3.október kl. 10:00
BT Hafnarfirði • Reykjavíkurvegi 64 • Sími 550-4020
BT Reykjavík • Skeifunni 11 • Sími 550-4444