Morgunblaðið - 02.10.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1998 53
MINNINGAR
Alltaf kemur það aftan að manni
þegar einhver fellur frá, í þetta sinn
hún Sigga í Sviðugörðum. Hún var
orðin fullorðin kona og líkaminn far-
inn að gefa sig en hugsunin var skýr
og heilbrigð.
Þegar ég fluttist hingað í sveit-
ina varð hún strax ein af mínum
bestu vinkonum, maður dróst ein-
hvern veginn að henni. Hún naut
þess að sýna mér búskapinn hjá
sér, fuglana sína og kindurnar.
Sveitalífið var hennar líf og yndi.
Hafði hún unun af að nostra við
dýrin stór og smá, og var ekki
kastað til þess höndunum þegar
hún var að eiga við þau, allt gert af
svo mikilli nærgætni og umhyggju
um að þeim liði sem best. Meðan
Sigga bjó í Sviðugörðum fékk ég
hjá henni heimsins bestu hænu- og
andaregg. Eggin voru stór og fal-
leg, oft voru þau tvíblóma og eitt
sinn fékk ég eitt sem var þríblóma,
mér finnst það segja töluvert um
hvernig hugsað var um fuglana.
Hún flýtti sér aldrei við verkin eins
og margur gerir í dag, heldur gaf
sér tíma til að gera verkin vel, hún
Sigga gerði allt svo fallega. Varð
mér oft litið á hennar nettu hendur
þegar hún var að eiga við eitthvað,
hún hafði svo fallegar handahreyf-
ingar.
Þegar Sigga fluttist á Kumbara-
vorg úr sveitinni sinni var það henni
erfið ákvörðun en annað var bara
ekki hægt. Ég dáðist oft að því
hvemig hún tókst á við það, einhver
hefði lagst í volæði en Sigga tók því
sem að höndum bar og var ótrúlegt
hvað hún sætti sig við breyttar
aðstæður. Auðvitað saknaði hún
sveitastússins en hún var ekkert að
velta því yfir á aðra. Hún hélt bara
áfram að lifa fallega á nýjum stað.
Aldrei féll henni verk úr hendi og
era ófáar lykkjumar sem hún hefur
prjónað og gefið til vina og vanda-
manna í formi sokka og vettlinga.
Það var árvisst að hún rétti mínum
börnum eitthvað hand- eða
vélprjónað enda litu þau á hana sem
ömmu sína eins og eitt þeirra orðaði
það.
Eitt var það sem einkenndi
Siggu, það var trygglyndið, alltaf
hringdi hún í mig á afmælisdaginn
minn og kem ég til með að sakna
þeirrar hringingar. Um leið og ég
þakka henni samfylgdina vil ég og
mín fjölskylda votta Denna syni
hennar og öðrum aðstandendum
samúð okkar.
Kristín Ólafsdóttir.
Nú hefur kær vinkona kvatt eftir
erfið veikindi. Okkar kynni hófust
fyrir fjórtán árum, er ég fluttist í
Seljatungu, næsta bæ við Svið-
ugarða. Mér fannst það eiga við að
kynnast næstu nágrönnum, svo ég
hringdi og boðaði heimsókn mína.
Og ég var svo sannarlega boðin
velkomin af þeim heiðurshjónum
Siggu og Guðmundi. Við fórum
bara tvær í þessa fyrstu heimsókn
ég og Dröfn dóttir mín, þá tæplega
fjögurra ára. Þau vildu líka kynn-
ast Birgi og Báru og Hrönn og áð-
ur en við vissum af var samgangur
á milli bæja orðinn sjálfsagður
hlutur. Fyrir litlar stelpur var það
ævintýri að fá að fara í Sviðugarða
og hjálpa til við að baka kleinur og
tína egg og vökva blóm og fá að
vera hjá Siggu í þessu notalega
andrúmlofti þar sem aldrei lá neitt
á. Þetta varð upphafið að óslitinni
vináttu við þau hjón og síðan við
Denna son þeirra.
Við í Seljatungu að hefja okkar
búskap, þau í Sviðugörðum að enda
sinn búskap. Umræðuefnin vora
alltaf næg og aldrei fannst manni
þau gömul. Guðmundur stríðinn og
kátur og lét það ófeiminn í ljós hve
vænt honum þótti um Siggu. Sigga
með ótrúlegt starfsþrek þótt hún
gengi ekki heil til skógar. Það óx
allt sem hún kom nálægt, blómin
þau fallegustu, hænurnar og end-
urnar verptu betur en annars stað-
ar. Og hún var svo lifandi í sam-
skiptum sínum við aðra, enda
eignaðist hún fullt af vinum út um
allan heim. Það er í raun með
ólíkindum að kona, sem varla fór af
bæ að manni fannst, hefði svona
mikil og góð samskipti við aðra. Við
Birgir og allar dæturnar sex erum
þakklát fyrir að hafa eignast vináttu
Siggu og þökkum allar skemmtilegu
samverastundirnar. Síðustu árin
voru erfið er hún varð að flytja úr
sveitinni en henni tókst samt að
skapa notalegt andrúmsloft í her-
berginu sínu og fékk að hafa hjá sér
páfagaukana sína til að stytta sér
stundir.
Við vottum Denna syni hennar og
Selmu fósturdóttur hennar samúð
okkar.
Ásthildur, Birgir og dætur.
ATVIIMIMU-
AUGLÝSINGAR
ffl Fiæðslumiðstöð
l|r Reykjavíkur
Laus störf í grunn-
skólum Reykjavíkur
Breidholtsskóli, sími 557 3000.
Starfsmaður, til afleysinga í lengdri viðveru.
Vinnuími frá kl. 11.30—17.00.
Langholtsskóli, sími 553 3188.
Kennari, til kennslu í 3. bekk v/forfalla, 2/3
staða.
Skólalidar í 50—80% störf.
Upplýsingar gefa skólastjórar og aðstoðarskóla-
stjórar skólanna.
Þessar auglýsingar sem og annan fróðleik er
að finna á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur: www.reykjavik.is/fmr.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Matsveinn
Vanan matsvein vantar á rækjufrystitogarann
Rauðanúp ÞH-160 frá Raufarhöfn. Ráðning
miðast við að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst.
Upplýsingar í símum 465 1200 / 465 1296 /
894 5757.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboö munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti
1, Isafirði, þriðjudaginn 6. október 1998 kl. 14.00 á eftirfar-
andi eignum:
Hlíðarvegur 15, neðri hæð, ísafirði, þingl. eig. Einar Garðar Hjaltason
og Bergljót Halldórsdóttir, gerðarbeiðandi Byggðastofnun.
Hliðarvegur 7,0102, Isafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Isafjarðarbæj-
ar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Mánagata 6A, 0201, e.h., (safirði, þingl. eig. Ólafur Ásberg Árnason,
gerðarbeiðendur Byggingarsj. ríkisins, húsbréfadeild og Epsilon
ehf. (P '67 ehf.).
Sólbakki, Flateyri, þingl. eig. Einar Oddur Kristjánsson, gerðarbeiðend-
ur Eirikur H. Sigurgeirsson og ísafjarðarbær.
Tangagata 20A, Isafirði, þingl. eig. Hrönn Benónýsdóttir, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður ríkisins.
Sýslumaðurinn á fsafirði,
1. október 1998.
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp á Hörðuvöllum 1,
Selfossi (lögreglustöðinni), föstudaginn 9. október 1998
kl. 14.00:
EG 023 IN819 MC 328 TO 667
IG 021 JT803 NX961 UK 006
IY 820 KL 076 R 37794 UL 665
VH 903
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
1. október 1998.
Uppboð
Eftirtaldir munir verða boðnir upp á Hörðuvöllum 1, Selfossi,
(lögreglustöðinni), föstudaginn 9. október 1998 kl. 14.00:
2 stk. Macintosh 7600 tölvur, Clark hjólaskófla, árg. 1983, nr. FH-0161,
ED-256, Massey-Ferguson 390T 4WD, árg. 1995, m/ámt., Flóki, 9
vetra brúnn hestur, mark biti aftan hægra. Hammer Skanner, Lokkur,
6 vetra grár hestur, mark biti aftan hægra, Prati, 8 vetra jarpur hestur,
mark biti aftan hægra, rauðstjörnótt 6 vetra hryssa, mark biti aftan
hægra, og rauðstjörnóttur foii, 5 vetra, ómarkaður.
Ávisanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
1. október 1998.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Kópavogsbúar — opið hús
Opið hús er á hverjum laugardegi
milli kl. 10 og 12 í Hamraborg 1,
3. hæð. Gunnar Birgisson, oddviti
sjálfstæðismanna í Kópavogi,
verður í opnu húsi laugardaginn
3. október.
Allir bæjarbúar eru velkomnir.
Heitt kaffi á könnunni.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
TILKYNNINGAR
Skipulags
stofnun
Skíðasvæði í Tindastóli í
Skagafirði
Niðurstöður frumathugunar og úrskurð-
ur skipulagsstjóra ríkisins
Skipulagsstjóri ríkisins hefur úrskurðað sam-
kvæmt lögum nr. 63/1993 um mat á umhverfis-
áhrifum. Fallist er á, með skilyrðum, fyrir-
hugaða uppbyggingu skíðasvæðis í Ytridal
í Tindastóli eins og henni er lýst í frummats-
skýrslu og viðbótargögnum framkvæmdarað-
ila.
Úrskurðurinn í heild liggurframmi hjá skipu-
lagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu
Skipulagsstofnunar: http://www.skipulag.is
Úrskurð skipulagsstjóra má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til
30. október 1998.
Skipulagsstjóri ríkisins.
Tindastóll
Niðurstöður frumathugunar og úrskurð-
ur skipulagsstjóra ríkisins
Skipulagsstjóri ríkisins hefur úrskurðað sam-
kvæmt lögum nr. 63/1993 um mat á umhverfis-
áhrifum. Fallist er á, með skilyrðum, fyrir-
hugaða lagningu Tindastólsvegar í Skagafirði
eins og henni er lýst í frummatsskýrslu.
Úrskurðurinn í heild liggurframmi hjá Skipu-
lagsstofnun, Laugavegi'166, 150 Reykjavík.
Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu
Skipulagsstofnunar: http://www.skipulag.is.
Úrskurð skipulagsstjóra má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til
30. október 1998.
Skipulagsstjóri ríkisins.
SMÁAUGLVSIIMG AR
ÝMISLEGT
Þarft þú að selja ódýra
fasteign sem erfið er í sölu.
Er kaupandi af slíkri eign í skipt-
um fyrir góö hestefni svo og gott
skuldabréf.
Upplýsingar i síma 487 8551.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 12 = 1791028V2 = R.k
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MORKINNI6 - SlMI 568-2533
Laugard. 3. október kl. 9.00
Árbókarslóðir: Hagavatn o.fl.
Einstakt tækifæri til að kynnast
haustfegurð óbyggðanna ofan
Biskupstungna undir leiðsögn
Gísla Sigurðssonar blaða-
manns og höfundar árbókar FÍ
1998, en bókin fjallar um svæðið
sem farið er um. Ekið að Haga-
vatni og hluta Línuvegarins niður
í Haukadal (haustlitir). Haga-
vatnssvæðið er i fréttum vegna
framhlaups skriðjöklanna þar.
Verð 2.800 kr. Brottför frá BSl,
austanmegin og Mörkinni 6. Ger-
ist félagar og eignist árþókina
1998: Fjallajarðir og Framafréttur
Biskupstungna.
Helgarferðir 2.-4. okt.
Haustlita- og fræsöfnunar-
ferðin I Þórsmörk. Fræðslu- og
fjölskylduferð á góðu verði. Grill.
Landmannalaugar - Jökulgil
Gist í Laugum. Grill. Síðustu for-
vöð að panta og taka miða í helg-
arferðirnar er fyrir hádegi í dag.
Sunnudagsferðir 4. október
kl. 10.30, Selvogsgatan, göm-
ul þjóðleið og kl. 13.00 Þing-
vellir í haustlitum og hella-
skoðun í Gjábakka- hrauni,
fjölskylduferð. Sjá ferðir á
textavarpi bls. 619.
I.O.O.F. 1 = 1791028Vi = 9.0 II.*
Frá Guðspeki-
félaginu
l/igólfsstræti 22
Askriftarsími
Ganglera er
896-2070
I kvöld kl. 21.00 heldur Sigurður
Skúlason erindi: „Primal Therap-
hy" í húsi félagsins, Ingólfsstræti
22. Á laugardag kl. 15.00—17.00
er opið hús með fræðslu og um-
ræðum. Kl. 15.30 ræðir Jón E.
Benediktsson um kynlega kvisti.
Bókasafnið verður opið kl.
14.00-15.30 til útláns fyrir fé-
laga.
Á sunnudögum kl. 17.00—18.00
er hugleiðingarstund með leið-
beiningum fyrir almenning. Á
fimmtudögum kl. 16.30—18.30
er bókaþjónustan opin með
miklu úrvali andlegra bók-
mennta. Starfsemi félagsins er
öllum opin endurgjaldlaust.
KENNSLA
Myndlistaskóli Margrétar
Ný og fjölbreytt námskeið fyrir
alla aldurshópa. Upplýsingar og
innritun í sima 562 2457.
DULSPEKI
Sálarrannsókna-
félag Suðurnesja
Skyggnilýsingafundur
María Sigurðardóttir miðill verð-
ur með skyggnilýsingafund
sunnudaginn 4. okt. kl. 20.30 í
húsi félagsins á Vikurbraut 13 í
Keflavík. Húsið verður opnað kl.
20.00. Allir velkomnir.
Miðasala við innganginn.
Stjórnin.