Morgunblaðið - 25.10.1998, Síða 1
243. TBL. 86. ÁRG.
SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Eg tel, þess
vegna er
ég api
TVEIR apar virðast hafa kollvarpað við-
teknum kenningum fræðimanna um taln-
ingu og tungumál með því að sýna að
þeir bera skynbragð
á töluhugtakið frá
einum til níu.
Þetta kemur fram
í niðurstöðu rann-
sóknar, sem birt var
í tímaritinu Science
á fimmtudag.
I Science segir að
tveir þriggja ára
rhesus-apar hafí leik-
ið tölvuleiki sem sýni að aparnir geti
greint á milli allt að m'u hluta, án þjálfun-
ar. Herbert Terrace, prófessor við Col-
umbia-háskóla, segir að niðurstaða
rannsóknarinnar sé skýrasta vísbending-
in til þessa um að apar geti talið.
Þessi niðurstaða er í andstöðu við þá
viðteknu skoðun fræðimanna, allt frá
heimspekingnum og stærðfræðingnum
René Descartes á 17. öld, að prímatar,
aðrir en maðurinn, geti ekki hugsað
vegna þess að þeir geti ekki beitt málinu.
Niðurstaða rannsóknarinnar bendir til
þess að getan til að telja og töluleg
rökleiðsla séu eldri en tungumálið.
Talnaskilningurinn og málið hafí þróast
hvort í sínu lagi og að talnakunnáttan
hafi komið á undan máli mannsins.
Konur sofa
lengur en
karlar
KONUR sofa lengur en karlar, ef marka
má viðamikla könnun bresku hagstofunn-
ar, og munurinn er 12 mínútur á dag, eða
3.212 klukkustundir á starfsævinni.
Kömiunin var gerð í samstarfi við
breska jafnréttisráðið og í Ijós kom að úti-
vinnandi konur á aldrinum 16-59 ára sofa
í 8 klukkustundir og 22 mínútur að
meðaltali, en karlar í 8 klst. og 10 mínútur.
Konur, sem ekki vinna úti, sofa lengur,
eða í 9 klst. og 51 mín. og karlar, sem eru
ekki á vimiumarkaðnum, í 8 klst. og 56
mínútur.
Karlar á eftirlaunaaldri sofa hins vegar
tæpri hálfri klukkustund lengur en konur
á sama aldri, eða í 9 klst. og 51 mínútu.
Skýringin á Iengri svefni kvenna kann
að vera sú að þær séu þreyttari en karl-
arnir því þær eyða tveimur stundum á
dag í heimilisstörfin að meðaltali, en
karlar aðeins hálfri klukkustund. Karl-
arnir eru hins vegar næstum einni og
hálfri klst. lengur í vinnunni.
Morgunblaðið/Þorkell
Alvarlegt ástand í Irak
ÁSTANDIÐ í írak er slæmt um þessar mundir. Viðskiptabann var
sett á landið í ágúst 1990 vegna Persaflóastríðsins og það hefur
komið illa niður á almenningi. Næringarskortur er alvarlegt
vandamál, ungbarnadauði hefur aukist mjög og sjúkdómar eru út-
breiddir.
Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, ferðaðist um
írak í september og kynnti sér ástand mála og komst að því að
sumir landsmenn eru á þeirri skoðun að núverandi ástand sé stríð.
Með refsiaðgerðunum séu stjómir Vesturlanda í stríði gegn al-
mennum borgurum í írak. Á myndinni er bændahöfðingi sem Þor-
kell hitti í norðurhluta landsins og hafði sá mikinn áhuga á að
fræðast um sauðfjárbúskap og hestamennsku á íslandi. Ungur
sonur hans stendur í gættinni.
■ frak/Cl-C8
■ Ljósmyndasýning á Netinu/www.mbl.is
Samkomulagi Netanyahus og Arafats fagnað
Sagt til marks um
mikið huerrekki
Washington. Reuters. W—^
RAÐAMENN víða um heim luku í gær lofs-
orði á leiðtoga Israela og Palestínumanna
vegna nýs samkomulags þeÚTa, sem kveður á
um að Israelai- flytji burt herlið sitt fi-á 13%
Vesturbakkans til viðbótai- gegn því að
Palestínumenn skeri upp herör gegn hermdar-
verkamönnum.
Háttsettur bandarískur embættismaður
sagði að samkomulag Benjamins Netanyahus,
forsætisráðherra Israels, og Yassers Arafats,
leiðtoga Palestínumanna, væri til marks um
„hugrekki“ þeirra beggja. „Þeir þurfa nú að
sannfæra þá, sem gagnrýna samkomulagið
heima fyrir, um að það hafi tilætluð áhrif. Nú
verður ekki aftur snúið.“
Samkvæmt samkomulaginu eiga Israelar að
leysa hundjruð palestínskra fanga úr haldi og
Palestínumenn að handtaka þá, sem grunaðir
eru um hermdarverk í Israel. Þá á löggjafar-
samkunda Palestínumanna að halda fund til að
fella burt ákvæði í stjómarskrá sinni um upp-
rætingu Israelsríkis. Bill Clinton Bandaríkja-
forseti hyggst fara til Miðausturlanda um miðj-
an desember til að sitja fundinn.
Clinton hrósað fyrir „þrautseigju“
Hubert Vedrine, utanríkisráðherra Frakk-
lands, sagði að Arafat og Netanyahu hefðu
sýnt hugprýði með því að fallast á samkomu-
lagið, sem náðist fyrir milligöngu Banda-
ríkjamanna. Hann þakkaði ennfremur Clint-
on og Madeleine Albright, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fyrir „þrautseigju" þeirra í
samningaviðræðunum.
Dauði Díönu prinsessu
Bilnum ekki
um að kenna
London. Reuters.
13 MÁNAÐA rannsókn á bílnum, sem
Díana Bretaprinsessa fórst í fyrir rúmu ári í
París, hefur leitt í ljós að slysið varð ekki
vegna bilunar á hemlum bifreiðarinnar, að
sögn breska útvarpsins BBC í gær.
BBC kvaðst hafa fengið 500 síðna skýrslu
frönsku rannsóknarlögreglunnar um slysið
og sagði að hún virtist staðfesta að það hefði
orðið vegna ölvunaraksturs bílstjórans og of
mikils hraða. Engar vísbendingar hefðu
fundist um að hemlar eða líknarbelgir bif-
reiðarinnar hefðu verið í ólagi.
Rannsóknin leiddi hins vegar í Ijós að bif-
reiðin var á minni hraða en talið var í íyrstu,
eða um 100 km á klst., en samt helmingi
meiri en leyfilegt er á því svæði sem slysið
varð. Skýrslan staðfestir ennfremur að bif-
reiðin straukst við annan bíl, hvítan Fiat
Uno, sem ekki hefur enn fundist þrátt fyrir
umfangsmikla leit.
Tökum vextina
en göngum ekki
ó höfuðstólinn
Aðhal
skipt
sköpu
GOTT STARFS-
FÓLK ER
L YKILA TRIÐI