Morgunblaðið - 25.10.1998, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 25.10.1998, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998 39 Ur dagbók fisksalans ÞEIR eru orðnir nokkuð margir landarnir sem stundað hafa físk- sölustörf hérna í henni Ameríku. Ekki veit ég annað en að flestir hafí unað glaðir við sitt og meira að segja sumir komist sæmilega af. Þeir eru náttúrlega heppnir að koma frá landi, þar sem físksölu- starf er álitið þokkalega virðuleg atvinna hjá þjóð, sem meira og minna hefur lifað af fiski í gegn- um áranna tíð. Samt verður að viðurkenna, að á seinni árum eru tölvufærðingar, og upp á það síð- asta, erfðafræðingar farnir að skyggja eitthvað á fisksöluljó- mann hjá okkur, ræflunum. Bankastjórar ógnuðu um tíma, en nú hefir þeirra dýi-ð allmikið dvínað og skilst mér, að það sé eitthvað út af laxveiðum, en ég er ekki alveg viss um það. Alla vega mjög skrítið mál. Sumir útlendinganna, sem hér starfa í fiski, eru ekki alveg eins ánægðir og öruggir með sig og Is- landsmennimir. Þeir eru í þessu bara fyrir peninginn, en hafa enga háleita hugsjón og trú- boðsviðleitni, eins og fisksölu- menn af Fróni. Englendingur, sem hér hefir unnið við fisksölu í áratugi, segist oft næstum læðast með veggjum, þegar hann fer í heimsóknir til ættlandsins. Hann kveðst reyna að komast hjá því að segja fólki, hvað hann starfi í Am- eríku. Segir hann landa sína líta heldur niður á störf í fiskiðnaði. Þegar fisksalar hittast, rifja þeir oft upp gamla daga og skemmtilega atburði liðins tíma. Um daginn var ég á kaupstefnu og hitti þá starfsbróður, sem ég hafði ekki séð lengi. Meðal annars spurði ég hann, hvort sameigin- legur kunningi, kappinn Eugene Talloway, væri kominn úr steinin- um. Félagi minn sagði, að svo væri, en ekki vissi hann neitt meira um hagi þessa ævintýra- manns. Eftir samtalið fór ég að rifja hinn furðulega feril Evgení- usar Tólgarvegs, sem ég kallaði hann á okkar kæra móðurmáli. Þegar ég kynntist honum fyrst, var hann búinn að stofna eigið fyr- irtæki, sem sérhæfði sig í að út- vega fiskafurðir fyrir keðju sjáv- arrétta-veitingahúsa í Flórída. Hann var um 35 ára gamall, lág- vaxinn en knálegur, andlitsfríður og frekar hæglátur maður. Hafði hann í mesta lagi gagnfræða- menntun, hafandi komið írá New Jersey til að leita hamingjunnar í sólar ríkinu. Fékk hann vinnu sem vörubflstjóri hjá fiskheildsala í Tampa, og var þar með kominn á sína réttu hillu í lífinu. Vann hann sig svo upp á við í nokkur ár og lærði um tögl og hagldir í fiskmál- um, en stofnaði svo eigið fyrir- tæki, eins og áður var sagt. Við hófum við hann viðskipti og Þórir S. Gröndal innan tíðar var hann farinn að kaupa mikið magn af humri; sem áður hafði verið seldur til Italíu. Voni þetta ógamdregnir halar og borgaði hann allmiklu hærra verð en fengist hafði frá ítölskum. Skrapp ég með Evgeníus til Is- lands í stutta ferð til að heimsækja frystihús og athuga með nýjar af- urðir. Síðasta kvöldið á Fróni fór- um við á vinsælasta veitingahúsið í bænum til að sýna honum skemmtanalíf borgarinnar. Þegar við gegnum í salinn, vakti Ameríkaninn strax athygli, enda skar hann sig úr öðrum gestum að því er klæðaburð snerti. Hann var í drifhvítum brókum og vínrauðum jakka með logagylltum hnöppum. Silkiskyrt- an var opin í hálsinn og reyndar ofan á maga, og á loðinni bring- unni skartaði ekta spænskur gull- dúkat í þungri keðju. Þegar líða tók á kvöldið, fóru margar ungar fósturlandsins freyjur að gefa honum alvarlegt auga. Svo fóru þær að koma að borðinu og bjóða honum upp í dans. Undir lokin bar ein gyðjan fram þá bón, án þess að hvísla, að hann gerði sér barn! Ekki vildi ég hlusta á meira og gekk á brott. Þegar ég kom aftur, voru þau horfin. A næstu árum brosti gæfan við Evgeníusi og hinn margumtalaði ameríski draumur rættist hjá hon- um. Alþjóða stórfyrirtæki keypti veitingahúsakeðjuna og hún gleypti svo aftur hans litla fyrir- tæki. Sagt var að hann hefði fengið milli tvær og þrjár milljónir dollara í lommen. Vörubflstjórinn var orð- inn milli! Hann samdi líka um það að hann veitti fyrirtækinu forstöðu í ein tvö eða þijú ár. Héldum við áffam að gera góð viðskipti. Það var um þetta leyti, sem hann hringdi í mig og tjáði mér, að hann hefði skilið við eiginkonu númer þrjú og ætlaði innan tíðar að gifta sig aftur. Hann ætlaði að láta taka húsið í gegn og sér í lagi svefnherbergið. Sagðist hann hafa fengið fína hugmynd í ferð sinni til Islands. Bað hann mig að útvega 50 hvítar lambsgærur. Hafði hann fundið feldskera, sem ætlaði að sauma risa gæruábreiðu á svefnherbergisgólfið. Herbergið væri um 20 fermetr- ar og hjónarúmið, af stærstu gerð auðvitað, fellt í gólfið, þ.e. það væri eins og gryfja í miðju herberginu. Frægur hýbýlafræðingur hafði hannað þessar breytingar. Lagður yrði parketgangstígur meðfram veggjum og inn í snyrti- og bún- ingsklefana. Loftið yrði þakið með reyklituðum speglum. Skjanna- hvítu gærumar af saklausu lömbunum af Fróni ættu svo að mynda gólfábreiðuna sem þekja myndi allan annan gólfflöt. Skorið yrði úr fyrir „rúmteppinu“ og yrði það fóðrað með rauðu silki. Var ég skiljanlega mjög upp- veðraður yfir því trausti, sem þessi fyriverandi vörubflstjóri sýndi mér. Einnig var ég dolfall- inn yfir hugmyndaflugi hans og hinu næma fegurðarskyni sem hér hafði opinberast öllum að óvörum. Fannst mér íslenzkum landbúnaði og reyndar allrí þjóð- inni sýnd virðing með því að fara þess á leit að íslenzkar gærur yrðu staðsettai’ í musteri þessu eður ástarhofi. Giftingin fór fram og frétti ég ekki meira um atburð- ina í þessu einstaka svefnherbergi og var það kannske eins vel. Skömmu seinna rann svo út samningur Evgeníusar við veit- ingahúsakeðjuna og leiðir okkar skildu. Hann var samt ekki af baki dottinn, því skömmu seinna opnaði hann stórt veitingahús, sem annálað var í Tampa um nokkurt skeið. Var hann talinn moka inn peningunum. En Adam var ekki í Paradís nema nokkur ár, því þá dvínaði aðsóknin og tók nú við taprekstur, sem endaði með gjaldþroti. Fóru nú erfiðir tímar í hönd hjá hetjunni okkar. Ekki löngu seinna bárust þau voveiflegu tíðindi að Evgeníus Tólgarvegur hefði fallið fyrir borð á snekkju sinni og hefði bæði drukknað og dáið. Hann hafði far- ið í siglingu með konu númer fimm, sem ég reikna með að velt hafi sér á gærunum góðu, og ein- hverjum manni. Skýrslur voru teknar og fóru fram miklar yfir- heyrslur, því kappinn var líf- tryggður fyrir eina og hálfa millj- ón dollara. Loks var úrskurðað að um væri að ræða eðlilegt slys og mátti tryggingafélagið gi'eiða eig- inkonu hans peningana. Ari seinna var hann svo hand- tekinn í Toronto og voru þar að verki leynilögreglumenn trygg- ingafélagsins, sem aldrei höfðu al- mennilega trúað slysasögunni. Höfðu þeir grun um það að drukknunin hefði verið sett á svið í auðgunarskyni. Var Evgeníus framseldur til Flórída og lenti í fangelsi í ein 10 ár. Ekkert meira veit ég um málið nema það, að hann muni hafa verið látinn laus úr prísundinni eins og áður var sagt. Viðurkennt skal, að lengi vel langaði mig til að sjá svefnher- bergið góða með gæruteppinu, en aldrei varð úr því. Antik- og teppauppboð þriðjudaginn 27. október kl. 20.30. Handunnin persnesk teppi Húsgögn - Tiffany’s- lampar - Postulín ] Sýning uppboðsmuna í dag kl. 14-17, mánudag kl. 10-18 og þriðjudag kl. 10-16. Nú er tækifæri til að kaupa glæsileg teppi á hagstæðu verði. x Ath.: Erum að taka á móti veíum,fyrir n?eta \á malverkauppboð. I W Síðumúla 34, sími 581 1000. Karin Herzog ••• vinna á öldrunareinkenniun '—' ••• enduruppbyggja húðina ••• vinna á appelsínuhúð og sliti ••• vinna á unglingabóluin ••• viðhalda ferskleika húðarinnar • Þœr eruferskir vindar í umhirdu húðar • SÖLUSTAÐIR: World Class — Reykjavík og Akureyri Sigurboginn — Laugavegi Verslunin Sautján — Laugavegi Sandra — Smáratorgi Snyrtihöllin — Garðatorgi Neglur og fegurð — Eiðistorgi Breiðholtsapótek — Mjódd Engihjalla Apótek — Kópavogi Garðsapótek — Sogavegi Grafarvogsapótek — Hverafold Hafnarfjarðarapótek — Hafnarfirði Háaleitisapótek — Háaleitisbraut Holtsapótek — Glæsibæ Hraunbergsapótek — Breiðholti Hringbrautarapótek — Hringbraut Ingólfsapótek — Kringlunni Laugavegsapótek — Laugavegí Reykjavíkur Apótek — Austurstræti Rima Apótek — Grafarvogi Apótekið Iðufelli — Breiðholti Apótekið Smiðjuvegi — Kópavogi Apótekið Suðurströnd — Seltjarnamesi Snyrti- og nuddstofan Paradís Heilsa og fegurð — Síðumúla 34 Englakroppar — Stórhöfða 17 Sól og sæla — Fjarðargötu 11 Þitt mál — Heilsustúdíó — Garðatorgi Akranesapótek — Akranesi Borgarnesapótek — Borgarnesi Apótek Vestmannaeyja — Vestmannaeyjum Hveragerðisapótek — Hveragerði Keflavíkurapótek — Keflavík Apótek Ólafsvíkur — Ólafsvík Sauðárkróksapótek — Sauðárkróki Selfossapótek — Kjarnanum — Selfossi Skokkið — heilsurækt — Húsavík Hjá Eygló — Fáskrúðsfirði Dreifing: Solvin, box 9184,129 Reykjavík, sfmi 899 2947
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.