Morgunblaðið - 25.10.1998, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Foreldravakt veitir aðhald
Utivistartímar
betur virtir
UNGLINGAR undir 16 ára, sem
ráfa stefnulaust um aðfaranætur
laugardaga og sunnudaga, eru nán-
ast horfnir af götum þeirra hverfa og
bæja þar sem foreldravakt hefur
verið tekin upp. Hópamyndanir
þessa aldursflokks á götunum eru
einnig svo til úr sögunni. Svo virðist
sem aðhald foreldranna hafi einnig
áhrif til góðs á útivistartíma yngri
hópa. Þetta er niðurstaða þeirra lög-
reglumanna og foreldra sem Morg-
unblaðið ræddi við.
Sums staðar hefur foreldravaktin
' **mætt þar sem dansleikir eru haldnir,
hvort sem er á vegum framhalds-
skóla eða annarra. Hefur viðvera
þeirra orðið til þess að ungiingar,
sem ekki eiga erindi á dansleikina
hafa hætt að rangla um fyrir utan
danshúsin.
Vakt við áfengisútsölu
Einnig eru dæmi um að lögreglan
hafi gripið til sérstakra ráðstafana
eins og á Isafirði, þar sem sett var
upp lögregluvakt við áfengisútsöluna
^'fvTÍr dansleik. „Þetta var áhrifaríkt
og fældi ákveðinn hóp frá. Við gerð-
um þetta í samvinnu við áfengisút-
söluna og munum halda því áfram
öðru hvoru,“ sagði Önundur Jóns-
son, yfirlögregluþjónn á ísafirði.
Á Selfossi hefur lögreglan haft
samvinnu við nemendafélag Fjöl-
brautaskóla Suðurlands fyrfr dans-
leiki undanfarin 2-3 ár. Þar er rætt
um hvernig gæslu verði háttað, hvað
sé liðið og hvað ekki. Einnig hafa
óeinkennisklæddir lögreglumenn
mætt á dansleikina.
Frumkvæðið að foreldravöktunum
hefur að jafnaði komið frá foreldrum
grunnskólabarna. Starfa þeir í ná-
inni samvinnu við lögreglu á staðn-
um og jafnvel félagsmálayfirvöld.
Foreldrai-nfr hittast á lögreglustöð-
inni að kvöldi þar sem þeir fá endur-
skinsvesti og jafnvel GSM-síma. Síð-
an ganga þeir um hverfin og láta lög-
regluna vita verði þeir varir við börn
undir lögaldri, slagsmál eða aðrar
uppákomur. Að nokkrum klukku-
stundum liðnum mæta foreldramir
aftur á lögreglustöðina þar sem þeir
gefa skýrslu.
■ Aðhald skiptir/26-27
Evrópureglur um merkingu á mat
Morgunblaðið/Þorkell
Rörbútur
sem rúmar
Þjórsá
STÁLSMIÐJAN hefur undanfar-
ið unnið að smíði inntaksrörs fyr-
ir Sultartangavirkjun. Rörið er
engin smásmíði, um 6,5 m í þver-
mál, enda þarf það að rúma
rennsli Þjórsár í heild sinni, en
hún mun fara í gegnum rörið.
Smíði rörsins hófst í byrjun ágúst
og verða síðustu handtökin unnin
um helgina. Aðfaranótt mánu-
dags verður rörið svo flutt upp
að Sultartanga og verður það
vandasamt verk, að sögn Krist-
jáns Andréssonar, verkstjóra í
plötusmiðju. Helsti vandinn felst
í því að komast með rörið út af
höfuðborgarsvæðinu þar sem
fjöldi göngubrúa, sem hærri far-
artæki en Ijórir metrar komast
ekki undir, hefur undanfarið ver-
ið reistur yfir helstu vegi. Því
þarf að fara töluverða krókaleið í
fylgd með lögreglu til að komast
út af höfuðborgarsvæðinu með
rörið.
Starfsmenn í Stálsmiðjunni
unnu í gær hörðum höndum við
að ganga frá stálrörinu.
Sölu hætt hjá Sölu
varnarliðseigna
UMSÝSLUSTOFNUN varnarmála,
sem betur er þekkt undir nafninu
Sala varnarliðseigna, hefur hætt
sölu á matvörum vegna gildistöku
evrópskra reglna um merkingu mat-
, væla.
Sala varnarliðseigna seldi ýmsan
pakkamat, sælgæti og kaffi frá
Bandaríkjunum en hefur nú alfarið
hætt þeirri sölu. Islenskum innflytj-
endum á bandarískum vörum er
stofnuninni en ella, þar sem miklar
breytingar hafa verið gerðar á
rekstri hennar undanfarið. Þó sé
engin vafi á að þessi breyting þrengi
verulega að rekstrinum þar sem nú
muni Sala varnarliðseigna ekki leng-
ur geta tekið við varningi, sem varn-
arliðið þurfi að losa sig við. Nú væri
fyrirtækinu óheimilt að taka við vör-
um, sem áður mátti selja hér.
Fundur leiðtoga fslands, Færeyja og Grænlands í Reykjavík
Rætt um hugsanlega
aðild Færeyja að EFTA
Morgunblaðið/Þorkell
JONATHAN Motzfeldt, Davíð Oddsson og
Anfiiin Kallsberg.
Á FUNDI Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra,
Jonathans Motzfeldts,
formanns landstjómar
Grænlands, og Anfinns
Kallsbergs, lögmanns
Færeyja, var m.a. rætt
um þann möguleika að
Færeyjar gengju inn í
EFTÁ og gerðust þar
með aðilar að Evrópska
efnahagssvæðinu.
Færeyingar hafa áður
rætt um hugsanlega aðOd
að EFTA við Norðmenn.
Færeyingar hafa fríverslunarsamn-
ing við Evrópusambandið um flest
allt nema viðskipti með fisk. Þeir
þurfa því að finna samskiptum sínum
við ESB framtíðarskipan. Málið er
hins vegar talið flókið, bæði vegna
sambands Færeyja við Danmörku
og eins eru samningar um tollfrjáls-
an innflutning á færeyskum fiski til
ESB taldir viðkvæmir.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að meðal þess sem rætt hefði
verið á fundinum hefði verið sam-
starf landanna í Vestnorden, sam-
starf í sjávarútvegsmálum, rann-
sóknir á vistkerfi N-Atlantshafsins
og umhverfismál. Hann sagði að á
fundinum hefðu menn verið sam-
mála um að bregðast þyrfti við
áróðri þeirra sem berjast gegn fisk-
veiðum.
Motzfeldt sagði að okkar litlu sam-
félög í N-Atlantshafi hefðu margvís-
lega sérstöðu og það væri nauðsyn-
legt fyrir þau að ræða um
sameiginleg mál. Þau
gætu með ýmsum hætti
hjálpað hvert öðru við
lausn mála. Hann sagði
samstarf landanna í sjáv-
arútvegs- og umhverfis-
málum mjög mikilvægt,
en þau gætu einnig haft
hag af nánara samstarfi í
ferðamannaþj ónustu.
Hann nefndi einnig að
Grænland og Færeyjar
vildu styðja og taka þátt í
1000 ára afmæli ferðar
Leifs Eiríkssonar til Vínlands.
Kallsberg sagði að á fundinum
hefðu verið lögð drög að samstarfi
landanna sem yrðu útfærð nánar af
öðrum ráðherrum landanna og emb-
ættismönnum. Hann sagði samstarf
landanna mikilvægt og enginn vafi
léki á að saman gætu þau myndað
sterka heild. Hann nefndi sérstak-
lega samstarf í umhverfismálum og
sagði að þar hefðu löndin mikilla
hagsmuna að gæta.
skylt að hlíta evrópskum reglum
varðandi merkingu matvæla frá 1.
maí sl., en heimilt var að selja mat-
væli með eldri merkingum til 1.
september.
„Umhverfisráðuneytið gaf loka-
frest til að selja vörur sem ekki voru
merktar samkvæmt evrópskum
stöðlum, til 1. september sl. Við höf-
um nú tekið allar matvöi-ur úr sölu
og viljum sýna gott fordæmi með því
að fylgja tilskipuninni," segir Alfreð
Þorsteinsson forstjóri Umsýslu-
**stofnunar varnarmála. Að hans sögn
kemur þessi breyting minna niður á
Fannst látin
hjá bflnum
ÁGÚSTA Sigmundsdóttir,
sem saknað hafði verið frá því
á þriðjudag, fannst í gær-
morgun skammt frá bíl sínum.
Hún var látin. Umfangsmikil
leit að henni var að hefjast
þegar hún fannst.
Bfll Ágústu fannst á föstu-
dagsmorgun við.Meyjarsæti á
Uxahryggjaleið skammt frá
Ármannsfelli. Björgunarsveit-
armenn og þyrla Landhelgis-
gæslunnar leituðu hennar á
föstudag fram í myrkur, en án
árangurs.
'f*