Morgunblaðið - 25.10.1998, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Aspen ÍColorado
Þýskaland
Austur-
ríki
Heimsb.mót í svigi
22.nóv. 1998
Heimsb.mót í svigi
28. nóv. 1998
Styttri
skíði og
stífari
skór
KRISTINN verður á styttri
skíðum í vetur en á siðasta
keppnistímabili. Haim hefur
verið að prófa hvaða skíða-
lengd hentar best og komist
að þeirri niðurstöðu að nota
þremur sentímetrum styttri
skíði en í fyrra, fer af 198
sentímetrum og niður í 195.
Hami hefur einnig verið að
prófa nokkrar gerðir af sk/ða-
skóm. Niðurstaðan úr þeim
prófunum var sú að liann ætl-
ar að nota sömu tegund af
skíðaskóm og hann var á í
fyrravetur, en þó aðeins
stífari. „Ég er mjög ánægður
með skíðaútbúnaðinn og hann
er eins og best verður á kos-
ið,“ sagði Kristinn.
ÍÞRÓTTIR
skíðaíþrótta hefst í Austurríki um helgina.
Skíðakappinn Kristinn Björnsson segir í
samtali við Val B. Jónatansson að hann
hafí aldrei verið í betri æfíngu og er til-
búinn í slaginn. Fyrsta mót Kristins verð-
ur eftir fjórar vikur í Park City, en þar sló
hann eftirminnilega í gegn í fyrra þegar
hann náði öðru sæti.
Reuters
KRISTINN Björnsson mun hefja keppnistímabilið í heims-
bikarnum í Park City í Bandaríkjunum 22. nóvember. Hann
sló þar eftirminnilega í gegn í fyrra með því að næla sér í
silfurverðlaunin. Myndin er einmitt úr þeirri keppni.
mig vantar aðeins nokkra daga á
skíðum til að fínpússa tæknina og
ná upp hraða. Ég finn að ég keyri
mjög vel og er mun örggari en áður.
Ég er einnig tveimur kflóum léttari
en í fyrra og samt með meiri
vöðvamassa. Ég hef lyft meira en
áður og þvf er ég mun sterkari. Ég
hef ekki fundið til í baki eða hnjám
og það er góðs viti, því það hafði
verið að angra mig áður.“
Breytt tækni
Hefur þú breytt tækninni eitt-
hvað frá í fyrra?
„Já, við höfum verið að breyta bil-
inu á milli skíðanna, hafa það meira
en áður. Eins fórum við í gegnum
skíðasporið í beygjum og eins að fá
mjöðmina meira yfír ytra skíðið.
Það er mikilvægt að vera alltaf með
góða pressu á ytra skíðið í beygjum.
Þetta hefur gengið það vel að ég hef
varla keyrt út úr braut á æfingum."
Má þá búast við að þú skilir þér
niður í fleiri mótum en ífyrra?
„Já, ég ætla rétt að vona það. Ég
ætla líka að vona að hraðinn sé í
lagi, en ég hef ekki fengið nægilega
viðmiðun til að átta mig alveg á því.
Annars hef ég verið að vinna Martin
á æfingum en það kemur sjálfsagt
ekki í ljós fyrr en þegar komið er út
í alvörukeppni hversu hratt ég fer.
Ég held að þetta sé í góðu lagi. Með
þessari keyrslu núna ætti ég alltént
að vera á meðal 15 bestu.“
Bjartsýnn
Hvernig ertu stemmdur fyrir
átökin í vetur?
„Mjög vel. Ég er mjög bjartsýnn.
Það er mikilvægt að ég nái góðum
úrslitum í fyrstu mótunum til að
halda mér inni í fyrsta ráshópi. Ég
þarf að keyra mig örugglega inn í
íyrsta ráshópinn og síðan get ég
farið að taka áhættu. Þó svo að ég
ætli mér stóra hluti er ekki þar með
sagt að það gangi eftir. En allt
bendir til að þetta ætti að geta orðið
gott keppnistímabil hjá mér. Það
lofar að minnsta kosti góðu.“
Fyrsta mótið verður í Park City.
Nú átt þú góðar minningar þaðan,
heldurðu að það trufli þig ekki
núna?
„Nei, það held ég ekki. Ég held
að það hjálpi mér frekar. Þessi
brekka í Park City hentar mér
mjög vel eins og sýndi sig í fyrra.
Það er ekki hægt að leggja braut-
imar öðruvísi en í fyrra því brekkan
leyfir það ekki, þannig að ég býst
við svipaðri braut núna. Nú fæ ég
betra rásnúmer í fyrri umferð og
það ætti að gera mér auðveldara
fyrir. Brautin verður að minnsta
kosti eins og best verður á kosið.“
Eftirsjá
í Tomba
Nú er Alberto Tomba hættur. Er
ekki mikill sjónarsviptir að honum?
„Jú, það verður eftirsjá í honum.
Það er líka mikill missir fyrir
skíðaíþróttina að hafa ekki þennan
litríka persónuleika áfram.“
Sérðu einhvern annan Tomba í
sjónmáli?
„Ég held að Norðmaðurinn
Hans-Petter Buraas hafi hæfileik-
ana. Hann er líka ekki ósvipaður
persónuleiki - mátulega kærulaus
og hefur gríðarlegt keppnisskap.
Hann virðist bestur þegar álagið er
sem mest. Buraas er kannski ekki
eins gegnumsteyptur „töffari" og
Tomba, en það er margt líkt með
þeim.“
Olafsfirðingurinn Kristinn
Bjömsson er nú að ljúka við
undirbúning sinn fyrir heimsbikar-
mót vetrarins, en fyrsta svigmótið
verður í Park City í Bandaríkjunum
22. nóvember. Hann á góðar minn-
ingar þaðan því þar sló hann eftir-
minnilega í gegn í fyrra er hann
náði öðru sæti þrátt fyrir að vera
með rásnúmer 49. Árangur hans
þar þótt einn sá athyglisverðasti í
heimsbikarmótunum síðasta tíma-
bil. Nú verður Kristinn í fyrsta rás-
hópi, sem þýðir að hann verður
ræstur af stað innan við 15 og það
ætti að auka möguleika hans.
Með bækistöð í
Lillehammer
Hann segir að undirbúningurinn
hafi gengið vel í sumar og haust.
„Ég hef haldið til í Lillehammer í
sumar og Haukur Bjarnason,
þjálfari minn, flutti frá Geilo til Lil-
lehammer í júní. Ég var að æfa einn
fram að þvf, en eftir æfingaátlun
hans. Eftir að hann kom til Lil-
lehammer hefur þetta verið mjög
gott. Það er mikill munur að hafa
þjálfarann á staðnum. Hann fylgir
mér í gegnum allar æfíngar og rek-
ur mig áfram með harðri hendi. Við
höfum unnið mjög markvisst af því
að bæta styrk og hraða og farið í
gegnum tæknina. Ég hef farið
reglulega í þolpróf í Osló og það
hefur komið mjög vel út sem við
höfum verið að gera.
Við vinnum mikið með mynd-
band, enda er það nauðsynlegur
þáttur í þjálfunni, sérstaklega hvað
varðar tæknina. Það er alltaf eitt-
hvað sem hægt er að laga og gera
betur. Við erum ánægðir með það
sem við höfum verið að gera og von-
andi að það skili sér í betri árangri í
vetur.“
Hann segist hafa æft vel í sumar.
„Ég hef æft helmingi meira en í
fyrrasumar þótt ég hafi ekki æft lít-
ið þá. Ég æfði tvisvar á dag sex
daga vikunnar eða um fimm til sex
klukkutíma á dag. Við byrjuðum á
fyrstu skíðaæfingunni i júní á jökli í
Noregi. Síðan var fyrsta æfingin
með sænska landsliðinu í endaðan
júlí. Við höfum farið á fimm samæf-
ingar með Svíunum á undirbúnings-
tímabilinu. Fyrir tíu dögum vorum
við í Sölden í Austurríki, en vorum
óheppnir með veður þar og gátum
ekki æft eins og skyldi.“
Kristinn, sem hefur verið hér á
landi í stuttri heimsókn, fer í dag til
Austurríkis til æfinga með Svíanum
Martin Hanson. „Það eru tveir
þjálfarar með honum, Joakim
Walner og Mika Gustafsson, og síð-
an Haukur með mér. Þjálfararnir
ná mjög vel saman og eru á sömu
línu í sambandi við þjálfunina. Ég
og Martin erum ekki með svo ólíka
stöðu á skíðunum þannig að það
hentar okkur vel að æfa saman. Við
erum líka álíka byggðir, frekar lág-
vaxnir, léttir og snöggir."
Alltaf nýsmurð og brýnd
Með þeim félögum í vetur verður
einnig maður sem sér alfarið um
skíðin þeirra og er hann kostaður af
skíðaframleiðendunum Rossignol
og Dynastar. Þannig að það verða
fjórir aðstoðarmenn með þeim í vet-
ur. „Það er mikill munur að hafa
mann sem sér alfarið um skíðin. Við
þurfum ekkert að koma nálægt
þeim - fáum þau alltaf nýsmurð og
brýnd fyrir hverja æfingu og
keppni. Aður þurfti ég sjálfur að sjá
um skíðin og það fóru oft margir
klukkutímar á dag í að laga þau og
brýna. Það er munur að vera með
toppskíði á hverri æfingu. Þegar ég
var að gera þetta sjálfur var það
ekki nærri eins vel gert. Ég get nú
algjörlega einbeitt mér að æfingun-
um sjálfum, án þess að hafa áhyggj-
ur af skíðunum.
Æfingamar hafa gengið vel og
HEIMSBIKARMÓTIN í SVIGI SEM KRISTINN BJÖRNSSON KEPPIR Á í VETUR
Heimsb.mot i svigi
28. febrúar 1999
Ofterschwang í Þýskalandi
Heimsb.mot i svigi
7. ianúar 1999
Schladming í Austurríki
Slerra Nevada á Spáni
Heimsb.mot i svig
14. mars 1999
Heimsb.mótisviai
17.jan. 1999 ~
V
Heimsb.mot i svigi
24. janúar 1999
Wengen í Sviss
Kitzbuhel í Austurríki
Heimsb.mot i svigi
14. des. 1998
Sestriere á Italíu
v<^
Kramska gora í Slóveníu
Hef aldrei
verið í
betri
æfingu
Heimsbikarkeppnin í alpagreinum