Morgunblaðið - 25.10.1998, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Ásdís
TSJEKHOV samdi Ivanov árið 1887 að beiðni leikhússeiganda í Moskvu. Verkið var frumsýnt við mikinn
fdgnuð í þessu húsi þrátt fyrir að leikarar kynnu lítið sem ekkert í textanum.
Nemendaleikhúsið frum-
sýnir Ivanov eftir Tsjekhov
NEMENDALEIKHÚSIÐ frumsýn-
ir leikritið Ivanov eftir Anton
Tsjekljoshov í Lindarbæ annað
kvöld, mánudagskvöld, ki. 20. Verkið
fjallar um ungan mann í sjálfsmorðs-
hugleiðingum og er skrifað á tímabili
sem höfundurinn einbeitti sér að því
að skoða náið inn í sálarfylgsni per-
sóna sinna. Verk frá þessum tíma
lýsa reynslu hinna sálsjúku með að-
ferð sem minnir á að höfundurinn
var starfandi læknir.
Tsjekhov skrifaði leikritið að
beiðni leikhússeiganda í Moskvu að
nafni Korsh árið 1887 fyrir álitlega
fjárupphæð. Samning verksins tók
ekki nema tvær vikur en Korsh hafði
lofað Tsjekhov að það yrði vel æft.
Æfmgarnar urðu hins vegar aðeins
fjórar og þar af voru tvær þeirra
„tómur fíflagangur, þar sem hinir
háttvirtu leikarar steyptu sér út í
orðaskak og þrætur“ eins og höfund-
urinn segir í bréfi til bróður síns
daginn eftir frumsýningu. Útkoman
varð líka eftir því, leikararnir kunnu
ekki hlutverk sín og raunar segist
Tsjekhov ekki hafa kannast við sitt
eigið verk á frumsýningunni sökum
þess hve textakunnáttan var slök.
Þrátt fyrir þetta fékk leikritið frá-
bærar viðtökur og mikil ólga mynd-
aðist í salnum, höfðu leikararnir
aldrei kynnst öðru eins. En Tsjekhov
var ekki ánægður og sá eftir því að
hafa samið Ivanov. Leikritið var sýnt
aftur í endurskoðaðri útgáfu tveimur
ái'um síðar viuð almennt góðar und-
h'tektir en sama ár var verk hans
Skógarpúkinn frumsýnt, sem síðar
hlaut nafnið Vanja frændi, en það
fékk svo hörmulegar móttökur að
Tsjekhov samdi ekki leiki-it aftur
fyrr en sex árum síðar, þegar hann
hóf að skrifa Mávinn. En frumsýn-
ingin hans í október ári síðar var aft-
ur á móti slíkt hnoð að Tsjekhov
gekk út eftir annan þátt og sór að
semja aldrei leikrit aftur.
Leikendur í uppsetningu Nem-
endaleikhússins eru Egill Heiðar
Anton Pálsson, Laufey Brá Jóns-
dóttir, Stefán Karl Stefánsson, Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir, Nanna
Kristín Magnúsdóttir, Hinrik Hoe
Haraldsson, María Pálsdóttir, Rún-
ar Freyr Gíslason og gestaleikari er
Kjartan Guðjónsson. Leikstjóri er
Guðjón Petersen. Leikgerð var unn-
in fyrir nemendur af þeim Hafliða
Arngn'mssyni, sem einnig er leik-
listarráðunautur, og Guðjóni Peter-
sen.
KJERTE
HJARTA LJOSSINS
Fyrsta myndin sem gerð er á Græniensku.
★ ★★★ Aktuelt
★ ★★★ Politiken
★ ★★★ Extra Biadet
RRÆN KVIKMYNDA
LABÍÓI 23. OKT. - 2. .
Einnig eru sýndar á hátíðinni
Barbara eftir Nils Malros
og Dansinn eftir Agúst Guðmundsson
■irsETSiJfRrr ~ • rasmus utbeith íL> m mm anda wismssfii
á!CS k>!tlsL MMRniSU líMflUWiJSÍI USUHUIWia
m »SM» KIUH-SfSUÍl* /•• ft tr.»i Ml IMma ftf 1St l««l«
tmttfHit JUÍUIH SSlSix í>kíí5W PfS ffSUT ,>4\ mm mumm
Islensk list í Vín
SÝNING á verkum Rögnu Róberts-
dóttur, Rúríar og Kristjáns Guð-
mundssonar var opnuð í Peter
Lindness Gallerí í Vín í gærkvöldi.
Sýningin nefnist íslensk sam-
tímamyndlist og eru þar 16 verk og
einnig eru 6 verk þessara lista-
manna sýnd á sérstaló'i myndlistar-
stefnu í Vín, sem Peter Lindness
Gallerí tekur þátt í.
Edda Jónsdóttir, forstöðumaður
Ingólfsstrætis 8, sagði sýninguna
þátt í samstarfi íslenskra og er-
lendra sýningarfyrirtækja. Hún
sagði fleiri sýningar íslenskra lista-
manna erlendis á döfinni; í Skandin-
avíu og Belgíu. Fyrir skömmu var
haldið málþing á Kjarvalsstöðum,
þar sem m.a. voru fluttir fyi'irlestar
um samskipti galleríista og lista-
manna og sagði Edda komu er-
lendra manna þess vegna hafa opn-
að ýmsa möguleika til samstarfs.
„Þetta er hæg þróun,“ sagði
Edda. „En takmarkið er íslensk list
úti um allt.“
Haustönn Múlans að hefjast
DJASSKLÚBBURINN Múlinn
hefur göngu sína að nýju eftir sum-
arleyfi sunnudaginn 25. október. Þá
verða tónleikar í Sölvasal, Sóloni Is-
landusi, með hollensku söng- og
danskonunni Ester Vroom ásamt
hljómsveit kl. 21. Hljómsveitina
skipa, auk Esterar, Helga Laufey,
píanóleikari, Birgir Baldursson,
slagverksleikari og Bjami Svein-
björnsson bassaleikari.
Ester Vroom er fædd í Hollandi
og er af súrínömskum uppruna.
Hún starfar í Amsterdam og hefur
víða komið fram sem söngkona og
dansari og þykir jafnvíg á djass og
suður-ameríska tónlist, segir í
fréttatilkynningu.
Bókastefnan í
Gautaborg hafín
FIMMTUDAGINN 22. október
hófst Bókastefnan í Gautaborg
með setningu kl. 10:40. Bertil
Falck, framkvæmdastjóri stefn-
unnar, bauð Benjamín B. Ferencz
sérstaklega velkominn og fól hon-
um að segja stefnuna formlega
setta. Benjamín B. Ferencz er einn
hinna amerísku yfirsaksóknara við
Nurnberg-réttarhöldin og gestur
stefnunnar vegna umræðufunda í
tilefni þess að 50 ár eru liðin síðan
Sameinuðu þjóðirnar undirrituðu
mannréttindayfirlýsinguna. Undir
yfirskriftinni „Crimes Against
Humanity" hófust umræðurnar um
brot á mannréttindum sem framin
eru um þessar mundir, m.a. í því
ljósi sem Nurnberg-réttarhöldin
hafa varpað á stríðsglæpi þá er
áttu sér stað í heimsstyrjöldinni
síðari. Við setninguna lýsti Benja-
mín B. Ferencz gleði sinni yfir að
sjá svo mörg ungmenni mætt til
leiks, „því framtíð okkar byggist á
þeim og að þau læri þá lexíu sem
læra þarf, og að við kunnum að
kenna þeim“ og hann lauk máli
sínu með örvandi hvatningarorðum
til þein-a. „Gefist ekki upp í barátt-
unni fyrir mannréttindum, það er
alltaf von.“ Honum var einnig falið
að setja safnstefnuna skömmu síð-
ar, en hún stendur yfir jafnhliða
Bókastefnunni og í samvinnu við
hana, með sömu þemu, en „Börn og
unglingar" og „Menningararfur-
inn“ eru tvö aðalþemu stefnunnar í
ár.
Kl. 11 tóku íslensku rithöfund-
arnir Ólafur Gunnarson og Hall-
grímur Helgason þátt í pall-
borðsumræðum undir stjórn Sven
Hallonsten og var þeim prýðisvel
tekið. Hallgrímur braut ísinn með
flutningi á ljóðinu „Good Morning
Amerika", og las einnig úr óút-
kominni sænskri þýðingu á bókinni
101 Reykjavík, en þýðandi er John
Swedenmark sem fyrr hefur þýtt
bækur Einars Kárasonar. Ólafur
flutti kafia úr enskri útgáfu Trölla-
kirkju, en á sænsku hefur hann fyrr
á árum verið kynntur sem barna-
bókahöfundur.
Ami Bergmann og Matthías Jo-
hannessen taka einnig þátt í um-
ræðum á messunni og verður síðar
sagt frá þeim.
A sýningarsvæðinu var kynning-
arreitur íslenskra forlaga á sínum
stað við „Nordens Torg“ undir
stjórn Önnu Einarsdóttur, og
mörgum bókum prýddur, Islands-
myndum svo og stöðugum straumi
af fólki, fólki sem vill skoða og
spyrja og fólki sem vill hittast. Is-
lenskir útgefendur sem taka þátt
og sýna úrval af bókum eru: Mál og
Menning, Vaka/Helgafell, Hörpuút-
gáfan, Forlagið, Iðunn, Iceland
Review; Hið íslenska bókmenntafé-
lag, íslensk málnefnd, Sögufélagið
og Háskólaútgáfan.
-----------------
A
Einar Askell
á Akranesi
MÖGULEIKHÚSIÐ sýrúr barna-
leikritið Góðan dag Einar Áskeli í
Grundaskóla Akraness sunnudag-
inn 25. október kl. 17. Leikritið hef-
ur undanfarið verið sýnt í Reykja-
vík, auk þess sem farið hefur verið í
leikferðir um Vestur-, Norður og
Austurland. Alls hafa rúmlega
10.000 börn séð sýninguna frá því
hún var frumsýnd í febrúar, segir í
fréttatilkynningu.
Leikritið er byggt á hinum kunnu
bókum sænska höfundarins Gunillu
Bergström um Einar Askel, en leik-
arar eru Skúli Gautason og Pétur
Eggerz.