Morgunblaðið - 25.10.1998, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
______PAGBÓK FRÁ PAMASKUS_
Haustvindar og stuttir
eða langir sérhljóðar
SAMT fór ekM framhjá mér að
haustið var á næsta leiti. Svo sögðu
sumir að þetta gæti allt í einu
breyst og næstu vikumar ryki e.t.v.
hitinn upp að nýju en síðan brysti
veturinn á. Pað er miðsvöðvarhitun
í íbúðinni minni og rauð og fógur
flíspeysa hangir inni í skáp svo ég
hef í rauninni engu að kvíða.
En það tekur alltaf stundarkorn
að aðlagast nýjum stað og sama
hversu spakur maður þykist vera þá
vefjast smáu hlutirnir alltaf íyrir
manni. Og smáir hlutir geta orðið
risastórir hér; eins og það hvar ég á
að hengja þvottinn minn þegar eng-
ar eru snúrumar, réttara sagt eng-
ar festingar því snúran er keypt og
komin í hús. Það er mér ekki undr-
unarefni að enn er síminn ekki kom-
inn og þó keifar eigandinn á hverj-
um degi að forvitnast um það. „Eft-
ir tvo daga - ef guð lofar,“ er svarið
sem karlanginn fær, í hvert skipti.
En einn daginn er guð vís með að
lofa honum að fá síma handa mér og
þá verður nú aldeilis hátíð og allir
geta hringt í mig baki brotnu þótt
ég geti náttúrlega bara hringt innan
borgarinnar. Ég er viss um að það
yrði uppþot á símstöðinni ef þess
yrði farið á leit að ég - sem er bara
hér til að læra arabísku - færi fram
á svoleiðis útbúnað.
Þó er ég búin að hafa upp á póst-
húsinu og nánast mesta furða að ég
skuli ekki hafa tekið eftir því áður
því það er rétt við hliðin á sendiráði
Líbýu sem er allt að því í næsta
húsi. Það era svona mál sem verða
fyrirhafnarsöm en gera mann dálít-
ið greindarsnauðan í andlitinu.
Því ekkert af þessum bagsmálum
Eitt kvöldið þegar
Jóhanna Kristjónsdótt-
ir fór í sína daglegu
kvöldgöngu var allt í
einu kominn haustilm-
ur í loftið. Eftir 34 stiga
hita undanfarinna
vikna, var hvasst og
laufín feyktust af trján-
um eins og spænir. Hit-
inn var dottinn niður í
tólf stig en morguninn
eftir var 34 stiga hiti
aftur stuttbuxnaveður
fram eftir öllum degi.
mínum koma mér beinlínis í opna
skjöldu og reynslan frá vetursetu í
Kairó í denn tíð er mér betri skóli í
sjálfsbjörgun en allt nám í arabísku
samtals. Það ætti að skylda fólk til
að búa annars staðar en heima hjá
sér að minnsta kosti um tíma þar
sem allt verður án þess að maður
pæli í neinu; allt gerist af sjálfu sér.
Það hvarflar einatt að mér að ég
muni aldrei fá sérstaklega netta rit-
hönd á þessu ágæta tungumáli. Við
skrifum öll eins og böm sem vanda
sig; obboðslega mikið en það vantar
allan karakter og sveiflu í skriftin.
Að minnsta kosti fáum við að heyra
þetta hjá kennaranum. Svo heima
æfi ég mig þvi í aukastílabókinni og
geri þvílíkar sveiflur til og frá að
mér þykir nóg um. En kennarinn er
ekki dús við frammistöðu okkar og í
stað þess að leggja í bili megin-
áherslu á framburð sitjum við með
sveittan skallann og reynum að
koma karakter inn í nýju rithöndina
okkar.
Ef guð lofar kemur karakterinn
hægt og bítandi. Það er öllu verra
með sérhljóðana. Og þess vegna
skiptir framburðurinn öllu. Hvenær
er sérhljóði langur í arabísku og
hvenær er hann stuttur, ergo
hvenær á að skrifa hann í arabísku
orði og hvenær ekki? Það þýðir ekki
að bera þetta saman við íslensku
sbr. orðið Múbarak þar sem engum
heilvita manni hér dytti í huga að
skrifa ú og fengi villu iyrir.
Ég minnist þess að þetta var eitt
helsta vandamálið sem kennarar
mínir - og samnemendur - áttu við
að stríða í Kairó. Við fórum létt með
að læra utan að ranu af yfirgengi-
lega ótrúlegum beygingum sagna
og í hinum ýmsu flokkum.
En sérhljóðamir. Stuttir eða
langir. Það er vandamál með stór-
um stöfum.
Fullunnum sérauglýsingum,
sem eiga að birtast á þriðjudögum þarf
að skila fyrir klukkan 12 á mánudögum.
Atvinnu-, rað og smáauglýsingum,
sem eiga að birtast á þriðjudögum þarf
að skila fyrir klukkan 12 á mánudögum.
AUGLÝSINGADEILD
Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998 37*
Tveir fyrir
einn
til
London
2. og 9. nóv.
trá kr. 14.550
Helgartilboð 12. nóv.flug ■
og hótel frá kr. 29.900 "
London er tvímæla-
laust eftirsóttasta
heimsborg Evrópu í
dag og vinsældir
hennar hafa aldrei
verið meiri, enda
fínnur þú hér fræg-
ustu leikhúsin, heim-
sþekkta listamenn í myndlist og tónlist, glæsilega veit-
inga-og skemmtistaði og á meðan á dvölinni stendur
nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan
tímann. Heimsferðir bjóða gott úrval hótel í hjarta
London á frábæru verði.
Glæsileg ný hótel í boði.
Plaza-hótelið, rótt við Oxford-stræti.
Flugsæti til London
Flugsæti til London með flugvallar-
sköttum. Ferð frá mánudegi til fimmtu-
dags, 2. og 9. nóv.
Flugsæti kr. 21.900. Skaltur kr. 3.600x2= 7.200.
Samtals kr. 29.100. Á mann kr. 14.550.
Flug og hótel í 4 nætur,
helgarferð 29. okt._
Verð kr. 29.900
Sértilboð 29. október, Flora-hótelið,
4 nætur í 2ja manna herbergi.
Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600. www.heimsferdir.is
Verð kr. 14.550
Brottfarir
26. okt. 8 sæti
29. okt. 9 sæti
02. nóv. 13 sæti
05. nóv. 9 sæti
09. nóv. 21 sæti
12. nóv. 18 sæti
16. nóv.
19. nóv.
23. nóv.
26. nóv.
30. nóv.
3. des.