Morgunblaðið - 25.10.1998, Qupperneq 40
40 SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Ljósmyndasýning á mbl.is
/ boði Hm fcmsfs
Þorkell Þorkelsson Ijósmyndari
Morgunblaðsins segir ferðasögu
sína frá því hann var í írak í sept-
ember sl. í máli og myndum á
mbl.is. Þorkell sá ástandið í írak
með augum Ijósmyndarans og eru
birtar um 70 Ijósmyndir á mbl.is.
www.mbl.is
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
í Breiðholts-
kirkju
ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar
Tómasarmessur efnir til annarrar
Tómasarmessu á þessu hausti í
Breiðholtskirkju í Mjódd í kvöld,
sunnudag, kl. 20.
Tómasarmessan hefur vakið at-
hygli víða um lönd á undanförnum
árum og eru slíkar messur jafnan
fjölsóttar og hefur svo einnig verið
hér.
Heiti messunnar er dregið af
postulanum Tómasi, sem ekki vildi
trúa upprisu Drottins nema hann
fengi sjálfur að sjá hann og þreifa á
sárum hans. Markmið Tómasar-
messunnar er öðru fremur að leitast
við að gera fólki auðveldara að
skynja návist Drottins, einkum í
máltíðinni sem hann stofnaði og í
bænaþjónustu og sálgæslu.
Stór hópur fólks tekur jafnan
þátt í undirbúningi og framkvæmd
Tómasarmessunnar og er það t.d.
yfir 30 manna hópur, bæði leikmenn
og prestar, sem standa að þessari
messu.
Tónlistar-
guðsþjónusta og
bananasplitt í
Arbæjarkirkju
ALMENN guðsþjónusta verður kl.
11 í dag, sunnudag, þar sem góðir
gestir verða með. Gísli Alfreðsson
leikari flytur stólræðu. Valgeir
Skagfjörð sér um tónlistarflutning
og stjómar kór. Guðrún Gunnars-
dóttir söngkona syngur einsöng.
Sunnudagaskólinn verður á sínum
tíma kl. 13. Þar fáum við Iíka góða
gesti en bamakór kirkjunnar mun
koma fram í stundinni undir stjórn
Margrétar Dannheim. Eins og
alltaf er mikið fjör í barnaguðsþjón-
ustum Árbæjarkirkju. Sungið mikið
og fróðleikur í bland fyrir börn og
fullorðna. Nýtt og vægast sagt
spennandi efni í boði í allan vetur.
Um kvöldið kl. 20 mun Æskulýðs-
félag Árbæjarkirkju standa fyrir
tónlistarguðsþjónustu. Hljómsveitin
„42“ spilar og syngur lög úr kvik-
myndinni „Sister Act“ sem mörgum
er í fersku minni. Æskulýðsfélagar
munu sjá um ritningalestra og bæn-
ir. Halldór Elías Guðmundsson,
framkvæmdastjóri ÆSKR verður
með hugleiðingu.
Það er ósk okkar og von í kirkj-
unni, að sem flestir sjái sér fært að
koma, vera með og uppbyggjast í
einhverri þeirri guðsþjónustu, sem
boðið er upp á í byrjun vetrar. Eftir
tónlistarguðsþjónustuna verður
kirkjugestum boðið að gæða sér á
íslands lengsta bananaspilitti í boði
Kjörís eða 30 metra löngu í tilefni
vetrarkomu. Þess má geta að
Æskulýðsfélag Árbæjarkirkju á
gamla metið eða 20,1 metri. Eins og
sjá má er eitthvað íyrir alla aldurs-
hópa að hafa nk. sunnudag eins og
alla aðra sunnudaga sem virka
daga.
Prestarnir.
Bústaöakirkja. Starf TTT mánudag
kl. 17.
/rnr Attalus
Plasthúðun
- Allur véla- og tækjabúnaður
• Vönduð vara - góð verð
Friðrikskapella. Kyrrðarstund í
hádegi á morgun, mánudag. Léttur
málsverður í gamla félagsheimilinu
að stundinni lokinni.
Grensáskirkja. Mæðramorgunn
mánudag kl. 10-12. Allar mæður
velkomnar með lítil börn sín.
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið
Örk (eldri deild) mánudag kl. 20 í
kórkjallara.
Neskirkja. Fótsnyrting á vegum
Kvenfélags Neskirkju mánudag kl.
13-16. Upplýsingar í síma 551 1079.
Mömmumorgunn miðvikudag kl.
10-12. „Agi og uppeldi". Ungar
mæður og feður velkomin. Kaffí og
spjall.
Árbæjarkirkja. Æskulýðsfundur
yngri deildar, 8. bekkur, kl. 20-22 í
kvöld. Starf fyrir 7-9 ára (STN)
mánudag kl. 16-17. TTT starf fyrir
10-12 ára mánudag kl. 17-18.
Æskulýðsfundur eldri deildar, 9.
bekkur, kl. 20-22 mánudag.
Digraneskirkja. Kirkjustarf
aldraðra. Opið hús á þriðjudag frá
kl. 11. Leikfimi, matur, helgistund í
umsjá sr. Magnúsar Guðjónssonar.
Kristján Gunnarsson fyrrv.
fræðslustjóri sér um bók-
menntaþátt. TTT-starf 10-12 ára kl.
17.15 á mánudögum.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-
10 ára drengi á mánudögum kl.
17.30. Bænastund og fyrirbænir
mánudaga kl. 18. Tekið á móti
bænaefnum í kirkjunni.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum í kirkj-
unni alla daga frá kl. 9-17 í síma
587 9070.
Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir
unglinga 13-15 ára kl. 20.30 á mánu-
dögum. Prédikunarklúbbur presta í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er
á þriðjudögum kl. 9.15-10.30. Um-
sjón dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson.
Kópavogskirkja. Samvera
Æskulýðsfélagsins kl. 20 í safnaðar-
heimilinu Borgum.
Seljakirkja. Mömmumorgnar á
þriðjudögum kl. 10-12.
Hafnarfjarðarkirkja. Æskulýðs-
starf yngri deild kl. 20.30-22 í
Hásölum.
@texti:Akraneskirkja. Kirkjuskóli
eldri barna, 7-9 ára, mánudag ki.
17.30. Æskulýðsfélag kirkjunnar í
samstai-fi við KFUM og K kl. 20.
Keflavíkurkirkja. Sveiflutónleikar
kl. 20.30 til styrktar söngkerfi fyrir
Keflavíkurkirkju. Poppband kirkj-
unnar leikur en það er skipað Baldri
Jósefssyni, Guðmundi Ingólfssynik,
Þórólfi Ingiþórssyni, Arnóri Vil-
bergssyni og Einari Erni Einars-
syni. Ásamt þeim koma fram
Magnús Kjartansson, Rúnar Júlíus-
son, Einar Júlíusson, Ruth Regin-
alds, Birta Sigurjónsdóttir og Kór
Keflavíkurkirkju.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
11 sunnudagaskólinn. KI. 14 almenn
guðsþjónusta. Samvera fyrir börnin
yfir í safnaðarheimili meðan á
guðsþjónustu stendur. Kl. 20.30
æskulýðsfundur í Landakirkju. Á
morgun, mánudag: Kl. 20 sauma-
fundur kvenfélagsins í safnaðar-
heimilinu. Kl. 20.30 biblíulestur í
KFUM og K. Jóhannesarguðspjall
tekið fyrir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Al-
menn samkoma kl. 16.30. Vitnis-
burðir frá ungu fólki sem er að
koma af unglingamóti. Ræðumaður
Terry Bridle frá Englandi. Allir
hjartanlega velkomnir.