Morgunblaðið - 25.10.1998, Síða 42
H2 SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Ástkær systir okkar, mágkona og frænka,
SONJA HÓLM INGIMUNDARDÓTTIR
leiðsögumaður
frá Lækjamóti,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 22. októ-
ber.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 28. október kl. 15.00.
Elín R. Líndal, Þórir ísólfsson,
Jónína Líndai, Guðmundur Pálmason,
Anna Líndai, Magnús Tumi Guðmundsson,
Grétar Á. Árnason, Sesselja Stefánsdóttir
og systkinabörn.
Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÓSKAR J. SIGURÐSSON
frá Búlandi,
Vestmannaeyjum,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
sem lést á Landspítalanum mánudaginn
19. október, verður jarðsunginn frá Víðistaða-
kirkju, Hafnarfirði, miðvikudaginn 28. október
kl. 13.30.
Björg S. Óskarsdóttir, Peter Kvaran,
Guðmundur Ó. Óskarsson, Ágústa Sigurðardóttir,
Magnús Matthíasson, Guðlaug Þ. Guðmundsdóttir,
Ragnheiður Matthíasdóttir, Guðmundur Brandsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Systir okkar og frænka,
NANNA GUÐMUNDSDÓTTIR
* frá Hruna, Ólafsvík,
Austurbergi 38, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 27. október kl. 13.30.
María H. Guðmundsdóttir,
Guðrún A. Guðmundsdóttir,
Guðmundur Guðmundsson
og systkinabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, stjúp-
faðir, tengdafaðir, afi og langafi og bróðir,
ÓLAFUR MAGNÚSSON,
Engihjalla 11,
fyrrum starfsmaður
Kirkjugarða Reykjavíkur,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 27. októþer kl. 15.00.
Jóhanna Jónsdóttir,
Bragi Ólafsson, Sigþrúður Bergsdóttir,
Ásta Þóra Ólafsdóttir, Ormur Helgi Sverrisson,
Jón Gunnar Harðarson, Erla Skarphéðinsdóttir,
Hrefna Harðardóttir, Kjartan Ólafsson,
Steinunn Harðardóttir, Níels Níelsson,
Guðmunda Magnúsdóttir,
Magnús Marteinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug á kveðjustund elskulegs eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa og bróður,
EINARS SIGURJÓNSSONAR
fyrrverandi framkvæmdastjóra
I Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss
Vestmannaeyja.
Guð blessi ykkur öll.
Hrefna Sigurðardóttir,
Óskar Einarsson, Katla Magnúsdóttir,
Inga Óskarsdóttir, Pétur Lúvisson,
Hrefna Óskarsdóttir, Páll Arnar Erlingsson,
Ásta Jóna Óskarsdóttir, Manzo Nunez,
Tómas og Ágúst Þór Péturssynir,
Einar Páll Pálsson,
Ólafur Sigurjónsson.
OSKAR
JÓNSSON
+ Óskar Jónsson
fæddist í Vatna-
garði, Landsveit í
Rangárvallasýslu,
5. október 1913.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu Ljós-
heimum á Selfossi
13. október síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá Sel-
fosskirkju 24. októ-
ber.
Haustið 1951 fluttu
foreldrar okkar, Har-
aldur Matthíasson og
Kristín Olafsdóttir, að Laugar-
vatni með fjögur börn, það yngsta
var þá tæplega ársgamalt en það
elsta fimm ára. Við settumst að í
gamla nemendahúsinu Björk og
deildum þar öðrum enda hússins
með Sveini Pálssyni kennara og
fjölskyldu hans. I stærstum hluta
hússins bjuggu nemendur og voru
oft fjórir í hverju herbergi og
höfðu einn sameiginlegan, lítinn
fataskáp og eitt til tvö borð til um-
ráða. Þar sem foreldrar okkar
stóðu á fyrsta degi í þessum
þrengslum með bamahópinn og
búslóð sína óuppsetta kom þar
Óskar Jónsson, smiður og kenn-
ari, og bauð þeim aðstoð sína og
'sj' 'y
T|7
Þegar andlát
ber að höndum
Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.
Sími 551 1266
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfiröi, sími 565 5892
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Olsen,
útfararstjóri
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
var sú hjálp og vin-
semd kærkomin.
Þessi kynni af Osk-
ari á fyrsta degi okkar
á Laugarvatni eru lif-
andi vitnisburður um
öll samskipti hans við
okkur næstu fjörutíu
og sjö ár eða allt fram
til þess að Óskar lést.
Hann var ávallt boðinn
og búinn að rétta okk-
ur hjálparhönd og
margur góður smíða-
gripur hans prýðir
heimili foreldra okkar
í Stöng á Laugarvatni,
en vænst þótti okkur um heim-
sóknir hans til okkar og vinarhug.
Óskar varð fljótt aufúsugestur á
heimilinu. Honum fylgdi jafnan
léttur andblær, umræðuefni skorti
aldrei og voru þau gjarnan af ólík-
um toga. Verkefni foreldra okkar
voru ófá og þegar Óskar kom í
heimsókn var hann oftar en ekki
dreginn inn í umræðurnar með
orðunum: Við vorum að ráðgera
að... Þegar leitað var eftir ráðum
hans var hann úrræðagóður ráð-
gjafi. Engu skipti hvort um var að
ræða viðhald húss, bílsins, útbúnað
í ferðalög eða önnur áhugamál okk-
ar, Óskar fylgdist af jafneinlægum
áhuga með verkefnum okkar yngra
fólksins þótt smærri væru í snið-
um.
En vináttan náði líka til fjöl-
skyldu Óskars, konu hans Eyglóar
og sona þeirra Jóns og Þórðar.
Æskuvinátta okkar Jóns (þ.e.
Þrúðar og Jóns) jók á samskipti
fjölskyldnanna. Þau Óskar og
Eygló buðu vinkonuna litlu vel-
komna á heimili sitt. Hlýhugur
þeirra og alúð í minn garð birtust
á margan hátt. Eg naut þar leið-
sagnar og hvatningar ekki síður en
synir þeirra. Þegar Eygló prjónaði
vettlinga á strákana fékk stúlkan
stutta eins vettlinga og þegar Ósk-
ar smíðaði skíði handa Jóni og
Þórði eða skrifpúlt fékk stúlkan
sams konar gripi. Slík vinátta er
dýrmætt veganesti og þegar við
systkinin uxum úr grasi nutum við
sama hlýhugarins og síðar makar
okkar og böm, þegar þau bættust í
hópinn. Alveg fram á þetta ár var
áhugi Óskars á velferð okkar lif-
andi. Sýndi það sig best þegar
hann fylgdist með skíðaleiðangrin-
um á Suðurpólinn og hefði hann
varla gert það af meiri einlægni þó
að sonur hans hefði átt í hlut. Lík-
amskraftar hans voru þá nokkuð
farnir að þverra en hann lét það
ekki aftra sér frájni að heimsækja
foreldra okkar. I hvert sinn sem
eitthvað birtist um leiðangurinn í
Morgunblaðinu tók hann blaðið og
gekk með það norður eftir til for-
eldra okkar, gaf þeim það og
spjallaði við þau um framgang
skíðagöngunnar. Blöð þessi voru
geymd og er Haraldur faðir okkar
nú að binda þau inn og með vissum
hætti að geyma enn einn vitnis-
burðinn um hugulsemi Óskars í
okkar garð.
Það var erfitt að hugsa sér Ósk-
ar án Laugarvatns og enn erfiðara
er nú að hugsa sér Laugarvatn án
Óskars. Um áratugi tók hann þátt
í því uppeldishlutverki sem Laug-
arvatn og starfsfólkið þar gegndi á
þroskabraut fjölmargra unglinga.
Þar í hópi voru margir að stíga sín
fyrstu skref úr öryggi heimahaga
og áttu nú að byrja samskipti sín
við ókunnugt, fullorðið fólk. Þá
skipti ekki litlu máli að viðmót og
framkoma þeirra fullorðnu væri
bæði nærgætin en jafnframt leið-
beinandi og til fyrirmyndar í
reglusemi og heiðarleika. Þessir
þættir voru einkennandi í fari
Óskars og er hlutur hans í upp-
vexti ungmennanna stór. Hús
hans stóð í miklu nábýli við strák-
ana á heimavistinni og þar kom
hann oft vegna starfa sinna.
Aldrei urðu þar hnökrar í sam-
skiptum þó að auðvitað færi mikið
fyrir fjörugum strákum í hóp.
Mest áhrif hefur hann þó haft á þá
þegar þeir áttu samvistir við hann
við smíðar, en smíði var skyldu-
námsgrein. Sennilega býr margur
að því enn.
Fyrir hönd fjölskyldu okkar
kveðjum við kæran vin með virð-
ingu og söknuði.
Við vottum Eygló, Jóni og Þórði
og fjölskyldum þeirra samúð okkar.
Þrúður Guðrún Haraldsdóttir,
Ólafur Örn Haraldsson.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti
1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi
(569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
gi-einina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina
örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð
takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að
hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar
greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmæl-
isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur íylgi út-
prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyi-ir
tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í
daglegu tali era nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
LEGSTEINAR f Marmari
íslensk framleiðsla Granít
Vönduð vinna, gott verð Blá.aryti
Sendum myndalista Gabbró
MOSAIK Líparít
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík 1
sími 5871960, fax 5871986