Morgunblaðið - 11.12.1998, Blaðsíða 58
$8 FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
íenu
GARÐURINN
klæðir þig vel
•i
Hugvits
er þörf
SU ALKUNNA og almenna
vakning, sem orðið hefur um
aukna og bætta umhverfisvernd -
m.a. á hálendi Islands - var meira
en tímabær. Hún líkist nú stígandi
öldu, sem vex hratt að hæð og
breidd - og mætti. Þær umræður,
sem orðið hafa um umhverfis- og
náttúruvemdarmál í far þessarar
bylgju, skipta miklu máli sem
þarft framlag til þjóðmálaumfjöll-
unar í fjölmiðlum og á öðrum vett-
vangi. En þessi vakning í umhverf-
ismálum leggur að vísu öllum
þeim, sem hlut eiga að máli, skyld-
ur á herðar. Mikilvægt er m.a., að
umræðan verði einvörðungu mál-
efnaleg - þótt fast kunni að verða
sótt á báða bóga - og þannig hag-
að, að einstaklingar verði ekki
særðir að óþörfu.
Miðað við sterka ytri aðstöðu
þeirra, sem helst beita sér fyrir
nýjum stórvirkjunum, er eiga að
þjóna þörfum stóriðju - með til-
heyrandi náttúi’uspjöllum, m.a.
vegna miðlunarlóna - áttu um-
hverfisverndarmenn lengi vel
fremur en ekki á brattann að
sækja í málflutningi sínum. Lengi
mátti virðast svo, að veldi hinna
hefðbundnu nýtingarsjónarmiða
yrði trauðla þokað. Þar á sýnist nú
hins vegar orðin veruleg breyting.
Mikill og sívaxandi fjöldi manna,
um allt land, hefur bersýnilega
öðlast skilning á því, að viðkvæm
Baráttan fyrir nýjum
stóriðjuverum, segir
Páll Sigurðsson, er
löngu komin inn á
myrkvaðar blindgötur.
og sérstæð náttúra íslands þarfn-
ist vökumanna, hollvina, og að
framkvæmdaraðilum stórvirkjana
sé full þörf á verulegu aðhaldi, ef
við viljum komast hjá umhverf-
isslysum, sem síðari
kynslóðh' Islendinga
myndu óhjákvæmilega
álasa okkur fyrir.
Hugmyndir virkjana-
manna um nýjar og
stórbrotnar vatnsmiðl-
anir norðan og norð-
austan Vatnajökuls,
svo og um nýtt miðlun-
arlón, er skerði Þjórs-
árver, hafa vissulega
sætt harðri og rétt-
mætri gagnrýni um-
hverfísvemdarmanna,
en umræðan snýst þó
að sjálfsögðu ekki um
þau svæði ein heldur
tekur hún jafnframt -
og á að taka - til verndunar, og um
leið hófsamlegrar nýtingar, allra
náttúruauðlinda okkar.
Mikilvægast er, að nauðsynleg
hugarfarsbreyting verði sem fyrst
hjá þeim aðilum, sem vald hafa og
formleg áhrif í virkjanamálum al-
mennt eða varðandi einstaka þætti
þeirra. Þar hefur nokkuð áunnist
þótt sumum virðist miða hægar en
skyldi. Sem skýrt dæmi um
breyttan skilning sumra sveitar-
stjórnarmanna á eðlilegu vægi
hagsmuna á þessu sviði má benda
á þær röksemdir um mikilvægi
náttúruverndar og hinnar almennu
umræðu um aukna umhverfis-
Páll
Sigurðsson
vernd, er lágu að baki
ályktunar hrepps-
nefndar Fljótsdals-
hrepps frá því í októ-
bermánuði s.l., þar
sem þeirri ósk var
beint til hlutaðeigandi
aðila að fram fari
formlegt matsferli,
skv. lögum um um-
hverfismat nr.
63/1993, vegna áhrifa
fyrirhugaðrar Fljóts-
dalsvirkjunar. Fyrir-
ætlanir um þá virkjun
ásamt afarstóru miðl-
unarlóni á Eyjabökk-
um, í tengslum við
hana, hafa einmitt
sætt mikilli gagnrýni umhverfis-
verndarmanna upp á síðkastið.
Þessa ábyrgu afstöðu hrepps-
nefndarinnar ber að þakka eins og
hvað annað, sem vel er gert í um-
hverfismálum. Þess skal þá
minnst, að formlegu umhverfis-
mati fylgir m.a. lögvarinn réttur
almennings til að bera fram at-
hugasemdir og jafnframt er með
því tryggt, að þar til bær yfirvöld
umhverfis- og skipulagsmála fjalli
síðan um málið á hlutlægum
grundvelli. I þessu lögboðna mats-
ferli - ef beitt yrði við umrædda
stórframkvæmd - myndi felast
mikið aðhald fyifr þá bráðlyndu
IPYfU®
HV/ERFISGÖTU 26,
SÍMI 551 1511.
textíl I
leirlist
my ndlist
silkislæður
englabjöllur
ullartreflar
smámyndir
textíltöskur
diskamotlur
kertastjakar
leirvasar
myndvefnaður
silkimyndir
Fjölbreytileiki at-
vinnulífsins lykillinn
UMRÆÐAN um
búsetuþróun hefur
verið mikið til umræðu
að undanfórnu. Suður-
nesin hafa ekki farið
varhluta af þessari
umræðu, þó að íbúum
á svæðinu hafi fjölgað
lítillega á undanföm-
um árum. Markaðs-
og atvinnumálaskrif-
stofa Reykjanesbæjar
hefur á undanförnum
árum unnið að því að
auka fjölbreytni at-
vinnulífsins á svæðinu
og náð talsverðum ár-
angri. Nú vinnur skrif-
stofan markvisst að
því að kanna hvernig þróun svæð-
isins verður í nánustu framtíð til
að mæta auknum kröfum atvinnu-
lífsins og fólksins sem býr á svæð-
inu.
Búsetuþróun á Islandi hefur
verið mikið til umræðu að undan-
förnu, og samkvæmt niðurstöðum
Stefáns Ölafssonar, forstöðumanns
félagsvísindastofnunar Háskóla ís-
lands, hefur fólksflutningur af
Mikið úrval af hand-
unnum skeiðum,
spöðum og hnífum
Ws í ótai mynstrum á
** verði, sem kemur á
óvart.
Pantið myndalista í
síma 437-1234 eða
í kristy@aknet.is
Jón Björn
Skúlason
landsbyggðinni til
höfuðborgarsvæðisins
aldrei verið meiri. í ár
er talið að lands-
byggðin muni tapa
1.500-2.000 manns til
höfuðborgarsvæðis-
ins. Flest öll land-
svæði tapa fólki, en
eitt sker sig nokkuð
úr varðandi þessa
þróun, en það eru
Suðurnesin.
A Reykjanesi hefur
fólki fjölgað á hverju
ári síðastliðin 10 ár,
að einu ári undan-
skildu, 1995, þegar
fólki fækkaði um
I/ A
J \f
/ Jm
KRISTY
Skartgripir &
gjafavörur
Borgarnesi
0,14%. Þetta er nokkuð eftirtekt-
ai-vert, því árin 1992-1995 voru
erfið ár atvinnulega séð og var at-
vinnuleysi á Suðurnesjum mest á
landinu yfir þetta tímabil. Frá
1995 hafa sveitarfélög á Suður-
nesjum tekið höndum saman og
unnið saman að eflingu svæðisins.
Þessi jákvæða samvinna hefur
gert það að verkum að íbúum fer
nú fjölgandi á ný og meðalatvinnu-
leysi hefur minnkað úr 5,9% 1995 í
um 2,2% á þessu ári. Einnig hafa
sveitarfélögin beitt sér fyrir því að
bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja
og hefur það tekist vel. Árið 1995
var Markaðs- og atvinnumála-
skrifstofa Reykjanesbæjar (MOA)
stofnuð með það að markmiði að
efla atvinnulíf á Suðurnesjum.
Skrifstofan hefur einbeitt sér að
því að auka fjölbreytni atvinnulífs-
ins og styðja við starfandi fyrir-
tæki. Einnig hefur skrifstofan lagt
mikla áherslu á markaðssetningu
svæðisins t.d. fyrir ferðamenn en
ekki síður fyrir fjárfesta. Þessi
markaðssetning hefur skilað veru-
legum árangri, m.a. hefur erlend
fjárfesting í nýjum fyrirtækjum á
svæðinu stóraukist síðan 1996 og
fjöldi gistinátta hefur tvöfaldast
síðan 1995. Erfitt er að mæla ár-
angur af rekstri atvinnuráðgjafar-
skrifstofu, en frá upphafi hefur
verið lögð á það rík áhersla að
auka fjölbreytni atvinnulífsins og
hefur töluvert áunnist í þeim efn-
um. Flest ný störf hafa orðið til
við nýsköpunarverkefni í iðngrein-
um, en einnig hafa mörg störf
skapast í verslun og þjónustu og
má rekja það að nokkru til aukins
ferðamannastraums á svæðinu.
Þessi aukna fjölbreytni atvinnu-
lífsins er lykillinn að minna at-
vinnuleysi og jákvæðari íbúaþró-
un.
Björt framtíð
Sumarið 1998 gerði MOA ásamt
Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FS)
könnun í öllum íyrirtækjum á Suð-
urnesjum. Niðurstöður könnunar-
innar hafa nú verið birtar í skýrsl-
unni „Atvinnulíf 0g menntun á
Supurnesjum".
I þessari könnun var megin nið-
Vegna þeirra jákvæðu
breytinga sem
framundan eru í at-
vinnumálum á Suður-
nesjum, segir Jón
Björn Skúlason,
hefur MOA ákveðið
að hrinda í fram-
kvæmd nýju verk-
efni sem gengur
undir nafninu
„Reykjanes 2003“.
urstaðan sú að atvinnurekendur á
Suðurnesjum búast við að fjölga
starfsfólki töluvert til ársins 2003.
Ef spá atvinnurekenda um fjölda
ársverka innan sinna fyrirtækja
gengur eftir og íbúaþróun á Suður-
nesjum verður hin sama og undan-
farin 3 ár mun atvinnuleysi minnka
enn meira og á árinu 2002 mun
skorta vinnuafl á Suðurnesjum.
Fyrst og fremst nefna fyrirtækin
að störfum fyrir iðnmenntað fólk
muni fjölga og við núverandi að-
stæður verði orðinn verulegur
skortur á menntuðu vinnuafli eftir
1-2 ár. Erfitt verður að manna öll
þessi störf af fólki sem nú er á at-
vinnuleysisskrá, því 93,5% af
skráðum atvinnulausum í Reykja-
nesbæ hafa aðeins lokið grunn-
skólaprófi. í þessu sambandi hefur
endur- og símenntun verið stórefld
á svæðinu, en nánar verður komið
að því síðar. Þrátt fyrir aukna
menntun má ljóst telja að hluta af
þessum ársverkum verður að
manna með fjölgun íbúa á svæðinu,
annaðhvort með flutningi fólks til
svæðisins eða að halda betur í þá
náttúrulegu fjölgun sem verður
innan þess.
Menntun
mikilvægust
Eitt af lykilatriðunum við að
halda ungu fólki í byggðarlaginu
er að því bjóðist viðunandi mennt-
un innan svæðis. Staðreyndin er
sú að algengast er að fólk setjist
að þar sem það lýkur síðasta
menntastigi. FS býður nú þegar
upp á nokkuð fjölþætt iðnnám, en
ljóst er að með enn frekari styrk-
ingu á menntun heima í héraði
aukast líkurnar verulega á því að
fólk setjist að í heimabyggð sinni.
Einnig hafa sveitarfélögin á svæð-
inu staðið saman í að stofna „Mið-
stöð símenntunar á Suðurnesjum"
með það að markmiði að efla
starfs- og endurmenntun. Þessi
miðstöð hefur verið vítamín-
sprauta fyrir vinnumiðlun, þar
sem stór hópur atvinnulausra er
nú í starfs- og endurmenntun hjá
miðstöðinni.
Framboð, gæði og aðgengi að
menntun er einn af mikilvægustu
þáttum samfélagsins sem fólk velt-
ir fyrir sér þegar búsetuákvarðanir
er teknar. Ljóst er að bjóða verður
upp á svipaðar menntunaraðstæð-
ur utan höfuðborgarsvæðisins sem
innan þess, þ.e. ef stuðla á að því að
efla byggð utan Reykjavíkursvæð-
isins. Það er því mikilvægt að
framhaldsskólar eins og FS verði
styrktir enn meira en nú er. Bætt
menntunarstig er því eitt af mikil-
vægustu þáttum samfélagsins sem
áhrif hafa á byggðaþróun.
Reykjanes 2003
Vegna þeirra jákvæðu breytinga
sem framundan eru í atvinnumál-
um á Suðurnesjum hefur MOA
ákveðið að hrinda í framkvæmd
nýju verkefni sem gengur undir
nafninu „Reykjanes 2003“. Mark-
mið verkefnisins er að meta núver-
andi samfélagsaðstæður, t.d. dag-
vistarmál, skipulagsmál, atvinnu-
mál, menntamál o.fl. til að auð-
velda stefnumótunarvinnu sveitar-
stjóma á svæðinu til nánustu
framtíðar.
Höfundur er atvinnumálaráðgjafí
MOA.