Morgunblaðið - 11.12.1998, Page 65

Morgunblaðið - 11.12.1998, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1998 65 SKOÐUN SKIPTING VINNUAFLS... að stór hluti af henni fer beint hing- að inn á Austurland. Þessi málmiðnaður yrði ný at- vinnugrein á svæðinu sem hefði áhrif á margar aðrar greinar sem myndu selja vörur og þjónustu til áversins og starfsfólks þess. Ný at- vinnutækifæri munu tengjast beint þörfum álversins, en einnig munu skapast ný atvinnutækifæri vegna fjölgunar íbúa og hærri tekna, s.s. í byggingarstarfsemi, hótel- og veit- ingastarfsemi og sérfræðiþjónustu ýmiskonar. Samandregnar niður- stöður: Álverið mun auka hagvöxt á Austurlandi verulega og leiða til fjölbreytni atvinnulífs með beinum og óbeinum hætti. Það mun einnig leiða til hærri atvinnutekna og auk- inna viðskipta. Ekki virðast neinar líkur á að at- vinnulífíð bíði skaða af tilkomu ál- vers og tengdrar starfsemi á svæð- ið. Félagsleg áhrif Hjá álverinu myndu starfa um 700 manns eftir að það tekur til fullra starfa miðað við 480 þúsund tonna hámarksframleiðslu. Ef gert er ráð fyrir lágmarks margföldun- aráhrifum þá mun það leiða til 700-1.000 afleiddra starfa í tengsl- um við álverið. Þetta eru ekki há margfóldunaráhrif í sjálfu sér og ástæða þess er að á Austurlandi er s.k. yfir-geta eða „over-capacity“ á flestúm sviðum hins opinbera og í mörgum tilfellum einnig hjá einka- aðilum, en það þýðir að flest fyrir- tæki og stofnanir gætu þjónustað fleiri einstaklinga án þess að þurfa að bæta við sig mannskap og að- stöðu. Áhrifanna gætir víðar og því má gera ráð fyrir að enn fleiri störf skapist í tengslum við álver, sér- staklega á Eyjafjarðarsvæðinu og höfuðborgarsvæðinu. Þó ber að gæta þess að hér er um að ræða bein margföldunaráhrif. Samfara þeim og störfum í álverinu má gera ráð fyrir að aukningin verði í heild 1.400-1.700 ný störf. menntuðu fólki til að fá störf við hæfi og þar með stuðla að meira jafnvægi í aldursskiptingu íbúanna og draga úr brottflutningi fólks. Fólksfjölgun samhliða þessum áhrifum er grófáætluð um 30% á tíu ára tímabili. Ljóst er að þrátt fyrir fólksfækk- un síðustu ára þá þyrfti að grípa til viðeigandi aðgerða í húsnæðismál- um. Með uppbyggingu álvers þarf að gera ráð fyrir um 1.000 nýjum íbúðum á tímabilinu 2002-2010. Mælt er með þvt að sveitarfélög í vinnusókn álvers myndi með sér fé- lag sem myndi hafa yfirumsjón með byggingu nýs íbúðarhúsnæðis. Þetta félag gæti jafnframt tekið að sér fyrir hönd sveitarfélaganna alla umsýslu með félagslegu húsnæði í þeirra eigu. Slíkt félag gæti skipu- íagt alla uppbyggingu íbúðarhús- næðis af kostgæfni og rekið félags- legt húsnæði af fagmennsku. Af lífsgæðakönnunum má ráða að fólksfjölgun í kjölfar álvers á Reyð- arfirði yrði að beina að fjölmenn- ustu byggðarlögunum á svæðinu. Aðeins þau geta svarað kröfum um nútímaþægindi s.s. góða þjónustu, fjölbreytt tækifæri til tómstunda- iðkunar og fjölbreytt atvinnutæki- færi. Hugsanleg neikvæð áhrif? Eitt vandamál hefur verið sér- staklega til athugunar en það er hvernig á að manna álverið. Þegar betur er að gáð þá er ekki um neitt vandamál að ræða. Varanleg og vel launuð störf munu freista margra og það koma 700 nýir ein- staklingar út á vinnumarkað vinnusóknar álvers á næstu 5 ár- um. Álverið mun auk þess eflaust draga til sín fólk sem nú er með stopula vinnu, fær lág laun eða er almennt óánægt í sínum störfum. Bændur og iðnaðarmenn verða ef- laust meðal þeirra sem sækja um störf. Margir úr þeirra röðum hafa ekki há laun og búa við ótryggar tekjur. Eins má gera ráð fyrir að fjöldi sjómanna hafi hug á vinnu í landi, sér í lagi fjölskyldu- menn. Fjöldi brottfluttra Austfirð- inga getur eflaust hugsað sér að flytja til baka ef áhugaverð og vel launuð störf bjóðast. Einnig má gera ráð fyrir að hingað flytji fólk og má skipta því í þrjá hópa: a) Fólk sem kemur til að vinna við framkvæmdir og ákveður svo að setjast að. b) Fólk sem býr í þorp- um og bæjum utan daglegrar vinnusóknar álvers. c) Menntað fólk sem hefur áhuga á tækni- og stjórnunarstörfum hjá álverinu, sérhæfðum ski’ifstofustörfum, störfum við innkaup, eða á rann- sóknarstofum. Skortur á vinnuafli í öðrum greinum gæti haft neikvæð áhrif en hins vegar bendir allt til þess að slík vandamál verði smá eða komi alls ekki upp. Tímaáætlun verkefn- isins er það rúm að það er nægur tími til að skipuleggja og undirbúa alla þætti þess. Framkvæmdastjór- ar sveitarfélaga og fyrirtækja, for- ystumenn stéttarfélaga og aðrir viðmælendur létu í ljós þá skoðun að vinnumarkaður og húsnæðis- markaður myndi ráða vel við að mæta nýjum þörfum vegna álvers- ins. Helst hefur verið rætt um skort á vinnuafli í fiskvinnslu en hann er nú þegar fyrir hendi og honum er m.a. mætt með aðkomu- fólki. Nefna mætti önnur áhrif sem túlka mætti bæði sem jákvæð og neikvæð, en það er aukin umferð. Umferð mun aukast verulega í ná- grenni álvers en það kallar á vega- bætur og hugsanlega jarðgöng. All- ar athuganir í þessa veru sýna að það mun verða auðvelt að manna álverið og það hefur sýnt sig að störf í álverum eru mjög eftirsókn- arverð. Hér eru engin óyfirstígan- leg vandamál, frekar verkefni sem þarf að leysa. Höfundur er stjórnmálafræðingur og verkefnisstjóri STAR - staðar- va/srannsókna iðnaðarsvæða á Reyðarfirði. BLOMAHOLLIN Hami'iihorH I o'. s. ö.vi 0380 Jólalestin kemur í bœinn á morgun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.