Morgunblaðið - 29.12.1998, Síða 4

Morgunblaðið - 29.12.1998, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Yfir tuttugu þúsund börn lenda í slysum á hverju ári hér á landi Atak til að fækka slysum ÁTAKSVERKEFNI um slysavarnii- barna og unglinga til næstu þriggja ára var kynnt á fundi með Ingi- björgu Pálmadóttur heilbrigðisráð- herra í gær. Sérstök verkefnisstjórn með sex fulltrúum ráðuneyta og sveitarfélaga hóf störf í maí síðast- liðnum og meginverkefni hennar er að samhæfa og efla aðgerðir þeirra sem vinna að slysavörnum bama og unglinga. Aætlað er að á bilinu 20 til 22 þúsund íslensk börn lendi í slysum sem leita þurfí með til sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva á hverju ári. Algengasta dánarorsök barna og unglinga er af völdum slysa og hlut- fallslega deyja fleiri íslensk börn ár- lega í slysum heldur en í nágranna- löndunum. Það má því áætla að fjórða hvert barn á aldrinum 0 til 18 lendi árlega í umræddum slysum. Kostnaður þjóð- félagsins af völdum þeii'ra er vand- metinn en er talinn skipta tugum milljarða króna á hverju ári. Átaks- verkefnið stendur í þrjú ár og var samtals úthlutað 21 milljón króna til umráða. Að sögn heilbrigðisráðherra er verkefninu ætlað að virkja og efla þá aðila sem fyrir sinna þessu málefhi og auka samstarf hinna ýmsu hópa. Einnig sé mikilvægt að finna orsakir slysanna því sömu slysin eigi sér stað aftur og aftur. „Nú er einmitt sá tími árs þar sem slysahætta bama er mik- Morgunblaðið/Kristinn ÓLAFUR Gísli Jónsson, læknir og formaður verkefnisins, Herdfs Storgaard, framkvæmdastjóri þess, og Ingibjörg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra kynntu átaksverkefnið. Slys á börnum í heimahúsum 1990-96 il vegna flugeldanotkunar þótt áróður síðustu ára fyrir notkun hlífðarfatn- aðar hafi fækkað þeim slysum," sagði heilbrigðisráðherrann. Reynslan gefi því til kynna að slík átök hafi áhrif og skili sér í lægri tíðni slysa en lang- tímamarkmið þurfi að setja. Framkvæmdastjóri verkéfnisins er Herdís Storgaard hjúki'unarfræð- ingur og fyrrverandi bamaslysa- varnafulltrúi SVFÍ. Að hennar sögn er skráning slysa mikilvæg og verð- ur lögð áhersla á að bæta hana á heilsugæslustöðvum og sjúkrahús- um. Hugarfarsbreyting meðal for- eldra og forráðamanna barna sé einnig lykilatriði og hluti þein-a sjö milijóna króna sem verkefnisstjórn hefur árlega til umráða verði varið í auglýsingar og gerð fræðsluefnis. Að sögn Herdísar er sérstaða Is- lands ekki eingöngu sú að tíðni slysa á börnum og unglingum sé óvenju há heldur einnig hvar þau eigi sér stað. Algengt sé að slys verði við bygging- arsvæði sem ekki eru girt af, óbyrgða brunna og heita potta svo eitthvað sé nefnt. Slysagildrur lejm- ist víða og markmið átaksins sé að vekja athygli á þeim og leita lausna í samvinnu við almenning. Verkefnis- stjómin verður til húsa í Heilsu- verndarstöðinni við Barónsstíg og getur fólk hringt þangað til að fá upplýsingar eða koma með ábend- ingar sem lúta að slysavörnum fyrir börn og unglinga. Hugmynd um nýjar ldðir á uppfyllingu Björgunar í Skerjafírði Undirbúningur borgaryfír- valda tekur um eitt ár LÍKLEGT er að undirbúningur borgaryfirvalda fyrir lóðarúthlutun á uppfyllingu í Skerjafirði, sem Björg- un ehf. hefur sótt um taki um eitt ár, að sögn Bjarna Reynarssonar, sviðs- stjóra rannsóknar- og þróunarsviðs hjá borgarskipulagi. „Þessi hug- mynd samræmist ekki gildandi aðal- skipualgi og verður að auglýsa fram- kvæmdina og leita umsagna hags- munaaðila, þannig að sennilega mun undirbúningurinn taka lungann úr árinu,“ sagði hann. Þegar skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um hugmyndina verður henni vísað til afgreiðslu borgarráðs og þaðan til borgarstjómar komi til ágreinings. Bjami sagði að meta þyrfti um- sóknina og kanna hvernig hún félli að aðalskipulagi Reykjavíkur. Lóðin væri að mestu á fyllingu út í sjó á flugvallarsvæði, sem þyrfti að skoða í samræmi við aðra þætti. „Það þarf að kynna hugmyndina frekar gagn- vart íbúum og nágrönnum og meta og vinna hana nánar, þar sem þetta er breyting á deiliskipulagi flugvall- arins,“ sagði hann. „Það þarf að skoða nánar hvort þetta gengur upp.“ Umferðartengsl skoðuð Benti hann á að eins og fram hafi komið þyrfti að taka ákvörðun um að leggja niður flugbraut á Reykjavík- urflugvelli, sem liggur í norðaustur - Æ. ' lrt i ú I\|fi i vfr ■ ¥ A :vÆV|,\ Á- ■ t’t 'V ' r" | h í "-"-fy jíl f ;| ..opin á milu 5la og nýárs. ; Upphjsingctr utn afgreiðslutima 588-7? 88 Opið í dag 10.00-18.30 KRINGMN Gleðilega hátíð suðvestur en hún er í beinni stefnu yfir nýja hverfið. „Þetta er það sem fjallað verður um í borgarskipulag auk þess sem skoðuð verða önnur umferðartengsl að svæðinu," sagði Bjarni. „Það er hægt að fara Suður- götuna og fyrir flugvöllinn en ef til vOl væri æskilegt að kanna tvær aðr- ar tengingar ef hverfið ber þær og þá um Njarðargötu yfir í Litla- Skerjarfjörð og áfram undir flug- brautina eða þá að fara um Hlíðarfót og undir norður-suður brautina. Þetta verður allt til skoðunar." Bjami minnti á að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu væru að hefja skipulagsvinnu fyrir allt svæðið ásamt erlendum ráðgjöfum. Sagði hann að framkvæmd sem þessi við flugvöllinn og þétting byggðar á svæðinu kæmi áreiðanlega inn í þá umræðu sem þar færi fram. Tillagan verður auglýst „Borgarskipulag mun auglýsa til- löguna, sem breytingu á aðalskipu- lagi og leitað umsagnar allra hags- munaaðila og ef ekki koma fram at- hugasemdir er litið þannig á að menn séu sammála tillögunni,“ sagði hann. „I fyrsta lagi eru það íbúar í Skerjafirði, umhverfissamtök og flugmálayfirvöld. Svo má einnig bú- ast við að fram komi ábendingar og stuðningsyfirlýsingar við hugmynd- ina.“ Skíðasvæðið í Bláfjöllum opnað SKÍÐASVÆÐIÐ í Bláfjöllum var opnað á sunnudag og komu rúm- Iega 600 manns fyrsta skíðadag vetrarins. í gær var einnig opið og giskaði Þorsteinn Hjaltason, fólkvangsvörður í Bláíjöllum, á að um 400 manns hefðu komið í BláQöll, en þrjár lyftur eru í gangi þessa dagana. Skíðafærið er víðast mjög gott þótt varast megi vissa staði þar sem grunnt er á grjótinu. „Þetta kom mjög óvænt, þvert ofan í allar spár því það var búið að spá rauðum jólum,“ sagði Þor- steinn. „Aðfaranótt annars í jól- um bætti verulega í snjóinn og þá var farið í að gangsetja lyfur, troða snjó og brjóta ís af lyftum og fyrir bragðið gátum við opnað á sunnudag," sagði hann. Áratugur er siðan tekist hefur að hafa skíðasvæðið opið milli jóla og nýárs og því er það Þor- steini gleðiefni að börn og ung- lingar skuli geta nýtt jólafrfið til að fara á skíði. „Undirtektir eru ansi góðar og við förum að fjölga lyftum," sagði hann. Opið verður í Bláfjöllum frá 11-15.30 fyrst í stað þegar veður leyfir, en lokað verður á gamlársdag og nýárs- dag. Skíðasvæðið í Skálafelli hefur enn ekki verið opnað sakir snjó- leysis, en samkvæmt upplýsing- um þaðan vantar herslumuninn upp á að það takist. Alvarlegt bflslys við Laxamýri ALVARLEGT umferðarslys varð á jóladag við Laxamýri skammt frá Húsavík. Stúlka hryggbrotnaði og var flutt á sjúkrahús til Reykjavíkur, en ökumaður bflsins var fluttur á sjúki-ahúsið á Húsavík. Að sögn lögreglunnar á Húsavík lítur út fyrir að stúlkan nái fullum mætti eftir slysið. Rekja má tildrög slyssins til slæmra akstursskilyrða. Mikill krapi var á veginum og snerist fólksbíllinn af þeim sökum á veginum og fór yfir á rangan vegarhelming þar sem hann rann afturábak á jeppa sem kom úr gagnstæðri átt. Þá sem voru í jeppanum sakaði ekki. Piltur brennd- ist illa á fæti UNGUR piltur brenndist mjög illa á fæti eftir að neisti komst í púðurkerlingar sem hann var með í buxnavasanum. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði var drengurinn fluttur á brunadeild Landspít- alans þar sem hann gekkst undir aðgerð. Atvikið átti sér stað um tvöleytið í gær þar sem drengurinn var að leika sér að fikta með flugelda ásamt félaga sínum. Rafn A. Ragnarsson yfir- læknir á deildinni segir að drengurinn sé með 2.-3. gráðu bruna á fætinum og hann þurfi að gangast undir nokkrar að- gerðir. Segir hann slysið alvar- legt, en drengurinn er ekki lífshættulega slasaður. Um 30 hús án rafmagns eftir skemmdarverk SKEMMDARVERK var unn- ið við spennistöð Rafmagns- veitu Reykjavíkur um klukkan 11 í gærkvöldi þegar raf- magnsskápur við dreifistöð í Giljaseli í Breiðholti var sprengdur með þeim afleiðing- um að rafmagn fór af nokkrum götum, sem eru tengdar við dreifistöðina. Hjá bilanavakt Rafmagns- veitunnar fengust þær upplýs- ingar að um 30 hús hefðu orðið rafmagnslaus í umræddum götum og þótti ljóst að raf- magn kæmist ekki aftur á fyrr en að nokkrum klukkustund- um liðnum. 8,8 milljonir á trompmiða UNG hjón í Árbænum fengu 8,8 milljónir í vinning á tromp- miða þegar dregnar voru út 15,7 milljónir króna í Happ- drætti Háskóla íslands í síð- asta útdrætti ársins. Fjórir einstaklingar, búsett- ir í Reykjavík, Vík og á Siglu- firði, unnu 1,7 milljónir króna hver um sig í útdrættinum. Erill hjá slökkviliði MIKILL erill var hjá slökkvi- liðinu í Reykjavík í gær. Meðal annars var það kallað út eftir að eldur kom upp í jólatré, þvottavél og bíl. I öllum tilvik- um urðu litlar skemmdir.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.