Morgunblaðið - 29.12.1998, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 29.12.1998, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Tilboð Landssímans hf. veldur deilum um hvernig staðið er að gerð vinnustaðasamninga Agreiningiir um þátt- töku stéttarfélaga Forsvarsmenn Rafiðnaðarsambandsins og Félags íslenskra símamanna gagnrýna hvernig Landssíminn stendur að tilboði til starfsmanna sinna um gerð vinnustaða- samnings, sem sett er fram án samráðs við stéttarfélögin eða trúnaðarmenn þeirra. Þórarinn V. Þórarinsson segir gagnrýni byggjast á misskilningi. Hann segir einnig að í tilboði Landssímans sé ekki fylgt til fulls því líkani að vinnustaðasamningum sem sett var upp í síðustu kjarasamning- um. Ómar Friðriksson kynnti sér málið. Morgunblaðið/Kristinn ÞÓRARINN V. Þórarinsson og Grétar Þorsteinsson takast í hendur að lokinni gerð síðustu kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. FORSVARSMENN Rafiðnaðar- sambandsins (RSÍ) og Félags ís- lenskra símamanna (FÍS) hafa gagnrýnt hvemig Landssíminn hf. stendur að tilboði sínu til starfs- manna um gerð vinnustaðasamn- ings og fyrirhugaða atkvæða: greiðslu sem fram á að fara í dag. í yfirlýsingu stjómar FÍS í gær er staðhæft að þessi framkvæmd sam- rýmist ekki lögum. Guðmundur Gunnarsson, formað- ur RSI, segir sambandið ekki mót- fallið gerð vinnustaðasamninga og hvetji þvert á móti til þeirra en hann gagnrýni harðlega hvernig Landssíminn hafi staðið að tilboði sínu til starfsmanna. Þar séu þver- brotnar allar leikreglur og ekkert samráð haft við félögin eða trúnað- ármenn þeirra. Samtenging at- kvæðagreiðslna stéttarfélaga um óskyld mál brjóti í bága við lög og gildandi kjarasamninga. Skv. kjara- samningi RSÍ og Landssímans eigi að bera breytingar á neysluhléum og á launagreiðslum undir þá raf- iðnaðamenn sem þau mál varða, ekki aðra. Þá telur Guðmundur að í tilboðinu felist breyting á kjara- samningi FÍS sem sé ólögleg. „Verði hún gerð þá er FÍS með lausan kjarasamning, að mínu mati, frá þessum áramótum og verður Landssíminn að setjast að samn- ingaborði um allan kjarasamning FIS,“ segir í bréfi sem hann sendi starfsmannastjóra Landssímans í gær. Stjórnendur Lands- símans benda hins vegar á að engin þörf sé á breytingu á kjarasamn- ingi vegna þeirra þátta tilboðsins sem snúa að félagsmönnum RSÍ, því ákvæði sé að finna í kjarasamningi um að þessum atriðum megi breyta með samþykki meirihluta starfsmanna. Aukin framleiðni gefi færi á bættum kjörum I aðdraganda kjarasamninganna sem gerðir voru á árinu 1997 lagði VSI áherslu á að þunginn af kjara- viðræðunum yrði felldur í farveg fyrirtækjasamninga, þar sem aukin hagræðing og framleiðni gæfi færi á hærri launum eða bættum kjörum starfsfólks s.s. með styttingu vinnu- tíma á óbreyttum launum. Þessar hugmyndir gengu ekki eftir nema að takmörkuðu leyti, ekki síst vegna ágreinings milli vinnuveitenda og launþegasamtakanna um aðkomu verkalýðsfélaga að slíkum samning- um. Voru margir forystumenn launþega andvígir því að starfs- menn og stjórnendur fyrirtækja gætu á eigin spýtur gert samninga án aðildar eða bakstuðnings stétt- aifélaganna. Þrátt fyrir þetta náðist sam- komulag í marsbyrjun 1997 milli samningsaðila um almenna heimild og ramma að gerð sérkjara- eða vinnustaðasamninga um tiltekna þætti í vinnuskipulagi, sem fellt var inn í samningstexta flestra lands- sambanda og félaga á almenna vinnumarkaðnum. Var áskilið að starfsfólk ætti rétt á stuðningi og ráðgjöf stéttarfélaga sinna. Þar með var náð þeim sögulega áfanga að tengja með formlegum hætti í samningum kjarabætur starfsfólks við hagræðingaraðgerðir innan fyr- irtækja. Skv. þessum svonefnda fyrirtækjaþætti kjarasamninganna er heimilt að semja um ákveðin frávik frá einstökum ákvæðum kjarasamninga í afmörkuðum til- vikum, einkum varðandi sveigjan- legri vinnutíma, breytingar á neysluhléum, orlof og afkastahvetj- andi launakerfi. Breytingar um- fram þessi mörk þurfa hins vegar að hljóta samþykki viðkomandi stéttarfélags og samtaka atvinnu- rekenda. Gerð fyrirtækjasamninga fer fram undir friðarskyldu en megin þungi þeirra hvílir á trúnað- armönnum stéttarfélaganna á hverjum vinnustað, sem fengu nýtt og mikilvægt hlutverk við gerð fyrirtækjaþátt- ar kjarasamninganna. Á undanförnum miss- erum hafa verið gerðir fleiri tugir fyrirtækja- samninga á grundvelli þessa samkomulags, einkum á vettvangi iðnaðarmannafélaga og félagsmanna í Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur (VR). Grétar Þorsteinsson, forseti ASI, bendir á að í sumum atvinnugrein- um hafi fyrirtækjasamningar þekkst til fjölda ára. „Ég þekki það af eigin raun úr bygging- ariðnaðinum að þar tali menn einni röddu um ágæti þeirra samninga í það heila tekið. Þetta samnings- ákvæði í síðustu samingum hefur ýtt undir þetta þar sem menn höfðu lítið eða ekki fengist við þetta,“ segir Grétar. Nokkurt launaskrið hefur átt sér stað meðal iðnaðarmanna að undan- förnu og eru helstu ástæður þess taldar felast í vinnustaðasamning- um í stærri fyrirtækjum og samn- ingum einstaklinga í minni fyrir- tækjum. Þá hefur komið fram að félagar í VR hafa gengið frá u.þ.b. 30 vinnustaðasamningum frá því að aðalkjarasamningar voru gerðir á síðasta ári. Hafa þessir samningar miðað að því að ná fram hag- ræðingu og að ávinningnum væri síðan skipt á milli fyrirtækisins og starfsfólksins. Meginhugsunin að semja um hlutdeild í ávinningi Þórarinn V. Þórarinsson, stjórn- arformaður Landssímans og fram- kvæmdastjóri VSÍ, segir að í tilboði Landssímans til starfsmanna sé ekki fylgt til fulls því módeli að gerð vinnustaðasamninga sem sett var upp í síðustu kjarasamningum. „Ástæðan er aðallega sú að ákvæðin sem þar eru um slíka samninga eru ekki í samningum gömlu BSRB- félaganna. Það er því ekki mögu- leiki á að gera þetta sem einn samn- ing samkvæmt því módeli,“ segir Þórarinn. Þórarinn segir að meginhugsun atvinnurekenda á bak við gerð vinnustaðasamninga sé í reynd sú sama og felist í tilboði Landssímans um að heimilt sé að semja um frávik frá ýmsum ákvæðum kjarasamn- inga og semja um hlutdeild starfs- manna í þeim ávinningi sem náist með slíkum samningi. Þórarinn segir að grunvall- arástæðu þess að Landssíminn geri starfsmönnum umrætt tilboð megi rekja til umræðu um lífeyrismál þeirra starfsmanna sem verið höfðu í félögum opinberra starfsmanna. „Þeir hafa haft uppi efasemdir um að þeirra lífeyriskjör væru eins trygg og þeir höfðu gengið út frá og hafa velt því upp hvort eðlilegt væri að þeir greiði af heildarlaunum en ekki fastalaunum," sagði Þórarinn. Fleiri álitaefni hafa verið uppi í líf- eyrismálunum og að sögn Þórarins telja stjórnendur Landssímans mikilvægt að ná samkomulagi um þessi mál. Miðar tillagan sem lögð er fyrir starfsmenn að því að í öll- um tilfellum sé tryggt að greitt sé af föstum dagvinnulaunum í lífeyr- issjóð. I framhaldi af þessu hafi stjórnendur fyi-irtækisins svo rætt hvort ekki mætti gera einhverjar breytingar á starfsumhverfi sem leitt gæti til aukinnar hagræðingar í rekstri fyrirtækisins og orðið gi-undvöllur að launahækkunum, án þess að launakostnaður þyrfti að hækka. Upp hafi komið sú hugmynd að semja um skilvirkari vinnutíma með því að fella niður kaffitíma og greiða yfirvinnulaun fyrir þann tíma, enda væri víða búið að leggja kaffitíma niður á vinnu- stöðum í fyrirtækja- samningum. „Við teljum okkur hafa hagræði af þessu og að þetta, ásamt öðru sem snýr að öðrum hópum, geti gefið tilefni til almennrar launahækkunar," sagði hann. Tilboðið nær til félaga þrennra launþegasamtaka, RSI, FIS og Verkamannasambandsins. Auk til- lögu um kaffitíma og lífeyrismál er 2% launahækkun boðin frá og með 1. janúar ásamt 75 þúsund króna eingreiðslu, óskað er eftir að rafiðnaðarmenn samþykki að launagreiðslur til þeirra komi mánaðarlega í stað vikulega eins og nú tíðkast og að félagsmenn FÍS samþykki breytingar á vökt- um. „Við töldum mjög æskilegt að ná góðum liðsanda og tengjum þetta þá samhliða breytingum hjá öllum öðrum starfshópum og er reynt að gera það þannig að enginn einn starfshópur fái á tilfinninguna að hann sé að leggja meira af mörkum * en annar,“ sagði Þórarinn. Ef tilboðið er fellt í einu félagi er komin upp ný staða Þórarinn segir gagnrýni á sam- tengingu hópa við afgreiðslu til- boðsins byggjast á misskilningi. „Það hefði verið hægt að gagnrýna þetta ef spyrt hefði verið saman með þeim hætti að félagsmenn í einu félagi hefðu samþykkt eitthvað fyrir félagsmenn í öðru. Við hefðum 4 kosið að afgreiða þetta allt í einni atkvæðagi'eiðslu en okkur var bent á þetta og féllumst auðvitað á það. Ef þetta verður hins vegar fellt til dæmis í einu félagi, þá er komin upp ný staða. Þá hefur þetta ekki gengið upp og skoða þarf upp á nýtt hvort hægt sé að ná hluta af þessum markmiðum eða gei'a þetta með ein- hverjum öðrum hætti,“ sagði hann. Þórarinn sagði að samið hefði verið um svipuð atriði í öðrum M vinnustaðasamningum á vinnu- I markaði að undanförnu, s.s. breyt- ingar á vinnutíma og vinnufyrir- komulagi. Aðspurður hvort trúnaðarmenn kæmu að viðræðum um tilboð Landssímans sagði Þór- arinn að um væri að ræða einhliða tilboð frá Landssímanum sem rætt hefði verið við fulltrúa stétt- arfélaganna, án þess að þeir hafi L tekið ábyrgð á því. Engir fundir milli RSÍ og Landssímans í yfirlýsingu sem Guðmundur Gunnarsson sendi frá sér í gær seg- ir: „Engir fundir hafa farið fram á milli Rafiðnaðarsambandsins og Landssímans um þetta mál. Tveii' af starfsmönnum sambandsins voru kallaðir þann 16. desember á skrif- stofu VSI þar sem þeim voru kynnt- ar ófbrmlega hugmyndir fyrirtækis- §: ins, engin gögn voru lögð fram. Engir fundir hafa farið fram milli jS fyrirtækisins og trúnaðannanna *í rafiðnaðarmanna. Starfsmenn RSI hafa tjáð starfsmannastjóra Lands- símans efasemdir um framkvæmd þessa máls í nokkrum símtölum. Aðrar viðræður hafa ekki farið fram.“ Guðmundur segir að starfsmenn RSÍ hafi aldrei haft neitt í höndum sem hægt sé að bera undir trúnað- armenn á vinnustað eða samninga- jgj nefnd starsmanna Landssímans. jj „Það hlýtur því að teljast óeðlilegt “ af hálfu fyi-h’tækisins að leggja fyrir starfsmenn plagg sem er nefnt „Samkomulag milli Landssima Is- lands og starfsmanna sem starfa a starfssviði Rafiðnaðarsambands Is- lands“. Hverjir eiga að skrifa undir það? Ti’únaðarmenn starfsmanna? Hvaðan hafa þeir umboð til þess?“ segir í yfirlýsingunni. Þá bendir hann á að skv. ákvæðum kjarasamn- gj ings sé heimilt að taka upp mánað- j| argreiðslur í stað vikugreiðslna ef “ meirihluti rafiðnaðarmanna samþykkir og heimilt sé að stytta eða fella niður neysluhlé með sams- konar skilyrði um samþykki meiri- hlutans. „Samkvæmt kjarasamn- ingnum eiga að fara fram formlegar viðræður milli fyrirtækisins og trúnaðamanna um þessar breyting- ar, þær hafa ekki farið fram. Þetta || veldur því að starfsmenn Rafiðnaðarsambandsins hafa bent á að þeir telja lí samtengingu atkvæða- greiðslu óeðlilega. Einnig telja þeir óeðlilegt að láta fara fram samtengda at- kvæðagi'eiðslu um þrjú mismunandi plögg,“ segir í yfirlýsingu formanns RSI. Gerðir hafa verið margir vinnu- staðasamningar við félaga í RSl á undanförnum misserum og að sögn jg Guðmundar hefur undantekninga- laust verið staðið að þeim með þeim ® hætti að í fyrstu hafi verið lagðar hugmyndir fyrir trúnaðarmann. Síðan væru haldnir einn eða fleiri fundir þar sem menn bæru saman sín mál. „Því næst er búinn til ein- hver samningur sem menn skrifa undir og hann er síðan borinn undir starfsmenn,“ segir Guðmundur. Hann heldur því fram að staðið hafi verið á allt annan hátt að tilboði | Landssímans sem hafi ekki verið || mótað í viðræðum við félagið eða “ trúnaðarmenn. „Þverbrotnar allar leikreglur og ekkert samráð haft“ „Við töldum mjög æskilegt að ná góðum liðsanda“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.