Morgunblaðið - 29.12.1998, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 29.12.1998, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLADIÐ Andlát RAGNAR JÚLÍUSSON RAGNAR Júlíusson, íyrrverandi skólastjóri, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur á jóladag, 65 ára að aldri. Ragnar fæddist á Grund í Eyjafirði 22. febrúar 1933, sonur hjónanna Júlíusar Ingi- marssonar bifreiða- stjóra og Jórunnar Guðmundsdóttur. Ragnar lauk stúdents- prófi frá Menntaskólan- um á Akureyri árið 1952, stundaði nám við Háskóla Is- lands árið 1953 og lauk kennaraprófi árið 1954. Hann var kennari við Langholts- skóla í Reykjavík frá 1954-56 og við Réttarholtsskóla frá 1956-1959. Ragnar var yfirkennari við Voga- skóla frá 1959-1964 og skólastjóri Álftamýrarskóla í Reykjavík frá stofnun 1964-1991 og forstöðumaður kennslumáladeildar Skólaskrifstofu Reykjavíkur frá 1991. Þá starfaði hann við Vinnuskóla Reykjavíkur, sem yfirkennari og skólastjóri frá 1959- 1974. Ragnar var vara- þingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Reykjatrúi frá 1978-1982. Ragnar gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir borgarstjórn Reykja- víkur. Meðal annars sat hann í Fræðslu- málaráði í 17 ár, þar af í 11 ár sem formaður og gegndi formennsku í Skólamálaráði frá 1986-1991. Hann sat í Utgerðarráði Reykjavík- ur frá 1974-1985, lengi sem formað- ur, og var fyrsti stjórnarformaður Granda hf. Ragnar Júlíusson var formaður Landsmálafélagsins Varðar frá 1973-1976. Eftirlifandi eiginkona Ragnars er Jóna Ingibjörg Guðmundsdóttir. Þau eiga fimm uppkomin böm. Fyrrverandi eiginkona Ragnars er Svanhildur Björgvinsdóttir. JÓNAS BJARNASON JÓNAS Bjarnason fyrrverandi yfirlæknir á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði er látinn, 76 ára að aldri. Jónas fæddist í Hafnarfirði 16. nóvem- ber árið 1922, sonur Bjarna Snæbjömsson- ar læknis og Helgu Jónasdóttur barna- kennara. Hann varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1942 og lauk prófi frá læknadeild Háskóla íslands árið 1949. Jónas starfaði sem aðstoðar- maður héraðslæknisins á Selfossi árið 1949 og héraðslæknis í Hafnar- firði sama ár. Árið 1950 varð hann aðstoðarlæknir á fæðingardeild Landspítalans fram til ársins 1952 er hann var við kvensjúkdóma- og fæðingardeild The Swedish Hospi- tal í Minneapolis í Minnesota í tvö ár. Jónas tók auk þess þátt í námskeiði við Cook County Hospital í Chicago. Jónas var starfandi læknir í Hafnarfírði og við fæðingardeild Landspítalans frá miðju ári 1954 og yfir- læknir St. Jósefsspítala í Hafnarfirði frá byrjun árs 1957 til ársins 1992. Hann var jafnframt sjálfstætt starfandi sérfræðingur í kvensjúkdómum í Hafnarfirði og Reykjavík. Jónas var formaður Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar um árabil. Eftirlifandi eiginkona Jónasar er Jóhanna Tryggvadóttir. Þau eiga sjö börn, fimm tengdabörn og fimmtán barnabörn. BJÖRN ARNÓRSSON BJÖRN Arnórsson, hagfi-æðingur BSRB, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hinn 24. desember sl. 53 ára að aldri. Bjöm fæddist 16. janúar árið 1945 í Reykjavík, sonur Pál- ínu Eggertsdóttur verslunai’manns og Amórs Bjömssonar stórkaupmanns. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1965 og hagfræði- prófi frá Uppsalaháskóla í Svíþjóð árið 1975. Björn var hagfræðingur Starfs- mannafélags ríkisstofnana frá árinu 1975 til 1980 og hagfræðingur BSRB frá árinu 1980. Þá var hann kennari við Menntaskólann við Sund frá ár- inu 1975 til 1978. Björn tók virkan þátt í verð- lagsmálum landbúnað- arins eftir að þjóðar- sáttarsamningamir voru gerðir í febrúar árið 1990. Hann var m.a. fulltrúi neytenda í fimmmannanefnd og sexmannanefnd auk þess sem hann var full- trúi BSRB í sjömanna- nefnd og ýmsum vinnu- hópum sem tengdust stefnumörkun í land- búnaði. Ennfremur var hann fulltrúi íslands í ráðgjafarnefnd EFTA. Eftirlifandi eiginkona Bjöms er Kristín Guðbjömsdóttir bankaritari en fyrri eiginkona hans var Álfheið- ur Steinþórsdóttir sálfræðingur. Hann átti fjögur böm og tvö stjúp- börn. Islandia Internet ehf. sendir kæru til Samkeppnisstofmmar Ökeypis netþjónusta Landssíma verði bönnuð NETÞJÓNUSTUFYRIRTÆKIÐ Islandia Internet ehf. hefur farið fram á það við Samkeppnisstofnun að hún banni til bráðabirgða Landssímanum og dótturfyrirtæki hans Skímu ehf. að auglýsa, bjóða og veita endurgjaldslausa netþjón- ustu um lengri eða skemmri tíma. Krafa þess efnis var send Sam- keppnisstofnun 20. desember sl. og hefur Landssíminn frest fram til hádegis í dag að veita Samkeppnis- stofnun umsögn í málinu. I kæru Islandia Internet til Samkeppnisstofnunar, sem undir- rituð er af lögmanni fyrirtækisins, Sigurði G. Guðjónssyni, segir m.a. að í krafti stærðar sinnar og yfir- ráða yfir símkerfi landsins geti Landssíminn og dótturfyrirtæki hans komið með hvert tilboðið á fætur öðru til netnotenda og boðið þeim til að mynda allt að sex mán- aða ókeypis aðgang að netþjón- ustu félaganna. Nýjasta útspil Landssímans sé margmiðlunar- diskur sem fáist afhentur gegn framvísun rifrildis úr DV og veiti þriggja mánaða ókeypis aðgang að netþjónustu Símans Internet. „Með þessari nýju aðferð, sem er að öUu útlátalaus fyrir neytand- ann, getur Landssími Islands hf. í raun á einni nóttu kippt stoðum undan rekstri annarra netþjón- ustufyrirtækja sem hafa tekjur sínar fyrst og fremst af því að selja nettengingar til einstaklinga, fyrirtækja og lögaðila,“ segir í kærunni. Því sé brýnt að Samkeppnis- stofnun grípi tafarlaust í taumana og banni til bráðabirgða gjafaá- skrift Landssíma Islands hf. og dótturfyrirtækis hans Skímu ehf. í hvaða formi sem er að nettenging- um. „Að öðrum kosti er hætt við að einokun verði á netmarkaðinum, þar sem aðrir smásöluaðilar nettenginga geta ekki rekið fyrir- tæki sín án þess að hafa tekjur á móti útgjöldum, svo sem óhjá- kvæmilegum greiðslum til INTIS hf. og Landssíma íslands hf. sem heildsala netþjónustu." Þá segir í kærunni að það skaði „hvorki heil- brigða samkeppni á íslenskum net- markaði né heldur hagsmuni Landssíma Islands hf. og dóttur- fyiirtækis hans Skímu ehf. þótt Samkeppnisstofnun geri þá eðli- legu kröfu til fyrirtækjanna að þau selji þjónustu sína.“ Morgunblaðið/Ásdís THOR Heyerdahl er staddur hér á landi m.a. til að kynna sér siglingar norrænna manna uin Atlantshafið fyrr á ölduin og flutti fyrirlestur í Háskóla Islands í gær. Heyerdahl í hátíðarsal Háskólans LÍFFRÆÐINGURINN og land- könnuðurinn Thor Heyerdahl hélt fyrirlestur í hátíðarsal Há- skóla Islands í boði Páls Skúla- sonar háskólarektors að við- stöddu íjölmenni í gær. í fyrir- lestri sínum fjallaði Heyerdahl um upphaf siglinga og hina nor- rænu arfleifð og sagði frá leið- öngrum sínum, sem hann hefur farið í á liðnum áratugum, m.a til að rökstyðja kenningar sínar um uppruna Pólýnesíumanna, sem sigldu á balsaviðarflekum mun lengri leiðir en áður hafði verið talið. Heyerdahl sagði að balsavið- arflekarnir væru mun haffær- ari en áður hafði verið talið og rakti helstu kosti þeirra, sem fælust ekki síst í því hversu litlir þeir væru. I stórsjó fylgdu þeir háum öldum eftir og velktust ekki til, líkt og stærri fley, og þar að auki þyrfti ekki að ausa þá. Heyerdahl er staddur hér á landi m.a. til að kynna sér siglingar norrænna manna um Atlantshafið fyrr á öldum. GUÐNI KRISTINSSON GUÐNI Kristinsson, bóndi á Skarði í Land- sveit, er látinn, 72 ára að aldri. Guðni fæddist að Raftholti í Holta- hreppi 6. júlí 1926, en fluttist að Skarði með foreldrum sínum fjög- urra ára gamall og átti heima þar til dauða- dags. Foreldrar hans voru Sigríður Einars- dóttir ljósmóðir og Kristinn Guðnason bóndi. Guðni hóf búskap með foreldrum sínum árið 1950 og tók við búi 1959. Hann hafði alla tíð metnað til að búa stórt og efla bú- skap á Skarði. Hann var með stórt kúabú og fjárbú, auk þess sem hann var mikill hesta- maður og ktinnur fyrir að eiga gott hestakyn. Guðni gegndi lengi störfum fyrir sveit sína; var hreppstjóri í 33 ár og sat í sveitarstjórn í 32 ár. Hann var mikill félagsmálamaður og öt- ull sjálfstæðismaður. Guðni kvæntist 1954 Sigríði Thedóru Sæ- mundsdóttur og eignuð- ust þau tvö böm. Þau eru Kristinn, bóndi á Skarði, og Helga Fjóla, hús- móðir á Hvolsvelli. Samkomulag um prófkjör á Reykjanesi SAMKOMULAG tókst um helgina milli Alþýðuflokks, Alþýðubanda- lags og Kvennalista á Reykjanesi um opið prófkjör vegna alþingis- kosninganna í vor. í samkomulag- inu felst að kosið verður um 6 efstu sætin, en girðing verður við fjórða sætið, sem tryggir flokkunum þremur a.m.k. eitt af fjórum efstu sætunum. Eyjólfur Sæmundsson, sem sæti á í kjörnefnd flokkanna fyrir hönd Alþýðuflokksins, sagði að almenn ánægja væri með samkomulagið. Hann sagðist ekki eiga von á öðru en að stofnanir flokkanna myndu staðfesta það. Kjördæmisráð al- þýðuflokksfélaganna á Reykjanesi kemur saman til fundar á morgun. Stefnt er að því að prófkjörið fari fram 6-7. febrúar. Framboðs- frestur rennur út um miðjan janú- ar. Prófkjörið er opið öllum stuðn- ingsmönnum samfylkingar á Reykjanesi. Þeir sem taka þátt í prófkjörinu geta kosið frambjóð- endur þvert á allar flokkslínur, þ.e. alþýðuflokksmenn geta kosið kvennalistakonur og alþýðubanda- lagsmenn o.s.fi’v. Flokkarnir þiír sem standa að samfylkingunni á Reykjanesi hafa í dag fimm þingmenn, Álþýðuflokk- urinn þrjá, Alþýðubandalag einn og Kvennalistinn einn. Allir þing- mennirnir sækjast eftir endurkjöri nema Kristín Halldórsdóttir, þing- kona Kvennalistans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.