Morgunblaðið - 29.12.1998, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrirtæki hafa gefíð tölvur og fé
til tölvunarfræðiskorar HI
Vinnuaðstaða
nemenda opnuð
VINNUAÐSTAÐA fyrir nemendur í
tölvunai-fræðiskor Háskóla íslands
verður opnuð síðdegis í dag á neðri
hæð í húsi Endurmenntunarstofnun-
ar við Dunhaga 7.
Fjórtán íslensk fyiii-tæki hafa sam-
einast um að gefa nemendum í tölv-
unarfræðiskor Háskóla Islands tölvur
og fé til tölvukaupa fyiir alls um sjö
milljónh' króna. Framlögin hafa verið
notuð til að koma upp fullkominni
vinnuaðstöðu fyrir nemendur á öðru
og þriðja ári tölvunarfræðinámsins og
meistai'anema í tölvunaríræðum.
Verður um að ræða þrjár vinnustofur
búnar um fjörutíu tölvum.
Nemendur í tölvunarfræði eru nú
á þriðja hundrað þar af eru um
hundrað á öðru og þriðja ári, en í
meistaranámi, sem hófst í fyrsta
skipti nú í haust eru tíu nemendur.
Til þessa hafa nemendur í tölvunar-
fræði einungis haft örfáar tölvur fyr-
ir sig til heimanáms og verkefna-
vinnu og skorin enga séraðstöðu til
kennslu. Alls hafa útskrifast um
fjögur hundruð nemendur í tölvunar-
fræði frá upphafi.
Fyrirtækin sem gáfu nemendum í
tölvunarfræði og Háskóla Islands
þessar gjafír eru. Opin kerfí,
SKÝRR, Tæknival, EJS, Friðrik
Skúlason, Kögun, Reiknistofa bank-
anna, Hugbúnaður, Hugur-forrita-
þróun, Strengur, TölvuMyndir,
Teymi, Hugvit og Nota Bene.
'"Iá.
#sM
HLUTI útskriftarnema ásamt Björgvini Þór Jóhannssyni
skólameistara við anddyri Sjómannaskólahússins.
Sautján vélfræðingar
útskrifast frá
s
Vélskóla Islands
TUTTUGU og einn vélstjóri út-
skrifaðist frá Vélskóla íslands
fóstudaginn 18. desember sl. Þar
af voru 17 sem luku 4. stigi sem
er grunnurinn undir hæstu starfs-
réttindi.
Við útskriftarathöfnina fengu
eftirtaldir nemendur afhent verð-
laun fyrir góðan námsárangur:
Fyrir vélfræðigreinar Egill H.
Bjarnason, fyrir rafmagnsfræði-
og raungreinar hlaut Bjarni Ingi-
marsson tvenn verðlaun, fyrir
störf að félagsmálum nemenda
hlaut Unnþór Torfason tvenn
verðlaun, önnur frá skólanum en
hin veitt af Vélstjórafélagi Is-
lands.
Sem þakklætisvott færðu 4.
stigs útskriftarnemendur skólan-
um forláta tölvuprentara að gjöf.
Að útskriftarathöfn lokinni
bauð skólinn útskriftarnemum
ásamt gestum, kennurum og
starfsliði skólans til kaffidrykkju í
matsal skólans. Um kvöldið bauð
Vélstjórafélag Islands útskriftar-
nemum ásamt kennurum skólans
til samsætis í húsakynnum félags-
ins í Borgartúni 18.
Húnvetnmgar velja
úr þremur nöfnum
VESTUR-Húnvetningar munu velja
úr þremur nöfnum á sameinað sveit-
arfélag allra sveitarfélaga Vestur-
Húnavatnssýslu á tímabilinu 4.-12.
janúar 1999 og mun nýtt nafn verða
tilkynnt á fyrsta sveitarstjórnar-
fundi næsta árs þann 14. janúar.
Nöfnin, sem til greina koma eru
Húnaþing vestra, Vestur-Húna-
byggð og Vestur-Húnaþing. Ör-
nefnanefnd mælti með nöfnunum
þremur auk sex annaiTa, en kosið
verður um þessi þrjú.
Átta ný nöfn á sveitarfélög hafa
verið staðfest af félagsmálaráðuneyti
að fenginni umsögn örnefnanefndai>
lögum samkvæmt. Fyrir utan vænt-
anlegt nafn á sameinað sveitarfélag
V-Húnavatnssýslu er nafn einnig á
leiðinni fyiir sameinað sveitarfélag
Andakíls-, Lundarreykjadals-, Reyk-
hólsdals-, og Hálsahrepps. Segir
Þórunn Gestsdóttir, sveitartsjóri
sveitarfélagsins, sem ber óformlega
heitið Sveitarfélagið Borgarfjörður,
að fljótlega verði gerð könnun rneðal
íbúanna, á því hvaða nöfn komi til
greina, sem síðan verður valið úr.
Þau nöfn, sem þegar hafa verið
staðfest af félagsmálaráðuneyti eru
Norðurhérað, Grímsnes- og Grafn-
ingshreppur, Austurhérað, Fjarðar-
byggð, Sveitarfélagið Árborg, Dal-
víkurbyggð, Sveitarfélagið Skaga-
fjörður og Sveitarfélagið Horna-
fjörður.
ÚTSKRIFTARNEMAR á haustönn ásamt Þóri Ólafssyni skólameistara
og Herði Helgasyni aðstoðarskólameistara.
Fjölbrautaskóli Vesturlands
Brautskráning nem-
enda á haustönn 1998
BRAUTSKRÁNING nemenda á
haustönn 1998 frá Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi fór fram við
hátíðlega athöfn laugardaginn 19.
desember sl. og að þessu sinni braut-
skráðust 32 nemendur. Alls stund-
uðu 680 nemendur nám í skólanum á
önninni sem er svipuð aðsókn og oft
áður á haustönn, en aldrei í sögu
skólans hafa fleiri nemendur verið í
verknámsdeildinni.
í máli Hai'ðar Helgasonar aðstoð-
arskólameistara við brautskráning-
una kom fram að byggingarfram-
kvæmdum við skólann miðar vel og
er byggingin nú fokheld og fullein-
angruð. I þessæi nýbyggingu eru
fjórar kennslustofur sem notaðar
verða fyrir kennslu á rafiðnadeild og
til kennslu í eðlisfræði. Vonh' standa
til að hægt verði að halda byggingar-
framkvæmdum áfram við næsta
áfanga sem er kennslumiðstöð jafn-
skjótt og framkvæmdum við fyrsta
áfanga lýkur, því það vantar nauðsyn-
lega nýtt kennsluhúsnæði í stað þess
bráðabirgðahúsnæðis sem notað hef-
ur verið um tveggja áratuga skeið.
Eins og áður kemur fram braut-
skráðust 32 nemendur frá skólanum
að þessu sinni. Þar af var 21 stúdent,
6 nemendur luku prófí í vélsmíði, 3
nemendur í húsasmíði, einn sjúkraliði
og einn meistaranámi í rafvirkjun.
Námsárangur þessara nemenda var
yfii'leitt mjög góður, í því sambandi
má nefna að af þeim sem luku stúd-
entsprófi voru 14 sem luku námi á sjö
önnum. Nokkrir nemendm- hlutu við-
urkenningar fyiir ágætan námsár-
angur í ýmsum námsgreinum. Meðal
þehra vai- Sigríður Helgadótth- fyrir
bestan árangur á stúdentspi'ófí og
Stefnir Örn Sigmarsson fyrir ágætan
árangur í faggreinum í húsasmíði.
Á brautskráningarhátíðinni var
flutt dagskrá til minningar um Þor-
lák biskup Þórhallsson hinn helga en
útskriftarhátíð haustannar er jafnan
kennd við hann og kölluð Þor-
láksvaka. Nemendur skólans fluttu
tónlistaratriði og Aðalheiður Sigurð-
ardóttir nýstúdent flutti ávarp út-
skriftarnema. Þórir Ólafsson skóla-
meistari kvaddi útskriftarnemendur
að lokum og óskaði þeim góðs gengis
í framtíðinni.
Atvinnuþróunarverk-
efni á Vestfjörðum
„Byr í
seglin“
„BYR í seglin - viðskiptahugmynd
að veruleika“ er yfírskrift verkefn-
is sem undirbúið er á Vestfjörðum.
Iðntæknistofnun, Atvinnuþróunar-
félag Vestfjarða og Svæðismiðlun-
in standa að verkefninu, sem snýst
um að styðja fólk með viðskipta-
hugmyndir og einstaklinga í fyrir-
tækjarekstri.
Verkefnið er sprottið úr Evr-
ópuverkefni sem Iðntæknistofnun
vann að í samráði við Markaðs- og
atvinnumálaskrifstofu Reykjanes-
bæjar. Því verkefni lauk formlega
1. desember síðastliðinn og að
sögn Hjartar Hjartarsonar, verk-
efnisstjóra á Iðntæknistofnun, fór
árangurinn fram úr björtustu von-
um. Á grundvelli hans fékkst
styrkur til að útbreiða þá reynslu
og þekkingu sem fékkst með verk-
efninu.
Byr í seglin á Vestfjörðum fer
þannig fram að fólk vinnur níu
vikur að gerð viðskiptaáætlunar
undir stjórn atvinnuráðgjafa. Að
þeim tíma liðnum stendur til boða
ráðgjöf og stuðningur Atvinnuþró-
unarfélagsins við að hrinda áætl-
uninni í framkvæmd. Hjörtur
leggur áherslu á að um vinnuhóp
sé að ræða, ekki skólasetu. „Þetta
verður fyrst og fremst vinnuhóp-
ur, fólk sem hjálpast að við að
koma viðskiptahugmyndum sínum
á ílot í samvinnu við leiðbeinendur
og aðra þátttakendur. í þessu
verkefni lærum við og kennum
hvert öðru með því að fást við
hlutina, látum verkin tala,“ segir
Hjörtur.
Morgunblaðið/Sig. Fannar
STARFSMENN verslunar Landssímans á Selfossi.
Landssíminn með nýja
verslun á Selfossi
Selfossi - Landssiminn opnaði á
dögunum nýja verslun á Selfossi.
Þetta er samskonar verslun og
síniinn er að opna víðsvegar um
landið. Þarna er hægt að fá alla
þjónustu varðandi síma, kaupa
ýmsar gerðir af símum og boðið
er upp á sérstaka fyrirtækjaþjón-
ustu.
Verðið er það sama og á höf-
uðborgarsvæðinu. Fjórir starfs-
menn starfa í versluninni, sem er
opin alla virka daga frá kl. 9-18
og á laugardögum frá kl. 10-14.
Friðsæl jól í Snæfellsbæ
í nýföllnum jólasnjó
Hellissandi - Undir Jökli varð flest-
um að ósk sinni að fá nýfallna mjöll
á jörðu um jólin eftir alla þá um-
hleypinga sem staðið hafa undan-
farnar vikur. Skömmu fyrir messu-
tíma eða um kl. 16 tók að snjóa lít-
ilsháttar og náði nánast að gera al-
hvíta jörð bæði á Hellissandi og í
Ólafsvík.
Eins og venjulega var kirkju-
sókn ágæt í kirkjum bæjarins,
bæði í Olafsvík og á Ingjaldshóli.
Gera má ráð fyrir að a.m.k. 400
manns hafi sótt aftansöngva i
þessum tveimur kirkjum.
Kirkjukór Ólafsvíkurkirkju gaf út
blað fyrir jólin sitt sem nefnist
Kórblaðið og flytur bæði gamlan
fróðleik og fregnir úr kirkjustarfí
safnaðarins.
Að sögn lögreglu gekk allt jóla-
hald óvenju friðsamlega fyrir sig. g|
Bæjarbúar lifðu því jólahátíðina í
anda þess sem jólaboðskapurinn
flytur þeim og var það vissulega
fagnaðarefni. .