Morgunblaðið - 29.12.1998, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Skoda Felicia LXi kostar aðeins kr.
Heildsöludreifing: Ó. johnson & Kaaber
...á heita súkkulaðið,
hátíðarefti rrétti nn,
heitu eplabökuna,
cappuccino-kaffið
og annað sem þér
dettur í hug.
Alltaf dlbúinn.
Alltaf þeyttur.
Nissan
herðir ólina
Tókýó.
NISSAN Motor, annar raesti bíla-
framleiðandi Japana, hyggst
minnka framleiðslu innanlands um
15% á næstu fímm árum og kann að
loka nokkrum af átta verksmiðjum
sínum.
Kosei Minami varaforstjóri sagði
fréttamönnum að Nissan mundi
minnka árlega framleiðslugetu í 1,7
milljónir bíla úr 2 milljónum nú fyr-
ir árið 2003 vegna dræmrar eftir-
spumar heima fyrir.
Nissan býst við að móðurfyrir-
tækið og dótturfyrirtæki þess muni
tapa 260 milljónum dollara á yfír-
standandi reikningsári, sem lýkur í
marz.
Dræm sala innanlands
A næsta ári býst Nissan við að
framleiðsla innanlands muni breyt-
ast lítið og vera um 1,56 milljónir
bíla. Dræm sala vegna samdráttar í
Japan olli því að framleiðslan hefur
minnkað um 10% á þessu ári, í 1,55
milljónir bfla.
Spáð er að Nissan muni framleiða
2,6 milljónir bfla í heiminum 1999 og
að framleiðslan muni minnka um
8,6%, úr 2 milijónum 1998.
Nissan býst við að bflasala innan-
lands á næsta ári muni aukast um
4,7%, í 950.000 bíla. í ár er talið að
framleiðsla innanlands minnki um
13%, í 907.000 bfla.
Toppurinn...
VIÐSKIPTI
TAL hf. kynnir nýtt forvalsnúmer í millilandasímtölum
Landssíminn hafnar
samstarfí við TAL
FARSÍMAFYRIRTÆKIÐ TAL
hf. ætlar að bjóða millilandasímtöl í
gegnum nýtt forvalsnúmer í byrj-
un næsta árs og boðar allt að 20%
lækkun, miðað við það ef hringt er
í gegnum forvalsnúmer Lands-
símans. TAL hefur óskað eftir því
að Landssíminn innheimti fyrir
millilandasímtöl í gegnum for-
valsnúmer TALS, en því hefur
Landssíminn hafnað.
Forvalsnúmer TALS verður
1010 og þurfa almennir símnot-
endur ekki sérstaka áskrift, að-
gangsnúmer eða þjónustusamning
til að notfæra sér númerið. Þórólf-
ur Amason, forstjóri TALS, segir
hagkvæmnisástæður liggja að
baki beiðni fyrirtækisins um að
Landssíminn innheimti fyrir milli-
landasímtöl fyrirtækisins. Hann
segir að neitun Landssímans
stangist á við samtengisamning,
sem er í gildi milli fyrirtækjanna
um gagnkvæma símaumferð.
Hann segir Landssímann tefja
málið til þess að vera betur í stakk
búinn fyrir samkeppni og vilja
koma í veg fyrir að TAL geti boðið
millilandasímtöl á ódýrari hátt en
áður.
„Landssíminn innheimtir nú
þegar kostnað við svokölluð 900-
númer. I þeim er veitt sérþjónusta
á vegum fyrirtækja sem eru óskyld
Landssímanum. A sama hátt inn-
heimti Landssíminn gjald fyrir
millilandasímtöl úr 696-númerum
þar til útlandasímstöð TALS var
tekin í notkun 20. desember. Þar af
leiðandi teljum við eðlilegt að
Landssíminn innheimti fyrir milli-
landasímtöl TALS í gegnum for-
valsnúmerið 1010.“ Hefur TAL
óskað eftir því við Póst- og fjar-
skiptastofnun að stofnunin hafí
milligöngu um samkomulag milli
fyrirtækjanna vegna innheimtu- og
uppgjörsmála fyrir forvalsnúmer
TALS.
Guðmundur Björnsson, forstjóri
Landssímans, sagði í samtali við
Morgunblaðið að fyrirtækið hefði
samþykkt að beina símaumferð til
þeirra sem hygðust nota for-
valsnúmerið 1010. Hann benti hins
vegar á að TAL væri fjarskiptafyr-
irtæki og því eðlilegast að það inn-
heimti fyrir eigin millilandaþjón-
ustu.
✓
Arshlutauppgjör hlutabréfasjóða Landsbréfa
Misjafnt gengi á milli ára
NOKKUÐ misjafnt gengi varð á af-
komu íslenska hlutabréfasjóðsins
hf. og Islenska fjársjóðsins hf. á
fyrri hluta ársins, samanborið við
síðasta ár, en sjóðimir eru báðir
reknir af Landsbréfum hf. Sam-
kvæmt árshlutauppgjöri varð tæp-
lega 10 milljóna króna hagnaður af
rekstri Islenska hlutabréfasjóðsins,
samanborið við 51 m.kr. hagnað á
sama tíma í fyrra. Hlutafé sjóðsins
er 1,2 milljarðar samkvæmt milli-
uppgjöri en eigið fé er 2,2 milljarðar
samanborið við 2,3 milljarða króna í
fyrra. Hreinar fjármunatekjur
sjóðsins námu 30,4 milljónum króna
fyrstu sex mánuði rekstrarársins
samanborið við 69,6 milljónir í fyrra.
títlit fyrir betri
rekstrarafkomu
Islenski fjársjóðurinn skilaði 12
milljóna króna hagnaði sem er sama
afkoma og við milliuppgjör árið
1997. Lítil breyting varð á eigin fé
sjóðsins, sem er 1,1 milljarður
króna.
Að sögn Guðmundar Þórðarson-
ar, sjóðstjóra, skýrist minni
hagnaður Islenska hluta-
bréfasjóðsins aðallega af miklum
lækkunum á innlendum og prlend-
um hlutabréfamörkuðum. „A þessu
hefur þó orðið töluverður viðsnún-
ingur og er útlit fyrir mun beti'i
rekstrarafkomu Islenska hluta-
bréfasjóðsins á seinni hluta ársins.
Hafa ber í huga að hagnaður sjóðs-
ins er ekki stærð sem skiptir eig-
endurna mestu máli heldur ávöxt-
un hans sem hefur verulega tekið
við sér síðustu mánuði eftir fremur
erfitt tímabil á innlendum og er-
lendum hlutabréfamörkuðum."
Guðmundur telur eignasamsetn-
ingu og fjárfestingarstefnu sjóðs-
ins trausta og segir mikla áherslu
lagða á auðseljanleika eigna. „Þessi
atriði stuðla að góðri áhættudreif-
ingu en jafnframt hárri ávöxtun."
--------------------------
j AFLSTÝRI
;"'ý5?HREYFÍLTI
.SAHLÆSINGAR
S FORSTREKKjARAR Á ÖRYGGtSBELTUM
RAFSTÝRÐiR UPPHITAPiR SPEGLAR
> ÚTVARP OG SEGULBAND
ö 6 ÁRA ÁBYRGÐ GAGNVAKT
GEGNUMRYÐGUN
^ SAMLITiR STUÐARAR ^0
A KRAFTMEIRIVÉL.68 hö .yíL
0
HEKLA
sími 569 5500
www.hekla.is
718.000
*Samkvæmt verðlistum bifreiðaumboðanna, útg. Samskipti nóv. '98.