Morgunblaðið - 29.12.1998, Side 22
-
; 22 ! ÞRIÐJTJDÁGUR 29' DEgEMBER 1998
VIÐSKIPTI
y —---——--------------------------------------------------
MORGUNBLAÐÍÐ
Jóhann Olafsson, framkvæmdastjóri Jökuls, vegna óvissu um
samruna félagsins og SR-mjöls
Ureldingarþáttur-
inn ekki ástæðan
JÓHANN Ólafsson framkvæmda-
stjóri útgerðarfélagsins Jökuls hf. á
Raufarhöfn segist ósammála Jóni
Reyni Magnússyni forstjóra SR-
mjöls um að þáttur úreldingar hjá
Jökli í samrunaáætlunum fyrirtækj-
anna sé það stór að hann hafi of
mikil áhrif á verðmæti fyrirtækis-
ins, jafnvel svo að samruni félag-
anna verði ekki samþykktur á hlut-
hafafundi SR-mjöls á morgun.
„Þáttur úreldingaiTéttar á skip-
um í eigu Jökuls hefur vissulega
áhrif en hann er lítill í heildarpakk-
anum og er jafnvel innan skekkju-
marka. Eg held að ef menn telja að
forsendur fyrir samruna hafi brost-
ið eftir að dómur féll í kvótamálinu
sé það af öðrum ástæðum en vegna
úreldingarinnar, hún er það lítill
þáttur. Auk þess hefur ekki komið
fram ósk frá SR-mjöli til Jökuls um
að endurskoða verðmat íyrirtækis-
ins. Þetta er stór breyting hjá félag-
inu á skömmum tíma,“ sagði Jóhann
í samtali við Morgunblaðið.
Veistu hvaða ástæður aðrar gætu
veríð fyrir því að hluthafar SR-
mjöls samþykki ekki samrunann?
„Nei ég veit það ekki, ég veit
bara að úreldingin getur ekki verið
ástæðan.“
Miðað við núgildandi lög þarf að
kaupa úreldingarrétt innanlands á
móti nýjum skipum sem bætt er í
flotann. Vilji maður stækka skipa-
Ekki hefur komið
fram ósk frá
SR-mjöli til Jökuls
um að endur-
skoða verðmat
fyrirtækisins
flota sinn þarf því að kaupa skip
innanlands tii að vega upp á móti
því sem endurnýjað er með og er
verð á hverjum rúmmetra um
30.000 krónur.
Verði frumvarp um breytingar á
lögum um stjórn fiskveiða, sem
liggur fyrir Alþingi, að lögum, fellur
þetta úreldingarákvæði niður og
skip í eigu Jökuls sem annars hefði
verið hægt að selja til úreldingar
verða verðminni. Því munar tugum
milljóna ef ekki er hægt að nýta
skip félagsins til úreldingar á móti
nýju uppsjávarveiðiskipi sem félög-
in hafa þegar rætt um að kaupa.
Jón Reynir Magnússon forstjóri
SR-mjöls segir að óvissa hafi skap-
ast með kvótadómi Hæstaréttar en
frumvarpinu sem liggur fyrir Al-
þingi er ætlað að bregðast við
þeim dómi. Hann sagði í síðustu
viku að málið væri komið á núll-
punkt aftur, það væri í lausu lofti
og samruninn yrði líklega ekki
samþykktur á hluthafafundi SR-
mjöls á morgun.
Kvótaeignin verðmætari
með nýjum lögum
Jóhann segir að þar sem fram-
varpið fjalli í stuttu máli um að allir
geti keypt báta og veitt á þá, gegn
því að eiga kvóta, sé kvótaeign Jök-
uls aðalatriðið í samranaáætluninni
og kvótinn geti hugsanlega orðið
verðmætari verði frumvarpið að
lögum þar sem ásókn i kvóta hljóti
að aukast. Þannig verði komið til
móts við þá verðmætislækkun sem
yrði ef úreldingarákvæðið félli nið-
ur.
Spurður um afleiðingar þess ef
samraninn verður ekki samþykktur
á morgun sagði Jóhann að þá falli
málið líklegast niður. „Það hefur
farið mikill tími og orka í þetta mál
og framtíðaráætlanir hafa miðast
við samruna. Ef þeir hafna samran-
anum þá sé ég ekki betur en málið
sé búið.“
Eins og áður hefur komið fram
hefur samrunaáætlun félaganna
verið samþykkt af stjórnum þeirra
og hafa hluthafar í Jökli einnig sam-
þykkt samrunaáætlunina. Sam-
þykki hluthafar SR-mjöls ekki sam-
runann er Ijóst að af samrana verð-
ur ekki á þessu ári, eins og stefnt
hefur verið að.
HELGI S. Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbanka íslands, og
Jón Sveinsson, sljórnarformaður Islenskra aðalverktaka, handsala
lánasamninginn.
Landsbankinn og Islenskir aðalverktakar
Gengið frá tveggj a
milljarða lánasamningi
LANDSBANKI fslands hf. og ís-
lenskir aðalverktakar hf. og
dótturfélög þeirra gengu nýver-
ið frá lánasamningi að fjárhæð
allt að tveimur milljörðum
króna.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu var í byrjun mán-
aðarins gengið frá samningi um
kaup Islenskra aðalverktaka hf.
á 80% hlut í Rekstrarfélaginu hf.
og Regpn hf. Lánafyrirgreiðslan
sem hér um ræðir er bæði til
fjármögnunar þeirra kaupa og
einnig til frekari viðskipta á fast-
eignamarkaði, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá Is-
lenskum aðalverktökum.
„Bæði þessi félög voru í eigu
Hamla hf., dótturfélags Lands-
banka íslands hf., sem mun
áfram eiga 20% hlutafjár félag-
anna. Stefnt er að því á næstunni
að stórefla starfsemi Rekstrarfé-
lagsins hf., sem nú ber nafnið
Landsafl hf., á sviði fjármögnun-
ar, eignar og reksturs fast-
eigna,“ að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
Gert er ráð fyrir að Landsafl
hf. verði skráð á Verðbréfaþing
íslands er fram Iíða stundir.
i
,
P iljfíj Velgengni IBM ThinkPad fartölvanna á árinu
MV sem er aö líða hefur verið með eindæmum.
JH Engar aðrar fartölvur hafa fengið fleiri
fartölvurnar fullkamna tengi- Æ.
ag samskiptamöguleika, stóran og •'llSítSffÍ
vandaðan skjá, þjált lyklaborð og hina
heimsfrægu Trackpaint press-tD-select mús.
Nú hjóðast ThinkPad fartölvurnar á
frábæru áramótatilboði. m ■
ThinkPad 380Z
örgjorvi: PII 300MHz. —------
Vinnslutninni: 32MB.
HnridÍBkur: 4GÐ.
Skfár: 13,3" TFT skjár.
Geisladrlf og innbyggt diskettudrif.
Öflugur vinnuhestur - allt innbyggt.
Mest selda fartölva i heimi.
Örgjorvi: PII 233MHz.
Vinnsluminni: 32MB.
HurAdiikur: 3,2GB.
Skjár: 12,1" TFT.
Geisladrif og utanáliggjandi diskettudrif.
Þyngd: aðeins 2,3Bkg.
Tölvan er þunn (3G mm) og þægi-
leg og er þvi hinn fullkomni ferðafélagi.
pentlum'
Skaítahlíð 24 • Sími 569 7700
Slóð: http://www.nyherji.is
.00
29.09 3U
r