Morgunblaðið - 29.12.1998, Page 26

Morgunblaðið - 29.12.1998, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Morgunblaðið/Árni Sæberg GUÐMUNDUR Bjarnason, uinhverfisráðherra, kynnir nýjan bækling um mengun á Islandsmiðum á blaðamannafundi í gær. Margt áunnist í mengunarvörn- um á ári hafsins UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hefur í tilefni af ári hafsins gefið út bækling um mengun á Islandsmið- um. Bæklingurinn fjallar um helstu uppsprettur mengunar, ástandið á miðunum í kringum Island og að- gerðir gegn mengun hafsins, jafnt heima fyrir sem á alþjóðavettvangi. Þá hefur Hollustuvernd ríkisins einnig gefið út bækling um meng- un frá skipum til leiðbeiningar fyr- ir áhafnir. I bæklingnum er lögð áhersla á að mengun sjávar við Island sé með því minnsta sem þekkist en að árvekni og aðgerða sé þörf, því sum mengunarefni sem áður fund- ust helst í innhöfum og við strend- ur iðnríkja finnast nú í úthöfum og lífríkinu þar og kunna að valda vanda í framtíðinni verði ekki grip- ið í taumana. Góður árangur innanlands sem erlendis Guðmundur Bjarnason sagði, á fréttamannafundi sem haldinn var vegna útgáfu bæklingsins í gær, það vera ánægjulegt að á ári hafs- ins skuli tveimur mikilvægum áföngum hafa verið náð í vernd hafsins gegn mengun á alþjóða- vettvangi. „I mars á þessu ári gekk í gildi OSPAR-samningurinn um vernd Norðaustur-Atlants- hafsins en hann nær bæði til los- unar á sjó og frá landstöðvum. Þá hafa Islendingar lengi verið í far- arbroddi í viðræðum um takmörk- un á losun þrávirkra lífrænna efna og viðræður um gerð slíks samn- ings hófust í júní á þessu ári og er stefnt að því að ná innan tveggja ára bindandi samkomulagi um takmörkun á losun hættulegustu efnanna. Hér innanlands hafa einnig verið stigin stór skref í bættri umgengni við hafið nýlega, svo sem með stórfelldum umbót- um á fráveitukerfi á höfuðborgar- svæðinu og víðar og með fram- kvæmd laga um spilliefnagjald, þar sem skilvirku kerfi hefur verið komið upp fyrir söfnun og eyðingu hættulegustu efnanna, sem ella hefðu lent að stórum hluta í sjón- um,“ sagði Guðmundur. Bæklingnum verður dreift í alla skóla landsins og víðar. Sagði Guð- mundur það von umhverfisráðu- neytisins að útgáfa hans verði til þess að efla þekkingu og áhuga á því mikiivæga hagsmunamáli ís- lendinga að halda hafinu hreinu og ómenguðu, en aukin almenn þekk- ing á vandanum sé undirstaða góðr- ar umgengni við hafið og náttúruna. Mengun frá skipum Þá hefur Hollustuvemd ríkisins nýlega gefið út bæklinginn Meng- un frá skipum en í honum er að finna reglur um olíu- og sorpmeng- un frá skipum. Ennfremur er farið yfir helstu almennar reglur um meðhöndlun olíu og sorps um borð í skipum. Bæklingurinn er ætlaður til leiðbeiningar fyrir áhafnir skipa og skipstjórnai-menn. I bæklingn- um kemur m.a. fram að skil á úr- gangsolíu íslenskra skipa hafa auk- ist verulega á síðustu tveimur ára- tugum. Þá hefur magn sorps sem borist hefur til hafna landsins frá skipum sömuleiðis aukist til muna á síðustu ámm. ESB sker niður kvóta næsta árs Þorskkvóti minnkaður um 32.800 tonn Reuters RÁÐHERRAR sjávarútvegsmála innan Evrópusambandsins (ESB) hafa ákveðið að minnka leyfilegan hámarksafla aðildarríkjanna árið 1999. Tekist var á um tillögu framkvæmdastjórnar ESB um fiskveiðiheimildir næsta árs á næturlöngum fundi í Brussel. Kvóti túnfisks í Atlantshafi var skertur án samþykkis Italíu og Grikklands. Samkvæmt samkomulagi ráð- herrafundarins verður leyfilegur hámarksafli þorsks 334.200 tonn, sem er 32.800 tonnum minna en kvóti þessa árs. Ysukvótinn var skertur um 20% úr 168.000 tonnum í 135.000 tonn. Mestur styr stóð um tillögur framkvæmdastjórnarinnar um skerðingu túnfiskkvótans og ráðherrar Italíu og Grikklands studdu ekki afgreiðslu túnfiskkvót- ans á fundinum. Framkvæmdastjórn ESB lagði tillögur um skerðingu aflaheim- ilda á næsta ári fyrir ráðherra- fundinn fyrr í þessum mánuði. Töldu sumir ráðamenn ESB að framkvæmdastjórnin hefði of mikinn vara á í tillögugerðinni og hún bæri þess merki að verstu spár vísindamanna um viðgang fiskistofna væru einungis hafðar til hliðsjónar. Begin tilkynnir fram- boð gegn Netanyahu Tel Aviv. Reuters. ZE’EV Benjamin Begin, einkasonur Menachems Beg- ins, stofnanda Likud-flokksins, tilkynnti i gær að hann hygðist segja sig úr flokknum og gefa kost á sér gegn Benjamin Netanyahu, for- sætisráðherra Israels, í kosningunum á næsta ári. Begin kvaðst ætla að bjóða sig fram utan flokka vegna óánægju með friðarsamning Netanyahus við Palestínumenn sem kveður á um að þeir fái 13% Vesturbakkans. Begin er 55 ára, jarðfræðingur að mennt og hefur setið á þingi fyrir Likud-flokkinn frá því hann haslaði sér völl í stjórnmálunum fýrir áratug. Þing Israels samþykkti í vikunni sem leið að efnt yrði til forsætis- ráðherrakosninga á næsta ári, tæpu einu og hálfu ári áður en kjörtímabilinu lýkur. Gert er ráð fyrir að ákveðið verði í dag hvenær kosningarnar verða og ísraelskir stjórnmálamenn spáðu því að þær yrðu einhvern tíma frá apríl til júní. Begin gagnrýndi Netanyahu harkalega án þess að nefna hann á nafn og sagði að lítill sem enginn munur væri á Likud-flokknum og Verkamannaflokknum eftir að Net- anyahu samþykkti að láta landsvæð- in á Vesturbakkanum af hendi. Hann lýsti Wye-samningnum, sem Net- anyahu og Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, undirrituðu í októ- ber, sem „óskilgetnu barni“ friðar- samningsins sem stjórn Verka- mannaflpkksins gerði við Palestínu- menn í Ósló árið 1993. Hann sagði að ef Israelar stæðu ekki við Wye- samninginn og neituðu að láta fleiri landsvæði af hendi gætu þeir enn komið í veg fyrir að Palestínumenn stæðu við þá hótun sína að lýsa yfir stofnun sjálfstæðs ríkis í maí þegar friðarviðræðunum á að ljúka. Faðir Begins barðist fyrir ríki gyðinga áður en Israel var stofnað árið 1948 og var forsætisráðherra landsins á árunum 1977-83. Menachem Begin varð íyrsti for- sætisráðherra Israels til að gera friðarsamning við araba árið 1979 þegar hann féllst á að afhenda Eg- yptum Sinai-skagann. Hann sagði af sér árið 1983 vegna mikils mann- falls í innrás Israela í Líbanon og lést árið 1992. Lindau í framboði í leiðtogakjöri Likud Benjamin Begin, sem er kallaður Benny, er fimmti maðurinn sem hyggst reyna að koma Netanyahu frá völdum. Uzi Lindau, 55 ára þingmaður á hægrivæng Likud- flokksins, tilkynnti á sunnudag að hann myndi bjóða sig fram gegn Netanyahu í leiðtogakjöri flokksins sem líklegt er að fari fram 25. janú- ar. Lindau viðurkenndi þó að litlar líkur væru á því hann bæri sigurorð af Netanyahu. Miðjumennimir Dan Meridor, fyrrverandi fjármálaráðherra Likud- flokksins, og Amnon Lipkin-Shahak, fyrrverandi yfirmaður hersins, búa sig einnig undir framboð í forsætis- ráðherrakosningunum, auk Ehuds Bai-aks, leiðtoga Verkamannaflokks- ins. Begin kvaðst telja að enginn frambjóðendanna fengi tilskilið fylgi til að ná kjöri í fyrri umferð forsætisráðherrakosninganna. Hann spáði því að í síðari umferð- inni yi’ði kosið á milli hans og Net- anyahus. Netanyahu styrkti stöðu sína í Likud-flokknum um helgina þegar Ehud Olmert, borgarstjóri Jenisal- em, tilkynnti að hann hygðist ekki gefa kost á sér gegn Netanyahu í leiðtogakjöri flokksins. Ariel Sharon utanríkisráðherra lýsti einnig yfir stuðningi við Netanyahu og kvaðst vilja stuðla að einingu í Likud- flokknum til að afstýra því að hann biði ósigur í kosningunum. Yitzhak Mordechai varnarmála- ráðherra hefur hins vegar ekki ákveðið enn hvort hann gefur kost á sér gegn Netanyahu í leiðtogakjör- inu eða segir sig úr flokknum. Ze’ev Benja- min Begin Minnsti áttburinn látinn Reuters FORELDRAR áttburanna halda jólin hátíðleg á barnaspítalanum í Texas. Móðir áttburanna, Nkem Chukwu, sem er aðeins 27 ára gömul, átti sjö barnanna með keisaraskurði hinn 20. desember, en eitt stúlku- barn fæddist 8. desember. Houston, Peking. Reuters. VIKUGAMALT stúlkubarn, hið minnsta af áttburunum er fæddust í Houston í Texas í vik- unni sem leið, lést á sunnudag- inn vegna hjarta- og lungna- galla, aðeins klukkutíma eftir að móðir hennar heimsótti hana í fyrsta skipti. Hin börnin sjö eru öll sögð við slæma heilsu og enn er ekki öruggt að þau lifi af. Lifi þau af munu þau þurfa að dvelja að minnsta kosti tvo mánuði á vökudeild barnaspít- alans. Stúlkan sem lést var kölluð Odera og vó aðeins um 320 grömm og var 24,7 sm að lengd við fæðingu. Dánarorsökin, lungna- og hjai-tagalli, er rakin til þess að hún hafði allt of litið rými til eðlilegs vaxtar í móður- kviði. Vegna slæmrar heilsu féll þyngdin enn frekar dagana eft- ir fæðingu og stúlkubarnið komst fyrir í kvenmannslófa. Ástand hennar versnaði til muna siðastliðinn laugardag þegar læknarnir reyndu að hækka súrefnismagn í blóði með hjálp nýrrar vélar. Stúlkan þoldi ekki álagið og dó skömmu seinna. Trúarlegar ástæður Móðir áttburanna, Nkem Chukwu, 27 ára bandarískur ríkisborgari, aðflutt frá Níger- íu, hafði verið of veikburða til að sjá börnin siðan sjö þeirra voru tekin með keisaraskurði sunnudaginn 20 desember. Eitt barnanna, stúlka, fæddist eðli- lega hinn 8. desember. Foreldrar áttburanna sögðu í blaðaviðtali að þau hörmuðu dauða dóttur sinnar en þökk- uðu Guði jafnframt fyrir að blessa líf sitt, með fæðingu hennar. Af trúarástæðum hafði konan neitað að láta eyða nokkrum fóstranna til að veita þeim sem eftir hefðu orð- ið meiri möguleika á að halda lífi. Stærsta barnið vó aðeins um 810 grömm eða rúmar þrjár merkur við fæðingu. Þremur barnanna er haldið á lífi með lijálp véla en ástand tveggja er talið mjög alvarlegt eftir skurðaðgerðir nú um helgina. Veikindi og andlát annarra Ijölbura I nóvember 1997 fæddust sjöburar í Bandaríkjunum. Börnin hafa öll með jöfnu milli- bili átt við alvarleg veikindi að stríða en fregnir herma að Iíð- an þeirra sé betri nú en á síð- asta ári. Á Þorláksmessu fæddust sex- burar í Kina. Tveir þeirra létust í gær vegna Iungnagalla. Sex- burarnir fæddust eftir aðeins 28 vikna meðgöngu og vó minnsta barnið 495 grömm en hið stærsta 1,17 kflógrömm. Ástand hinna íjögurra barn- anna er sagt stöðugt og líklegt að þau lifí af. Samkvæmt upp- lýsingum frá opinberu kín- versku fréttastofunni Xinhua voru sexburarnir getnir á nátt- úrulegan hátt án aðstoðar frjó- semislylja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.