Morgunblaðið - 29.12.1998, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 29.12.1998, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 37 LISTIR „Hve iðrar margt líf eitt augnakast“ MARÍA Ellingsen og Arnar Jónsson í Dómsdegi eftir Egil Eðvarðsson. SJÓIWARP DÓMSDAGUR Handrit og leikstjórn: Egill Eðvarðs- son. Leikendur: María Ellingsen, Arnar Jónsson, Hilmir Snær Guðna- son, Ingvar E. Sigurðsson, Ása Hlín Svavarsdóttir, Benedikt Erlingsson, Erla Ruth Harðardóttir, Guðfínna Rúnarsdóttir, Pálmi Gestsson, Guð- mundur Ólafsson, Magnús Ólafsson o.fl. VETURINN 1892-98 leysti Ein- ar Benediktsson, þá nýútskrifaður lögfræðingur frá Hafnarháskóla, tímabundið af sýslumann Þingey- inga, föður sinn Benedikt Sveins- son. Meðal mála sem komu til kasta hans var kæra um að systkinin Sig- urjón og Sólborg, vinnuhjú á Sval- barði í Þistilfirði, hefðu átt saman barn og borið út á laun. Einar hélt þegar austur og réttaði í málinu, yf- irheyrði heimilisfólk og játaði Sig- urjón að hafa tekið barnslíkið og grafið. Sólborg fyrirfór sér nóttina áður en að yfirheyrslu hennar kom. Segir sagan að hún hafi dáið í hönd- um Einars og varð hann aldrei sam- ur maður eftir. I mörg ár þjáðist hann af myrkfælni og mátti aldrei einn vera og taldi Sólborgu fylgja sér og ásækja sig í svefni. Sögnin um síra Odd og Sólveigu á Miklabæ í Skagafirði varcí Einari síðar tilefni í eitt af hans stórfenglegustu kvæð- um og er greinilegt að reynsla hans af ásókn Sólborgar hefur orðið hon- um hvati að sköpun kvæðisins. Atburðirnir á Svalbarði, Sólborg- armál, verða Agli Eðvarðssyni að yrkisefni í myndinni Dómsdagur sem Sjónvarpið frumsýndi á 2. jóla- dag. Sögusvið myndarinnar er ann- ars vegar HerdísaiTÍk í ársbyrjun 1940, þar sem Einar dvaldi síðustu æviár sín og lést 12. janúar 1940. Hins vegar gerist sagan á Svalbarði viku af janúar 1893 og nær fram á 12. dag þess sama mánaðar. Tengiliðurinn er blaðakonan Anna sem María Ellingsen leikur, hún fær skilaboð á miðilsfundi um að Sólborg vilji ná fram sannleikanum í máli sínu; Anna heimsækir Einar til Herdísai-víkur, og dvelur hjá honum síðustu daga hans og fær upp úr honum slitrótta frásögn af rás atburða á Svalbarði hina örlaga- ríku daga 47 ánim fyrr. Ótti Einars við dagsetninguna 12. janúar er mikill, hann telur víst að Sólborg muni vitja sín þann dag. Hvort hún hefur gert það árlega er ósagt, hugsanlega finnur Einar skapadæg- ur sitt nálgast. Myndhöfundurinn lætur allar persónur Sólborgarmála „ganga aftur“ með því að þær eru hinar sömu og verða á leið Önnu í leit hennar að efnisþáttum Sólborgar- mála. Sjálf er hún Sólborg í útliti, hugsanlega afturgengin eða endur- fædd í þeim tilgangi að leiða sann- leikann í ljós. Þegar hún birtist í Herdísarvík telur Einar víst að hún sé komin að vitja sín. Allt er þetta hæfilega órætt og bregður drauga- legri birtu um svið myndarinnar. Forsaga málsins milli systkin- anna er tekin frjálslegum tökum, sökudólgur er fundinn í húsbónda þeirra, séra Ólafi Pedersen. í hon- um birtist hið sígilda íslenska bók- menntaminni um illa innrætta guðs- manninn sem fer troðnar sagnaslóð- ir í þvingunum sínum á vinnuhjúun- um og tryggingu á játningu Sigur- jóns um þátt hans í barnsmorðinu. Prestsfrúnni er einnig ætlaður sá hlutur í atburðarásinni að hafa komið eitrinu í hendur Sólborgar. Hvort um hreinan uppspuna hand- ritshöfundar er að ræða eða hvort einhverjar heimildir styðja þessa túlkun er undirrituðum ókunnugt um. Myndin er stílhrein og unnin af mikilli vandvirkni, greinilegt er að mikil alúð hefur verið lögð í útlit persóna og umgjörð myndarinnar, hvert myndskeiðið á fætur öðru fal- lega samsett og endursköpun hinna tveggja tímaskeiða ágætlega trú- verðug. Frásagnarstíllinn er þó ein- kennilega dempaður, nánast einsog höfundurinn vildi halda ákveðinni fjarlægð á viðfangsefnið, langur inngangur myndarinnar með rödd yfir minnti fremur á leikna heimild- armynd en dramatíska kvikmynd. Þrátt fyrir að lifandi samband kviknaði á milli þeirra Arnars Jóns- sonar og Maríu Ellingsen í hlut- verkum Ónnu og Einars eldra vant- aði nokkuð á að efnið væri tekið föstum dramatískum tökum og úr því yrði grípandi örlaga- og per- sónusaga en ekki hlutlæg frásögn af þó meira og minna skáldaðri at- burðarás. Leikurinn í myndinni undirstrik- aði hlutlæga frásögnina, meira lagt upp úr þöglum svipbrigðum en töl- uðum samskiptum, hinn talaði texti varð á köflum allt að því aukaatriði, stundum var honum þó ofaukið eins og sumt af því sem Anna segir yfir mynd í upphafinu. Persónusköpun- in galt fyrir þessa aðferð, Einar yngri, Sigurjón og Sólborg ásamt heimilisfólki að Svalbarði varð ekki verulega hugstætt, örlög þessa fólks náðu ekki að snerta raunveru- lega tilfinningu í brjósti áhorfand- ans. Hugsýki Einars eftir atburðina á Svalbarði - sem er þó forsenda persónusköpunar Einars eldra - kom hvergi fram og þannig varð ótti Einars eldra við afturgöngu Sólborgar alls ekki ljós og virtist skelfing hans fremur stafa af elli- glöpum en ævilöngum samvisku- kvölum. Arnar Jónsson tefldi á tæpasta vað í túlkun sinni, hann sýndi framúrskarandi innlifun í hlutverkið og ekki fór á milli mála að Einar var frá upphafi í andar- slitrunum. Túlkun Hilmis Snæs Guðnasonar á Einari yngi-a var al- gjör andstæða þessa, yfirvegaður og stilltur, glæsimenni hið ytra, val- menni hið innra. Hvort tveggja gildar forsendur til túlkunar en tenginguna á milli skorti, hvað gerði glæsimennið að því fram- gengna skari sem raun bar vitni. Hafi viðfangsefni myndarinnar ver- ið að tengja saman á dramatískan hátt dapurleg endalok Einars Benediktssonar og örlög Sólborgar verður hún að teljast fremur mis- heppnuð; hafi ætlunin verið að skapa skáldlegan ramma um sögu- lega atburði hefur það að mestu leyti tekist. Væntingar áhorfenda hafa þó vafalaust fremur beinst í fyrrnefndu áttina. Hávar Sigurjónsson JiiSUiJJJJJ1 7JJJJJJJJJJ-J/ Stuðningur þinn gæti fækkað slysum JAPISI Saim/innulerili'Lanilsýii Landsbanki íslands Banki alira landsmanna L Skattfrjálsir vinningar <SB> TOYOTA Tákn um gceði
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.