Morgunblaðið - 29.12.1998, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998
MORGUNBLADIÐ
pltrgtwMalíili
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
ÍSRAEL Á
TÍMAMÓTUM
BENJAMIN Netanyahu, forsætisráðherra ísraels, átti
ekki annarra kosta völ en að flýta kosningum, sem
áætlað var að halda árið 2000 en verða haldnar fyrri hluta
næsta árs þess í stað. Samkomulagið sem gert var í Wye í
Bandaríkjunum við Palestínumenn hefur sætt harðri and-
stöðu innan Likud-flokksins, flokks forsætisráðherrans, og
margir áhrifamenn þar telja að of langt hafi verið gengið.
Síðast í gær lýsti Benjamin Begin, sonur Menachems Beg-
ins, fyrrverandi forsætisráðherra og stofnanda Likud, því
yfir að hann myndi ganga úr Likud og bjóða sig fram gegn
Netanyahu en kosið er beint til embættis forsætisráð-
herra. Það sem Begin og fleiri áhrifamenn á hægri væng
ísraelskra stjórnmála setja helst fyrir sig er sú ákvörðun
að afhenda Palestínumönnum aukið land á Vesturbakkan-
um. Telja þeir að þar með sé enn eitt skrefið stigið í átt að
sjálfstæði ríkis Palestínumanna. Þar sem ljóst var að
stefna forsætisráðherrans naut ekki nægjanlegs stuðnings
innan flokks hans, hvað þá meðal samstarfsflokka í ríkis-
stjórn, voru kosningar óhjákvæmilegar.
Það er hins vegar vafamál hvort ísraelskir kjósendur
standa frammi fyrir skýrum kostum er þeir ganga að kjör-
borðinu. Fyrir síðustu kosningar hamraði Netanyahu á því
að hann væri hæfasti leiðtoginn til að standa vörð um hags-
muni ísraela. Hann myndi sýna Palestínumönnum hörku
og berjast af alefli gegn hryðjuverkum. Eftir að hann
komst til valda stóð Netanyahu hins vegar frammi fyrir
sama pólitíska veruleika og aðrir ísraelskir ráðamenn í
gegnum tíðina. Örlög ísraela og Palestínumanna eru sam-
tvinnuð og eina leiðin að varanlegum friði er samkomulag
um friðsamlega sambúð þjóðanna. Sanngjörn skipting
lands hlýtur ávallt að verða kjarni slíks samkomulags.
Leiðtogi Likud-flokksins varð því að samþykkja málamiðl-
un um afhendingu lands, þrátt fyrir að það gengi þvert á
hina sögulegu stefnu Likud.
Næstu ár ráða sköpum í samskiptum ísraela og Palest-
ínumanna. Yasser Ai-afat, leiðtogi Palestínumanna, hefur
margsinnis gefið í skyn að hann muni lýsa yfir sjálfstæði
ríkisins jafnvel þegar á næsta ári. Enn er eftir að semja
um framtíð ísraelsku höfuðborgarinnar Jerúsalem, sem
Palestínumenn gera einnig tilkall til að hluta.
í ljósi þessa er nauðsynlegt, að í ísrael sé við völd stjórn
er hefur skýrt umboð kjósenda. Það flækir stöðu mála að
það er ekki einungis hægrivængur Likud sem hefur klofið
sig úr flokknum heldur einnig áhrifamiklir miðjumenn, er
sótt gætu fylgi inn í raðir kjósenda Verkamannaflokksins.
Kosningarnar gætu því að einhverju leyti þýtt uppstokkun
ísraelska flokkakerfisins. Eftir stendur hins vegar, að
verulegur meirihluti kjósenda virðist samkvæmt könnun-
um styðja áframhaldandi samninga við Palestínumenn.
Það er því líklega skynsamlegra að efna til kosninga, þó
svo að það tefji friðarviðræður, en að viðhalda þeirri sjálf-
heldu, sem ríkt hefur innan ríkisstjórnar Netanyahu und-
anfarna mánuði.
FJARNÁM
TILRAUNIR með fjarnám hófust í Háskóla íslands og
Endurmenntunarstofnun háskólans í haust og telst af
nemendum og kennurum sem þátt tóku hafa tekist vel,
eins og fram kom í umfjöllun hér í blaðinu. Búnaðurinn
sem notaður er gerir það að verkum, að nemendur víða um
land geta fylgst með fyrirlestri kennara á sjónvarpsskjá.
Kennarinn og þeir nemendur sem hann er með í stofu geta
svo náð tal- og sjónsambandi við þessa nemendur. Kennar-
inn getur einnig varpað upp glærum, skyggnum, sýnt
myndband og 35 mm myndir með hjálp Netsins. Einnig
geta nemendur úr öllum landshornum átt í samræðum um
efnið og skipst á skoðunum. Sambandið er með öðrum orð-
um gagnvirkt og „lifandi“.
Með tilkomu fjarnáms má í vissum skilningi segja að
fjarlægðir séu hættar að skipta máli. Fjarnám veitir
þannig mörgum sem annars hafa ekki getað stundað nám
nýja möguleika, svo sem fjölskyldufólki og sjúkum. Fjar-
nám hlýtur auk þess að vera tæki til þess að styrkja hinar
dreifðu byggðir landsins í sessi en ein af meginástæðum
fólksfækkunar í þeim hefur verið flótti ungs fólks sem hef-
ur verið að leita sér háskólamenntunar á höfuðborgar-
svæðinu og í öðrum þéttbýliskjörnum.
Islendingar gripnir með um 10 kg af fíkniefnum
Átta í varðhaldi
lendis og erlei
VIÐ rannsókn á bruna í bflskúr við Rauðagerði í Reykjavík vaknaði grunu
ieynast í skúrnum eða íbúð við hann. Fundust við leit þa
Morgunblaðið/Golli
MIKIÐ af fíkniefnum hefur að undanförnu verið tekið af íslendingum
liérlendis og í nokkrum Evrópulöndum.
Síðustu árin hefur lög-
reglan verið venju frem-
ur á varðbergi kringum
áramót vegna fíkniefna-
innflutnings. Jóhannes
Tómasson rekur hér
nokkur mál sem nú eru
í rannsókn hjá þýskum
og íslenskum lögreglu-
yfírvöldum. Sitja þegar
átta manns í varðhaldi
vegna þessara mála.
SEX fíkniefnamál sem íslend-
ingar eiga aðild að eru nú til
rannsóknar hjá lögregluyfir-
völdum í Þýskalandi og hér-
lendis. Átta manns sitja þegar í
gæsluvarðandi vegna þessara mála
og eru sum þeirra enn ekki upplýst
að fullu. Ómar Smári Ármannsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lög-
reglunni í Reykjavík, segir að með
góðri samvinnu við lögreglu erlendis
hafi verið girt fyrir innflutning á tals-
verðu magni fíkniefna hingað til lands
að undanförnu.
Fyrsta málið í mánuðinum kom
upp í byrjun desember þegar íslend-
ingur var handtekinn í lest er hann
var á ferð frá Hollandi á leið til
Frankfurt í Þýskalandi. Fundust í
farangri hans tvö kg af kókaíni. Mað-
urinn hefur áður komið við sögu í
fíkniefnamálum hérlendis og er hann
nú í haldi þýsku lögreglunnar þar
sem mál hans er til rannsóknar.
Fyrir rúmri viku var íslendingur
handtekinn í flugstöðinni á Keflavík-
urflugvelli við komu frá Bandaríkjun-
um og reyndist hann vera með 630 g
af kókaíni. Hann var úrskurðaður í
tveggja mánaða gæsluvarðhald og
tveir menn sem handteknir voru við
rannsókn málsins hafa verið úrskurð-
aðir í mánaðar langt gæsluvarðhald.
Þá fundust 1.400 g af amfetamíni
og rúmlega 100 g af kókaíni á ís-
lenskri konu á flugvellinum í Ham-
borg 22. desember en hún var þá ný-
lega komin þangað frá Kaupmanna-
höfn.
Samkvæmt upplýsingum blaðafull-
trúa tollyfirvalda í Hamborg hugðist
konan fljúga' til íslands þennan dag
og við leit í öryggishliði á flugvellin-
um fundu öryggisverðir amfetamínið
sem konan hafði límt á skrokk sér og
kókaínið í stígvéli hennar. I öllum
hamaganginum leið yfir konuna
skamma stund og var henni þá komið
undir læknishendur eftir að öryggis-
verðirnir höfðu gert tollinum viðvart
um mál hennar. Konan er enn í haldi
og er mál hennar í rannsókn bæði hjá
þýska tolleftirlitinu og lögreglunni.
Líklegt er talið að konan hafi ætlað til
íslands með efnin, hún verið burðar-
dýr.
Beðið framsals til
Þýskalands
Á Þorláksmessu voru tveir íslend-
ingar handteknir í Lúxemborg en
þýsk og íslensk lögregluyfirvöld
höfðu fylgst með þeim um tíma. Lög-
regla í Lúxemborg handtók þá að
beiðni þýsku lögreglunnar. Mennirnir
eru grunaðir um að standa bak við
fíkniefnamál í Þýskalandi. Lögreglan
í Þýskalandi vinnur nú að því að fá
mennina framselda þangað sem gæti
tekið nokkra daga. Mál þeirra er því
enn í rannsókn og ekki hægt að
greina nánar frá umfangi þess.
Þá fundust fíkniefni í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar og í húsi við
Rauðagerði nýverið. Á kvennasalerni
í Leifsstöð fundust þriðjudaginn 22.
desember rúm tvö kg af fíkniefnum
sem ætlað er að séu hass. Efnin fund-
ust við hreingerningu og var þeim
komið til tollvarða sem létu lögreglu
á Keflavíkurflugvelli vita. Málið er nú
í rannsókn hjá ávana- og fíkniefna-
deild lögreglunnar en enginn hefur
verið handtekinn vegna þess.
í framhaldi af bruna í bílskúr við
Rauðagerði í Reykjavík að morgni
annars dags jóla fundust 4,5 kg af
hassi. Vökul augu lögreglunnar á
vettvangi urðu til þess að grunur
vaknaði og fundust fíkniefni í húsinu
eftir leit þar og í bílskúrnum. Er mál-
ið í rannsókn en einn húsráðenda var
handtekinn og hefur fólk sem tengist
húsinu komið við sögu hjá lögregl-
unni áður. í brunanum urðu miklar
skemmdir á bílskúmum og bíl sem
stóð fyrir utan og nokkrar á íbúðar-
húsinu sjálfu.
Alls er hér um að ræða sex fíkni-
efnamál og hafa í þeim verið gerð
upptæk rúmlega 10 kg af ýmsum
vímuefnum. Átta manns hafa verið
handteknir í tengslum við fimm mál-
anna en enginn ennþa vegna hass-
fundarins í Leifsstöð. I samtölum við
lögregluna kom fram að búast megi
við að þeir sem nú sitja í gæsluvarð-
haldi og hafa verið gripnir með fíkni-
efni megi búast við að vera í varð-
haldi allt þar til dómur fellur í málum
þeiiTa.
Meira um smygltilraunir
fyrir áramót
Ómar Smári Ármannsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn hjá lögi-eglunni í
Reykjavík, segir að starfsmenn toll-
gæslu og lögreglu séu venju fremur
ái'vakrir varðandi fíkniefnaleit á
þessum árstíma og því hafi verið lagt
hald á óvenju mikið af fíkniefnum á
tiltölulega skömmum tíma. Hann seg-
ir reynslu undanfarinna ára hafa sýnt
að fyrir áramót virðist reynt í aukn-
um mæli að koma vímuefnum á
markað, fíkniefnasalar séu að birgja
sig upp til að eiga efni sem seljist við
tímamót eins og nú fara í hönd. Ómar
Smári leggur áherslu á að þrátt fyrir