Morgunblaðið - 29.12.1998, Side 48

Morgunblaðið - 29.12.1998, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Um bækur og fj ölmiðla „Gagnrýni hefur líka ákveðið upplýsingar- hlutverk, henni er ætlað að leiða lesand- ann inn í viðkomandi verk á einhverjum ákveðnum forsendum. Vitringarnir prír á Bylgjunni mættu hafa pað í huga næst pegar peir reyna að vera frumlegir. “ Bókmenntir hafa löngum verið gæluverkefni ís- lenskra fjölmiðla. Á tímum flokkspólitísku blaðanna var bókmenntaumfjöll- un hluti af hinni pólitísku bar- áttu, bókmenntirnar endur- spegluðu samfélagið og þær þurftu að gera það á „réttan“ hátt. Það var því ekki aðeins af menningarlegum áhuga að hvert einasta blað, hversu smátt í snið- um sem það var, lagði metnað sinn í að rýna í bækur - og þá auðvitað út frá sínu sjónarhorni. Nú þykja bókmenntir skipta minna máli í (flokks)pólitískri umræðu og fjölmiðlar fjalla um þær á öðrum VIÐHORF forsendum og út frá öðru Eftir Þrost .. , Helgason sjonarhorm. Bokmenntaa- hugamönnum hlýtur að þykja þetta breyting til batnaðar. Hitt er verra að sumir fjölmiðlar telja nú enga ástæðu til að fjalla um bókmenntir. Dagblaðið Dag- ur hefur til að mynda ekki haft nægilegan menningarlegan metnað til þess að taka þátt í umræðu um bókmenntir frekar en aðrar listgreinar og næst- stærsta sjónvarpsstöð landsins, Stöð 2, hefur nánast algjörlega fríað sig menningarlegri ábyrgð, sennilega á þeirri hæpnu for- sendu að menning selji ekki. Eigendur Stöðvar 2 reka einnig útvarpsstöðina Bylgjuna sem hefur viljað láta taka sig al- varlega. Bylgjan bauð, að mér skilst, upp á bókmenntagagn- rýni í fyrsta skipti nú í nóvem- ber og desember. Einn gagnrýn- andi var ráðinn til starfans, Kol- brún Bergþórsdóttir, sem vænt- anlega hefur farið mikinn í upp- hrópunum og stjörnugjöfum. Undirritaður missti raunar al- veg af eiginlegum ritdómum Kolbrúnar en heyrði viðtal þar sem hún fjallaði um einhverja „sterka bók“ og „snilldarlega skrifaða“ sem hefði „haldið sér“ alveg til síðasta orðs. Ritdómar Kolbrúnar hafa vafalaust verið sérlega upplýsandi um inntak og eðli þeirra bóka sem hún fjallaði um og upphrópanirnar vel rök- studdar. Bylgjan lauk svo bók- menntaumfjöllun sinni á árinu með grátlega hlægilegum þætti Hrafns Jökulssonar og Jakobs Bjarnars Grétarssonar á annan í jólum sem nefndist Eftir flóðið. Þar var miklum tíma eytt í til- raun til að leggja mat á skáld- sögur ársins með því að bera saman upphafs- og lokalínur þeirra. Eins og fram kom í þætt- inum var ástæðan fyrir þessari nálgun spekinganna tveggja sú að þeir höfðu ekki lesið annað en þessar tvær málsgreinar í hverju verki. Það grátlega var að þetta mistókst algjörlega þrátt fyrir að þeir Hrafn og Jak- ob hefðu eytt miklum tíma í að skrifa niður öll upphöf og lok í skáldsögum ársins í bókabúð Máls og menningar, eins og greint var frá í þættinum. Það hlægilega var að þeim virtist vera fúlasta alvara með þessu tilstandi. Sjónvarpið hefur verið gagn- rýnt harðlega fyrir að sinna ekki bókmenntum sem skyldi. Undan- farin ár hafa bókmenntir verið gagnrýndar í dægurmálaþættin- um Dagsljósi. Hið knappa sam- talsform sem þar var beitt virtist hins vegar ekki henta nægilega vel; gagnrýnin varð að einhvers konar viðburði eða sjói en bæk- umar sjálfar lentu í bakgrunnin- um. í vetur hefui- verið gerð til- raun með annars konar umfjöllun þar sem Ástráður Eysteinsson hefúr vakið athygli á áhugaverð- um bókum og velt upp ýmsum hliðum á bókmenntunum og bók- menntaútgáfunni. Þessi nálgun hefur sumurn ekki þótt nægilega beitt. Kvartað hefur verið undan þvi að ekki væri tekin nægilega skýi- afstaða til einstakra bóka, en er ekki ákveðin afstaða fólgin í valinu á þeim verkum sem fjallað er um í þáttunum? Þetta form mætti vafalaust þróa og víkka þannig að úr yrði markverð og góð sjónvarpsumfjöllun um bók- menntir. Morgunblaðið hefur einnig verið gagmýnt fyrir að taka ekki nægilega skýra afstöðu til bóka. I fyrrnefndum þætti á Bylgjunni lét Kolbrún Bergþórs- dóttir, sem einmitt byggir gagn- rýni sína á skýrum dómsorðum (Gott! Vont! Stjarna! Haus- kúpa!), þá skoðun sína í ljós að gagnrýnendur Morgunblaðsins væru ekki nægilega afdráttar- lausir í skoðunum sínum. Jó- hann Páll Valdimarsson, útgáfu- stjóri Forlagsins, tók í sama streng og sagðist miklu fremur vilja að gagnrýnendur segðu skýrt og skorinort hvort þeim þætti bók góð eða vond. Jóhann tók reyndar fram að þetta af- stöðuleysi Morgunblaðsins hefði einungis gert vart við sig fram- anaf hausti en síðan hafi dómar- ar farið að sýna tennurnar. Hrafn Jökulsson beit svo höfuð- ið af skömminni, eins og honum hættir til að gera, og kallaði gagnrýnendur blaðsins „dauðyfl- in á Mogganum". Það er erfitt að svara svona beinskeyttum gagnrýnendum sem virðast ekki kunna að lesa afstöðu út úr texta nema hann innihaldi orð eins og gott og vont eða auðskilin tákn eins og ★ eða . Auðvitað er alltaf falin af- staða í gagnrýni. Stundum kann gagnrýnandi hins vegar að kjósa að kveða ekki upp skýran dóm með afdráttarlausum einkunn- um, hugsanlega vill hann fyrst og fremst vekja athygli á um- ræddri bók, hvetja fólk til að lesa hana, en í því er vissulega falin ákveðin afstaða. Þannig er gagn- rýni ávallt leiðbeinandi fyrir kaupendur. Hins vegar verður einnig að hafa það í huga að gagnrýni hefur annað og meira hlutverk en að selja bækur fyrir útgefendur. Það er mikilvægt að gagnrýnandi sé sér meðvitaður um að hann er að taka þátt í bók- menntalegri og menningarlegri umræðu. Gagnrýni hefur líka ákveðið upplýsingarhlutverk, henni er ætlað að leiða lesand- ann inn í viðkomandi verk á ákveðnum forsendum. Vitring- amir þrír á Bylgjunni mættu hafa það í huga næst þegar þeir reyna að vera framlegir. + Magnea Katrín Þorvarðardótt- ir fæddist í Reykja- vík 10. október 1923. Hún lést á Vífilsstaðaspítala 17. desember síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Þor- varður Magnússon verkamaður og Sigríður Kristjáns- dóttir húsfreyja. Bróðir Katrínar var Kristján R. Þorvarðarson, f. 30. janúar 1922, d. 26. október siðastliðinn. Eiginmaður Katrínar var Guðlaugur G. Pétursson versl- unarmaður, f. 15. desember 1913, d. 11. maí 1987. Sonur Hún Katrín Þorvarðardóttir er látin. Pabbi og síðar ég kölluðum hana alltaf Kötu okkar. Það var mikið lán fyrir mig að fá að kynnast Kötu, en hún og eigin- maður hennar, Guðlaugur Péturs- son, bjuggu ásamt syni sínum Þor- varði á Hvaleyrarbraut 5 í Hafnar- firði, en þar var einnig æskuheimili mitt. Þorvarður mun hafa verið eins þeirra er Þorvarður Guðlaugsson, f. 20. maí 1956. Eigin- kona hans er Guð- rún Gísladóttir, f. 13. ágúst 1957. Þeirra börn eru Magnea Katrín, f. 19. apríl 1977, Unn- ur María, f. 11. mars 1981, Klara Hrönn, f. 2. júlí 1991, og Guðrún Halla, f. 14. nóvember 1993. Katrín ólst upp í Reykjavík. Hún og Guðlaugur fluttust til Hafnarfjarðar 1958 og bjuggu þar í 21 ár er þau flutt- ust til Reykjavíkur. Útför Katrínar fór fram frá Fossvogskirkju 28. desember. árs þegar þau fluttu á Hvaleyrar- brautina. Fjölskyldur okkar bund- ust strax traustum vináttuböndum, sem aldrei hrikti í. Kata vai- ein- stök, alltaf gat ég leitað til hennar, sama hvað gekk á. Alltaf kom hún mér í gott skap með sinni ljúfu framkomu. Hún gaf sér góðan tíma til að spjalla og henni leið best þeg- ar hún hafði eitthvað að gefa öðr- um. Hún sýndi mér fádæma þolin- mæði í öll þau skipti sem ég fór með skellinöðruna mína í gegnum innganginn hjá henni inn í þvotta- húsið okkar, til þess að gera við hana. Það voru nú ekki ónotin frá henni þótt ég væri að stelast yfir ganginn hennar. Það var í mesta lagi að hún opnaði fram og segði: „Nú ert þetta þú, Siggi minn?“ Oft hafði ég gaman af Þoi-varði, sem fylgdi mér eins og skugginn. Eitt sinn var ég að gera við skell- inöðruna inni í þvottahúsi, en hún hafði verið treg í gang. Þurfti ég að þurrka kerti o.fl. Loks fór hún í gang og gaf ég henni nokkrum sinnum vel inn. Hlaust af því mikill hávaði. Þoi’varður spurði hvað ég væri að gera. Sagði ég honum að ég ætlaði að gera allt vitlaust í húsinu. Nokkru seinna hverfur Þorvarður. Við Kata fórum að leita og finnum hann loks þar sem hann situr við fótstigna saumavél og stígur og stígur eins og kraftar hans leyfa og segir: „Eg ætla að gera allt vitlaust í húsinu eins og Siggi." Eg á margar ógleymanlegar minningar frá þessum árum á Hvaleyrarbrautinni. Kata var mér sannur vinur og um leið og ég sendi Þorvarði og fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur bið ég guð að blessa minningu góðrar konu, Katrínar Þorvarðardóttur. Sigurður Sigurjónsson og fjölskylda. KATRÍN ÞOR VARÐARDÓTTIR LAUFEY ÁSBJÖRNSDÓTTIR + Laufey Ás- björnsdóttir var fædd í Reykjavík 29. mars 1914. Hún lést 9. desember á elli- og hjúkrunar- hcimilinu Grund. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Pét- ursdóttir, f. 14. september 1871 á Bala í Brautarholts- hreppi, d. 21. janú- ar 1967, og Ásbjörn Guðmundsson, f. 3. júní 1866 á Árnar- holti í Gaulverjabæ, d. 1958. Þau eignuðust átta börn og var Laufey yngst þeirra. Þau voru: 1) Pétur, f. 3. sept. 1898, d. 1. okt. 1917. 2) María, f. 8. júní 1901, d. 20. ágúst 1926. 3) Valdimar, f. 11. júní 1903, d. 31. júlí 1903. 4) Bjarni, f. 3. júlí 1907, d. 19. febrúar 1944. 5) Guðmundur Valdimar, f. 24. sept. 1905, d. 19. des. 1995. 6) Randver, f. 20. júlí 1907, d. 7. febrúar 1925. 7) Ásbjörg, f. 17. júní 1909, og býr hún í Hafnarfirði. Laufey giftist 31. ágúst 1940 Bjartmari Einarssyni frá Stykk- ishólmi, hann lést 9. janúar 1963. Þau eignuðust eina dótt- ur, Steinunni Ingi- björgu, sem er gift Birgi Axelssyni. Þeirra börn eru: 1) Einar Gunnar. 2) Bjartmar, sambýlis- kona hans er Ásta Björk Sveinsdóttir og eiga þau tvo syni, Svein Andra, f. 1995, og Birgi Þór, f. 1998. 3) Axel Val- ur, kvæntur Berg- lind Kristinsdóttur og eiga þau eina dóttur, Álf- heiði Eddu, f. 1998. Laufey giftist seinni manni sínum 31. okt. 1970, Jens Vig- fússyni, f. 27. des. 1912, d. 7. janúar 1983. Laufey bjó alla sína tíð í Reykjavík, hún vann í mörg ár á gæsluvöllum Reykjavíkur, lengst þó á gæsluvellinum við Njálsgötu. Laufey dvaldi síð- ustu árin á elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund. Útför Laufeyjar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. UTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauní 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringínn. www.utfararstofa.ehf.is/ Þegar ancllál ber að hönJum Úifa ra rfyjónusia sem byggir á langri rcynslu Utfararstofa Kirkjugarðanna ehf Sími 551 1266 www.uifarastofa.com Ef fuglar mínir fengju vængjamátt, þá fljúga þeir um loftið draumablátt, og þér, sem hæst í himinsölum býrð, skal helgað þeirra flug og söngvadýrð. Hver fugl skal þreyta flugið móti sól, að fótskör guðs, að lambsins dýrðarstól, og setjast loks á silfurbláa tjöm og syngja fyrir lítil englaböm. Og eins og bamið rís frá svefnsins sæng, eins sigrar lífið fuglsins mjúka væng. Er tungan kennir töfra söngs og máis, þá teygir hann sinn hvíta svanaháls. Nú fljúga mínir fuglar, góða dís. Nú fagna englar guðs í Paradís. (DavíðStef.) Elsku Laufey langamma, því miður fengum við aldrei tækifæri að kynnast þér því þú varst orðin svo veik þegar við fæddumst en við vitum að þú hefðir verið eins góð við okkur eins og þú varst alltaf svo góð við pabbana okkar þegar þeir voru litlir eins og við eram núna. Guð geymi þig, elsku langamma okkar. Sveinn Andri, Birgir Þór og Álfheiður Edda. Skilafrestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á fostudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, fóstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. EMómabúðín Öarðskom v/ T"ossv'o0skii‘kjMgai‘ð Sfmi« 554 0500

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.