Morgunblaðið - 29.12.1998, Síða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
>-
*
*
+
Bróðir okkar og frændi,
MAGNÚS HALLDÓRSSON,
sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur á jólanótt, verður jarðsunginn frá Kefla-
víkurkirkju laugardaginn 2. janúar kl. 11.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Sjúkrahús Keflavíkur.
Fanney Halldórsdóttir, Jóna Fanney Holm,
Heiðbjört Halldórsdóttir, Jón Anton Holm,
Svanlaug Halldórsdóttir, Kristín Ingunn Holm.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
VALUR SIGURBJARNARSON,
vistheimilinu Víðinesi,
áður Skúlagötu 68,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum mánudaginn 21. desember sl.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 6. janúar nk.
kl. 13.30.
Sigurbjörg Valsdóttir, Halldór Bjarnarson,
Katrín Valsdóttir, Þóroddur Árnason,
Þorvaldur Valsson, Janína Laskowska,
Rúnar Valsson, Inga Sonja Eggertsdóttir,
Aðalheiður Valsdóttir, Agnar Hávarðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ELÍAS ÞORKELSSON
frá Nýjabæ
í Meðallandi,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum
á Þorláksmessu, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 30. desember
kl. 10.30.
Þórhildur Elíasdóttir, Konráð Ingi Torfason,
Inga Elíasdóttir, Gunnar Jóhannsson,
Eyþór Elíasson, Eygló Pála Sigurvinsdóttir,
Árni Jón Elíasson, Lára Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
BOGI ÞORSTEINSSON
fyrrv. yfirflugumferðarstjóri,
Hjallavegi 7,
Njarðvík,
verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
dag, þriðjudaginn 29. desember, kl. 14.00.
Aðstandendur.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
INGIMAR INGIMARSSON,
Tjaldanesi 1,
Garðabæ,
verður jarðsunginn í dag, þriðjudaginn 29.
desember frá Vídalínskirkju, Garðabæ, kl.
13.30.
Sólveig Geirsdóttir,
Ingimar Örn Ingimarsson, Ella K. Karlsdóttir,
Geir Ingimarsson, Una Hannesdóttir,
Auður Ingimarsdóttir, Ómar Hafsteinsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför
GÍSLA BJARNASONAR,
Grænuvöllum 1,
Selfossi.
Benedikta G. Waage, Hallur Árnason,
Gísli Jóhann Hallsson, Elín B. Ásbjörnsdóttir,
Þorvaldur Friðrik Hallsson,
Anna Guðrún Hallsdóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HALLDÓRA SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR
frá Stökkum,
Rauðasandi,
Stigahlíð 20, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju miðviku-
daginn 30. desember kl. 13.30.
Guðrún Jónsdóttir, Sigmundur B. Guðmundsson,
Pétur Jónsson, Sveinbjörg Pétursdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
+
Útför móður okkar,
JÓHÖNNU BJÖRNSDÓTTUR,
Ytra-Fjalli,
fer fram frá Neskirkju í Aðaldal miðvikudaginn 30. desember og hefst
athöfnin kl. 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Indriði Ketilsson,
ívar Ketilsson.
+
Hjartkær eiginmaður minn,
SIGURBERGUR MAGNÚSSON
frá Steinum,
Baugstjörn 22,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Eyvindarhólakirkju,
Austur-Eyjafjöllum, laugardaginn 2. janúar
kl. 14.00
Ferð á vegum Austurleiða frá B.S.l’ kl. 11.00 og
frá Selfossi kl. 12.00.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Sjúkrahús Suðurlands.
Fyrir hönd aðstandenda.
Elín Sigurjónsdóttir.
+
Sendum öllum innilegar þakkir, er sýndu okkur
hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar
eiginmanns míns, föður okkar og tengda-
föður,
SIGHVATAR BJARNASONAR
fyrrv. aðalféhirðis,
Háaleitisbraut 54,
Reykajvík.
Elín J.
Kristín Lynch,
Bjarni Sighvatsson,
Viktor Sighvatsson,
Ásgeir Sighvatsson,
Elín Sighvatsdóttir.
Ágústsdóttir,
Charles T. Lynch,
Auróra G. Friðriksdóttir,
Jóna Margrét Jónsdóttir,
Hilda Torres,
+
Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýnt hafa okkur samúð, stuðning og hlýhug
við fráfall og útför eiginmanns, sonar, föður,
tengdaföður, afa okkar og bróður,
JÓNS HEIÐARS AUSTFJÖRÐ,
Lyngholti 12,
Akureyri.
Guð gefi ykkur farsæld á nýju ári.
Jóhanna B. Austjörð.
+
Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýnt hafa
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR FINNBOGASONAR,
Sunnuholti 6,
ísafirði.
Signý B. Rósantsdóttir,
Ólafur R. Sigurðsson, Gísla Björg Einarsdóttir,
Sigrún Sigurðardóttir,
Sigþór Sigurðsson,
Hafrún Huld Ólafsdóttir.
Kveðja frá körfuknatt-
leiksdeild UMFN
I Ljónagryfjunni, eins og heima-
völlur UMFN er oftast kallaður, er
nú auður stóll. í raun er þetta ekk-
ert venjulegur stóll. Þetta er heið-
urssæti, sem einstakur heiðursmað-
ur hefur setið í, nánast sérhvem
heimaleik meistaraflokks karla frá
því Iþróttamiðstöðin í Njarðvík var
vígð. Sum íþróttafélög eru ríkari en
önnur í veraldlegum skilningi, en
sum eiga annars konar auð,
mannauð.
UMFN hefur verið lánsamt í
gegnum árin að eiga slíkan mannauð
og að öðmm ólöstuðum var Bogi Þor-
steinsson gimsteinninn okkar. Hvers
„virði“ er svona gimsteinn? Þessari
spmmingu verður aldi-ei svarað, en
það þekkja þeir sem starfa innan
íþróttahreyfingarinnai- að þegar ein-
staklingm- eins og Bogi er tilbúinn að
starfa af lífi og sál og gefa af sér en
krefst einskis í staðinn, er allt starfið
svo skemmtilegt og íþróttaandinn
svo lifandi. Persónuleiki Boga og
framkoma hafði líka jákvæð áhrif á
körfuknattleiksíþróttina. Um leið og
fólk kynntist Boga og brennandi
áhuga hans á þessari íþrótt, jókst um
leið vii'ðing þess fyrir honum og
íþróttinni. Þannig varð til samasem-
merki milli Boga og körfuboita og
það er sá gimsteinn sem íslenskii-
körfuboltaiðkendur munu varðveita
um ókomna tíð.
Bogi hefur stundum verið kallaður
faðir körfuboltans á Islandi. Eflaust
eru mai’gir aðrir sem vilja eiga þessa
nafngift og víst er að Bogi kynnti
ekki fyrstur manna þessa íþrótt hér
á landi. En þeir eru ekki margir sem
tóku slíku ástfóstri við þessa íþrótt,
að hægt er að líkja við fóðurást. Með
það í huga getur ekki nokkur maður
efast um að þessa nafngift á enginn
annar en Bogi Þorsteinsson. Körfu-
boltinn var reyndar ekki eina íþrótt-
in sem hann heillaðist af. Hann tók
að sér formennsku í Ungmennafé-
lagi Njarðvíkur og þá kom enn betur
í ljós en áður, að hann hafði til að
bera gríðarlega forystu- og mála-
miðlunarhæfileika.
Engin deild innan UMFN gat
kvartað yfir því að hann hugsaði
meira um eina deildina en aðra.
Hann var mættur hjá þeim öllum. í
keppni yngri flokka, á uppskeruhá-
tíðir og á deildafundi og þau voru
líka ófá skiptin sem Bogi ók íþrótta-
fólki frá UMFN langar leiðir í
keppni eða æfingar. Bogi var stoltur
maður og stoltastur var hann af upp-
gangi körfuboltans á íslandi og þá
sérstaklega á Suðurnesjum. Hann
var líka stoltur þegar hann sagði
okkur sögur af fyrstu baráttudögun-
um, fyrsta íslandsmótinu og fyrstu
utanlandsferðunum með landsliðinu.
„Strákar, var ég búinn að segja ykk-
ur frá því þegar ég var með landslið-
inu í Ameríku og við vorum kallaðh-
upp í Ed Sullivan þættinum fræga“?
Jú, við vorum búnir að heyra þessa
sögu áðm-, en við vildum heyra hana
aftur og sjá á ný glampann í augun-
um á Boga, þegar hann lýsir þessu
augnabliki og hermir eftir Ed Sulliv-
an þegar hann kynnti kai’lalandslið
íslands í körfubolta. Bogi mundi
þetta allt eins og það hefði gerst í
gær. Þetta var sigurstund hjá hon-
um, ein af mörgum sigurstundum
köi-fuboltans á íslandi.
Hvernig þakkar þú svona manni?
Hvernig getur eitt íþróttafélag
sagt nógu stórt takk við svona fé-
lagsmann eins og Boga?
Minningin er svo full af þakklæti
og virðingu að orð verða fátækleg.
En gimsteinninn okkar geislaði svo
fallega, að ljósið frá honum mun
lýsa okkur veginn um ókomna tið.
UMFN mun ætíð hafa eldmóðinn
og ástúðina hans Boga að leiðarljósi
í leik og starfi. Þannig mun minn-
ingin um hann lifa með okkur öllum.
Þannig kenndi hann okkur að meta
lífið og leikinn.
Guð blessi þig, Bogi. Takk fyrir
samfylgdina. Hvíl þú í friði.
Stjórn og leikmenn
körfuknattleiksdeildar
Ungmennafélags Njarðvíkur.
• Fleirí minningargreinur uni Boga
Þorsteinsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.