Morgunblaðið - 29.12.1998, Side 64
^|64 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998
MORGUNBLADIÐ
Byggðu ákvörðun
þína á réttum upplýsingum!
Hlutabréfasj óðurinn hf.
Margrét Sveinsdóttir, forstöðumaður
Einstaklingsþjónustu VÍB.
• 11,2% raunávöxtun á ári sl. 10 ár.
• Góð eignadreifing.
• Sta'rsti hlutabréfasjóður landsins (5 ma.kr.).
• Lægsti rekstrarkostnaður sem vitað er um
meðal sambærilegra sjóða (0,7%).
• Um 8.000 hluthafar.
• 62.345 kr. skattfrádráttur fyrir hjón
in.v. 266.667 kr. kaup.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Kirkjusandi • Sími 560 89 00
Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is
FRÉTTIR
62.345 kr. skattírádráttur íyrir
hjón m.v. 266.667 kr. kaup
SKAGFJÖRÐSSKÁLI Ferðafélagsins í Þórsmörk.
Ferðafélag íslands
Yfír 540 tonn
af matvælum
til Rússlands
RAUÐI kross íslands og ríkis-
stjórnin verja samtals um 32 millj-
ónum króna í neyðaraðstoð til þurf-
andi í Rússlandi. Hlutur ríkis-
stjórnarinnar er 14 milljónir og er
einkum um að ræða matvæli, fatn-
að en einnig beinan fjárhagsstuðn-
ing.
Send verða 520 tonn af frystri
loðnu og 22 tonn af síld og verða
matvælin send í janúar. AJþjóða
Rauði krossinn mun sjá um dreif-
ingu matvælanna í Pétursborg og
nágrenni og til sjúkrastofnana og
munaðarleysingjaheimila í Moskvu.
Þegar hafa verið send um 15 tonn
af vetrarfatnaði til Moskvu.
I frétt frá Rauða krossi Islands
segir að mikil neyð blasi nú við í
Rússlandi og talið sé að um 30
milljónir manna búi þar við sára fá-
tækt. Barnmargar fjölskyldur, elli-
lífeyrisþegar, fatlaðir og fólk sem
dvelst á stofnunum hins opinbera
býr við mestu neyðina og er gert
ráð fyrir að dreifa matvælunum og
fatnaði meðal þessara hópa sér-
staklega.
Jólahraðskák-
mót TR 1998
JÓLAHRAÐSKÁKMÓT TR hefst
þriðjudaginn 29. desember með
undanrásum og lýkur 30. desember
með úrslitakeppni samkvæmt
venju. Taflið hefst kl. 20 báða dag-
ana.
Þátttökugjöld eru 500 kr. fyrir
félagsmenn 16 ára og eldri (700 kr.
fyrir utanfélagsmenn) og 300 kr.
fyrir 15 ára og yngri (500 kr. fyrir
utanfélagsmenn). Veittir verða
verðlaunagripir fyrir þrjú efstu
sætin.
Blysför í Elliðaárdal og
áramótaferð í Þórsmörk
FERÐAFÉLAG íslands kveður
ferðaárið á veglegan hátt, annars
vegar með blysför um Elliðaárdal í
dag, þriðjudaginn 29. desember og
svo með árlegri áramótaferð í Þórs-
mörk.
Dvalið verður í Skagfjörðsskála í
Langadal og þar verður fjölbreytt
dagskrá og er enn hægt að fá miða
á skrifstofunni í Mörkinni 6. Farar-
stjórar eru Finnur P. Fróðason og
Guðný Helga Guðmundsdóttir.
Brottför er á miðvikudagsmorgun-
inn kl. 8 frá BSÍ, austanmegin.
Blysförin hefst kl. 18 við hús
Ferðafélags Islands, Mörkinni 6, en
hálftíma fyrir brottfór verða seld
blys á 300 kr. en þátttökugjald er
annars ekkert. Aður en blysförín
hefst mun Skátakórinn syngja
nokkur jólalög. Gengið verður frá
Mörkinni um Sogamýri og yfir
göngubrúna á Miklubraut sem leið
liggur hjá Fákshúsunum inn í El-
liðaárdal. Þaðan verður haldið um
Elliðaárhólma að Geirsnefí en kl.
19.30 verður flugeldasýning Hjálp-
arsveita skáta í Reykjavík. Að sýn-
ingu lokinni verður gengið til baka
að húsi Ferðafélagsins.
Fyrsta dagsferð í byrjun næsta
árs er nýársferð að Básendum en
farið verður á stórstraumsfjöru
sunnudaginn 3. janúar kl. 11 í til-
efni þess að 200 ár eru liðin frá
Básendaflóðinu er var 9. janúar
1798.
Rauði kross íslands
og ríkið saman
í neyðaraðstoð
Þú getur keypt
bréf í sjóðnum á vef VÍB
(www.vib.is), hjáVlB á Kirkjusandi,
í útibúum (slandsbanka og síma-
few þjónustu í síma 575 7575.