Morgunblaðið - 29.12.1998, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Arnór
Sigurvegararnir í minningarmótinu um Hörð Þórðarson. Talið frá vinstri: Asmundur Pálsson, Jakob Krist-
insson, Rúnar Magnússon, Steinunn Þórðardóttir, en hún afhenti verðlaunin, Ragnar Magnússon, Hermann
Friðriksson og Isak Orn Sigurðsson.
Ragnar og Rúnar Magnús-
synir unnu Jólamótið
BRIÐS
B r i d s h ö 11 i n
1» i) n g 1 a b a k k a
MINNINGARMÓTIÐ UM HÖRÐ
ÞÓRÐARSON
27. desember - 136 þátttakendur
BRÆÐURNIR Ragnai- og Rún-
ar Magnússynir sigruðu með
nokkrum yfírburðum í minningar-
mótinu um Hörð Þórðarson sem
Bridsfélag Reykjavíkur og
SPRON héldu sl. sunnudag. Bræð-
urnir tóku forystuna strax í fjórðu
umferð, en spilaðar voru 11 um-
ferðir og fjögur spil milli para, og
héldu henni til loka móts og áttu
um 80 plússtig til góða þegar mót-
inu lauk.
Góð þátttaka var í mótinu eða 68
pör og keppnin um efstu sætin
mikil ef undan er skilið fyrsta sæt-
ið. Öðra sætinu náðu ísak Örn Sig-
urðsson og Hermann Friðriksson
eftir góða skor í síðustu umferðinni
en segja má að Hermann sé sá spil-
ari, sem skotist hefír upp
meistasrastigann nú í haust, en
hann varð Reykjavíkurmeistari á
dögunum með Gylfa Baldurssyni.
Lokastaðan í mótinu:
Ragnar Magnússon - Rúnar Magnússon 337
ísak Örn Sigurðss. - Hermann Friðrikss. 269
Jakob Kristinss. - Ásmundur Pálsson 222
Ljósbrá Baldursdóttir - Einar Jónsson 214
Sigfús Þórðarson - Gunnar Þórðarson 191
Bragi Hauksson - Sigtryggur Sigurðss. 186
Eggert Bergsson - Torfl Asgeirsson 167
Jón Hjaltason - Steinberg Ríkarðsson 156
Keppnisstjóri og reiknimeistari
var Sveinn R. Eiríksson og um
verðlaunaafhendinguna sáu Sig-
urður B. Þorsteinsson formaður
Bridsfélagsins og Steinunn Þórðar-
dóttir, en hún er barnabarn Harð-
ar heitins.
Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélag Reyðarfjarðar
og Eskifjarðar
Þriðjudagskvöldið 22. desember
var spilaður hinn árlegi konfekttví-
menningur BRE. 12 pör tóku þátt
og vora spiluð þrjú spil á milli
para. Vegleg verðlaun vora veitt
fyrir þrjú fyi-stu sætin en úrslit
urðu þessi:
RagnaHreinsdóttir-SvalaVignisdóttir 184
Ámi Guðmundsson - Jóhann Þorsteinsson 179
Oddur Hannesson - Svavar Bjömsson 177
Ásgeir Metúsalemss. - Kristján Kristjáns. 173
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER1998 67
Skafkort
Ny aðferð til að draga
úr reykingum
Að draga úr reykingum með því að fækka daglega reyktum
sígarettum úr 20 stk. í 10 stk. eða skipta úr sterkum sígarettum
í mildar, er oft ekki talin ákjósanleg leið, því við aðstæður sem
þessar fær líkaminn ekki það magn nikótíns sem hann er vanur
að fá og afleiðingin er oft sú að ómeðvitað er reykt af meiri
áfergju þær sígarettur sem reyktar eru, reykurinn sogaður dýpra
niður í lungun. Með þessu móti eykst inntaka líkamans af
skaðlegum efnum sígarettunnar t.d. tjöru og kolmónoxíði.
Svona notast skafkortið:
Nota skal eitt skafkort fyrir hvern dag og gott er að geyma það
t.d. hjá sígarettunum. Skafa skal einn hring á rauða fletinum í
hvert skipti sem sígaretta er reykt og einn hring á græna fletinum
í hvert skipti sem notað er Nicorette® í stað þess að reykja.
Hver hringur á rauða fletínum jafhgildir eixmi
sígarettu. Hver hringur á græna fletinum jafii-
gildir einu stykld af Nicorette® tyggigúmmíi eða
u.þ.b. 5 mínútna notkun á Nicorette® innsogslyfi.
Nánari upplýsingar fást í:
„HAGKAUP n
qpLYFIABDS LYFJA
Skeifunni, Mosfellsbæ Lágmúla, Setbergi
og Akureyri og Hamraborg
NICQRETTE
Dregur úr löngun
Veður og færð á Netinu mbl.is /\L.Liy\f= GITThiXSAÐ NÝTl
Fljótfcbyggjii Hú ej
Gífurlega stór eða mjög lítil fyrir íslenskt veðurfar
Nethyl 2 110 Reykjavík
mbb/HalI PVC húsin frá W.Giertsen í
Noregi eru notuð víða um heim. Allt frá
Svalbarða til Afríku.
Húsin má fá í mörgum stærðum og eru
annað hvort notuð með einfaldri PVC
kiæðningu eða tvöfaldri, Þar sem rúmið á
milli nýtist sem einangrun. Þau geta verið
í einfaidri útfærslu eða sem mjög fullkomin
hús með rafmagni og hita.
iMubb/Hall PVC húsin henta vel
sem stór hús fyrir tímabundnar uppákomur
eins og íþróttamót eða sýningar og einnig
sem varaniega staðsett hús.
'IkíJjög einfalt er að setja húsin upp og taka
þau niður aftur til að setja þau upp á öðrum
stað. Varanlega staðsett Rubb/Hall hús eru byggð
ofan á steyptan grunn.
Wlúsin eru ódýr og koma tiibúin til
uppsetningar og fylgir allt með sem til þarf.
Húsin þola mikinn vindstyrk og snjóþunga
og PVC klæðningin er óbrennanlegt efni sem
þolir alit að 35° frost og 70° hita.
Sími: 510 9100 Fax: 510 9109