Morgunblaðið - 29.12.1998, Page 68

Morgunblaðið - 29.12.1998, Page 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 MORGUNBLADIÐ FRÉTTIR Ný UNESCO-nefnd skipuð MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur skipað nýja UNESCO-nefnd fyrir árin 1999 til 2000. Nefndina skipa: Sveinn Einars- son leikstjóri, fulltrúi fyrir menn- ingarmál og formaður, Guðný Helgadóttir deildarstjóri, fulltrúi fyrir menntamál og ritari, Birgir Tjörvi Pétursson lögfræðingur, full- trúi íyrir málefni ungs fólks, Hall- dór I. Elíasson prófessor, fulltrúi fyrir vísindamál, Urður Gunnars- dóttir blaðamaður, fulltrúi fyrir fjöl- miðla, og Guðni Bragason sendi- ráðunautur, fulltrúi utanríkisráðu- neytisins. Hlutverk íslensku UNESCO- nefndarinnar er að vera ríkisstjórn- inni og sendinefnd íslands á aðal- ráðstefnu UNESCO til ráðuneytis í málum er varða UNESCO og tengiliður milli UNESCO og ís- lenskra mennta-, vísinda- og ann- arra menningarstofnana. Leikfími á Gigtarmiðstöð Vann leikjatölvu í Hermannaleik LEIKFI byrjar aftur hjá Gigtar- miðstöðinni eftir jólafrí 6. janúar nk. og er öllum velkomið að vera með. í boði er þjálfun í 10-14 manna hópum undir handleiðslu sérhæfðs fagfólks. I janúar 1999 verða eftirfarandi hópar í boði: Almenn leikfimi, kín- versk leikfimi, jóga, vatnsleikfimi, sérhæfðir hópar fyrir einstaklinga með vefjagigt og hryggikt og leik- fimi með miklum stuðningi þar sem áhersla er lögð á að örva líkamsvit- und. Leikfimin fer fram í húsnæði GI að Ármúla 5 og vatnsþjálfunin í Sjálfsbjargarlaug í Hátúni. Upplýs- ingar eru gefnar á skrifstofu GI. ------------------ ■ HÚMANISTAFLOKKURINN mótmælir í yfirlýsingu „þeirri skerðingu á persónufrelsi og mann- réttindum sem felst i myndatöku lögregiunnar af þátttakendum í friðsamlegum mótmælum gegn árásum á Irak við Bandaríska sendi ráðið föstudaginn 18. desember sl. Rétturinn til friðsamlegra mót- mælaaðgerða er verndaður sam- kvæmt Stjórnarskrá íslands og Mannréttindayfiriýsingu Samein- uðu þjóðanna," segir í yfirlýsingu Húmanistaflokksins. Á DÖGUNUM stóðu Morgunblað- ið á Netinu, Sambíóin og BT fyr- ir Hermannaleik á mbl.is. Leik- urinn var í tilefni frumsýningar á „Soldier" með Kurt Russel og Jason Scott Lee. Auk miða á myndina áttu þátttakendur í leiknum möguleika á að vinna Sony Playstation-leikjatölvu frá BT. Vinningshöfum hefur verið sendur tölvupóstur auk þess sem hægt er að skoða lista yfír vinn- ingshafa í samnefndum lið í flokknum Dægradvöl á mbl.is. Aðalvinninginn vann að þessu sinni Sigurlaug Mjöll Jónasdóttir sem á myndinni hefur tekið við honum úr hendi Guðmundar Magnasonar markaðsstjóra BT. itiKerti tOtíroa- slK. Skínandi gott verð! Pýramídakerti 45 sm.. ...399,- 35 sm.....199,- 25 sm..... 59." Smáratorgi 1 Holtagörðum v/Holtaveg 200 Kópavogi 104 Reykjavík 510 7000 588 7499 Skeifunni 13 Norðurtanga3 Reykjavíkurvegi 72 108Reykjavík 600Akureyri 220 Hafnarfjörður 568 7499 462 6662 565 5560 Hii »^ i ú j i f | fm k I J i ) i T""T \ [ y-.' 5 \ jx ' / '■./*& / >v ^ | w.. . /.WM Úr dagbók lögreglunnar Annasöm jólahelgi 24. til 28. desember 1998 JÓLAHÁTÍÐIN var að mestu tíð- indalítil fyrii' lögreglumenn á höf- uðborgarsvæðinu. Utköll fremur fá eins og gjaman Á þessum árstíma en verkefni mörg hver þó erfið við- fangs. Umferðarmálefni Um helgina var lögi'eglu tilkynnt um 43 umferðaróhöpp en ekki er vitað um alvarleg slys á fólki. Bifreið var ekið á ljósastaur á Holtavegi við Sæbraut að morgni aðfangadags. Ökumaður kenndi til í hálsi og brjósti og var fluttur á slysadeild. Lögreglu barst tilkynn- ing um miðjan dag á aðfangadag að bifreið hefði verið ekið út af Hafra- vatnsvegi. Er lögregla kom á stað- inn kom í ljós að ökumaður sem grunaður er um ölvun við akstur hafði misst stjórn á bifreiðinni með fyrrgreindum afleiðingum. Þá var bílvelta á Hringbraut við Landspít- alann að kvöldi laugardags. Engin slys urðu á fólki. Brunar Að morgni laugardags var lög- reglu tilkynnt um lausan eld í bíl- skúr í austurborginni. Er lögregl- an kom á staðinn var mikill eldur í skúrnum og hafði hann læst. sig í bifreið sem stóð þar fyrir utan. Slökkvilið kom á staðinn og náði að slökkva eldinn en auk framan- greinds voru skemmdir á íbúðar- húsi við skúrinn. Vökul augu lög- reglu á vettvangi urðu síðan til þess að lagt var hald á um 4 kíló af ætluðum kannabisefnum og var einn húsráðenda handtekinn vegna málsins. Kemur það til viðbótar miklu magni slíkra efna sem hald hefur verið lagt á á síðustu dögum. Þá var lögregla og slökkvilið kallað að fjölbýlishúsi í austurborginni vegna reyks. í ljós kom að kveikt hafði verið í rusli í anddyi'i húss- ins. Skemmtanahald Talsvert fjölmenni sótti skemmtistaði í borginni eftir opn- un þeirra að kvöldi laugardags. Að mestu gekk það skemmtanahald ágætlega fyrir sig þótt alltaf sé eitthvað um samskiptaerfiðleika milli gesta. Einn dyravörður varð að leita aðstoðar á slysadeild eftir að hafa slasast í átökum við gest. Þá var karlmaður stöðvaður af dyravörðum eins skemmtistaðar er hann var á leið út af staðnum með fangið fullt af fötum og handtösku. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Reyndar urðu lög- reglumenn að hafa afskipti af tveimur veitingastöðum sem höfðu opið aðfaranótt laugardags, sem ekki er heimilt samkvæmt lögum um helgidagafrið. Innbrot Um helgina var tilkynnt um 15 innbrot á heimili, í ökutæki og fyr- irtæki. í einu þeirra var brotin rúða í sýningarglugga í verslun á Laugavegi og þaðan stolið nokkrum verðmætum. GLOBALREFUND The World's Leader in Tax Refund Services búsettir erlendis ATHUGIÐ! Allar verslanir merktar með bjóða upp á ca 15% endurgreiðslu afvöruverði við brottfór frá landinu Það marg borgar sig að versla Tax-free EINFALT OG ORUGGT GLOBAL REFUND A ISLANDI Kaplahrauni 15 • 220 Hafnarfjörður Sími: 555 2833 * A eimwgis við viirur sem fluttar eni frá latulinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.