Morgunblaðið - 29.12.1998, Side 76
76 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Léttir og
lystugir
ábætis-
réttir
✓
Við Islendingar höldum fast í okkar
jólasiði, segir Kristín Gestsdottir, svo
sem alltof matarmikla ábætisrétti.
BÖRNIN vilja ekki lengur
þunga rjómabúðinga, og því
skyldum við ekki láta þau ráða?
Bragð er að þá barnið fínnur.
Hægt er um vik þegar nóg er til
af ávöxtum og alls kyns mögrum
mjólkurvörum, við þurfum ekki
allan þennan rjóma. í stað kara-
mellu- og súkkulaðisósu má nota
ferska ávexti og ávaxtasósur með
ís, t.d. kirsuberjasósu, sem fæst
tilbúin í krukkum. Eins er mun
skemmtilegra að bera ábætis-
réttinn fram í smáskálum eða
diskum eins og víðast er gert á
veitingastöðum í stað þess að
skella stórri skál á borðið. Þetta
er einkum hentugt ef mandla er í
„grautnum". Þá þarf enginn að
belgja sig út á honum til að næla
í möndluna. Hægt er að móta
„desertinn" í einnota drykkj-
arílátum og hvolfa úr þegar stíft
er orðið.
Þetta er skrifað sunnudaginn
20. desember og hinn langþráði
jólasnjór er kominn með látum
og ekki öllum til gleði svo sem
kaupmönnum á Laugaveginum.
Snjóinn hefur vantað til að lýsa
upp skammdegið, þó að við séum
dugleg að lýsa upp með alls kon-
ar marglitum perum. A þriðju-
daginn eru vetrarsólstöður og þá
birtir á ný. Vonandi taka flestir
mót komandi jólum og áramótum
með sól í sál og sinni. Gleðilegt
nýár.
Abætisréttir
barnanna
Hér er tillaga að þremur mis-
munandi tegundum af ávaxta-
hlaupi. Hér var notað Toro-hlaup
og notað minna vatn en gefið er
upp á pakkanum, en nota má aðr-
ar tegundir.
1. 1 pk. sítrónuhlaup,
3 dl sjóðandi vatn,
2 ferskar perur
2. 1 pk. jarðarberjahlaup,
4 dl sjóðandi vatn,
200 g fersk jarðarber
3. 1 pk kívíhlaup,
31/2 dl sjóðandi vatn,
150 g steinlaus græn vínber
Sama aðferð er við allar teg-
undir. Hlaupduftið leyst upp í
sjóðandi vatni. Perur afhýddar
og rifnar gróft, settar út í
sítrónuhlaupið. Jarðarber skorin
í sneiðar og sett út í jarðarberja-
hlaupið. Vinber skorin í tvennt,
steinar fjarlægðir, ef einhverjir
eru, þau sett í kívíhlaupið. Ekki
er hægt að nota ferskt kívi, þar
sem í þeim eru efnakljúfar sem
valda því að matarlím stífnar
ekki. Þessu er helt í einnota
drykkjarflát. Bera má vanilluís
með.
Tvískipt
vínberjalaup
Fyrri hlufi
'/2 lítri Ijós vínberjasafi
1 peli sætt hvífvín eða eplasíder
8 blöð matarlím
500 g græn vínber
1. Hellið víninu (sídemum) í
skál. Skerið vínberin í sundur
langsum og takið úr þeim steina.
Setjið í vínið til þess að skurður-
inn dökkni ekki. 2. Leggið matar-
límið í bleyti í kalt vatn í 5 mínút-
ur. Hitið 1-2 dl af vínberjasafan-
um og bræðið matarlímið í hon-
um. Hellið því sem eftir er af
safanum út í og setjið saman við
hvítvínið með vínberjunum.
Hellið í glös á fæti, hallið þeim
síðan þannig að hlaupið verði
skakkt í glasinu, sjá meðfylgj-
andi teikningu.
Síðari hluti
1 peli rjómi + 1 peli mjólk
'/2 vanillustöng eða V* tsk. dropar
5 eggjarauður
2'/2 msk. sykur
7 blöð matarlím
1. Hálffyllið eldhúsvaskinn
með köldu vatni. Setjið lítið kalt
vatn í skál og leggið matarlímið í
bleyti í það.
3. Þeytið eggjarauðurnar vel
með sykri.
4. Setjið mjólk og rjóma í pott,
kljúfíð vanillustöngina, skafíð
kornin innan úr henni út í og lát-
ið sjóða upp. Takið frá 1 dl af
mjólkurblandinu, vindið matar-
límið upp úr vatninu og bræðið í
þessum eina desilítra. Hellið
helming mjólkurblöndunnar í
pottinum út í eggjahræruna og
hellið því síðan saman við það
sem eftir er í pottinum. Bregðið á
heita helluna þar til þetta er við
að sjóða og hefur þykknað en má
alls ekki ná að sjóða, þá skilja
eggin sig. Hafið hröð handtök og
skellið pottinum í kalda vatnið í
vaskinum þar til mesti hiti er
rokinn úr. Hrærið í og setjið
matarlímsblönduna út í. Kælið
án þess að hlaupi saman. Hellið
þessu köldu yfír vínberjahlaupið
í glösunum, setjið í kæliskáp og
látið stífna.
Þegar þetta er borið fram er
smáhrísla af vínberjum hengd á
glasbarminn. Sjá meðfylgjandi
teikningu.
í DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Jólasaga
að norðan
ÞAÐ voru að koma jól.
Nonni litli sem var 8 ára
hlakkaði mikið til og var
orðinn spenntur að fá jóla-
pakkana. Hann hafði tekið
eftir því að pabbi hans var
búinn að fá skrítið spjald
sem hann notaði í búðinni.
Svo núna þurfti hann ekki
að nota peningana sína
lengur. Þetta fannst
Nonna skrítið en hann
varð samt glaður því að oft
höfðu mamma hans og
pabbi talað um, „að þau
vantaði svo mikið peninga“
og sérstaklega um jólin.
Nú voru þessar áhyggjur
þeirra örugglega úr sög-
unni, hélt Nonni. Hann var
mikið að spá í svona hluti
þó að hann væri bara 8
ára, oft hafði mamma hans
sagt við hann að hann ætti
eftir að verða bankastjóri
þegar hann yrði stór.
Tíminn leið og allir voru
að komast í jólaskapið. En
það var eitt sem angraði
Nonna. Fréttirnar í sjón-
varpinu. Þær voru svo
sorglegar. Allir þessir
krakkar sem fengu ekkert
að borða og áttu svo hvergi
heima. Nonni hugsaði mik-
ið um þetta, og þegar hann
fékk vasapeninginn setti
hann hluta af honum í
söfnunarbaukinn, sem
mamma hans hafði sett
upp á ískápinn.
Einn daginn fór Nonni
með pabba sínum í bæinn.
Þeir ætluðu að kaupa jóla-
gjöfína handa mömmu.
Nonni var spenntur því
honum fannst svo gaman
að fara með pabba þegar
þeir voru að velja eitthvað
handa mömmu. Þeir fóru
íyrst í bankann, en fyrst
fór pabbi í hraðbankann.
Setti spjaldið í og viti
menn. Það kom fullt af
peningum út úr kassanum.
Frábært spjald, hugsaði
Nonni litli. Og þá... þá
fékk hann svo frábæra
hugmynd... Aðfangadagur
rann upp. Pabbi átti eftir
að versla smá í matinn og
var að tygja sig til þegar
hann kallaði. Elskan, hefur
þú séð VISA-kortið mitt...?
Að snúa sér
að bæninni
EG ER viss um að margur
maðurinn er ósáttur við
sjálfan sig vegna þess að
jólin, þessi kristilega hátíð,
er honum einungis verald-
leg hátíð. Löngunin býr í
huga hans að nálgast þann
veruleika sem jólin boða,
að sonur Guðs hafi komið í
heiminn til að frelsa synd-
uga menn og að hann sé
lifandi og að unnt sé að
eiga samfélag við hann og
öðlast nýtt líf. Ráðið til
þess að bæta úr þessu er
að snúa sér að bæninni og
sjálfri Biblíunni. í hinni
helgu bók er okkur
leiðbeint um veginn til
frelsarans og það sem
meira er, boðskapur henn-
ar, fagnaðarerindið, skap-
ar trúna í hjartanu, ef til
vill ekki strax en um síðir
ef menn gefast ekki upp.
Og er ekki gott að taka
ákvörðun og byrja þessa
leit einmitt á jólunum? Þá
mætti hefja jólahaldið á
heimilinu með helgistund.
Fjölskyldan sest við hátíð-
arJborðið. Biblían er tekin
fram og lesin jóiafrásagan
í 2. kapítula Lúkasai’guð-
spjalls. Annað hvort lesa
húsbændur eða sæmilega
læst barn. Síðan spenna
allir greipar og biðja stutta
bæn. Ef fólk treystir sér
ekki til að biðja frá eigin
brjósti má fara með t.d.
tvö þekkt bænavers, Ó,
Jesú bróðir besti, og Vertu
Guð faðir faðir minn:
Og að lokum biðja allir
Faðir vor. Með þessu er
frelsarinn beðinn að koma
inn á heimilið og inn í
hjartað. Það er gott að
mega minnast þeiiTa orða
hans að þann sem til hans
kemur muni hann alls ekki
burtu reka. Upphaf þess
að fylgja honum er að opna
hugann í bæn til hans og
gefa gaum að orði hans.
Fróðlegt væri að fá
viðbrögð einhverra sem
tækju upp þennan sið.
Gleðileg jól!
Frændi.
Tapað/fundið
Peysa fannst í poka
á Laugavegi
PEYSA í plastpoka fannst
á Laugaveginum fyrir jól.
Upplýsingar í síma
551 3865.
GSM-sími týndist
GSM-sími, blár Nokia
5110, týndist sl. sunnu-
dagsnótt 20. des. á Þórs-
kaffi. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 565 2653.
SKAK
Um.sjón Margeir
Pétnrsson
STAÐAN kom
upp á Guðmundar
Arasonar mótinu í
Hafnarfirði fyrir
jólin. Svíinn Ralf
Ákesson (2.510)
var með hvítt og
átti leik, en Bragi
Þorfinnsson
(2.235) hafði
svart.
27. Bd5! (Hug-
myndin á bak við
þetta línurof er að
fá ráðrúm til að
leika 28. Dh5 með
óverjandi máthótun á f7)
27. Dcl+? (Flýtir lyrir
ósigrinum. Eina von svarts
var að leika 27. - Dxd5 og
láta drottninguna af hendi.)
28. Kh2 - Del 29. Dh5 og
svartur gafst upp.
Með morgunkaffinu
Ast er...
að elska hann allan, að
meðtalinni bumbunni.
TM Reg. U.S. Pat. Off. — all rigbts reserved
(c) 1998 Los Angeles Times Syndicate
ÞETTAerréttþjáþér,
þetta eru gullstangir.
Víkveiji skrifar...
AUNDANFÖRNUM vikum hafa
fjölmargir rithöfundar og lista-
menn mátt sæta því, að gagn-
rýnendur dagblaðanna og að
nokkru leyti ljósvakamiðlanna hafa
fjallað um bækur þeirra, útgefna
diska með frumsömdum tónverkum
eða flutningi íslenzkra listamanna á
þekktum verkum innlendum og er-
lendum og hefur sitt sýnzt hverjum.
Gagnrýnin umfjöllun er viðkvæmt
mál fyrir rithöfunda og listamenn.
Hún snertir verk, sem þeir hafa
lengi unnið að og sumir þeirra lýsa
því stundum á þann veg, að það sé
eins og verið sé að gagnrýna börnin
þeirra, þegar fjallað er um verk
þeirra með þeim hætti, sem gert er.
En gagnrýnin er ekki bara per-
sónulega viðkvæm. Það getur
varðað mikla hagsmuni hvort hún
er jákvæð eða neikvæð. í sumum
tilvikum getur það ráðið úrslitum
um, hvort bók eða diskur selst eða
hvort leikrit gengur lengi en til allr-
ar hamingju er það ekki aðalreglan.
Þá væru áhrif gagnrýnenda og
fjölmiðla of mikil. Dæmi eru um
það, að mjög neikvæð gagnrýni og
blaðaskrif í kjölfarið geta haft
þveröfug áhrif og stuðlað að aukinni
sölu eða aukinni aðsókn.
Þetta er hins vegar ekkert nýtt
og heldur ekkert nútímafyrirbæri.
Og rithöfundar og aðrir listamenn
geta huggað sig við það, að því fer
fjarri, að gagnrýnendur hafi alltaf
rétt fyrir sér. Mörg fræg dæmi eru
til um það, að þeir hafí þvert á móti
haft kolrangt fyrir sér. Margir þeir,
sem mest hefur verið hampað af
samtíma sínum, eru nú öllum
gleymdir en þeir, sem urðu fyrir
mestu mótlæti í þessum efnum hafa
skilið eftir sig verk, sem eru í há-
vegum höfð.
XXX
EINN frægasti píanókonsert
allra tíma er fyrsti píanókonsert
Tsjajkovskís. Hann var saminn fyrir
120 árum og er nú til í 75 mismun-
andi útgáfum á geisladiskum. I stór-
merkri ævisögu tónskáldsins, sem
brezki blaðamaðurinn og rithöfund-
urinn Anthony Holden hefur skrif-
að, segir frá viðtökunum, sem píanó-
konsertinn fékk.
„Einskis virði“, „ekki hægt að
spila hann“, „klaufalegur", „rudda-
legur“. Þetta voru nokkur þeirra
orða, sem Nikolaj Rubinstein, mikill
áhrifamaður í rússnesku tónlistarlífí
lét falla um píanókonsertinn, þegar
Tsjajkovskí spilaði hann fyrir hann í
fyrsta sinn.
Nikolaj Rubinstein settist sjálfur
við píanóið og byrjaði að spila, sneri
sér að Tsjajkovskí og og æpti á
tónskáldið: „Þetta til dæmis, hvað á
þetta að vera? Og þetta? Það er úti-
lokað að þú hafír ætlað þér þetta.“
Tsjajkovskí gekk þegjandi út úr
herberginu og Rubinstein elti hann,
endurtók gagnrýni sína og lagði til
ákveðnar breytingar. Svar
tónskáldsins var: „Ég breyti ekki
einni einustu nótu. Ég gef verkið út
nákvæmlega eins og það er.“
XXX
RUBINSTEIN átti eftir að
breyta afstöðu sinni til fyi-sta
píanókonsei-tsins og stjómaði flutn-
ingi hans, þegar hann var fluttur í
Moskvu í fyrsta sinn, en viðtökur
rússneskra gagnrýnenda voru mjög
daufai- eftir að konsertinn var fyrst
fluttur í Rússlandi en það var í Pét-
ursborg. Öðru máli gegndi um
Bandaríkin, en þar var konsertinn
fluttur opinberlega í fyrsta sinn áður
en hann var leikinn á tónleikum í
Rússlandi. Það var þýzld píanistinn
Hans von Biflow, sem lék hann í
Boston árið 1875 og þar fékk hann
strax miklar og jákvæðar undirtektir.
Nú ætlar Víkverji ekki að halda
því fram, að um þessi jól hafí komið
út listaverk, sem eigi eftir að lifa
jafn lengi og píanókonsert Tsjajk-
ovskís. Þó er aldrei að vita. En það
er nokkur huggun fyrir þá, sem
leggja verk sín undir almanna dóm
að vita, að fyrstu viðbrögð gagn-
rýnenda eru enginn endanlegur
dómur, eins og fjölmörg dæmi
sýna.