Morgunblaðið - 29.12.1998, Síða 79
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 79
FOLK I FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Laugarásbíó, Stjörnubíó, Regnboginn og Nýja bíó
í Keflavík sýna um jólin myndina Rush Hour með Jackie Chan og Chris
_______________Tucker í aðalhlutverkum.________
Bardag’ahetj an og kjaft-
askurinn leysa vandann
Frumsýning
MESTA bardagahetja Aust-
urlanda og mesti kjaftask-
ur Vesturlanda taka sam-
an höndum í myndinni Rush Hour.
Þetta era Jackie Chan og Chris
Tucker.
Chan leikur lögregluforingjann
Lee, sem er aðalmaðurinn í lög-
reglunni í Hong Kong. Lee er
hörkutól og heiðarleg lögga en
hann er ekki mikill fyrir mann að
sjá og þess vegna dettur engum
sem sér hann í fyrsta skipti í hug
að hann sé snillingur í bardagaí-
þróttum og frægur meistari.
Uppáhaldsnemandi Lee er 11
ára dóttir kínversks auðmanns.
Þegar henni er rænt í Ameríku af
brjáluðum glæpamanni, sem drap
líka félaga Lees, er Lee
sendur til Ameríku til
þess að bjarga stúlkunni.
Bandarískum lög-
regluyfirvöldum líkar
ekki að verið sé að segja
þeim fyiir verkum með
því að senda einhvern út-
lending til aðstoðar. Þess
vegna felur FBI mesta
vandræðamanni lögregl-
unnar í Los Angeles það
verkefni að aðstoða Lee.
Aðstoðarmaðurinn
heitir James Carter
(Chris Tucker) og hann
er ósvífinn, skeytingar-
laus, hrokafullur og fer
svo mikið í taugarnar á fólki að
það neita allir að vinna með hon-
um.
Carter heldur fyrst að þarna sé
komið tækifæri fyrir sig til að
koma sér vel við FBI en uppgötvar
svo að hann á bara að vera
barnapía og koma í veg fyrir að
litli Kínverjinn sé að þvælast fyrir
við rannsóknina. En eins og svo
margir aðrir vanmeta bæði Cai'ter
og FBI Lee og áður en nokkur veit
er hann búinn að stinga báða aðila
af, kominn á kaf í málið og fai’inn
að sýna snilli sína í bardagaíþrótt-
um.
Þeir sem hafa séð myndir með
Jackie Chan vita að þar fer ein-
stakur hæfileikamaður í bardaga-
listum og auk þess leikur hann
sjálfur öll þau óti-úlegu áhættuat-
riði, sem pi'ýða myndir hans. Und-
anfai’in 12 ár hefur Jackie Chan
bara leikið i myndum, sem gerðar
eru í Hong Kong, en hafa síðan
verið sýndar um allan heim. Áður
hafði hann reynt að leiKa í vest-
rænum kvikmyndum en orðið fyrir
vonbi-igðum. Hann hafði lent í for-
múlumyndum hjá kvikmyndagerð-
armönnum sem skynjuðu ekki
hverslags hæfileikum Jackie bjó
yfir.
Jackie tókst þess vegna það sem
engum hafði tekist síðan Bruce
Lee var og hét, að verða kvik-
myndastjarna á Vesturlöndum
með því að leika í kvikmyndum,
sem gerðar eru í Hong Kong.
Rush Hour er fyi-sta myndin í 12
ár þar sem Jaekie vinnur fyrir
bandan'skt kvikmyndafyi-irtæki.
„Ég vandaði mig mikið,“ segir
Jackie Chan. „Ég valdi að vinna
með Roger Bii-nbaum, sem er
þekktur framleiðandi, Bi-ett
Ratner, leikstjóra, sem er fullur af
orku; og Chris Tucker, sem er ein-
hver fyndnasti leikari, sem til er.
Vegna þeii’ra ákvað ég að slá til
núna og vinna fyi’ir Bandaríkja-
menn aftur.“
Chi-is Tucker, sem síðast sást
hér á landi í Lethal Weapon 4, hef-
ur lengi vei’ið vinsæll sjónvarps-
CARTER og Lee lenda í ýmsu í Rush Hour.
leikari en sló í gegn sem kvik-
myndaleikai’i með myndinni Mon-
ey Talks, sem Brett Ratner leik-
stýrði einnig. Eftir þá mynd var
hann að drukkna í alls kyns tilboð-
um. Hann valdi að leika með
Jackie Chan. „Ég fann að það yrði
sérstakt _ samband milli okkar
tveggja. Ég bandarískur og hann
úr ólíkum menningarheimi. Þetta
gaf mikið svigním til að skapa eitt-
hvað skemmtilegt."
Tucker segir að hann og Jackie
hafi verið sammála um hvers lags
mynd þeir vildu gei’a. „Við vildum
ekki mynd með miklu af spreng-
ingum. Ég vil gei’a þessa litlu
hluti, sem koma fólki til að hlæja.“
Jackie Chan er hóg\'ær eins og
austi’ænna manna er siður. I flest-
um viðtölum eys hann samstai’fs-
menn sína hrósi en segist líka hafa
séð í handi’iti myndai’innar tæki-
færi til að standa undir auknum
kröfum sem leikari. „Þessi mynd
sýnir persónuleika minn mun bet-
ur en Hong Kong myndirnar
gerðu,“ segir Jackie Chan um
Rush Hour, myndina, sem fór
beint á topp aðsóknarlistans í
Bandaríkjunum þegar hún var
framsýnd.
JACKIE Chan snýr aftur
til Hollywood í niyndinni
Rush Hour í hlutverki
löggunnar Lee.
BIOIN í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/ Arnaldur Indriðason/ Hildur Loftsdóttir
BÍÓBORGIN
Soldier ★★
Kurt Russell ærið fámáll í
dæmigerði’i rambómynd. Góð
sviðsmynd en lítilfjöriegt inntak.
Mulan ★ ★ ★ V2
Disneymyndir gerast vart betri.
Fín tónlist, saga og teikningar.
Afbragðs fjölskylduskemmtun.
Ég kem heim um jólin ★ ★
Alveg ágæt grínmynd fyrir ung-
lingana. Jonathan Taylor-Thom-
as er bæði fyndinn og sætur í
aðalhlutverkinu.
SAMBÍÓIN,
ÁLFABAKKA
Practical Magic ★★
Náttúrulitlar en ekki óaðlaðandi
nornir í ráðvilltri gamanmynd.
The Negotiator ★★‘/2
Góðir saman, Jackson og
Spacey, en lengd myndai’innar
ekki raunhæf.
Mulan ★★★’/2
Sjá Bíóborgin.
Ég kem heim um jólin ★ ★
Alveg ágæt grínmynd fyrir ung-
lingana. Jonathan Taylor-Thom-
as er bæði fyndinn og sætur í
aðalhlutverkinu.
Töfrasverðið ★★
Warner-teiknimynd sem nær
hvorki gæðum né ævintýrablæ
Disney-mynda.
HÁSKÓLABÍÓ
Hvaða draumar okkar
vitja ★★★
Meðan við fei’ðumst milli helvítis
og himnai’íkis fáum við tilsögn
um tilgang lífsins í fallegi’i ævin-
týramynd fyrir fullorðna.
Ut úrsýn ★★★
Ástin grípur í handjárnin milli
löggu og bófa að hætti Elmores
Leonai’ds, sem fær ágæta með-
höndlun að þessu sinni. Fyndin,
fjörug, ki-ydduð fui’ðupei’sónum
skáldsins sem ei’u undur vel
leiknar yfir línuna.
Maurar ★★★
Frábærlega vel gei’ð tölvuteikni-
mynd. Leikai’avalið hið kostu-
legasta með Woody Allen í far-
ai’broddi. Fínasta skemmtun
fyrir fjölskylduna.
KRINGLUBÍÓ
Practical Magic ★★
Sjá Sambíóin, Álfabakka.
Negotiator ★★V2
Góðh’ saman, Jackson og
Spacey, en lengd myndarinnar
ekki raunhæf.
Mulan ★★★‘/2
Sjá Bíóborgin.
Foreldragildran ★★
Rómantísk gamanmynd um tví-
bura sem reyna að koma for-
eldrum sínum saman á ný.
Stelpumynd út í gegn.
LAUGARÁSBÍÓ
Rush Hour ★★Ví2
Afbragðsgóð gamanmynd með
Chris Tucker og Jackie Chan en
hasarhliðin öllu síðri.
The Odd Couple II ★
Ósmekklegheit og subbuskapur
era aðalki-yddið í þessari klisju-
súpu.
The Truman Show ★★★★
Jim Carrey fer á kostum í frá-
bærri ádeilu á bandaríska sjón-
vai’psveröld. Ein af frumlegustu
og bestu myndum ái’sins.
REGNBOGINN
Rush Hour ★★'/2
Sjá Laugarásbíó.
There’s Something About
Mary ★★★
Klúr, dásamleg, ýkt, þorin og
sérlega fyndin kvikmynd um
Maríu og vonbiðlana.
STJÖRNUBÍÓ
Rush Hour ★★V2
Sjá Laugarásbfó.
Sögusagnir ★★
Enn einn B-blóðhrollurinn,
hvorki verri né betri en fjöldi
slíkra eftirlíkinga. Stelpurnar
góðar og bara að myndin
væri jafn hressileg og upphafs-
atriðið.
Sílkíbolir - Margir litir
Glugginn
Laugavegi 60, sími 551 2854