Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 88

Morgunblaðið - 29.12.1998, Blaðsíða 88
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 29. DESEMBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Átta manns í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnamála Yfír 10 kíló af fíkniefnum tek- in úr umferð YFIR 10 kg af fíkniefnum hafa verið tekin af Islendingum í des- ember bæði hérlendis og í Þýska- landi. Alls er hér um að ræða sex mál og sitja nú átta manns í gæslu- varðhaldi í tengslum við fimm mál- anna. Rannsókn þeirra alh-a er enn gangi. Enginn hafði síðdegis í gær verið handtekinn vegna vímu- efna sem skilin vom eftir í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar skömmu fyrirjól. Omar Smári Armannsson yfir- lögregluþjónn segir að lögreglan hér fylgist náið með uppruna fíkni- efna sem hingað berast. Því sé nú ekki síður lögð áhersla á að ná er- lendis þeim Islendingum sem vitað er að stundað hafi innflutning eit- urlyfja og hyggi ef til vill á áfram- haldandi innflutning. Því fylgist lögregla hér og erlendis með þekktum fíkniefnasölum og skiptist á upplýsingum. Slík samvinna leiddi til hand- töku að minnsta kosti þriggja manna í Þýskalandi og Lúxemborg nýlega. Þau mál eru öll til rannsóknar hjá þýskum lögreglu- yfirvöldum og má búast við að fólki sitji í gæsluvarðhaldi þar til dómur verður kveðinn upp í mál- um þess. Að undanförnu hefur verið komið í veg fyrir flutning á rúm- um tveimur kílóum af kókaíni hingað til lands og 1,4 kg af am- fetamíni. Þá hefur verið lagt hald á 6,7 kg af hassi hérlendis og um 630 grömm af kókaíni síðustu daga. Af þessu magni voru tvö kg sem fundust í salerni í Leifsstöð 22. desember. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlækn- ir á Vogi, segir að meira sé nú í umferð af kannabisefnum og am- fetamíni og að neysla kókaíns sé vaxandi hérlendis. ■ Átta í varðhaldi/44 Morgunblaðið/Björn Gíslason Nýstofnað eignarhaldsíelag í Lúxemborg eignast 16,9% hlutafjár í FBA Heildarkaupverðið tæp- lega 2,2 milljarðar króna EIGNARHALDSFÉLAG í Lúx- emborg, Scandinavian Holding S.A., sem er í vörslu Kaupthing Luxembourg S.A. hefur keypt 16,9% hlut í Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins af sex sparisjóðum og dótturfélögum á tæpa 2,2 milljarða króna. Jafnframt hefur Scandinavi- an Holding atkvæðisrétt yfir 4,1% af heildarhlutafé bankans. Samtals hefur félagið því atkvæðisrétt yfir 21% í FBA. Viðskiptastofa SPRON hefur selt Scandinavian Holding eignar- hlut sparisjóðanna og dótturfélags í FBA að nafnvirði 671,5 milljónir króna. Eignarhlutur þeirra fer því úr 9,9% niður í óverulegan hluta. Kaupþing hefur einnig selt Scand- inavian Holding allan eignarhlut sinn í bankanum ásamt atkvæða- rétti að nafnvirði 476 milljónir króna og fer beinn eignarhlutur Kaupþings í FBA úr 7% niður í 0%. Aður hafði Kaupþing selt öðrum aðilum 2% hlut í FBA. Að sögn Guðmundar Hauksson- ar, sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis og stjórnarformanns Scandinavian Holding, voru bréfin seld á geng- inu 1,88 sem er sama gengi og sparisjóðirnir keyptu hlutinn á af Búnaðarbanka Islands og við- skiptavinum hans í síðustu viku. Heildarsöluverðmæti bréfanna er 2.157,3 milljónir króna. Scandinavian Holding S.A. var stofnað nýverið vegna kaupanna á hlutabréfunum í FBA en hluthafar eru: Kaupþing hf., Sparisjóður Hafnarfjarðar, Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, Spari- sjóður vélstjóra, Sparisjóðabanki íslands hf., Spai’isjóður Mýrasýslu, Sparisjóðurinn í Keflavík og Spari- sjóður Siglufjarðar. Að sögn Guð- mundar verður félagið síðar opnað fyrir öðrum sparisjóðum. Getur opnað dyr að íslenskum markaði Guðmundur segir söluna vera eðlilegt framhald af því vinnulagi sem sparisjóðirnir hafi haft í við- skiptum sem þessum. „Við eigum mikið samstarf á mörgum sviðum og jafnan í gegnum dótturfélög sem sparisjóðirnir eiga saman. Sparisjóðirnir og dótturfélög eiga orðið umtalsverðan hlut í Fjár- festingarbanka atvinnulífsins og við teljum að það fari vel á því að haldið sé utan um þessa eign með sama hætti og við gerum í öðrum félögum. Ein af ástæðunum fyrir því að félagið er skráð í Lúxemborg er til þess að geta opnað dyi' fyrir alþjóðlega fjárfesta inn á íslenskan markað. Islenskur fjármagns- markaður er ekkert einangrað fyr- irbæri heldur tengist hann alþjóð- legum mörkuðum. Kaupþing hefur haslað sér völl í Lúxemborg og við eigum nokkur félög þar nú þegar. Erlendir aðilar þekkja lagalega umhverfið í Lúxemboi'g og upp- byggingu félaga á þessum grunni en ekki ísland og það umhverfi sem við störfum í. Því töldum við betra að stíga þetta skref strax sem við kynnum ef til vill að stíga síðar,“ segir Guðmundur. Guðmundur telur ekki tímabært að tjá sig um það á þessu stigi hvort Scandinavian Holding muni áfram eiga hlutinn í FBA eða Hvort hann verður seldur. „Við ákváðum að halda utan um eignar- hlutinn í FBA í gegnum dótt- urfélag. Hvernig þetta verður í framtíðinni á eftir að koma í ljós meðal annars hvernig staðið verð- ur að sölunni á 51% hlutafjár í FBA sem ríkið á eftir að selja. Hvort við komum að því verður að ráðast. Fyrr en við vitum með hvaða hætti salan fer fram á þeim hlut get ég ekki tjáð mig um hvort við höfum hug á að eignast stærri hlut en það er ekki ólíklegt,“ segir Guðmundur Hauksson. Forskot á áramótin JÓLAHÁTÍÐIN var varla um garð gengin er farið var að und- irbúa áramótin. Hjálparsveit skáta á Akureyri stóð fyrir flug- eldasýningu á sunnudag og lýsti hún fagurlega upp kirkjuna og miðbæ Akureyrar. ------------- Tillögu um opið prófkjör vísað frá SAMKOMULAG A-flokkanna um prófkjör í Reykjavík var samþykkt á fundi kjördæmisráðs alþýðu- bandalagsfélaganna í Reykjavík í gærkvöldi með þeirri viðbót að lögð var áhersla á að áfram yrði leitað leiða til að ná samkomulagi við Kvennalistann og Jóhönnu Sigurð- ardóttur. Tillögu Helga Hjörvars borgarfulltrúa og Bryndísar Hlöðversdóttur alþingismanns, um að kjördæmisráðið legðist ekki gegn því að kjósendur í prófkjörinu gætu kosið milli hólfa var vísað frá með 33 atkvæðum gegn 25. Tillaga Bryndísar og Helga gerði ráð fyrir að prófkjörið yrði opið líkt og verður á Reykjanesi þannig að stuðningsmenn Alþýðubandalagsins geti kosið frambjóðendur hinna flokkanna og öfugt. Talið er að Kvennalistinn hefði betur getað sætt sig við þessa útfærslu en þá sem A-flokkarnir náðu saman um. Bæði Alþýðuflokkurinn og Alþýðu- bandalagið hafa staðfest tillöguna og lítur út fyrir að Kvennalistinn standi nú frammi fyrir því að samþykkja hana eða hafna henni. Aflaði fyrir 775 milljónir í ár BALDVIN Þorsteinsson EA, frystitogari Samherja hf., á Akureyri veiddi um 7.100 tonn af fiski á þessu ári og er verðmæti aflans um 775 milljónir króna. Eftir því sem næst verður komist er þetta mesta afla- verðmæti sem íslenskt fískiskip hefur komið með að landi á einu ári. Baldvin Þorsteinsson kom nýr til landsins árið 1992 og hefur á hverju ári síðan verið með mesta aílaverðmæti íslenskra skipa. Aflaverðmæti skipsins á síðasta ári var um 670 milljónir. Arnar HU, frystitogari Skag- strendings á Skagaströnd, kemur næstur á eftir Baldvini Þorsteins- syni með um 750 milljónir í afla- verðmæti. Afii skipsins upp úr sjó er um 5.500 tonn, en þar af eru um 2.800 tonn af þorski. ■ Aflaverðmætið/18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.