Morgunblaðið - 03.01.1999, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrsta barn ársins
komið heim
FYRSTA barn ársins er drengur
og fæddist hann á Landspítalan-
um þegar um fimmtíu mínútur
voru liðnar af nýja árinu. Frum-
burður Berglindar Valberg, 24
ára, og Óttars Hlíðars Jónssonar,
26 ára, var 13 merkur og 49
sentímetra langur við fæðingu og
eyddi fyrsta deginum heima hjá
foreldrum sinum í gær.
„Þetta var erfiðara en ég
bjóst við og ég hélt að þetta
væri búið þegar hríðirnar
minnkuðu en þá fyrst hófst erf-
iðið. Þetta gekk reyndar svo
fljótt fyrir sig að ég get ekki
kvartað," sagði Berglind sem
naut ekki aðeins aðstoðar föður
drengsins heldur mæðra þeirra
beggja. Berglind og Óttar Hlíð-
ar voru í svokölluðu MFS-
prógrammi þar sein lögð er
áhersla á þátttöku föðurins og
þægilegar aðstæður.
„Það var gott að geta bæði
fengið að vera með barninu
fyrstu nóttina og þetta var alveg
frábært. Hríðirnar hófust um
klukkan þrjú á gamlársdag og
voru með reglulegu millibili fram
eftir kvöldi. Um miðnætti fór hún
að fá harðari hríðir og var búin
að fæða tíu mínútum fyrir klukk-
an eitt,“ sagði Óttar Hlíðar sem
tekur sér tveggja vikna feðraor-
lof til að vera með fjölskyldunni.
Hann sagði greinilegt að þátt-
taka feðra í fæðingunni væri að
aukast og flestir væru hættir að
bíða frammi á göngunum. „Það
var nú ekki mikið sem ég gat
gert. Ég var með kaldan klút á
enninu á Berglindi og hvatti
hana áfram. Þetta tók á og það
var smástress en hún sá um erf-
iðið,“ sagði Óttar Hlíðar.
Litlu munaði að pabbinn
fengi soninn í afmælisgjöf
Að sögn Berglindar kom það
skemmtilega á óvart að drengur-
inn skyldi vera fyrsta barn árs-
ins. „Klukkan var að verða eitt
og venjulega fæðist fyrsta barnið
rétt eftir miðnætti. Það munaði
reyndar litlu að Óttar Hlíðar
fengi barnið í afmælisgjöf því
hann á afmæli á gamlársdag."
Ljósmyndari blaðsins heimsótti
fjölskylduna á heimili hennar í
gær. „Okkur finnst voða gott að
vera komin heim og erum mjög
ánægð með þetta fyrirkomulag.
Sá stutti er að átta sig á aðstæð-
um og hefur aðeins látið heyra í
sér,“ sagði hin stolta og ánægða
móðir.
Drengurinn hefur ekki verið
nefndur og að sögn Berglindar
hafa engin nöfn verið rædd. Þau
eiga það vandasama og skemmti-
Iega verk fyrir höndum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjórir lögreglumenn úr Reykjavík þreyttu nýárssund í Nauthólsvík
Sjávarhiti mínus ein gráða
Ljósmynd/Eíríkur
SUNDKAPPARNIR fjórir: Frá vinstri: Stefán Vagn Stefánsson,
Hermann Baldursson, Jón Otti Gíslason og Eiríkur Óskar Jónsson.
FJÓRIR lögreglumenn tóku sig til
og syntu nýárssund sem þeir stefna
á að verði árlegur viðburður héðan í
frá. Menn þreyttu nýárssund hér-
lendis frá því um 1910 til þriðja ára-
tugarins, þegar þessi siður lagðist af,
en víða erlendis er algengt að menn
steypi sér til sunds í köldum ám og
vötnum við þessi tímamót. Lögreglu-
mennimir syntu í Nauthólsvík og
var sjávarhiti mínus ein gráða.
Jón Otti Gíslason, lögregluvarð-
stjóri og einn fjórmenninganna sem
skipa Sjósundfélag Lögreglunnar í
Reykjavík, segir að í upphafi aldar-
innar hafi nýárssundið verið 50
metrar en þeir hafi ákveðið að
synda hundrað metra. Voru þeir
um tvær mínútur að synda þá leið.
Lofthiti var um tvær gráður.
Ósmurðir í sundskýlum
„Gömlu harðjaxlarnir kepptu í
fimmtíu metra sundi og voru frá
fjörutíu sekúndum að synda þá leið
og upp úr. Við létum keppnina eiga
sig, fórum út í á skýlunum einum
fata og ósmurðir, til þess fyrst og
fremst að vekja upp gamlan og
góðan sið. Allir lögreglumenn hafa
líka gott af að finna hvernig sjórinn
er við þessar aðstæður, ef eitthvað
kemur upp á. Ég er aldursforseti í
félaginu en þetta eru harðir strákar
og í góðu formi og engum varð
meint af,“ segir Jón.
„Sjórinn var ekki svo kaldur þeg-
ar við fórum ofan í, en eftir tvær
mínútur fundum við að tær og fmg-
ur voru nokkuð dofin en líkaminn
var að öðru leyti í lagi. Við drifum
okkur strax í heita sturtu og þetta
var ekkert tiltökumál."
I grein Páls Einarssonar sagn-
fræðings í tímaritinu Sagnir árið
1984 kemur fram að fyrsta nýárs-
sundið hafi verið háð 1910 í Reykja-
víkurhöfn. Guðjón Ólafsson úrsmið-
ur gaf bikar til keppninnar og
skyldi sá hljóta hann til eignar sem
ynni þrjú ár í röð. Stefán Ólafsson
var fyrstur í mark og synti á 48
sekúndum en alls kepptu sex
manns og voru þeir „allir harðgerð-
ir menn og köldu vanir enda vottaði
ekki fyrir hrolli í þeim þegar þeir
komu af sundinu", segir í umfjöllun
Lögréttu um sundið það ár. Ari síð-
ar bar Stefán aftur sigur úr býtum
á 42 sekúndum. Þriðja árið sigraði
sextán ára gamall piltur, Erlingur
Pálsson, síðar yfírlögregluþjónn í
Reykjavík, og synti hann á 37,5
sekúndum. Erlingur varð síðan
mjög sigursæll í sundmótum þess-
um og síðar bróðir hans, Jón.
Mótin féllu niður 1920 og 1921 en
voru haldin tvívegis næstu ár á eft-
ir. Fimmta janúar 1923 kom fram
það sjónarmið í Morgunblaðinu að
„mjög virðist misráðið að halda
kappsundið að vetrinum til og
sundlistinni lítill hagur af slíkum
mótum sem alha hluta vegna ætti
að halda að sumarlagi“. Féllu mótin
niður eftir það.
Sund Sjósundfélags lögreglunn-
ar á nýársdag hófst klukkan 10.30
um morguninn og segh’ Jón Otti að
það hafi ekki verið fyrr en að loknu
sundi sem hann hafi komist að því
að fyrir tilviljun höfðu þeir valið
sama tíma og fyrsta nýárssundið
hófst á fyrir 89 árum.
Blaðinu í dag fylgir tólf síðna aug-
lýsingablað frá Heilsuhúsinu „Þín
heilsa í þínum höndum“.
BAÐOUSIB
NYTT OG BETRA LIF
FYFUR ALLAR KÖNUR
ARI
Ný tækifæri í
lífeyrismálum
* ■
,!UU‘ t
>*j *•)« UMI tUtumttíMtuiéh
»«. Mt XMUU MMUI w J
m im itiml.
* «tm
U Ut»»MttMw I wt<M *■.
kM4in«lMiMM i/ttHUfí
VÍB
* WI»|ll(«i»r*|l*W>M«-*4 ij W«« I ^
m«nikMmW.i*»!«m.|i/n», ISLANOS ÖAA'kl
Blaðinu í dag fylgir átta síðna aug-
lýsingablað frá Baðhúsinu, „Nýtt og
betra líf fyrir allar konur á nýju ári“.
Því er dreift á höfuðborgarsvæðinu.
Blaðinu í dag fylgir auglýsingabæk-
lingur frá VIB og Islandsbanka
„Nýtt tækifæri í lífeyrismálum".
Mest selt af
Toyota í fyrra
TOYOTA var söluhæsta bifreiða-
tegundin á síðasta ári. Samkvæmt
bráðabirgðatölum Skráningarstof-
unnar voru 2.382 bílar af þeim teg-
und fluttir inn, og voru það 16,78%
af heildarinnflutningnum.
Listinn yfir 10 söluhæstu bílateg-
undirnar er þannig:
Toyota 2.382 bílar 16,78%
Volkswagen 1.400 bílar 10,3%
Nissan 1.198 bílar 8,81%
Subaru 1.107 bílar 8,14%
Mitsubishi 873 bflar 6,42%
Opel 790 bílar 5,81%
Suzuki 749 bílar 5,51%
Hyundai 621 bíll 4,57%
Honda 604 bílar 4,44%
Renault 527 bílar 3,88%
Ógnaröld í Alsír
►Blóðug borgarastyrjöld hefur
geisað í Alsír undanfarin ár. /12
Af Jóni lærða
► í nýnl bók segir Einar G. Pét-
ursson, sérft-æðingur á Árnastofn-
un, sögu Jóns lærða og gefur jafn-
framt út tvö rita hans. /20
Vandasamt að breyta
eldislaxi í villtan lax
► Einar Lúðvíksson sleppimeist-
ari við Eystri-Rangá hefur lengi
fengist við seiðasleppingar. /24
Erum ósýnilegir
►í Viðskiptum/Atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Jakob Sig-
urðsson, fyn-v. handboltakappa,
nú ft'amkvæmdastjóra hjá efnafyr-
irtækinu Rohm and Haas. /30
►l-24
Stríðshetja í helgan
stein
►Um áramótin hætti Heigi Hall-
varðsson hjá Landhelgisgæslunni
eftir rúmlega hálfrar aldar starf -
um helming þess tíma sem skip-
herra. /1&12-14
Bragð, útlit og hollusta
► Kannanir benda til þess að ís-
lenskt grænmeti sé hreinna og
bragðmeha en það innflutta. /4
Hernaðarumsvif í Hval-
firði eftir heimsstyrj-
öldina síðari
► Grein um afdrif herstöðva og
mannvirkja og umsvif í Hvalftrði
að styrjöldinni lokinni. /8
KFUM og K 100 ára
► l-4
Dferðalög
► l-4
Af kúm, pöddum og
mengun í Nýju Delhí
► KÝR eru algeng sjón á Ind-
landi. /1
Náðum í skottið á
Keikó-traffíkinni
►Gistiheimilið María er í Vest-
mannaeyjum. /4
E BÍLAR
► l-4
Frá Þingvöllum í hnatt-
ferð á Benz GLK
►jim Rogers hélt frá Þingvöllum
á nýársdag í hnattför. /2
Reynsluakstur
►Breyttur og
endurbættui' Renault Clio. /4
Fatvinna/
RAÐ/SMÁ
► l-20
Alls um 80 starfsmenn
hjá OZ
► Kaupa Concorde Axapta-við-
skiptahugbúnað. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 50
Leiðari 32 Stjörnuspá 50
Helgispjall 32 Skák 50
Reykjavíkurbréf 32 Fólk í fréttum 54
Skoðun 36 Utv/sjónv. 52,62
Minningar 38 Dagbók/veður 63
Myndasögur 48 Mannl.str. 18b
Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 22b
ídag 50
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6