Morgunblaðið - 03.01.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.01.1999, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 27/12 ‘98 - 2/1 ‘99 ►SAMKOMULAG náðist um að atkvæðagreiðsla færi fram meðal starfsmanna Landssímans hf. um tilbuð fyrirtækisins um gerð vinnu- staðasamninga, en Rafíðnað- arsambandið hafði lýst yfír óánægju með atkvæða- greiðsluna og vinnubrögð stjórnenda Landssímans i málinu. ►41 EINSTAKLINGUR lést af slysförum á árinu sem leið. Þar af létust 27 manns í umferðarslysum, og er það mikil fjölgun miðað við síð- ustu tvö ár þar á undan, þeg- ar 11 og 17 manns fórust í umferðarslysum. ►NÝSTOFNAÐ eignar- haldsfélag í Lúxemborg, Scandinavian Holding S.A., sem er í vörslu Kaupthing Luxembourg S.A. keypti 16,9% hlut í Fjárfestingar- banka atvinnulífsins af sex sparisjóðum og dótturfélög- um á tæpa 2,2 miiljarða króna. ►ELDGOSINU, sem hófst í Grímsvötnum hinn 18. des- ember sl., lauk sköinmu fyr- ir áramót. Að sögn jarðvís- indamanna mældist enginn órói á jarðskjálftamælum frá klukkan 14 mánudaginn 28. desember, að frátalinni smá- hviðu. Töldu þeir gosinu lok- ið og afléttu Almannavarnir ríkisins þeim viðbúnaði sem verið hafði frá upphafí goss- ins. ► AÐGÖN GUMIÐ AR á tón- leika Bjarkar Guðmunds- dóttur söngkonu sem haldnir verða í næstu viku í Þjóð- leikhúsinu seldust upp á 20 minútum. Um 300 manna biðröð myndaðist fyrir utan Þjóðleikhúsið þegar miða- sala á tónleikana hófst og ekki fengu allir miða. Yfír 10 kg af fíkniefnum tekin úr umferð YFIR 10 kg af fikniefnum voru tekin af Islendingum í desernber, bæði hérlend- is og í Þýskalandi. I vikunni sem leið sátu átta manns í gæsluvarðhaldi í tengslum við fímm málanna. Lögreglan hefur lagt áherslu á að fylgjast náið með uppnma fíkniefna sem hingað ber- ast og hefur samvinna við lögreglu á meginlandinu leitt til handtöku að minnsta kosti þriggja manna í Þýska- landi og Lúxemborg nýlega. SÍF og Íslandssíld sameinast STJÓRNIR SÍF hf. og Íslandssíldar hf. undirrituðu samkomuiag um samruna félaganna. Samruninn gildir frá og með fyrsta október sl. og verður hið samein- aða félag rekið undir nafni SÍF. Reikn- að er með að heildarvelta SÍF-sam- stæðunnar eftir samrunann verði um 20 milljarðar króna, en árleg velta Islands- síldai' hefur veríð um 1,5 milljarðar króna. Örn Arnarson íþróttamaður ársins ÖRN Arnarson, sundmaður 1 Sundféiagi Hafnarfjarðar, var útnefndur íþróttamaður ársins hjá Sam- tökum íþróttaf- réttamanna. Einum sólar- hring eftir út- nefninguna setti hann fimm Islandsmet í sundi á Jólasundmóti sundfélags Hafn- arfjarðar. Bætti hann þar á meðal fímm ára gamait Islandsmet Loga Jes Krist- jánssonar í 400 m baksundi um 8 sek- úndur. Rauðir kmerar biðjast afsökunar KHIEU Samphan og Nuon Chea, sem voru meðal helstu leiðtoga skæruliða- hreyfingar Rauðu kmeranna í Kambó- díu, báðust á þriðjudag í fyrsta sinn af- sökunar á grimmdarverkum sem framin voru í stjórnartíð hreyfingarinnar á átt- unda áratugnum, en talið er að allt að tvær milljónir Kambódíumanna hafí þá látið lífið. Tvímenningamir gáfu sig fram á laugardag í síðustu viku, eftir að stjórnvöld höfðu heitið því að taka þá ekki höndum. Lýsti Khieu Samphan því yfir að þetta væru endalok Rauðu kmer- anna. frakar skjóta á banda- rískar herflugvélar ÍRAKAR skutu á mánudag að banda- rískum herflugvélum á eftirlitsflugi yf- ir írak. Sögðu þeir að flugmennirnir hefðu skotið á loftvarnastöð íraka í norðurhluta landsins og þeim hefði verið svarað með gagnárás. Bretar og Bandaríkjamenn sögðu ábyrgðina hins vegar alfarið hafa verið íraka, sem hafí byrjað skothríð á flugvélarnar, en þær voru í eftirlitsflugi. Hafí bandarísku flugmennirnir brugðist rétt við og varist. _ Stjórnvöld í Bagdad sögðu að fjórir Irakar hefðu fallið og sjö særst, og að íraskar loftvarnasveitir hefðu lík- lega skotið niður vestræna herþotu. Fulltrúar bandarískra og breskra her- málayfirvalda sögðu hins vegar að engra flugvéla væri saknað. ► SEXTÁN ferðamenn voru teknir í gíslingu af mannræn- ingjum á leið sinni til suður- héraða Jemen á mánudag. Fjórir ferðalanganna, þrír Bretar og einn Ástrali, létu lífíð í átökum á þriðjudag, þegar öryggissveit jemensku lögreglunnar réðst að búðum mannræningjanna, sem eru meðlimir herskárra öfgahópa múslima. Tókst að bjarga hinum gíslunum, en tveir þeirra særðust lítillega. ►LIKUD-FLOKKURINN og Verkamannaflokkurinn náðu á mánudag samkomulagi um að efnt yrði til þingkosninga í Israel 17. maí á næsta ári. Ze’ev Benjamin Begin, einka- sonur Mcnachems Begins, stofnanda Likud-flokksins, til- kynnti að hann hygðist segja sig úr flokknum og gefa kost á sér gegn Benjamin Net- anyahu forsætisráðherra í kosningunum. Þá gáfu Yitzhak Mordechai varnar- málaráðherra og Ariel Shar- on utanríkisráðherra í skyn að þeir kynnu að snúa baki við honum. ►HÖRÐ átök hafa blossað upp að nýju í Angóla, og herma fregnir að tugir manna hafi fallið undanfarn- ar vikur. I vikunni var skotin niður flugvél sem flytja átti tíu eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna til stríðshrjáðra fjallahéraða Iandsins. ►SEX keppendur í einni sögufrægustu siglingakeppni Ástralíu fórust á mánudag, eftir að þeir lentu í ofviðri á leiðinni frá borginni Sydney á austurströndinni til borgar- innar Hobart á eynni Tasm- aníu suður af landinu. FRÉTTIR Finnbogi Jónsson nýr forstjóri fslenskra sjávarafurða Æskilegt að auka sam- starf sölusamtakanna FINNBOGI Jónsson sem ráðinn hefur verið forstjóri Islenskra sjáv- arafurða telur æskilegt að auka samstarf Sölu- miðstöðvar hraðfrysti- húsanna og Islenskra sjávarafurða á einstök- um sviðum og mörkuð- um. Stjórn íslenskra sjávarafurða hf. hefur ákveðið að ráða Finn- boga Jónsson, fram- kvæmdastjóra Síldar- vinnslunnar hf. í Nes- kaupstað, sem for- stjóra fyrirtækisins og tekur hann til starfa í byrjun mars. „Fyrst og fremst að þetta er ögrandi verkefni á öðru sviði en ég nú vinn á en þó skyldu. Starfið er spennandi,“ sagði Finn- bogi þegar hann var spurður að því hvað hefði ráðið því að hann ákvað að skipta um starfsvettvang. Niðurstaða fengin í sameiningarmál Finnbogi er 48 ára að aldri og lauk námi í eðlisverkfræði og rekstrarhagfræði. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. frá 1986. Segir Finn- bogi að það sé mikil eftirsjá í starfinu í Neskaupstað. „Það hefur verið gaman að starfa hér með góðu fólki. En ég hef verið hér í tólf og hálft ár og ágætur tími til að breyta,“ segir hann. Síldarvinnslan er hluthafi í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. og Finnbogi situr þar í stjórn. Spurður að því hvort hann tæki sam- einingu fyrirtækjanna aftur á dagskrá sagði Finnbogi: „Það mál var til umræðu í desember og kom ákveðin niður- staða. Það er ekki uppi á borði við þessa ráðningu." Spurður um eigið álit á kostum sameiningar fyrir- tækjanna rifjaði Finnbogi upp fyrri ummæli sín um málið. „Eg hef sagt að ég teldi æskilegt að fyrirtækin hefðu meira samstarf á einstökum sviðum og mörkuðum. Það er ekk- ert sem útilokar það í framtíðinni." Spurður um fyrirkomulag sölu- mála hjá Síldarvinnslunni í kjölfar ráðningar hans til ÍS sagði Finn- bogi að þar yrðu ekki breytingar á, hann væri einungis að skipta um starf. Gengið hækkar um 15% Finnbogi segir að ráðning sín til IS hafi átt stuttan aðdraganda, vikutíma, og endanlega hafi verið gengið frá henni á gamlársdag. Frétt um málið birtist um hádegi á gamlársdag, eftir lokun Verðbréfa- þings þann dag. Þá um morguninn urðu töluverð viðskipti með hluta- bréf ÍS og gengi þeirra hækkaði um nærri 15%. Seld voru hlutabréf fyr- ir 25 milljónir og gengið hækkaði úr 2,05 í 2,35%. Stefán Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfaþings Is- lands, kvaðst engu geta svarað um það hvort Verðbréfaþingið myndi kanna það hvort eðlilega hefði ver- ið staðið að tilkynningu um ráðn- ingu nýs forstjóra ÍS og hugsanleg áhrif þess á viðskipti með hluta- bréf félagsins þennan morgunn. Almennt um viðskipti og gengi hlutabréfa síðasta dag ársins sagði hann að knappur tími hefði gefist til að yfirfara viðskipti dagsins á gamlársdag en unnið yt-ði úr upp- lýsingunum fyrsta vinnudag á nýju ári. Finnbogi Jónsson Lítur á spítalann sem hamraborg FÁLKI hefur verið tíður gestur í nágrenni Borgarspítalans að undanförnu og náðist þessi mynd af honum skömmu fyrir jól. „Ég lá hér á deild A-6 og var staddur í anddyrinu með mynda- vélina, þegar maður á deild B-6 kom hlaupandi og bað mjg að taka myndavélina með. Ég fór inn til hans og sá þá fálkann sitja á handriðinu. Ég náði að taka tvær myndir gegnum óhreina rúðu og með flassi, án þess að fuglinn hreyfði sig. Menn reyndu síðan að opna gluggann og þá flaug hann,“ segir Gísli Jónsson, fyrrverandi prófessor, sem tók myndina af fálkanum. Myndin var tekin á 6. hæð spít- alans og að sögn Gísla telja kunn- ugir að fálkinn líti á spítalann sem nokkurs konar hamraborg, þar sem hann getur sest á fjöl- margar syllur. „Þá hefur hann nóg af fuglum til að veiða í skóg- ræktinni rétt fyrir neðan spítal- ann og eins úti í kirkjugarði, þannig að hann er spikfeitur og sællegur,“ segir Gísli. Ljósmynd/Gísli Jónsson FÁLKINN bærði ekki á sér á handriði svala á sjöttu hæð Borgarspítalans þótt tvær myndir væru teknar af honum. Mestu viðskipti í sögu Yerðbréfaþings fslands Viðskiptin í fyrra 60% meiri en árið 1997 Velta á Verðbréfaþingi íslands 1997-98 Upphæðir i milljörðum kr. 1997 1998 Breyting Húsbréf og húsnæðisbréf 24,3 83,9 +245% Bankavíxlar 36,4 68,4 +88% Ríkisvíxlar 77,7 63,3 -19% Spariskírteini 28,4 50,3 +77% Hlutabréf 13,3 12,7 -5% Ríkisbréf 8,4 10,8 +29% Önnur skuldabréf 0,4 11,8 +2850% SAMTALS 188,9 301,2 +59,4% OTM (óskráð hlutabréf) 3,4 0,7 -79% HEILDARVIÐSKIPTI á Verð- bréfaþingi Islands námu rúmum 301 milljarði króna á árinu 1998 og voni þau mestu á einu ári í sögu þingsins, nærri því 60% meiri en á árinu 1997. Árið var metár í flestum viðskiptum. Mestu viðskipti á einum degi urðu 15. október síðastliðinn, 4,5 milljarð- ar kr., og mestu viðskipti í einum mánuði urðu í mars, 42,6 milljarðar. Meiri viðskipti urðu með flestar tegundir skráðra verðbréfa en fyrr, nema með ríkisvíxla og hlutabréf. Viðskipti með ríkisvíxla urðu tæp- lega 19% minni en árið 1997, en hins vegar varð mikil aukning viðskipta með bankavíxla og heildarviðskipti víxla jukust um 15% á þinginu milli ára, að því er fram kemur í fréttatil- kynningu Verðbréfaþings íslands. Metmánuður í hluta- bréfaviðskiptum Hlutabréfaviðskipti ái'sins námu 12,7 milljörðum króna og voru því tæplega 5% minni en árið 1997. Framan af árinu voru hlutabréfavið- skipti miklu minni en næstu misseri á undan en glæddust þegar leið á ár- ið. í desember urðu mestu hluta- bréfaviðskipti í einum mánuði í sögu þingsins, 2.493 milljónir kr., en eldra metið sem var frá apríl 1997 var um 320 milljónum kr. lægra. Úrvalsvísitala aðallista Verðbréfa- þings hækkaði á árinu um 9,55%. Utanþingsviðskipti, það er við- skipti þingaðila með skráð bréf sem ekki fara fram í viðskiptakerfi Verð- bréfaþings en tilkynnt eru til þings- ins samkvæmt reglum þess, voru mun meiri á árinu 1998 en fyrr. Hins vegar liggja heildartölur um þau við- skipti ekki fyrir fyrr en að loknum fyrsta viðskiptadegi nýs árs, þriðju- daginn 5. janúar. „Þó er einsýnt að viðskipti þingaðila, þ.e. banka, spari- sjóða og verðbréfafyrirtækja, með skráð bréf hafí í heildina verið meh'i en nokkru sinni fyrr,“ segir í tilkynn- ingu Verðbréfaþings.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.