Morgunblaðið - 03.01.1999, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.01.1999, Blaðsíða 38
X38 SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Faðir okkar, ÞORKELL GUÐLAUGUR SIGURÐSSON, Hrafnistu, Reykjavík, verður jarðsettur frá Fossvogskirkju mánu- daginn 4. janúar klukkan 13.30. Sigurður Þorkelsson, Karl Þ. Þorkelsson, Sigurður E. Þorkelsson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, PETREA ÓSKARSDÓTTIR, Hóli, Sæmundarhlíð, Skagafirði, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju þriðjudaginn 5. janúar kl. 13.30. Jarðsett verður á Reynisstað. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HOLGER PETER CLAUSEN, Hraunbæ 97, Reykjavik, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðju- daginn 5. janúar kl. 13.30. Guðrún S. Einarsdóttir Clausen Svanbjörg Clausen, Sverrir Karlsson, Guðrún Olga Clausen, Guðmundur Benediktsson, Elin Auður Clausen, Kristbjörg Clausen, Ragnar Ómarsson, Einar Clausen, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN NORÐDAL ARINBJÖRNSSON, Blikabraut 6, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðju- daginn 5. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjarta- vernd. Oddný Valdimarsdóttir, Aldís Jónsdóttir, Hafsteinn Ingólfsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Gísli Guðmundsson, Hafsteinn Jónsson, Ingibjörg Poulsen, barnabörn og barnabarnabarn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HANNES INGÓLFUR GUÐMUNDSSON, áður Ránargötu 6, Reykjavík, til heimilis á Hrafnistu, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 5. janúar kl. 13.30. Helga Anna Hannesdóttir, Inga Hanna Hannesdóttir, Ómar Jóhannesson, Hafdís Hannesdóttir, Jóhann Örn Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Faðir okkar, fósturfaðir og tengdafaðir, JÓHANN GUÐJÓNSSON frá Stykkishólmi, sem lést á Droplaugarstöðum mánudaginn 28. desember, veröur jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 5. janúar kl. 10.30. Guðjón Jóhannsson, Þór Jóhannsson, Erna Arnórsdóttir, Geir Geirsson, Hugrún Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. JÓDÍS BENEDIKTSDÓTTIR + Jódís Benedikts- dóttir fæddist í Stóraholti í Holts- hreppi í Skagafirði 26. desember 1911. Hún lést á Sjúkra- húsi Sauðárkróks 22. desember siðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru hjónin Her- dís Bjarnadóttir og Benedikt Guðmunds- son kennari, sem kennd voru við Syðsta-Mó sem bú- endur, en Jódís var elst þriggja dætra þeirra. Hinar systurnar eru Guð- ný, f. 11.3. 1913, og Þórunn, f. 23.9. 1915, báðar til heimilis í Reykjavík. Þær misstu föður sinn árið 1919, þegar Jódís var átta ára. Tveim árum síðar giftist Herdís móðir þeirra Jóni Jósefs- syni frá Minni-Reykjum í Vestur- fljótum og áttu þau saman tvær dætur, Ástu, f. 22.6. 1920, sem býr á Dalborg á Dalvík, og Svövu, f. 9.5. 1923, sem búsett er í Reykjavík. Hinn 17. desember 1933 giftist Jódís Guðmundi Einarssyni, ætt- uðum frá Jaðri í Glerárbyggð á Akureyri. Vorið 1934 fluttust þau að Ytra-Krossanesi í Glæsibæjarhreppi og ári síðar að Kalsá á Uxaströnd en voru þar aðeins í nokkra mánuði. Þar fæddist Hermann sonur þeirra 4. maí 1935, d. í apríl 1949. Næsta heimili var Langhús í Veturfljótum í sam- býli við móður og fósturföður Jódísar og með þeim fluttust þau ári síðar að Hraunum í Holtshreppi. Vorið 1937 gerast þau hjón ábúendur á Lambanes-Reykjum í sömu sveit til vorsins 1943, en þá kaupa þau jörðina Veðramót í Gönguskörð- um og áttu þar heimili síðan. Þar fæddust tvö yngri börn þeirra: Einar, f. 7.4. 1945, bóndi á Veðra- móti, kvæntur Önnu Maríu Haf- steinsdóttur, og eiga þau þrjú börn; Ilalla, f. 14.3. 1948, gift Halldóri Jónssyni, búsett á Steini á Reykjarströnd, þau eiga fjögur börn og eitt barnabarn. Útför Jódísar fór fram frá Sauðárkrókskirkju 2. janúar. Það var haustið 1941 sem ég kynntist þeim mætu hjónum Jódísi Benediktsdóttur og Guðmundi Ein- arssyni, sem þá bjuggu á Lam- banes-Reykjum. Sumarið 1942 vann ég hjá þeim við heyskap og raunar næsta sumar líka. Um vorið 1943 fluttu þau að Veðramóti en nytjuðu túnið á Lambanes-Reykjum og tók ég þátt í því með öðrum að heyja og ganga frá því til flutnings. Um haustið 1945 flutti ég alfarinn til Reykjavíkur og hóf nám í málaraiðn en tengslin við fólkið á Veðramóti rofnuðu ekki. A námstímanum fór ég oftast í sumarfrí norður í fæðing- arsveitina og kom þá við til að spjalla við fólkið á Veðramóti. Tíminn líður hratt, fyrr en varir er ég búinn að stofna heimili í Reykjavík og nú dugði vart sólar- hringurinn til þess að gera það sem þurfti til að sjá fyrir heimili og fjöl- skyldu, sem stækkaði ört auk þess sem ég hef jafnan verið í félags- stússi sem tekur tíma. Tengsl við þá sem fjær standa vilja rofna á köfl- um. Tímafrekasti þátturinn í þessu lífsstríði er að byggja hús yfir fjöl- skylduna og þá er lausnin að koma krökkunum í sveit á sumrin. Það urðu fastar ferðir vor og haust að flytja krakka og konu í og úr sum- ardvölinni. Þá var freistandi að leggja lykkju á leið sína þegar kom- ið var á Sauðárkrók, fara upp að Veðramóti og tefja fólkið við bú- störfin til að spjalla um lífið og til- veruna, fræðast hver um hagi ann- ars og rifja upp gamlar minningar. Tíminn reyndist oft stuttur því þau hjón voru bæði viðræðugóð og um margt var að tala. Þau hjónin hafa einnig oftast komið að heimsækja okkur í þau fáu skipti sem þau hafa komið til Reykjavíkur. I apríl 1949 gerðist sá sorglegi atburður að Hermann, elsti sonur- Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útfór hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. inn, þá 14 ára, lést úr sjúkdómi sem ekki reyndist hægt að lækna. Hann var búinn að vera í læknis- meðferð í Reykjavík án árangurs en hann lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Þetta var einkar efni- legt mannsefni og aðdragandinn að veikinni stuttur. Þetta var mikið áfall fyrir foreldrana og þá einkum vegna þess að ári áður en Her- mann fæddist misstu þau barn í fæðingu. Minningin um Jódísi er í vitund minni á margan hátt sérstæð. Hóg- værð og tillitssemi voru henni eðlis- læg, styggðaryrði eða gagnrýni á fólk sem hún umgekkst heyrði ég aldrei af hennar vörum, því síður blótsyrði. Engu að síður hafði hún mótaðar skoðanir á mönnum og málefnum. Þrátt fyrir erfiðar að- stæður fór hún ung að afla sér menntunar, meðvituð um að þekk- ing og reynsla auðveldar fólki að takast á við lífið. Hún var vel greind en hlédræg, ekki líkleg til að sækj- ast eftir mannvirðingum en hún lagði góðum málefnum lið. Hennar framlag var ekki minna en þeirra sem létu mikið að sér kveða á yfir- borðinu. Jódís bar með sér kvenleg- an þokka, há vexti, grönn og bein- vaxin með ljóst, liðað og ræktarlegt hár sem myndaði hreina umgjörð um gerðarlegt andlit. Hún var ekki allra, virtist alvöru- gefin við fyrstu kynni. Að eðlisfari var hún hlý og glaðvær, spaugsöm og glettin þegar við átti, hún hló dátt og sannfærandi þegar gaman- mál voru rædd. Sambúð þeirra hjóna var farsæl og einkenndist af gagnkvæmu trausti og virðingu, ekki síður þótt þau hafi á margan hátt verið ólík að eðlisfari. Gönguskörðin eru strjálbýl sveit en landslag stórbrotið og sumarfal- legt. Bæjarnafnið Veðramót lýsir staðháttum á táknrænan hátt (allra veðra von). Hér í fjalladalnum hafa Jódís og Guðmundur unað hag sín- um vel, lifað hljóðlátu og hófsömu lífi fjarri skarkala lífsins. Sólar- strendur sem margir telja munað lífsins eru þeim framandi. Á 80 ára merkisafmæli fyrir nokkrum árum fóru þau í bændaferð til M-Evrópu í boði bama sinna. Þau hjónin nutu þessarar ferðar. Þar opnaðist nýr ævintýraheimur sem skildi eftir myndir sem gaman var að rifja upp með kunningjum þegar heim kom. Aidur er afstætt hugtak gagnvart dauðanum, engu að síður er það lög- mál sem við flest erum meðvituð um að eftir því sem aldurinn hækkar getum við vænst þess að síðasta ferðin sé skammt undan, það er eðlileg framvinda lífsins. Þegar ást- vinur deyr fylgir því ætíð söknuður og tregi þeirra sem næst standa. Þær tilfinningar eru blendnar, eftir hugarfari og trúarskoðunum hvers og eins, hvað við tekur eftir dauð- ann. Hugur minn fylgir henni Jódísi yfir landamæri lífsins í veraldlegum skilningi. Eg sendi Guðmundi hlýjar sam- úðarkveðjur og ósk um notalegt ævikvöld. Kynnin við þessi hjón eru mér hugstæð, án þeirra hefði vant- að blað í minningabókina mína. Eg sendi afkomendum, venslafólki og öðrum nákomnum innilegar samúð- arkveðjur. Hjálmar Jónsson. Hún Jódís á Veðramóti var eftir- minnileg kona bæði í fasi og fram- göngu. Við leiðarlok er þó tvennt sem einkum stendur upp úr í minn- ingunni um Jódísi, vaskleikinn og hógværð. í Jódísi sameinaðist rösk- leiki til allra verka og jafnvægi hug- ans. Eg man glöggt hversu hratt hún Jódís hljóp. Eg peyi í sveit og hún á miðjum sextugsaldri. Þegar hlaupa þurfti á eftir skepnum hljóp Jódís hratt, jafnhratt og við strák- amir, ef ekki hraðar. Ekki man ég eftir konu á þessum aldri sem ég hef séð hlaupa hraðar. Mikið dáðist ég að Jódísi fyrir þetta og röskleik- inn við vinnu var í sama anda. Nán- ast í andstöðu við þetta var svo þessi rólynda og yfirvegaða kona sem fór hljóðlega um hús og hýbýli, talaði lágt og skipti ekki skapi. Eg kom á Veðramót við Sauðár- krók sem strákur í sveit á tíunda ári um miðjan sjöunda áratuginn og var þar fimm sumur hjá þeim hjón- um Jódísi og Guðmundi Einarssyni, sem lifir konu sína. Á Veðramóti voru þá einnig Einar og Halla, böm þeirra, og býr Einar þar enn ásamt fjölskyldu sinni. Halla fluttist á þessum árum út á Reykjaströnd, og býr á Steini ásamt Halldóri Jóns- syni og fjölskyldu sinni. Frá fyrsta degi var mér tekið af mikilli alúð og vinsemd og minningin um árin á Veðramóti verður ávallt skær og ánægjuleg. Ég á enga leiðinlega minningu tengda Veðramóti eða því fólki, sem segir meira en mörg orð. Jódís var ákveðin kona og skoð- anaföst þótt hljóðlega færi hún yfir. Hún flíkaði ekki skoðunum sínum eða tilfinningum, en hafði þó sitt fram í því sem hún vildi, hygg ég. Ég minnist þess ekki að hún hafi skipað fyrir. I stað fyrirmæla gekk hún á undan með góðu fordæmi. Ef raka þurfti mikið og hratt af túninu rakaði hún mikið og hratt, þannig að aðrir véku sér ekki undan að fylgja fordæminu. Á þeim árum sem ég var á Veðramóti minnist ég þess ekki að mikið hafi verið talað um stjórnmál. En ef þau bar á góma þá var Jódís jafnsjálfstæð í þeim skoð- unum sem og um annað sem hún fjallaði. Jódís Benediktsdóttir var góð kona og aldrei heyrði ég hana hall- mæla nokkrum manni. Það hlýtur að vera mannbætandi að kynnast svo góðri manneskju sem Jódís var og ég kveð hana með þakklæti. Fjölskylda mín flytur öllu fólkinu á Veðramóti og öðru venslafólki hug- heilar samúðarkveðjur og þá sér- staklega Guðmundi eftirlifandi manni hennar. Friðrik Friðriksson. Hún Jódís er farin, það fylgja henni tár ffændgarðsogvina. Þeir minnast og þakka öll þessi ár, Tungan er hjjóð Tindastóll hnípinn og fár. En þyngst verður einmana öidruðum maka um ófama slóð. Hún laðaði að sér jafnt ómálga bam sem ellinnar hag. Svo háttprúð og hlý með sinn hetjunnar brag. Og grannar, sem þekktu hennar góðvildarhug, sitja gneypir um jól þvi að húmblæju dró, þessi harmanna fregn fyrir hátíðarsól. (GBH)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.