Morgunblaðið - 03.01.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.01.1999, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ GÓÐIR íslendingar. Nýársbirtan hefur nú nokkra stund baðað land okkar litbrigðum ljóss og skugga. Hugurinn nemur fyrirheit um gleði og góðar stundir en samt vitum við öll að sorg og þrautir kunna að knýja dyra þegar minnst varir. í andakt jólanna eru minningar um látinn ástvin eða ættingja þeir hljómar sem lengst óma í sálum okkar, blandnir þakklæti fyrir stundirnar sem gæfan gaf og tóm- leika vegna áranna sem um alla framtíð verða vígð söknuði og trega. Við í fjölskyldunni hér á Bessa- stöðum deilum nú slíkri reynslu með ykkur sem um hátíðir og áramót hafið leitað huggunar í eintali sálar eða samræðum við vini og ættingja um þá tíð þegar gleðin ríkti og sól skein í heiði á samverustundum. I veikindum Guðrúnar Katrínar veittu bænir ykkar, kveðjur og ám- aðaróskir henni og okkur öllum mik- inn stjrk. Sú samkennd og samlíðan gáfu henni þrek til að glíma við hverja nýja þraut. Þakklæti til ykkar vai- heitt í hennar huga og einlæg sú ósk að ég færði ykkur það nú. Við andlát Guðrúnar Katrínar og útför fundum við í fjölskyldunni samhug og hlýju sem löngum hafa á erfíðum stundum veitt íslendingum eina sál, einn vilja. Fögur orð í bréfum og skeytum, teikningar frá börnum og bekkjardeildum, kveðjur frá íslend- ingum hvaðanæva úr veröldinni - allt þetta og ótal margt annað varð til að veita okkur styrk í glímunni við sorg okkar og söknuð. Virðingin sem fólst í því þegar þúsundir komuð hingað til Bessastaða til að skrá nöfn sín í minningarbók Guðrúnar Katrínar mun ylja hjörtum okkar alla ævi. Eg færi ykkur einlægar þakkir fjölskyldunnar og óskir um að hið nýja ár verði ykkur til gæfu og gleði, að sem flestir dagar verði fagn- aðarefni og framfaratíð, bæði í lífi hvers og eins og byggðum landsins alls. Sá reynslutími sem örlögin færðu okkur í fang var áminning um hve skjótt öll viðmið og ætlan geta breyst. A einni stundu hafði ævin umsnúist og dómur fall- ið á þann veg að líf og hugur verða aldrei söm. Slík augnablik sýna í sjónhending að sérhvert stundarglas mun um síðir tæmast og dýrmætt er að nýta vel það æviskeið sem hverju okkar er ætlað. Kannski erum við flest svo bundin af önn dagsins, atburðum og verk- efnum líðandi stundar, að við gleym- um að rækta þann garð sem felst í ást og vináttu, traustum tengslum við börn okkar og fjölskyldur, sam- veru sem alfarið er helguð þeim sem okkur þykir vænt um. Tíminn er í senn gleðigjafí og harður húsbóndi. Arin þjóta hjá hvert af öðru og fyrr en varir bíða verkalokin handan við hornið. Ekkert skeið ævinnar verð- ur afturkallað og mikilvægt er að geta horft til baka sátt við hverja stund. I dýrkun samtímans á fjármunum og frama, í umróti auglýsinga og áreitis sem metur flest á mæli- kvarða auðs og eigna, kann okkur að gleymast að verðmætin sem á ör- Iagastundu reynast okkur kærust eru ekki þau sem mölur og ryð fá grandað heldur böndin sem tengjast ástvinum okkar og fjölskyldu, lífí þeirra og heilsu. Slitni þau verður allt hitt harla lítils virði. Því er mikilvægt við upphaf nýs árs, já, reyndar við birtu sér- hvers dags, að veita sjálfum sér það fyrir- heit að leggja alúð við vináttu og fjölskyldu- bönd, gefa börnum okkar, ættingjum og félögum þær stundir sem við getum, en glata ekki stórum hluta æv- innar í kapphlaup um hið hverfula. Við eigum ekki að þurfa að missa heilsuna eða sjá ástvini þjást til að haga lífi okkar og daglegum hátt- um í samræmi við þennan sannleika. Vissulega eru veikindi áminning um þau verðmæti sem okkur eru kær- ust en þau eru líka tími aðdáunar og þakklætis í garð lækna og hjúkrun- arfólks sem með hæfni sinni og fórn- íysi koma til bjargar, veita heil- brigði á ný eða lina þjáningar á sam- verustundum. Það vakti stolt okkar Guðrúnar Katrínar að heyra lækna hennar í Seattle fara lofsorðum um kunnáttu, dómgreind og vísindalega þekkingu íslenskra lækna og hjúkrunarfólks. Aðdáun hinna bandarísku sérfræð- inga á heilbrigðiskerfi og lækna- þjónustu fámennrar eyþjóðar var ósvikin og ríkuleg. Þeir töldu mikla gæfu fyrir Islendinga að hafa þróað sjúkrahús og heilsugæslu sem jafn- ist á við hið besta með öðrum þjóð- um en veitir jafnframt hverjum og einum hjálp og hjúkrun án tillits til efnahags, stéttar eða ættartengsla. I glímunni hörðu sem staðið hefur í hartnær áratug um fjárhagsvanda heilbrigðisstofnana og umfang ríkis- útgjalda hefur ef til vill verið van- rækt að spyi-ja um tilgang og mark- mið, um kjarna þessa alls: að þjón- usta fólk í vanda. Ekkert er okkur eins fjarri þegar veikindi knýja dyra í fjölskyldu eða vinahópi en að ræða um skattstiga og ríkisrekstur. Sam- kenndin um velferð hvers og eins er þrátt fyrir allt svo samgróin ís- lenskri þjóðarsál að við viljum standa vörð um þá skipan sem veitir öllum rétt til lækninga, hjúkrunar, umönnunar, menntunar og þroska. I aðdraganda nýrrar aldar þegar rætt verður um ætlunarverk og lífssýn einstaklinga og þjóða, þá er eðlilegt að við spyrjum um framtíð þeirrar samfélagslegu arfleifðar sem dug- miklar kynslóðir færðu okkur að gjöf, um framtíð þess samfélags sem sett hefur heilbrigði og menntun allra í öndvegi. Viljum við varðveita getu þjóðar- innar til að veita landsmönnum læknisþjónustu og hjúkrun sem að gæðum er sambærileg því besta sem aðrir njóta? Hverjar eru og verða kröfur okkar, væntingar og vonir þegar ástvinir og ættingjar þurfa á aðgerð eða hjúkrun að halda, eða þegar við sjálf, einkum þau okkar sem nú eru ung eða á besta aldri, er- um komin á efri ár og glötum heilsu? Hver er hinn samfélagslegi vilji til að við Islendingar höldum þeim gæðum sem felast í störfum lækna og hjúkrunarfólks, heilbrigðiskerfis- ins alls? Er ekki eðlilegt og í anda lýðræðisins að stofnanir lýðveldisins tryggi síðan að sá raunverulegi vilji ráði framtíðarfor? Viljum við, sem flest hlutum gæðamenntun íyrr á öldinni án sér- staks endurgjalds, að börn okkar og afkomendur þeirra, nýjar kynslóðir Islendinga, geti á nýrri öld öðlast bestu menntun sem völ er á? Hvern- ig ætlum við að tryggja að íslend- ingar verði áfram í fremstu röð að kunnáttu og hæfni? Atvinnulíf framtíðarinnar verður í æ ríkara mæli byggt á greinum þar sem þekking, rannsóknir, vísindi og tækni ráða úrslitum um lífskjör, um arðsemi og árangur á markaðstorgi viðskiptanna. Við höfum á undanfórnum misser- um fengið margvíslegar viðvaranir um að þegar spurt er um gæði og umfang menntunar séu Islendingar neðar í stigatöflu alþjóðlegs saman- burðar en flestir höfðu vænst. Aðrir eru óðum að fara fram úr okkur og þar með tapast vígstaða sem nauð- synleg er til að geta áfram notið þeirrar hagsældar sem best þekkist. Á hinn bóginn höfum við einnig séð fjölmörg dæmi um það hvernig menntun, þekking og vísindi ráða nú á Islandi úrslitum um vöxt nýrra at- vinnugreina, auðga mannlíf, list- sköpun og menningu ásamt því að efla orðstír okkar Islendinga á svið- um sem æ meir móta álit þjóða og áhrif. Tölvubúnaður og tækni sldla vaxandi tekjum í þjóðarbú og erlend stórfyrirtæki leita nú samvinnu við ungt íslenskt hugvitsfólk. Rann- sóknir lækna og sérfræðinga í erfða- vísindum og líftækni hafa lagt grundvöll að nýrri atvinnugrein sem orðið getur einstaklega arðbær í hagkerfi nýrrar aldar. Ung sveit stjórnenda tekur nú í vaxandi mæli forystu í íslenskum fyrirtækjum og fjármálastofnunum og beitir með árangri fræðilegum aðferðum og faglegri þjálfun sem hún hefur hlotið í fremstu háskólum Vesturlanda. Sá grunnur sem lagður var með nýskipan tónlistarmenntunar íyrir fáeinum áratugum hefur nú umbylt svo listalífi landsins að nánast í hverri viku sjáum við þess glæsileg merki að íslensk tónlist er orðin öfl- ug útflutningsgrein. Hliðstæð þróun hefur orðið í leik- húslífi og myndlist og ung kynslóð rithöfunda og skálda gefur þjóðinni á hverri aðventu sögur og ljóð sem sanna að frumkraftur íslenskra bók- mennta er jafn ferskur við upphaf nýs árþúsunds og hann var á ár- dagstímum Islandsbyggðar. Við lok aldar sem fært hefur mannkyni meiri tæknilegar framfar- ir en allar hinar fyrri til samans er það ótvíræð niðurstaða að manns- hugurinn er mesta orkuverið sem völ er á, að virkjun hans er hald- besta ávísunin á hagsæld og velferð, að menntun og þjálfun eru ekki síðri kraftur en sá sein felst í fallvötnum og iðrum jarðar. I samkeppni þjóð- anna á heimstorgi viðskiptanna munu þær ná mestum árangri sem best rækta gáfur og sköpunarmátt nýrra kynslóða. Því er brýnt að samstaða skapist ARAMOT / / Nýársávarp forseta Islands, herra Olafs Ragnars Grímssonar Mannshugurinn er mesta orkuverið Herra Ólafur Ragnar Grímsson Áramótaávarp Davíðs Oddssonar forsætisráðherra Okkur vegnar best þegar samstaðan er mest GÓÐIR íslendingar, Um miðjan desember ár hvert tökum við að huga að jólahaldi og áramótum. Þá sendum við gjaman vinum og kunningjum lítið kort með jólakveðjum og frómum óskum um að nýja árið megi verða þeim far- sælt, gott og gleðilegt. Þessum ósk- um er stefnt gegn óvissunni, hinu ófyrirsjáanlega, sem á einu andar- taki getur öllum okkar áætlunum breytt, bæði til góðs og ills. Þótt við fáum ekld öllu ráðið, og stundum harla litlu, erum við ekki einungis óvirk peð á taflborði örlaganom- anna. Þau augnablik koma og þau ekki fá, þegar við ráðum sjálf úrslit- um um, hvort eitthvað tekst vel eða gengur miður. Þetta á við okkur hvert og eitt, og okkur sameiginlega sem þjóð. Um þetta em til ótal dæmi. Björgunarsveitir, læknalið, löggæslumenn og branaverðir hafa iðulega með snarræði og fómíysi komið í veg fyrir slys og heimt fólk úr bráðum háska. Foreldri, sem býr bamið sitt endurskinsmerkjum og leggur því lífsreglurnar um leiðir í skólann í skammdeginu, gerir í raun hið sama. Verkið í því tilfelli sýnist kannski lítið, en voðinn, sem verið er að forða, því stærri. Við getum með öðram orðum stuðlað sjálf að því með margvíslegum hætti að nýja árið verði okkur far- sælt og gleðilegt. Vitrastu forystu- menn okkar hafa þóst hafa fyrir því margfalda reynslu, að þá vegni okk- ur best, þegar samstaðan er mest og sundrungaröflum og sundur- lyndisfjanda er markaður bás við hæfi. „Litla þjóð, sem átt í vök að verjast, vertu ei við sjálfa þig að berjast,“ sagði skáldið og verður þessi hugsun ekki betur felld í orð. Við tökum heilshugar undir þessi sjónarmið, en eram ekki þar með að amast við rökræðum, átökum og deilum á líðandi stund. Slík um- ræða, þótt hörð sé, er ekki aðeins þolanleg og gagnleg, heldur oftar en ekki bráðnauðsynleg, svo tryggt sé að mál fái rækilega skoðun, og of einsleit sjónarmið ráði ekki fór. Jafnvel má halda því fram, að harð- snúnar deilur geti beinlínis verið hollar þjóðfélaginu, herði það og stæli og geri ríkari kröfur til þess að vel sé að málum staðið. Og hver segir, að menn sem standa fast á sínum málstað í stórhríðum líðandi stundar, þurfi að vera andstæðingar að öðra leyti? Stundum er jafnvel: „Ágreiningurinn meiri en svo að hann skipti okkur neinu máli“ svo gripið sé til orða skáldsins. En hverri glímu þarf þó að ljúka og við höfum ekki fundið aðra skárri leið til að leiða þjóðmálaglímuna til lykta en þá, sem kennd er við lýðræðið, og er hún þó sjálfsagt ekki gallalaus. Það ber stundum við að starfsmenn hags- munasamtaka veitist af nokkra yfirlæti að þjóðþinginu og saki það um að vera að bjástra við lagasetn- ingu án þess að tala fyrst við sig. Slíkur reigingur skiptir svo sem engu en minnir á orð fyrrum forseta Bandan'kjanna sem taldi fyrir áratugum síðan, að það skaðaði mjög löggjafarstarf- semina þar í landi, hve henni væri oft stýrt með þrýstingi frá kröfugerðarkórum og geðs- hræringaröflum, eins og hann nefndi það, í stað þess að ráðast að mestu af samvisku og dómgreind hinna kjörnu fulltrúa. Þannig er fátt nýtt undir sólinni. Alþingi hefur á þessu ári sam- þykkt lög sem töluverður styrr hef- ur staðið um. Má í því sambandi nefna svonefndan gagnagrunn á heilbrigðissviði. Það mál var afar snúið, enda fullkomin nýlunda hér á landi og reyndar víðar, og var því ekki að undra að umræður yrðu drjúgar og stundum hitnaði veru- lega í kolum. Hætt er við að vera- legur hluti þess málskrafs alls hafi farið fyrir ofan garð og neðan hjá mörgum, vegna eðlis viðfangs- efnisins og eins vegna hins, að hugtök þau, sem mest bar á, vora flestum mönnum ný og framandi. Lokapunkt- inn aftan við slíkar deil- ur getur enginn annar sett en meirihluti Al- þingis að lokinni vand- legri athugun þess á málefninu. Nú þegar þessi þáttur er að baki, er þýðingarmikið að góðir menn og víðsýnir taki saman höndum til að tryggja að þau tæki- færi, sem þarna kunna að opnast, megi nýtast sem flestum, jafnt Is- lendingum, sem umheiminum. Er mikið í húfi að vel til takist. Gagnagrannsmálið er aðeins eitt af mörgum nýlegum dæmum um að hugumstórum frumkvöðlum takist að opna nýjar leiðir í þessu landi, sem munu gera það enn lífvænlegra en ella. Þannig var útflutningur á hugbúnaði nánast enginn á árinu 1991, en skilar nú sjö árum síðar 6.000 milljónum króna í þjóðarbúið. Til mín komu á dögunum tveir framsæknir vísindamenn á þessu sviði. Þeir vildu kynna nýja hug- mynd sína. Hún var sú að gera Is- land að útflutningsvöra, eins og þeir Davíð Oddson orðuðu það. Ég verð að kannast við, að í fyrstu skyldi ég hvorki upp né niður í því, hvað þeir væru að fara. En þeir skýrðu hugmynd sína með eftirfarandi hætti. Við höfum borið íslenskt stjómarfar saman við það sem annars staðar gerist og það fer ekki á milli mála, að íslandi þykir betur stjórnað og af meiri hag- kvæmni og skilvirkni en annars staðar þekkist. Þeir flýttu sér að bæta því við, að þetta hefði ekkert með núverandi stjórnmálamenn landsins að gera. ísland, sem lítið land, hefði hreinlega neyðst til þess að hafa skilvirkara og þar með ódýrara stýrikerfi á sínum málum en rfkari og fjölmennari þjóðir. Væri raunar sama hvar niður væri borið í stjórnsýslunni, og nefndu vísindamennirnir til sögunnar dóms- og lögreglukerfi, utanríkis- þjónustu, félags- og heilbrigðismál, verklegar framkvæmdir, aðgang borgaranna að stjómkerfinu og málshraða á öllum sviðum. Þetta vildu þeir kortleggja og hafa upp á að bjóða, nú þegar mörg ríki væru, að ryðja sér braut í hinni hörðu al- þjóðlegu samkeppni, en byggju við bágan efnahag. Hugmyndir þessa snjöllu vísinda- manna minntu á allt aðra sögu. Hún var sú, að margur erlendur forystu- maður hafði miklar efasemdir um það á sínum tíma, að 130 þúsund manna hópur eða svo hér norður frá, gæti staðið undir þeim kröfum, sem þjóðríki gerir til svo margra þátta, eigi það að teljast marktækt í samfélagi þjóðanna. Það var kannski skortur á raunsæi sem réði því að íslendingar hikuðu ekki þeg- ar mest á reið. Hafi sú verið raunin er rétt að þakka guði fyrir að á réttu augnabliki hafi þjóðin búið við heilbrigðan skort á raunsæi. Við er- um rúmlega tvöfalt fleiri nú en við lýðveldisstofnun og samkvæmt áliti hinna Sameinuðu þjóða í hópi þeirra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.