Morgunblaðið - 03.01.1999, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Framtíð
forseta-
frúarinnar
Þrátt fyrir hina pólitísku erfiðleika Bills
Clintons, forseta Bandaríkjanna, að
undanförnu nýtur eiginkona hans,
Hillary Clinton, vinsælda sem aldrei
fyrr. Björn Malmquist segir að eftir
vasklega frammistöðu hennar í barátt-
unni fyrir þingkosningarnar í nóvember
séu fréttaskýrendur farnir að velta
fyrir sér pólitískri framtíð hennar.
HILLARY á alþjóðavettvangi. Með börnum í skólaheimsókn
í Uruguay.
Reuters
Á FORSÍÐU Vouge.
EGAR Hillary Clinton
stóð á sviði með mörgum
af helstu frambjóðendum
demókrata fyrir þing-
kosningamar í nóvember síðast-
liðnum, leit hún ekki út fyrir að
vera mædd af vandræðum eigin-
manns síns, og reyndar þótti
frambjóðendum fremur akkur í að
fá hana í heimsókn - án húsbónd-
ans. Á síðustu dögunum fyrir
kosningamar ferðaðist hún um tíu
ríki Bandaríkjanna, hélt stuðn-
ingsræður fyrir frambjóðendur,
halaði inn milljónir dollara til
styrktar flokknum og vakti gríðar-
lega athygli.
Reyndar sigruðu ekki allir
frambjóðendur sem hún heimsótti.
Öldungadeildarþingkonan Carol
Moseley-Braun frá Illinois tapaði
sínum kosningum, þrátt fyrir
margar heimsóknir forsetafráar-
innar. Hillary er hins vegar talin
hafa lagt mikilvæg lóð á vogar-
skálarnar fyrii- frambjóðendur á
borð við Charles Schumer, sem
vann hinn gamalreynda öldunga-
deildarþingmann Alfonse
D’Amato í New York, og Barböra
Boxer frá Kaliforníu, sem lenti í
harðri baráttu fyrir sæti sínu á
þinginu. Bandaríska vikuritið
Time sagði í fréttapistli á dögun-
um að „...við höfðum rétt fyrir
okkur, þegar við spáðum því að
ástvinur forsetans myndi hafa
mikil áhrif á kosningamar. Okkar
mistök vora að halda að það yrði
Monica."
Forsíðuviðtal Vogue
Eftir kosningarnar, þar sem
demókratar unnu óvænta sigra,
hefur Hillary notið gríðarlegrar
athygli - ekki aðeins vegna
vandamála í hjónabandi sínu,
heldur sem kona sem margir telja
að eigi glæsta framtíð fyrir hönd-
um í opinbera lífí. I jólahefti
tískutímaritsins Vogue er fjallað
um hana í forsíðugrein; í fyrsta
skipti sem forsetafrá Bandaríkj-
anna prýðir forsíðu þessa út-
breidda tímarits. Blaðakona
Vogue, sagnfræðingurinn Ann
Douglas, fylgdi forsetafránni eftir
á ferð hennar á milli sögulegra
staða á austurströnd Bandaríkj-
anna, og fer um Hillary fögrum
orðum. I greininni segir m.a. að
Hillary sé „fyrsta forsetafrúin
sem er menntakona, sem hefur
rannsakað markmið sín vel, getur
varið smæstu atriði þeirra ... og
tekur óhikað þátt í umræðum um
hvaða opinberu stefnu sem er.
Hún er einfaldlega gáfaðri en
hvaða blaðamaður sem við hana
talar; reynsla sem
blaðamenn í Was-
hington verða ekki oft
fyrir.“ Greininni í
Vogue fylgdu einnig
glæsilegar myndir
eins af frægustu ljós-
mynduram í Band-
aríkjunum, Annie
Leibovitz.
Hillary Clinton hef-
ur einnig verið áber-
andi í öðrum band-
arískum fjölmiðlum
undanfarið - einmitt
vegna þess hve vel
hún þótti hafa staðið
sig í kosningabaráttr
unni í nóvember. Fyr-
ir skemmstu kom hún
til New York, þar sem
hún meðal annars
kveikti á jólaskreyt-
ingum við Rockefeller
Center, fór á frumsýn-
ingu myndarinnar
„Shakespeare in
Love“ með aðal-
leikkonunni, Gwyneth
Paltrow, og hitti full-
tráa margra helstu
fjölmiðla landsins.
„Hún hefur undan-
farið verið að gera sér
grein fyrir að þjóðin
er búin að gera hana
að eins konar táknmynd fyrir von-
ir sínar og vonbrigði," sagði Carl
Sferrazza Anthony í samtali við
New York Times, en Anthony hef-
ur skrifað ævisögur margra for-
setafráa Bandaríkjanna. „Hún
hefur sætt sig við þetta og er þess
vegna farin að leyfa fjölmiðlaum-
fjöllun á borð við þá sem Vogue
birti.“
Fall og endur-
reisn Hillary
Eftir að Bill Clinton vann for-
setakosningarnar 1992 talaði hann
um að þjóðin hefði fengið „tvo fyr-
ir einn“, í merkingunni að kona
hans myndi taka fullan þátt í
stefnumótun og starfí forseta-
embættisins. Prátt fyrir að hafa
stutt eiginmann slnn í fjölmörgum
kosningum í Arkansas hafði hún
einnig sinnt starfí sínu sem lög-
fræðingur og þótti reyndar hafa
gefíð frá sér möguleikana á glæst-
um ferli á því sviði, þegar hún gift-
ist Bill Clinton árið 1974.
Skömmu eftir að Clinton-hjónin
komu til Washington fór að bera
mjög á Hillary sem áhrifavaldi í
Hvíta húsinu. Hún þykir hafa átt
ríkan þátt í að móta stefnu eigin-
manns síns og var valin sem odd-
viti þegar ríkisstjómin ákvað að
berjast fyrir endurbótum á band-
aríska heilbrigðiskerfinu. Þegar
sú orrusta var töpuð, og
demókratar glötuðu meirihluta
sínum í báðum deildum þingsins
1994, dró Hillai'y sig í hlé frá
stjómmálastarfi, enda var henni
að hluta til kennt um hrakfarir
flokksins í kosningunum. Áber-
andi staða hennar var einnig
auðvelt skotmark fyrir repúblik-
ana, sem bentu á að hér væri á
ferð áhrifamikil persóna sem eng-
inn hefði kosið og ekki væri hægt
að koma úr embætti.
Eftir þetta bar minna á opin-
beram verkum Hillary; hún ein-
beitti sér að mýkri málefnum á
borð við bamauppeldi, eins og
hefðbundnari forsetafrúr hafá
gert í gegnum tíðina, og átti að
auki fullt í fangi með að svara
ásökunum um ýmis konar spill-
ingu - þar á meðal Whitewater-
viðskiptin og uppsagnir á ferða-
skrifstofu Hvíta hússins. í fram-
haldi af þeim málum varð Hillary
fyrsta forsetafrúin sem boðuð var
í yfirheyrslu fyi'ir rannsóknar-
kviðdómi, þegar sérstakur
saksóknari Whitewater-málsins,
Kenneth Starr, skipaði henni að
svara spurnmgum um
ferðaslú’ifstofu-
hneykslið og hvarfið á
skýrslum lögfræði-
stofunnar þar sem
Hillary vann í
Arkansas.
í fararbroddi á ný
Þegar Lewinsky-
málið blossaði upp,
snemma á þessu ári,
sýndi Hillary enn og
aftur að þegar öll
spjót standa á eigin-
manni hennar, þá er
það hún sem leiðir
baráttuna. Hún var í
fararbroddi þeirra
sem héldu uppi
vörnum fyrir forset-
ann og vakti gríðar-
lega athygli þegar
hún mætti í viðtal í
vinsælasta morgun-
þættinum í band-
arísku sjónvarpi,
„Today Show“ á
NBC, og sagði að í
gangi væri „víðtækt
samsæri hægri-
rnanna" um að
sverta mannorð for-
setans.
Skoðanakannanir á
þessum tíma sýndu
að almenningur hafði samúð með
Hillary, og sú samúð jókst enn
frekar, eftir að í ljós kom að eigin-
maður hennar hafði logið og
blekkt hana. Gríðarleg umfjöllun
fjölmiðla um framhjáhald forset-
ans og einkalíf fjölskyldunnar hef-
ur einnig leitt til að Hillai-y hefur
tekið einarða afstöðu í þá veru að
hleypa ekki fjölniiðlum inn fyrir
dyr fjölskyldulífsins. „Á þessum
opinskáu tímum Oprah Winfrey
og Jerry Springer hefur Hillary
Ciinton hafíð hetjulega baráttu
fyrir því að endurreisa þá
markalínu milli opinbers lífs og
einkalífs, sem fjölmiðlar hafa verið
að eyða á undanförnum árum,“
skrifar Ann Douglas í greininni í
Vogue.
- "Það .yiráist forsetafcúpni hafa
tekist að einhverju leyti. Þrátt fyr-
ir inikinn þrýsting um að deila
með þjóðinni vandræðum sínum í
hjónabandinu, hefur hún sagt afar
fátt um þau mál, annað en að lýsa
yfir stuðningi við eiginmann sinn.
I leiðinni hefur Hillary einnig tek-'
ist að halda virðingu sinni meðal
bandarísks almennings og undan-
farna mánuði hafa vinsældir Hill-
ary verið með því mesta sem
mælst hefur í skoðanakönnunum
síðan Clinton- hjónin komu í Hvíta
húsið. Baráttuandi hennar í nýaf-
stöðnum kosningum til þingsins
hefur fengið marga til að spá því
að hún eigi eftir að bjóða sig fram
til öldungadeildarinnar í fram-
tíðinni.
I heimaríki sínu, Illinois, naut
Hillary mikilla vinsælda í kosn-
ingabaráttunni fyrr í vetur og það
hefur einnig gefið getgátum um
pólitíska framtíð hennar byr undir
báða vængi. Einn þekktasti sjón-
varpsfréttamaður Bandaríkjanna,
Dan Rather, sagði reyndar nýver-
ið að það kæmi honum ekki á
óvart, ef hún byði sig fram til for-
seta á aldamótaárinu.
Fyrrverandi varaforsetaefni
demókrata, Geraldine Ferraro,
spáir því hins vegar að Hillary
muni bjóða sig fram á heimaslóð-
um til setu í öldungadeild Band-
aríkjaþings. „Þáð íriýndi verða
skemmtileg barátta," sagði Ferr-
aro í samtali við Washington Post
á dögunum. „Sá er sigraði nú í 111-
inois, repúblikaninn Peter Fitz-
gerald, náði kjöri vegna þess að
öldungadeildarþingkonan sem
var fyrir, átti við ákveðin
vandamál að stríða. Fitzgerald
yrði því sennilega auðveld bráð
fyrir Hillary árið 2004,“ sagði
Ferraro.
„Líklega höfum við orðið vitni
að fyi-stu skrefum Hillary að sjálf-
stæðri tilvera eftir að öllu þessu
lýkur,“ sagði sagnfræðingurinn
Doris Kearns Goodwin í samtali
við New York Times. „Hún hefur
sýnt mikinn styrk á þessum
átakatímum og getu til að viðhalda
sinni opinberu ímynd tignarlegri
og sterkri, á meðan fárviðrið
geisaði í kringum hana. Þetta eru
hæfileikar sem nauðsynlegir eru í
opinberu lífí. Kannski kemur röðin
að henni næst.“
Aðrir gera minna úr líkunum á
því að Hillary bjóði sig fram til
þings. Orðrómur var lengi vel um
að tímaritið Time hygðist útnefna
hana sem „mann ársins“. Niður-
staðan varð hins vegar sú að þeirri
vegsemd deildu þeir Bill Clinton
og Kenneth Starr. í tímaritinu er
hins vegar einnig að finna ítarlega
grein um Hillary, sem ber yfir-
skriftina „Betri helmingurinn".
Þar er haft eftir vinum hennar að
hverfandi líkur séu á því að hún
fari í framboð. Hún myndi líta á
slíkt sem skref niður á við auk
þess sem þingmennska myndi
binda hana við höfuðborgina Was-
hington, sem hún er sögð „hata“.
Meiri líkur séu á að hún muni
veita samtökum er vinna að
málefnum barna forstöðu, vinna
að hugmyndafræðilegri vinnu,
hugsanlega í tengslum við vænt-
anlegt bókasafn forsetans, sem
sett verður á laggirnar í Arkansas,
eða starfa áfram á alþjóðlegum
vettvangi, t.d. sem sérlegur sendi-
herra Sameinuðu þjóðanna eða í
forsvari fyrir mikilvæg alþjóða-
samtök.
Kaldhæðni
örlaganna
Hvað sem líður umræðu um
framtíðarstörf Hillary Clintons er
ljóst að framundan eru erfitt tíma-
bil í Hvíta húsinu. Nú nýverið
ákvað fulltráadeild Band-
aríkjaþings að leggja fram ákæra
á hendur eiginmanni hennar til
embættismissis og á komandi vik-
um mun sennilega ráðast hvaða
framgang málið hlýtur í öldunga-
deildinni.
Fyrir aldarfjórðungi, þegar
Hillary Rodham giftist Bill Clint-
on, var talað um að hún hefði
fórnað starfsframanum fyrir eig-
inmanninn. Eitt af fyrstu verkum
hennar, eftir að hún útskrifaðist
frá lögfræðideild Yale-háskólans,
var að vinna fyrir fulltráadeild
Bandaríkjaþings, á meðan deildin
var að rannsaka meint embættis-
afglöp Richards Nixons - kald-
hæðni örlaganna sá fyrir því að
hún tók þátt í að móta reglur og
ferli sem gætu verið notaðar á
næstu mánuðum, í þetta skiptið
gegn eiginmanni hennai-.