Morgunblaðið - 03.01.1999, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
h
FRÉTTIR
FORSETI íslands með þeim 11 einstaklingum sem sæmdir voru fálkaorðunni á nýársdag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forseti sæmir 11
manns fálkaorðunni
VIÐ athöfn á Bessastöðum 1.
janúar sæmdi forseti Islands
eftirtalda Islendinga heiðurs-
merkjum hinnar íslensku fálka-
orðu:
Einar Egilsson, Köpavogi,
riddarakrossi fyrir fræðslu um
náttúru Iandsins.
Gerði G. Óskarsdóttur fræðslu-
stjóra, Reykjavík, riddarakrossi
fyrir störf að fræðslu- og skóia-
málum.
Dr. Guðmund Guðmundsson
verkfræðing, Akranesi, riddara-
krossi fyrir rannsóknar- og þró-
unarstörf í þágu sementsiðnaðar.
Harald Ásgeirsson verkfræð-
ing, Reykjavík, stórriddarakrossi
fyrir rannsóknar- og þróunar-
störf í þágu byggingariðnaðar.
Helgu Ogmundsdóttur lækni,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
vísindastörf.
Ingvar Helgason forstjóra,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir
störf að atvinnu- og líknarmál-
um;
Ólaf Ólafsson, fv. landlækni,
Reykjavík, stórriddarakrossi fyr-
ir læknisstörf.
Dr. Pál Skúlason háskólarekt-
or, Reykjavík, riddarakrossi fyr-
ir fræðistörf.
Sigrúnu Gísladóttur skóla-
stjóra, Garðabæ, riddarakrossi
fyrir störf að málefnum grunn-
skóla.
Svanhildi Hermannsdóttur
skólastjóra, Barnaskóla Bárð-
dæla, Stóru Völlum, riddara-
krossi fyrir störf að æskulýðs- og
menningarmálum í dreifbýli.
Þórunni Pálsdóttur hjúkrunar-
forstjóra, Reykjavík, riddara-
krossi fyrir störf í þágu geðfatl-
aðra.
Orkuveita
Reykjavíkur
MERKI Orkuveitu Reykjavíkur.
Nýtt merki
Orkuveitu
Reykjavíkur
UM ÁRAMÓTIN sameinuðust
Rafmagnsveita Reykjavíkur og
Hitaveita Reykjavíkur í nýtt fyrir-
tæki, Orkuveitu Reykjavíkur. Tók
hið nýja íyrirtæki við öllum skuld-
bindingum hinna fyrirtækjanna
bæði gagnvart viðskiptavinum og
starfsmönnum. Höfuðstöðvar fyrir-
tækisins verða á Suðurlandsbraut
34. Forstjóri fyrirtækisins er Guð-
mundur Þóroddsson.
Enn um sinn verður afgreiðsla
heita vatnsins á Grensásvegi 1, og
rafmagnsins á Suðurlandsbraut 34,
eða eins og verið hefur. Um leið og
Orkuveita Reykjavíkur hefur starf-
semi verður tekið í notkun nýtt
auðkennismerki fyrirtækisins.
Efnt var til lokaðrar samkeppni
teiknara undir stjórn Gísla B.
Bjömssonar og valdi dómnefnd,
sem skipuð var fulltrúum beggja
fyrirtækjanna og Reykjavíkur-
borgar hið nýja merki.
Höfundur þess er Jóna Sigríður
Þorleifsdóttir, starfsmaður auglýs-
ingastofunnar AUK. I merkinu er
unnið með vatnsyfirborð, eldingar
og bókstafinn „0“ og er viðfangs-
efnið virkjun vatns og orkudreif-
ing. Svarti punkturinn í miðju
merkisins er útgangspunkturinn,
en hringiðan út frá miðjupunktin-
um á að tákna náttúruna, orku,
heitt og kalt vatn. Straumiðan
verður að orku sem dreifist og er
táknuð með eldingum.
Ríkisskatt-
stjóri opnar
upplýsingavef
GEIR H. Haarde fjármálaráð-
herra opnaði upplýsingavef rík-
isskattstjóra á Netinu síðastlið-
inn miðvikudag. Á vefsíðunni
má finna allar helstu upplýsing-
ar um skattamál, s.s. um skatta-
reglur, eftirlit, skattskil og
framtöl einstaklinga, fyrirtækja
og sjóða. Á myndinni má einnig
sjá þá Garðar Valdimarsson,
fráfarandi ríkisskattstjóra, og
Indriða H. Þorláksson, sem tók
við embætti ríkisskattstjóra nú
um áramótin, fylgjast með þeg-
ar íjármálaráðherra kynnti sér
hina ýmsu möguleika sem upp-
lýsingavefurinn býður upp á.
Morgunblaðið/Þorkell
Hefðbundinn
erill á slysadeild
SEXTÍU og þrír leituðu aðstoðar á
slysadeild Borgarspítala frá mið-
nætti á gamlárskvöld til klukkan
átta á nýársdagsmorgun, sam-
kvæmt upplýsingum frá vaktlækni
á deildinni. Nákvæm tala um óhöpp
af völdum flugelda liggur ekki fyrir
en þau eru að jafnaði um 10 til 15
um áramót, og var fjöldi þeirra
svipaður að þessu sinni.
Óhöpp þessi voru flest minnihátt-
ar, einna verst handarbrot manns
sem hafði haldið á flugeldi þegar
honum var skotið á loft. Sprakk
flugeldurinn í höndum mannsins.
Flestir þeirra sem leituðu til slysa-
deildar höfðu áverka af völdum bar-
smíða eða höfðu orðið fyrir skaða í
kjölfar áfengisneyslu, og voru slys
af því tagi um fimmfalt algengari en
flugeldaslys. Talsverður erill var á
slysadeild frá hádegi á nýársdag
fram á kvöld, en nóttin var tíðinda-
lítil.
Féll fram af svölum
Alvarlegasta slys sem kom til
kasta slysadeildar um áramótin var
um klukkan 13 á nýársdag, þegar
unglingsstúlka féll fram af svölum
íbúðar á annarri hæð við Klepps-
veg. Gekkst stúlkan undir aðgerð á
spítalanum og mun vera talsvert
slösuð, en þó ekki í lífshættu.
Símamenn f
segja sig úr
BSRB
FÉLAG íslenskra símamanna hefur
samþykkt úrsögn úr Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja. Jafn-
framt hefur félagið sótt um aðild að \
Rafiðnaðarsambandi íslands. Einar
Gústafsson, fórmaður FÍS, segir að |
ástæðan fyiir úrsögninni sé sú að *
félagsmenn séu ekki lengur ríkis-
starfsmenn og eigi því ekki lengur
samleið með opinberum starfs-
möpnum.
Á þingi FÍS í nóvember sl. var
samþykkt að láta fara fram at-
kvæðagreiðslu meðal félagsmanna
um úrsögn úr BSRB. Samkvæmt
lögum félagsins verður helmingur k
félagsmanna eða 2/3 þátttakenda í
allsherjaratkvæðagi-eiðslu að sam- í
þykkja úrsögn til að hún sé lögleg. *
Á kjörskrá voru 552. 350 tóku þátt í
atkvæðagreiðslunni og samþykktu
318 úrsögn eða 93,5%, en 19 lýstu
andstöðu við hana eða 5,6%.
Úrsögnin tók gildi um áramótin.
Ekki hefur formlega verið gengið
frá inngöngu FIS í Rafiðnaðarsam-
bandið, en Einar segir að félagið sé
búið að breyta lögum svo fátt ætti |
að vera í vegi fyrir því að félagið |
geti orðið aðili að Rafiðnaðarsam- |
bandinu.
Ganga í RSÍ
„Við erum ekki lengur opinberir
starfsmenn og teljum okkur því
ekki eiga að vera í samtökum opin-
berra starfsmanna. Ég vil taka
fram að okkur hefur liðið ágætlega
að tilheyra BSRB, en aðstæður eru
einfaldlega breyttar og það passar |
okkur ekki lengur að fylgja þeim.
Við eigum meiri samleið með Raf-
iðnaðarsambandinu," segir Einar.
Rafiðnaðarsambandið á aðild að
Alþýðusambandi íslands og öðlast
símamenn því aðild að ASI um leið
og þeir ganga í Rafiðnaðarsam-
bandið.
---------------
Prófkjör samfylking-
arinnar í Reykjavík
Heimir Már
Pétursson í
framboði
HEIMIR Már Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins, k
hefur ákveðið að gefa kost á sér í
prófkjöri samfylkingarinnar í
Reykjavík fyrir alþingiskosningarn- r
ar í vor. Tilkynnti hann þessa
ákvörðun sína á fréttamannafundi í
gær.
Samkvæmt prófkjörsreglum sem
samþykktar hafa verið í stofnunum
Alþýðubandalagsins og Alþýðu-
flokksins verður framboðslistanum
skipt í hólf á milli flokkanna og seg-
ist Heimir Már stefna á eitt af i
þremur efstu sætunum í hólfi Al-
þýðubandalagsins í prófkjörinu.
Heimir Már mun ekki gegna ®
starfi framkvæmdastjóra Alþýðu-
bandalagsins næstu sex vikurnar
samkvæmt samkomulagi sem hann
hefur gert við Margréti Frímanns-
dóttur, formann flokksins.
Heimir Már er fæddur á ísafirði
20. maí 1962. Hann lauk stúdents-
prófi frá Fjölbrautaskólanum við
Áimúla 1985 og BA-prófi í stjórn- k
málafræði og fjölmiðlafræði frá Há-
skóla íslands 1989. Heimir Már var
fulltrúi vinstrimanna í stúdentaráði *
1987-1989. Hann var blaðamaður á
Þjóðviljanum 1988-1990, ritstjóri
Norðurlands á Akureyri 1990-1991
og fréttamaður á Stöð 2 og Bylgj-
unni 1991-1996. Heimir Már er í
staðfestri samvist með Jóni Árna
Jóhannessyni framreiðslumanni og
hafa þeir búið saman í níu ár. Heim-
ir Már hefur gefið út þrjár ljóða- |
bækur og eitt ljóðablað. Þá hefur
hann samið texta við lög bróður f
síns, Rúnars Þórs, á um tíu hljóm-
plötur. . i