Morgunblaðið - 03.01.1999, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
SUNNUDAGUR 3. JANÚAR 1999 11
* l íýíoi sfoíva <5 e*tr*u ) W8
HÆðvttn*
_____*.»>* m
WtXWm
0-108m
iisfcie»í»t«me>«S!> «w *»*uiS Qð
mtíMdwOrKSltun ÍW«(r«
Landssíminn með 47 nýjar
GSM-stöðvar í fyrra
LANDSSÍMINN tók í notkun 47
nýjar GSM-stöðvai' og -senda á ár-
inu 1998, samkvæmt upplýsingum
frá fyrirtækinu.
Víða hafa stöðvar og sendar verið
sett upp til að bæta samband þar
sem það var lélegt, t.d. á svonefnd-
um „skuggum“ innan höfuðborgar-
svæðisins. Einnig hafa bæst við á ár-
inu 13 staðir úti á landi þar sem ekk-
ert GSM-samband var áður.
Þar er um að ræða Raufarhöfn,
Þórshöfn, Sámsstaði í Eyjafirði,
Hvalfjarðargöngin, Búðardal,
Hólmavík, Þingeyri, Tálknafjörð,
Bíldudal, Súðavik, Suðureyri, Vaðla-
heiði og Breiðdalsvík.
Eins og meðfylgjandi kort ber
með sér er nú GSM-senda frá
Landssímanum að finna á flestum
þéttbýlisstöðum á landinu.
Að sögn Ólafs Þ. Stephensen, tals-
manns Landssímans, stefnir fyrir-
tækið að því að halda áfram uppbygg-
ingu kerfisins í þéttbýli um afit land
og er markmiðið að menn geti verið í
GSM-sambandi allan hringveginn.
Yfirlit Veðurstofunnar um tíðarfarið árið 1998
Gott sumar sunnanlands
SAMKVÆMT bráðabirgðayfirliti
Veðurstofu Islands um tíðarfarið á
árinu 1998 kemur fram að hiti í
Reykjavík og á Akureyri var ná-
lægt meðallagi áranna 1961-1990.
Febrúar, mars og apríl voru nolck-
uð kaldir um land allt og auk þess
var kalt í júní og júh um norðaust-
an- og austanvert landið. I Reykja-
vík var ágúst hinn hlýjasti um
nærri 30 ára skeið, en sólskins-
stundir voru þá reyndar langt und-
ir meðallagi.
I Reykjavík og á Akureyri voru
ekki veruleg frávik í úrkomu, en
apríl og september skáru sig úr í
úrkomu í Reykjavík þar sem úr-
koma var aðeins um þriðjungur af
meðalúrkomu. Mjög þurrt var á
Akureyri í maí og júní og mældist
úrkoma í þessum tveim mánuðum
aðeins 15 mm. Sólskinsstundir í
Reykjavík mældust aOs 1401 og er
það 133 stundum umfram meðallag.
A Akureyri mældist sólskin í 1003
klukkustundir eða aðeins minna en í
meðalári.
Snjólétt var um mest allt land og
veður lengst af hæglátt. Verulegt
kuldakast gerði síðari hluta febr-
úar og fyrri hluta mars. Frostið
komst í 35 stig við Mývatn og sums
staðar norðaustanlands mældist
meira frost en um nokkurra ára-
tuga skeið.
Sumarið þótti gott sunnanlands,
sérstaklega framan af og aftur í
lokin. Um stóran hluta Norðaust-
ur- og Austm-lands var sumarið
kalt og dauft.
Haustveðráttan var meinlítil, en
fremur kalt var í október og rysjótt
tíð um skeið um norðanvert landið.
tíðin í nóvember og desember hef-
ur verið hagstæð og snjólítil.
Erfítt að uppræta lús í einstaka tilfellum
Mikilvægt að for-
eldrar fari eftir
leiðbeiningum
HARLUS uppgötvast í nær öllum
grunnskólum landsins á hverju
hausti, en svo virðist sem erfiðlega
gangi að uppræta hana í einstaka
tilfellum. í sumum skólum skýtur
hún því upp kollinum aftur og aftur.
Ásdís Sæmundsdóttir skólahjúkr-
unarfræðingur í Mosfellsbæ segir
að þegar lúsar verði vart í skólum
sé yfirleitt sá háttur hafður á að for-
eldrum eða forráðamönnum bama
séu sendir leiðbeiningarbæklingar
um það hvernig leita eigi að lús og
eyða henni. Hún segir mikilvægt að
foreldrar fari eftir þeim leiðbeining-
um og leiti að lús í hári bamsins eða
bamanna með lúsakambi en að
einnig þui-fi að kemba hár hvers og
eins á heimilinu og þá sem barnið
hafi umgengist. Eftirgrennslan hafi
hins vegar allt of oft leitt í ljós að
foreldrar fari ekki eftir þessum leið-
beiningum og segir hún að það eigi
sinn þátt í því hve erfitt sé að út-
rýma lúsinni.
Asdís bendir á að sérstakir lúsa-
kambar fáist í flestum apótekum og
sömuleiðis fáist þar lúsasjampó með
nákvæmum leiðbeiningum. Hún
segir að sé kamburinn notaður ætti
lúsin að sjást mjög greinilega en
tekur fram að óþarfi sé að nota
sjampó ef engin er lúsin. Komi hins
vegar í Ijós að einhver á heimilinu
hafi lús verður að nota tilætlað
lúsasjampó en haida áfram að
kemba hárið næstu tíu daga á eftir
til þess að fylgjast með því að nit
lúsarinnar hafi drepist. Að öðrum
kosti klekst hún út og fleiri lúsa
verður vart. Þá segir hún að lúsin
geti lifað í húfum og fótum í um
þrjátíu til fimmtíu klukkutíma og
því væri gott að setja húfur í frysti
til að drepa hugsanlega lús eða nit.
Einnig væri gott að þvo sængurfót
og annan fatnað. „Til þess að upp-
ræta lús er þó mikilvægast að
kemba og kemba og ætti lúsakamb-
ur að vera til á hverju heimili því
lúsin fer ekki í manngreinarálit,"
segir hún og leggur áherslu á
ábyrgð foreldranna í þessu sam-
bandi. Skólahjúkrunarfræðingar
séu einungis til þess að leiðbeina og
hjálpa.
Frekara mat á umhverfís-
áhrifum Vatnsfellsvirkjunar
Virkjanir á Þjj uiígnáársvæði
UaténttsaisUmelta
Sauðafellslón
I + 60 MW
■ Vlrkjun
k Stífla
— Skurður
— Göng
HAFIÐ er frekara mat á umhverf-
isáhrifum Vatnsfellsvirkjunar, sem
fyrirhugað er að reisa ofan Sigöldu-
virkjunar. Umhverfisráðherra úr-
skurðaði 31. ágúst sl. að fram skyldi
fara frekara mat á umhverfisáhrif-
um framkvæmdarinnar þar sem
ekki er gert ráð fyrir vatnsmiðlun
um Norðlingaölduveitu, eins og
frummatsskýrsla gerði ráð fyrir.
Skýrsla um frekara mat á um-
hverfisáhrifum virkjunarinnar er í
meginatriðum samhljóða frum-
matsskýrslunni, segir í fréttatil-
kynningu frá Skipulagsstofnun, en
helstu breytingarnar felast í því að
gert er ráð fyrir minna afli vh'kjun-
arinnar, allt að 110 MW í stað allt
að 140 MW eins og gert var ráð fyr-
ir í frummatsskýrslu.
Ný vegtenging og 220 kV
háspennulína
Niðurstaða frekara mats á um-
hverfisáhrifum er samkvæmt
matsskýrslu sú sama og frum-
matsins, þ.e. að umhverfisáhrif á
framkvæmdatíma verði fólgin í
raski samfara efnisnámi í stíflur
og af völdum efnisflutninga innan
virkjunarsvæðis. Helstu breyting-
ar á svæðinu verða vegna lands
sem fer undir lón, 220 kV raflínu
milli Vatnsfells og Sigöldu og
vegagerðar að virkjuninni og veg-
tengingu inn í Veiðivötn. Talið er
að litlar breytingar verði á vatns-
streymi þar sem vatnið mun eftir
sem áður renna í farvegi Vatns-
fellsskurðar, en hann mun verða
dýpkaður neðan stöðvarhúss.
Helstu breytingar á yfirborðsvatni
og grunnvatni verða hins vegar af
völdum fyrirhugaðs lóns við virkj-
unina.
Helstu mótvægisaðgerðir vegna
umhverfisáhrifa framkvæmdarinn-
ar verða fólgnar í hönnun mann-
virkja og landmótun í lok fram-
kvæmdar. Stöðvarhús verður lítt
áberandi í umhverfinu, segir í
skýrslunni, þar sem það verður
grafið niður að stórum hluta og há-
spennulínan lögð að mestu samsíða
núverandi 11 kV línu þannig að
ekki verði farið yfir ósnortið land.
Matsskýrslan liggur frammi frá
30. desember 1998 til 3. febrúar
1999 á skrifstofum Asahrepps,
Djúpárhrepps, í Þjóðarbókhlöðunni
og hjá Skipulagsstofnun í Reykja-
vík. Almenningi gefast fimm vikur
til að kynna sér framkvæmdina og
leggja fram athugasemdir, sem
skulu berast Skipulagsstofnun eigi
síðar en 3. febrúar 1999.
Uthlutað
úr minningar-
sjóði Karls
Sighvatssonar
ÁRLEG úthlutun úr niinningar-
sjóði Karls J. Sighvatssonar fór
fram á Hótel Borg á miðvikudag-
inn og hlaut Agnar Már Magnús-
son námsstyrkinn að þessu sinni.
Tónlistarferill Agnars Más
hófst í Tónlistarskóla Hafnar-
Qarðar þegar hann var 7 ára
gamall. Fimmtán ára flutti hann
sig yfír í Tónlistarskóla FÍH og
Iauk þaðan námi með ágætisein-
kunn vorið 1995. Hann hélt utan
til náms í Hollandi haustið 1995
og mun útskrifast þaðan í vor.
Minningarsjóðurinn hefur und-
anfarin ár styrkt unga tónlistar-
menn í orgel- og kirkjutónlistar-
námi eða hljómborðsleik. Styrks-
upphæðin hækkaði að þessu sinni
úr 200 þúsund krónum í 250 þús-
und krónur en sjóðurinn var upp-
haflega fjármagnaður með tón-
leikahaldi, plötuútgáfu og fram-
lögum velunnara Karls J. Sig-
hvatssonar.